Fleiri fréttir Hægir á landsframleiðslu Japans Landsframleiðsla jókst um 0,3 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs en á fyrsta ársfjórðungi jókst landsframleiðslan um eitt prósent. Sérfræðingar sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til segja að japanskt efnahagslíf gæti tekið dýfu á næstunni vegna óvissu í efnahagsmálum heimsins, ekki síst á evrusvæðinu. Slíkt ástand dregur úr fjárfestingu og heldur aftur af vexti. 13.8.2012 09:04 Batman féll úr fyrsta sæti Nýjasta Batman myndin, The Dark Knight Rises, féll um helgina úr efsta sæti yfir tekjuhæstu myndir í Bandaríkjunum. 13.8.2012 07:09 Guðný nýr framkvæmdastjóri Líflands Guðný Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Líflands/Kornax frá og með 1. september næstkomandi. Guðný lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 með áherslu á stjórnun og rekstur og MBA frá Colorado State University árið 1991. Hún hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu að baki úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Síðast gegndi hún starfi forstöðumanns gæða- og öryggismála hjá Sjóvá. Lífland er einn stærsti framleiðandi og þjónustuaðili á hvers konar fóðurvöru á Íslandi. 13.8.2012 10:56 Omnis fagnar tíu ára afmæli Mikið úrval far- og spjaldtölva má finna í verslunum Omnis. Fyrirtækið býður upp á faglega og óháða ráðgjöf varðandi tölvukaup. 13.8.2012 10:31 Malcolm Walker: Greiði fyrir Baugsfeðga Vöxtur og uppgangur Iceland Foods í Bretlandi er ævintýri líkastur. Malcolm Walker stofnaði verslunina 1970 í Bretlandi og óx fyrirtækið jafnt og þétt. 12.8.2012 19:44 Engar ákærur á hendur forsvarsmönnum Goldman Sachs Engar ákærur munu koma fram á hendur forsvarsmönnum bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs, en tilkynnt var um þá ákvörðun fyrir helgi. Rannsókn á starfsemi bankans, sem snéri að skuldabréfavafningum og húsnæðislánum, stóð yfir í meira en þrjú ár áður en ákvörðun var tekin um að halda ekki áfram með málið, en að því er segir í tilkynningu byggir ákvörðun yfirvalda á því að ekki hafi verið talið að starfsemi hafi brotið gegn lögum, jafnvel þótt viðskiptin hafi verið vafasömum í einhverjum tilvikum, og komið sér illa fyrir viðskiptavini og lántakendur. 12.8.2012 13:41 Buffett ávaxtaði hlutabréf sín um 11,4 milljarða á föstudaginn Eignir bandaríska fjárfestisins Warren Buffets eru nú metnar á 44 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 5.300 milljörðum króna. Samkvæmt vefsíðu Forbes tímaritsins ávaxtaði hann hlutabréfasafn sitt um 95,4 milljónir dala á föstudaginn síðastliðinn, eða sem nemur 11,4 milljörðum króna. 11.8.2012 00:01 Ný stöð í gömlu húsi með sál CrossFit Power opnar nýja stöð að Suðurlandsbraut 6b. Starfsfólk stöðvarinnar leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu og er andinn í húsinu sagður sérstaklega góður enda er það líkamsræktarfólki að góðu kunnugt. Þar hafa líkamsræktarstöðvar verið með aðstöðu undanfarin rúm tuttugu ár. 11.8.2012 11:00 Hagnaðurinn fjórfalt meiri en á síðasta ári Icelandair Group hagnaðist um 1,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er rúmlega fjórum sinnum meiri hagnaður en félagið skilaði á sama tíma í fyrra, en hagnaður þess frá byrjun apríl til loka júnímánaðar 2011 var 400 milljónir króna á gengi dagsins í dag. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri félagsins sem birt var í gær. 11.8.2012 05:15 Doktorsnám, Crossfit, brjóstagjöf og lyftingar Anna Hulda Ólafsdóttir leggur stund á doktorsnám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi æfir hún Crossfit og ólympískar lyftingar af krafti. Hún sló tvö Íslandsmet í ólympískum lyftingum í sumar. 11.8.2012 11:00 Árangursrík og örugg fæðubótarefni 11.8.2012 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Hægir á landsframleiðslu Japans Landsframleiðsla jókst um 0,3 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs en á fyrsta ársfjórðungi jókst landsframleiðslan um eitt prósent. Sérfræðingar sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til segja að japanskt efnahagslíf gæti tekið dýfu á næstunni vegna óvissu í efnahagsmálum heimsins, ekki síst á evrusvæðinu. Slíkt ástand dregur úr fjárfestingu og heldur aftur af vexti. 13.8.2012 09:04
Batman féll úr fyrsta sæti Nýjasta Batman myndin, The Dark Knight Rises, féll um helgina úr efsta sæti yfir tekjuhæstu myndir í Bandaríkjunum. 13.8.2012 07:09
Guðný nýr framkvæmdastjóri Líflands Guðný Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Líflands/Kornax frá og með 1. september næstkomandi. Guðný lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 með áherslu á stjórnun og rekstur og MBA frá Colorado State University árið 1991. Hún hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu að baki úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Síðast gegndi hún starfi forstöðumanns gæða- og öryggismála hjá Sjóvá. Lífland er einn stærsti framleiðandi og þjónustuaðili á hvers konar fóðurvöru á Íslandi. 13.8.2012 10:56
Omnis fagnar tíu ára afmæli Mikið úrval far- og spjaldtölva má finna í verslunum Omnis. Fyrirtækið býður upp á faglega og óháða ráðgjöf varðandi tölvukaup. 13.8.2012 10:31
Malcolm Walker: Greiði fyrir Baugsfeðga Vöxtur og uppgangur Iceland Foods í Bretlandi er ævintýri líkastur. Malcolm Walker stofnaði verslunina 1970 í Bretlandi og óx fyrirtækið jafnt og þétt. 12.8.2012 19:44
Engar ákærur á hendur forsvarsmönnum Goldman Sachs Engar ákærur munu koma fram á hendur forsvarsmönnum bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs, en tilkynnt var um þá ákvörðun fyrir helgi. Rannsókn á starfsemi bankans, sem snéri að skuldabréfavafningum og húsnæðislánum, stóð yfir í meira en þrjú ár áður en ákvörðun var tekin um að halda ekki áfram með málið, en að því er segir í tilkynningu byggir ákvörðun yfirvalda á því að ekki hafi verið talið að starfsemi hafi brotið gegn lögum, jafnvel þótt viðskiptin hafi verið vafasömum í einhverjum tilvikum, og komið sér illa fyrir viðskiptavini og lántakendur. 12.8.2012 13:41
Buffett ávaxtaði hlutabréf sín um 11,4 milljarða á föstudaginn Eignir bandaríska fjárfestisins Warren Buffets eru nú metnar á 44 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 5.300 milljörðum króna. Samkvæmt vefsíðu Forbes tímaritsins ávaxtaði hann hlutabréfasafn sitt um 95,4 milljónir dala á föstudaginn síðastliðinn, eða sem nemur 11,4 milljörðum króna. 11.8.2012 00:01
Ný stöð í gömlu húsi með sál CrossFit Power opnar nýja stöð að Suðurlandsbraut 6b. Starfsfólk stöðvarinnar leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu og er andinn í húsinu sagður sérstaklega góður enda er það líkamsræktarfólki að góðu kunnugt. Þar hafa líkamsræktarstöðvar verið með aðstöðu undanfarin rúm tuttugu ár. 11.8.2012 11:00
Hagnaðurinn fjórfalt meiri en á síðasta ári Icelandair Group hagnaðist um 1,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er rúmlega fjórum sinnum meiri hagnaður en félagið skilaði á sama tíma í fyrra, en hagnaður þess frá byrjun apríl til loka júnímánaðar 2011 var 400 milljónir króna á gengi dagsins í dag. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri félagsins sem birt var í gær. 11.8.2012 05:15
Doktorsnám, Crossfit, brjóstagjöf og lyftingar Anna Hulda Ólafsdóttir leggur stund á doktorsnám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi æfir hún Crossfit og ólympískar lyftingar af krafti. Hún sló tvö Íslandsmet í ólympískum lyftingum í sumar. 11.8.2012 11:00
Fjögurra milljarða tap af björgun Sjóvár Skattgreiðendur töpuðu fjórum milljörðum á björgun tryggingarfélagsins Sjóvár, en Seðlabankinn eignaðist kjölfestuhlut í tryggingarfélaginu eftir að ríkissjóður kom fyrirtækinu til bjargar eftir hrun. 10.8.2012 19:44
Sölsuðu undir sig stóran hlut í Hamleys á undirverði Hin umdeilda Rowland-fjölskylda, sem keypti Kaupþing í Lúxemborg eftir hrun, sölsaði undir sig stóran hlut í Hamley's leikfangakeðjunni á afsláttarverði út úr huldufélaginu Pillar Securities í Lúxemborg ásamt öðrum eignum félagsins. Rowland fjölskyldan virðist hafa setið beggja vegna borðsins í þessum viðskiptum. 10.8.2012 18:49
Segja ekkert samráð hjá flugfélögunum tveimur Upplýsingafulltrúar flugfélaganna Wow air og Iceland Express neita báðir að félögin hafi haft samráð þegar annað félagið ákvað að fljúga ekki til Danmerkur í vetur meðan hitt hættir að fljúga til Berlínar. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi Wow air, segir að verðstríðið sem verið hefur að undanförnu milli félaganna sé skýrasta dæmið um að þar á bæ sé ekkert samráð í gangi. 10.8.2012 18:00
Tekjur Icelandair Group jukust um 15 prósent milli ára Tekjur Icelandair Group jukust um 15 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við árið á undan og nam EBITDA hagnaður fyrirtækisins, það er rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, 28,8 milljónum dala, eða sem nemur tæplega 3,5 milljörðum króna. 10.8.2012 17:16
Man. Utd. formlega orðið bandarískt almenningshlutafélag Forsvarsmenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United (Man. Utd.) hringdu bjöllunni í kauphöll Nasdaq á Wall Street í dag þegar bréf félagsins voru formlega tekin til viðskipta. Fyrstu viðskipti með bréfin fóru fram á 14,05 dölum á hlut en skráningargengið var 14 dalir. 10.8.2012 16:02
Frans Páll hættir hjá Landsbankanum Frans Páll Sigurðsson,framkvæmdastjóri Fjármála, lætur í dag af störfum í Landsbankanum að eigin ósk, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum. Frans hóf störf í Landsbankanum haustið 2010 þegar viðamiklar breytingar voru gerðar á framkvæmdastjórn bankans og átta nýir framkvæmdastjórar voru ráðnir. 10.8.2012 10:40
Stjórnarformaður Barclays fundinn Sir David Walker, sem var efnahagsráðgjafi Gordons Brown fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, verður næsti stjórnarformaður Barclays bankans. Fráfarandi stjórnarformaður, Marcus Agius fær sem samsvarar 70 miljóna króna starfslokasamning þegar hann lætur af störfum í október. Agius tilkynnti í byrjun sumars að hann myndi hætta hjá bankanum. Stjórnendur bankans hafa legið undir hörðu ámæli um nokkurra mánaða skeið, en bankinn er grunaður um að hafa haft áhrif á stýrivexti í Bretlandi með ólöglegum hætti. 10.8.2012 08:24
Manchester United á markað Viðskipti munu hefjast með hlutabréf í enska knattspyrnuliðinu Manchester United í Kauphöllinni í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í dag. 10.8.2012 07:01
Milljarða afskriftaþörf LÍN Framlög á afskriftareikning útlána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) voru 8,9 milljarðar króna í fyrra. Á fjárlögum ársins 2011 hafði verið gert ráð fyrir að þau yrðu 3,5 milljarðar króna. Því skeikaði 5,4 milljörðum króna á því sem áætlað var og raunverulegum færslum á afskriftaeikning. Um er að ræða hæsta árlega framlag á afskriftarreikning sem átt hefur sér stað hjá LÍN. Þetta kemur fram í ríkisreikningi ársins 2011. 10.8.2012 07:00
Einna lægstur tekjuskattur á fyrirtæki á Íslandi Aðeins 5 lönd af þeim 34 sem teljast til OECD-ríkjanna hafa lægri skattlagningu á fyrirtæki en Ísland. Stefán Ólafsson, prófessor, segir frá þessu á bloggi sínu en tölurnar miðast við árið 2011. 9.8.2012 20:18
Skattahækkun í ferðaþjónustu á að skila 2,5 milljarði Hækkun virðisaukaskatts á gistikostnað á að skila tveimur og hálfum milljarði aukalega í ríkiskassann, en fjármálaráðherra fundar með hagsmunaðilum í greininni á morgun. Mikil óánægja er meðal fyrirtækja í ferðaþjónustu sem segja hækkunina glórulausa. 9.8.2012 20:15
„Hinu opinbera engin takmörk sett þegar kemur að sköttum“ Aflahæstu strandveiðibátar landsins í sumar lönduðu afla að verðmæti um 8,6 milljóna króna hver á tímabilinu. Formaður Landssambands smábátaeigenda segir afar misjafnt hve stóran hlut af verðmætinu sjómennirnir fái í sinn hlut. 9.8.2012 19:43
Dorrit borgar skattinn erlendis Allar tekjur og eignir forsetafrúarinnar Dorritar eru skattlagðar erlendis. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Hún borgar því ekki íslenskan skatt af eignum sínum, en eignir fjölskyldu hennar hafa verið metnar á tugmilljarða. 9.8.2012 18:04
Nestle hagnast um 5,24 milljarða dala Matvælaframleiðandinn Nestle hagnaðist um 5,24 milljarða dala, jafnvirði 655 milljarða króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaðurinn jókst um 8,9 prósent frá sama tímibili ársins á undan. Mesti vöxturinn er í sölu á tilbúnu Kaffi (Ready-to-drink) í Kína og síðan Kit Kat sölu í Mið-Austurlöndum. 9.8.2012 17:01
Gengi Össurar hækkar skarplega Gengi bréfa Össurar hefur hækkað skarplega í dag, um 2,54 prósent, og er gengið félagsins í Kauphöll Íslands nú 202. Lítil hreyfing hefur annars verið á gengi félaga á markaði. Gengi bréf í fasteignafélaginu Regin hefur hækkað um 0,36 prósent og er nú 8,4. Gengi bréf Icelandair hefur lækkað um 0,59 prósent og er nú 6,74. 9.8.2012 14:20
Bjarni Ben: Ríkisstjórnin með „sjokk-aðferðina“ - arfavitlaus hækkun Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir þær hugmyndir sem stjórnvöld hafa nú viðrað, um að hækka virðisaukaskatt á gistikostnað úr sjö prósent í 25,5 prósent, vera „arfavitlausar“. Auk þess séu þær í takt við það sem ríkisstjórnin hafi gert undanfarin ár þegar fjárlög eru til umræðu. „Það er vaðið áfram með hugmyndir, sem „sjokkera“ heilu atvinnugreinarnar, og allir sjá að eru algjörlega út í hött. Síðan er byrjað að tala við hagsmunaaðila, og oftar en ekki hefur ríkisstjórnin síðan tekið ákvörðun sem hún kallar sátt. Þó það sé víðsfjarri raunveruleikanum,“ segir Bjarni. 9.8.2012 14:44
Boðið að sleppa við ákærur gegn aðstoð við rannsókn Yfirvöld í Bandaríkjunum, sem hafa umfangsmikið svind með millibankavexti á markaði til rannsóknar, hafa boðið nokkrum miðlurum svissneska bankans UBS vörn gegn ákærum gegn því að þeir aðstoði við rannsókn á stórfelldu millibankavaxtasvindl á markaði. Frá þessu er greint í Wall Street Journal (WSJ) í dag. 9.8.2012 13:34
Aðaleigandi Sjóvár kaupir 20% í viðbót SF1 slhf., félag í eigu lífeyrissjóða auk annarra fagfjárfesta, hefur nýtt sér kauprétt á 20,6% eignarhluta Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ) í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Sjóvá). SF1 eignaðist meirihluta í Sjóvá fyrir rúmu ári með kaupum á 52,4% hlut af ESÍ og þá var einnig samið um framangreindan kauprétt. Eftir nýtingu á kaupréttinum hefur SF1 keypt allan eignarhlut ESÍ í Sjóvá eða samtals 73% og hafa kaupin þegar hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. 9.8.2012 12:44
Framkvæmdastjóri hjá Icelandair: Hækkanirnar munu engu skila Stjórnvöld leita nú leiða til þess að brúa 16 til 20 milljarða gat með skattahækkunum og niðurskurði í fjárlögum fyrir næsta ár. Meðal þess sem horft er til er að hækka virðisaukaskatt á gistikostnað í ferðaþjónustu úr sjö prósent í 25,5 prósent, það er úr neðsta þrepi í það efsta. 9.8.2012 12:15
Tony Blair óttast að Bretar yfirgefi Evrópusambandið Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, segist óttast mjög að Bretar muni ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið. 9.8.2012 10:18
Harpan aðeins lítið brot af heildarmyndinni fyrir hrunið Svissneska fjárfestingafélagið World Leisure Investment átti hæsta boð í byggingarétt á reitnum við hlið Hörpunnar, og hyggst reisa þar hótelbyggingu sem verður fimm hæða, auka tveggja hæða bílastæðakjallara niður á við. Samkvæmt samþykktu skipulagi má byggingin vera 30 þúsund fermetrar að stærð, en til samanburðar er Harpan 28 þúsund fermetrar. 9.8.2012 10:08
AMX komið í Hádegismóa Vefmiðlun ehf. sem meðal annars á og rekur vefinn amx.is, flutti lögheimili sitt og póstfang að Hádegismóum 2 í Reykjavík nýverið. Þetta kemur fram í tilkynningu til fyrirtækjaskráar sem mótttekin var 13. júní síðastliðinn. Hádegismóar 2 hýsa einnig starfsemi Morgunblaðsins en hluti húsnæðisisins hefur verið leiguður undir aðra starfsemi. Vefmiðlun ehf. er í eigu Friðbjörns Orra Ketilssonar og Arthúrs Ólafssonar til helminga. Friðbjörn Orri er auk þess titlaður útgefandi AMX-vefjarins. Félagið hagnaðist um 177 þúsund krónur á árinu 2010 samkvæmt síðasta birta ársreikningi. 9.8.2012 09:31
Rekstraráætlanir voru óraunhæfar Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að rekstraráætlanir Hörpu hafi verið óraunhæfar og þurft að endurskoða. Hún segir að ákveðið hafi verið að bíða með ýmsar breytingar þar til reynsla væri komin á reksturinn. Því hafi verið beðið um úttekt eftir fyrsta heila rekstrarárið. 9.8.2012 07:00
Öll starfskjör til skoðunar Starfshópur fjármálaráðuneytisins um málefni Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) stefnir að því að ljúka vinnu fyrir 1. október. Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu og formaður hópsins, segir koma til greina að breyta launakjörum samhliða breytingum á lífeyrisréttindum. 9.8.2012 06:00
Hækkun á virðisaukaskatti gistingar skoðuð Virðisaukaskattur á gistingu gæti hækkað úr 7%, lægsta skattþrepinu, í 25,5%, almenna skattþrepið, í nýju fjárlagafrumvarpi. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær en Samtök ferðaþjónustunnar eru mjög gagnrýnin á hugmyndina. 9.8.2012 05:30
Uppsagnir á Blönduósi Fiskvinnslan Sæmá á Blönduósi hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu, tólf alls. Uppsagnirnar taka gildi þann 1. nóvember næstkomandi. 9.8.2012 03:30
Segir ekki mikla kreppu í verslun með sumarhús "Það virðist nú ekki vera mikil kreppa í þessum bransa sko," segir Gunnar Þorgeirsson, oddviti sveitarstjórnar í Grímsnes- og Grafningshreppi, um verslun með sumarbústaði. Hann segir að í Grímsnesi hafi talsvert verið um byggingu nýrra sumarhúsa á liðnu ári. 8.8.2012 21:35
Skattahækkun væri rothögg fyrir ferðaþjónustuna Til stendur að hækka virðisaukaskatt á gistinætur úr sjö prósentum í tuttugu og fimm komma fimm prósent í nýju fjárlagafrumvarpi. Samtök ferðaþjónustunnar segja hækkunina reiðarslag en framkvæmdastjóri hjá Icelandair talar um hneyksli. 8.8.2012 19:44
Harpan átti ekki að kosta skattgreiðendur neitt Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa átti ekki að kosta skattgreiðendur neitt og reksturinn átti að standa undir sér, að því er sagt var þegar ríki og borg ákváðu að ljúka við byggingu hússins og reka það til framtíðar. Til stendur að velta við hverjum steini og endurskipuleggja rekstur hússins. 8.8.2012 19:06
Skattahækkun muni auka svarta atvinnustarfsemi Skattahækkun á gistingu mun auka svarta atvinnustarfsemi í greininni, segja Samtök ferðaþjónustunnar. Þau furða sig á fréttum þess efnis að ríkisstjórnin skuli hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 25,5%, eins og greint var frá í fréttum RÚV. Segja þau að þetta muni hækka verð á gistingu um 17,3%. 8.8.2012 15:29
Einn af upphafsmönnum evrusamstarfsins óttast um framtíð þess Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópu, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur í bók sem kallast “Hvernig við björgum evrunni og styrkjum Evrópu” og kemur út í þessari viku. 8.8.2012 20:01
Aldrei fleiri farþegar hjá Icelandair - 279 þúsund í júlí Icelandair flutti 279 þúsund farþega í millilandaflugi í júlí og voru þeir 10% fleiri en í júlí á síðasta ári. Aldrei hafa fleiri farþegar ferðast með félaginu í einum mánuði, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. 8.8.2012 17:21
Ekki útilokað að ríkið eignist stærri hlut í Hörpu Ekki er útilokað að ríkið eignist stærri hlut í Hörpunni eftir að eigendastefna hússins hefur verið endurskipulögð. Fasteignagjöld, sem renna til borgarinnar, nema næstum helmingi af árlegu rekstrarframlagi ríkis og borgar til hússins. 8.8.2012 12:33
Marel hækkar en Hagar lækka Gengi bréfa í Marel hefur hækkað um 0,72 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 140. Heildarveltan að baki viðskiptunum nemur um 108 milljónum króna, en heildarvelta viðskipta dagsins nemur tæplega 136 milljónum króna. Gengi bréfa í Högum hefur lækkað um 0,27 prósent í dag og er gengið nú 18,25. 8.8.2012 12:09
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf