Fleiri
Hagnaðarhlutfall sjávarútvegs lakara árið 2010 1.2.2012 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Heildartap lífeyrissjóðanna eftir hrun tæplega 500 milljarðar króna Heildartap lífeyrissjóðanna árin 2008 til 2010 er áætlað 479 milljarðar króna. Þar af eru innlend hlutabréf 198 milljarðar. 3.2.2012 13:58
Taka skýrsluna til ítarlegrar skoðunar Lífeyrissjóður verzlunarmanna segist ætla að taka skýrslu Hrafnsnefndarinnar, um stöðu starfsemi lífeyrissjóða í aðdraganda bankahrunsins, til ítarlegrar skoðunar. Þetta segir í tilkynningu sem stjórn sjóðsins sendi frá sér í dag. 3.2.2012 18:06
Ríflega þriðjungshlutur í Íslenskum verðbréfum til sölu Eigendur að 36% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. hafa falið fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Íslandsbanka hf., Hildu hf. og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. 3.2.2012 15:51
Bankarnir réðu oft fjárfestingum lífeyrissjóðanna Bankarnir réðu ferðinni oft á tíðum í fjárfestingum lífeyrissjóðanna fyrir hrun að sögn Hrafns Bragasonar, fyrrverandi hæstaréttardómara. Þetta kom fram í erindi hans á fundi um starfsemi lífeyrissjóðina fyrir hrun. 3.2.2012 15:35
Töpuðu hátt í 250 milljörðum á Baugi og Exista og félögum tengdum þeim Tap lífeyrissjóðanna vegna Baugs Group hf., sem nú er í slitameðferð, er áætlað 4,8 milljarðar króna. Þetta kom fram á blaðamannafundi rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun, sem haldinn er á Grand Hóteli. Ef Baugur og tengd félög eru tekin með er tapið um 77 milljarðar króna. 3.2.2012 14:34
Rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna kynnt í dag Blaðamannafundur rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun hefst núna klukkan tvö á Grand Hóteli. Nefndin skilar í dag af sér skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar. 3.2.2012 13:54
Sjóvá sendir feitan tékka til viðskiptavina Sjóvá endurgreiðir í dag 381 milljón króna til viðskiptavina Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá í dag og næstu daga endurgreidda um 381 milljón króna. 3.2.2012 11:04
Aldrei fleiri ferðamenn til landsins í janúar Erlendir gestir í janúar hafa aldrei verið fleiri og í ár, eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug. Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.900 fleiri brottfarir en á árinu 2011. Erlendum gestum fjölgaði því um 17,5% í janúarmánuði á milli ára. 3.2.2012 09:17
Vöruskiptin hagstæð um 12 milljarða í janúar Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2012 var útflutningur tæpir 49,3 milljarðar króna og innflutningur fob 37,2 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 12,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 3.2.2012 09:09
Gistinóttum fjölgaði um 27% milli ára í desember Gistinætur á hótelum í desember voru 69.200 samanborið við 54.300 í desember 2010. Þetta er 27% aukning milli ára. 3.2.2012 09:06
Misskipting eigna heimilanna hefur aukist verulega Tölur benda til þess að misskipting eigna meðal íslenskra heimila hafi aukist verulega frá hruninu haustið 2008. 3.2.2012 07:28
Mikill samdráttur í bílaumferð á landinu Umferð á 16 mælistöðvum Vegagerðarinnar í nýliðnum janúar dróst í heild saman um ríflega tíu prósent miðað við sama mánuð fyrir ári. 3.2.2012 07:24
Skuldatryggingaálag Íslands fer lækkandi Skuldatryggingaálag Íslands er 292 punktar og hefur verið samfellt undir 300 punktum síðan 20. janúar síðastliðinn. Um síðustu áramót stóð það í 317 punktum en á sama tíma í fyrra var það 279 punktar. 3.2.2012 06:46
Tekjur Marels jukust um 15% Marel hagnaðist um 34,5 milljónir evra, jafngildi 5,6 milljarða króna, á árinu 2011. Til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins árið 2010 13,6 milljónir evra. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrirtækisins sem var birt í fyrradag. Skýrist bætt afkoma helst af því að tekjur frá kjarnastarfsemi jukust um 15 prósent á árinu. 3.2.2012 06:00
Ekkert vín í kjallara Steingríms og Ingólfs Ekkert fokdýrt vínsafn er að finna í kjallara geymsluhúsnæðis að Smiðshöfða sem er í eigu Ingólfs Helgasonar og Steingríms P. Kárasonar, fyrrverandi stjórnenda hjá Kaupþingi. Þessu komst slitastjórn bankans að þegar hún fór loksins inn í kjallarann í fyrradag eftir margra mánaða þref í réttarkerfinu. 3.2.2012 04:00
Segir olíufélögin aðeins fá brot af bensínverðinu "Samsetningin á verðinu er þannig að erlenda verðið og flutningur er 110 krónur. Ríkið er að fá 120 krónur í sinn vasa og innlendir aðilar eru að fá á bilinu 26-27 krónur í sinn hlut,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Hann segir að þetta sé einföld staðreynd sem allir geti reiknað sem kunni slíkan reikning. 2.2.2012 22:39
Efnahags- og viðskiptaráðherra vill skoða upptöku Tobin-skatts Efnahags- og viðskiptaráðherra segir vel koma til greina að taka upp skattlagningu á gjaldeyrisviðskipti samhliða afnámi hafta. Prófessor í hagfræði segir að slík skattlagning eða upptaka evru með aðild að Evrópska myntbandalaginu, sé eina leiðin fyrir Íslendinga til að afnema verðtryggingu og fá stöðugt verðlag hér á landi. 2.2.2012 20:00
Þrír starfsmenn KPMG í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara Þrír starfsmenn endurskoðunarfyrirtækisins KPMG hafa verið færðir til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara en starfsmenn embættisins komu í höfuðstöðvar KPMG í morgun. 2.2.2012 14:31
Össur hannar sóla í samstarfi við Nike íþróttaframleiðandinn Nike er kominn í samstarf með stoðtækjaframleiðandanum Össuri. Fyrirtækið hannar og þróar hlaupasóla yfir gervifót sem Nike mun svo framleiða. 2.2.2012 14:53
Hrafnhildur og Garðar Hólm hlutu verðlaun Skúla Fógeta Í tilefni af 300 ára afmæli Skúla Magnússonar Fógeta þann 11. desember 2011 ákvað fyrirtækið GAMMA að stofna til verðlauna sem afhent verða árlega fyrir bestu meistararitgerð á sviði fjármála og efnahagsmála á árinu 2011. Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Garðar Hólm Kjartansson deila verðlaunum að þessu sinni. 2.2.2012 13:19
Nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs 365 miðla Gunnlaugur Þráinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðssviðs 365 miðla. Gunnlaugur er rekstrarfræðingur að mennt og var markaðsstjóri N1 s.l. þrjú ár. 2.2.2012 12:39
Rannsóknarskýrslu um lífeyrissjóði skilað á morgun Skýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða fyrir hrun verður skilað á morgun klukkan 14:00 til forsvarsmanna Landssamtaka lífeyrissjóða. Hrafn Bragason, fyrrverandi Hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndarinnar, staðfesti þetta við fréttastofu í morgun. 2.2.2012 10:48
Byggðastofnun lánaði 4,6 milljarða til ferðaþjónustu Í árslok í fyrra voru heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 4,6 milljarðar kr. Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar kr. til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi. 2.2.2012 10:38
Vöruskiptin voru neikvæð í desember Vegna villu í grunngögnum í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd í fyrra . Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða kr. í heild sem þýðir að vöruskiptin voru neikvæð um 0,6 milljarða kr. í þeim mánuði. 2.2.2012 09:11
Hætt að hafa Nóatúnsverslanir opnar allan sólarhringinn Nóatúnsverslanir eru ekki lengur opnar allan sólarhringinn, eins og verið hefur frá því í mars árið 2010. 2.2.2012 06:55
Á öndverðum meiði um næstu vaxtáákvörðun Sú athyglisverða staða er komin upp viku fyrir næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans að fjárfestar og sérfræðingar eru á öndverðum meiði um hvort vextirnir verði hækkaðir eða ekki. 2.2.2012 06:50
Hægt að beisla verðbólguna með evru eða Tobin-skatti Náin tengsl breytinga á gengi krónunnar og verðbólgu hafa orðið til þess að rýra trúverðugleika Seðlabankans. Þetta kemur fram í nýrri grein Gylfa Zoëga hagfræðiprófessors í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar. Gylfi, sem sæti á í peningastefnunefnd Seðlabankans, bendir á að árið 2003 sé eini tíminn þar sem bankinn hafi náð verðbólgumarkmiði sínu. 2.2.2012 06:00
Ákvörðun tekin á næstu dögum Frestur til að skila bindandi tilboðum í hlut þrotabúa Landsbankans, sem á 67%, og Glitnis, sem á 10%, í Iceland Foods rann út á þriðjudagskvöld. 2.2.2012 03:15
Stefnir ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti Friðjón Þórðarson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfafyrirtækisins Virðingar, hefur stefnt íslenska ríkinu vegna meðferðar lögregluyfirvalda á sakamáli gegn honum. Stefnan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 1.2.2012 22:33
Vill að Samkeppniseftirlitið skoði verðlagningu olíufélaganna Olíufélögin hafa sætt færis og lætt inn hækkunum á álagi sínu á bensín samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði og skattahækkunum. Þetta segir formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem villl að Samkeppniseftirlitið skoði hvort að ekki óeðlilegt að verðmunur á milli olíufélaga sé aðeins þrjátíu aurar. 1.2.2012 19:12
Halldór J. samþykkti að vera áfram gegn 125 milljóna greiðslu Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns Þ. Árnasonar, óskaði eftir að láta af störfum hjá bankanum í ágúst 2008, rétt fyrir hrunið, en ákvað að vera áfram gegn 125 milljóna króna greiðslu. Sigurjón Þ. Árnason, fékk þá sömu greiðslu, sem fór beint í einkalífeyrissjóð hans hjá bankanum. 1.2.2012 19:06
World Class opnar tíundu líkamsræktarstöðina World Class opnar nýja líkamsræktarstöð í Egilshöll í Grafarvogi næstkomandi mánudag. Um verður að ræða tíundu líkamsræktarstöðina sem World Class rekur á höfuðborgarsvæðinu, en sú stærsta er í Laugardal eins og flestir vita. 1.2.2012 20:47
Útboð á sérleyfum til olíurannsóknar stendur nú sem hæst Útboð á sérleyfum til olíurannsókna og -vinnslu á Drekasvæðinu stendur nú sem hæst samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. 1.2.2012 15:16
Sparnaður Sigurjóns fimmfaldaðist á þremur árum Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, gerði róttækar breytingar á lífeyrissparnaði sínum rétt fyrir bankahrunið. Þá fimmfaldaðist sparnaður Sigurjóns á þremur árum og stóð í 566 milljónum króna í haust, en þessar upplýsingar komu fram við aðalmeðferð í máli hans gegn Landsbankanum. Tveimur mánuðum fyrir hrun keypti hann eignir í erlendum myntum, m.a skuldabréf rússneska fyrirtækisins Gazprom. 1.2.2012 13:41
Einstaklingum líði betur í jafnara samfélagi "Ég ætla að gefa þér hundrað þúsund kall. Ertu sáttur?" spyr Ragna Benedikta Garðarsdóttir, doktor í félagssálfræði, fréttamann í nýjasta þætti Klinksins. 1.2.2012 20:15
Efnishyggjan aukist eftir hrun Rannsóknir lektors í sálfræði við Háskóla Íslands benda til þess að efnishyggja sé að aukst á Íslandi eftir hrun bankanna. Hún segir að efnishyggja fólks hafi ráðið meiru um skuldsetningu þess en bæði tekjur og fjármálalæsi. 1.2.2012 18:45
Þrotabú Landsbankans fer yfir tilboð í Iceland Foods Verið er að skoða þau tilboð sem bárust inni í Iceland Foods verslunarkeðjuna samkvæmt upplýsingum frá þrotabúi Landsbankans. Reuters greindi frá því fyrr í dag að talið væri að fjárfestingasjóðirnir Bain Capital og BC Partners væru meðal þeirra sem hefðu gert tilboð í keðjuna. 1.2.2012 14:50
Nokkur munur á loðnuverði til sjómanna hér og í Noregi Nokkur munur er á því verði sem íslenskir sjómenn fá fyrir loðnuna og norskir. Þannig er opinbert verð á kílói á loðnu til manneldis, það er frystingar, um 38 krónur í Noregi. Hér heima er verðið rétt fyrir innan 30 krónur. 1.2.2012 10:37
Sigurjón krefst afhendingar á sparnaðinum sínum Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankstjóri Landsbankans, krefst viðurkenningar á því að í gildi sé samningur milli hans og Landsbankans um viðbótarlífeyrissparnað og þá krefst hann afhendingar á skuldabréfum sem keypt voru fyrir sparnaðinn, en aðalmeðferð í máli hans gegn Landsbankanum stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur. 1.2.2012 09:51
Fyrirsjáanlegt að afkoma búanna skerðist Viðbúið er að afkoma íslenskra svínabænda verði lakari, komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Svínaræktarfélag Íslands, um stöðu og horfur í svínarækt. 1.2.2012 06:00