Fleiri fréttir

Eiga rétt á bótum eftir að sprengjuhótun tafði för
Fjórir farþegar ungverska flugfélagsins Wizz Air eiga rétt á bótum frá félaginu vegna tafa sem urðu á för þeirra sem rekja má til sprengjuhótunar á flugvellinum í Kraká í Póllandi.

Opnað fyrir skil á skattframtali
Opnað verður fyrir skil á skattframtali síðar í dag vegna tekna á árinu 2022. Skilafrestur framtalsins er til 14. mars.

Pósthúsið í Mjóddinni kveður og póstafgreiðsla víða úti á landi
Pósturinn hyggst loka pósthúsum á næstunni og meðal þeirra sem hverfa á braut er pósthús Breiðhyltinga í Mjódd og Ólsara í Ólafsvík. Forstjóri Póstsins segir breytingarnar í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda.

Brutu lög með auglýsingu um „allt að 40% ódýrara“ áfengi
Rekstraraðili Nýju vínbúðarinnar braut lög með auglýsingum á heimasíðu sinni með fullyrðingum um „allt að 40% ódýrara“ vín, án þess að taka fram um við hvað væri átt.

Fá um 190 þúsund vegna altjóns á ferðatösku af dýrari gerðinni
Icelandair hefur verið gert að greiða viðskiptavinum tæpar 190 þúsund krónur vegna tjóns sem varð á innritaðri ferðatösku af dýrari gerðinni á meðan hún var í vörslu flugfélagsins.

„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“
Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi.

„Brjálæðislega dýr bjór“ bitni á ferðaþjónustunni og tekjulágum
Enn og aftur hefur Íslandi tekist að bæta Evrópumetið í áfengissköttum. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda gagnrýnir hækkunina harðlega. Hún bitni á ferðaþjónustunni og þeim sem hafa minnst á milli handanna.

Allt að 366 prósenta munur í verðkönnun ASÍ
Meiri munur var á verði milli matvöruverslana en áður í verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sem framkvæmd var í febrúar. Meðalverð var hæst í Iceland, að meðaltali 54% frá lægsta verði.

Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans
Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku.

Með birgðir fram yfir helgi
Nóg af birgðum eru í Bónus fram yfir helgi. Örfáir eru byrjaðir að hamstra og labba út með fleiri vörur en venjulega. Markaðsstjórinn segist ekki of stressaður.

Svona er staðan á bensínstöðvunum
Olíufyrirtækið N1 hefur lokað fyrir afgreiðslu á bensíni eða dísel á nokkrum stöðvum á suðvesturhorninu. Tankar eru víða að tæmast.

Löng bið eftir bensíni hjá Costco
Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni.

Mesta kjarabót heimilanna að losna við krónuna
Hagfræðingur segir það yrði mesta kjarabót heimilanna ef evra yrði tekin upp á Íslandi. Enginn íslenskur iðnaður vilji halda krónunni, stjórnmálamenn séu þeir einu sem vilji halda henni.

Bensínið gæti klárast á fimmtudag
Forstjóri Skeljungs segir að bensín bensínstöðva gæti klárast strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum.

Mismunandi áhyggjur en allir sammála um þyngri róður
Verðbólgan og vaxtahækkanirnar að undanförnu hafa ekki farið framhjá almenningi. Nokkrir viðmælendur fréttastofu lýsa yfir miklum áhyggjum af stöðu unga fólksins.

Endurreikna lán og hafa samband staðfesti æðri dómstólar dóminn
Landsbankinn reiknar líkt og Neytendasamtökin með að áfrýja dómi þess efnis að bankinn skuli greiða hjónum tvö hundruð þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Komist æðri dómstólar að sömu niðurstöðu ætlar bankinn að eiga frumkvæði að því að endurreikna öll lán sem falli undir fordæmið.

Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun
Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun.

„Allt í þessum drykk er bara drasl“
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna.