Viðskipti innlent

Uppsagnir á Blönduósi

Mynd/Stefán Karlsson
Fiskvinnslan Sæmá á Blönduósi hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu, tólf alls. Uppsagnirnar taka gildi þann 1. nóvember næstkomandi.

Haft er eftir Guðmundi Stefáni Jónssyni, framkvæmdastjóra Sæmár, á fréttavefnum Huni.is, að ástæðan sé óvissa í rekstrarumhverfi fyrirtækisins en það er kvótalaust og óvíst er um byggðarkvóta. Hann segir enn fremur að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að loka fiskvinnslunni heldur séu þessar aðgerðir varúðarráðstöfun á meðan verið sé að meta stöðuna. - jse






Fleiri fréttir

Sjá meira


×