Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 17. febrúar 2023 11:23 Íslandsbanki tekur af skarið og hækkar vexti í samræmi við stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Vísir/Vilhelm Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að vextir bankans taki breytingum 20. febrúar, eða á mánudag, og vextir Ergo breytist 24. febrúar, eða næstkomandi föstudag. Vakin er athygli á því að í skilmálum óverðtryggða húsnæðislána með breytilegum vöxtum, sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak. Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi: Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 0,5 prósentustig. Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,5 prósentustig. Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,5 prósentustig. Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,5 prósentustig. Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,5 prósentustig. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taki gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi. Þá muni breytingar á óverðtryggðum breytilegum vöxtum húsnæðislána taka gildi 1. mars næstkomandi.
Íslandsbanki Íslenskir bankar Fjármál heimilisins Seðlabankinn Verðlag Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira