Neytendur

Löng bið eftir bensíni hjá Costco

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Löng bið var eftir bensíni hjá Costco í Kauptúni í hádeginu. Verkfall olíubílstjóra á höfuðborgarsvæðinu hefst á miðvikudag.
Löng bið var eftir bensíni hjá Costco í Kauptúni í hádeginu. Verkfall olíubílstjóra á höfuðborgarsvæðinu hefst á miðvikudag. Vísir/Vilhelm

Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni.

Verkföll olíubílstjóra, starfsmanna Beraya hótela og starfsmanna Edition hótelsins hefjast á miðvikudaginn. Forstjóri Skeljungs telur að bensínstöð fyrirtækisins á Vesturlandsvegi geti ekki boðið upp á bensín degi eða tveimur eftir að verkfall skellur á.

Þessir ætla að byrja vikuna með fullan tank.Vísir/Vilhelm

Þess er beðið að Landsréttur komist að niðurstöðu varðandi það hvort Efling beri að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt í þeim tilgangi að láta atkvæðagreiðslu fara fram meðal allra félagsmanna Eflingar um miðlunartillögu sína. Landsréttardómari hefur til skoðunar hvort miðlunartillaga sáttasemjara standist lög.

Þau svör fengust frá Landsrétti fyrir hádegi að engar upplýsingar væri hægt að veita um tímasetningu á niðurstöðu Landsréttar.

Ökumaður þessa olíuflutningabíls verður að óbreyttu farinn í verkfall á miðvikudag.Vísir/Vilhelm

Efling og Íslandshótel hafa deilt um verkfallsvörslu á sjö hótelum þar sem verkfall hófst í síðustu viku. Í morgun var greint frá samkomulagi sem náðst hefur milli aðila sem snýr að því að Efling ónáði ekki gesti hótelana og á móti verði verkfallsvörðum Eflingar ekki fylgt eftir.


Tengdar fréttir

Bensínið gæti klárast á fimmtu­dag

Forstjóri Skeljungs segir að bensín bensínstöðva gæti klárast strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×