Viðskipti innlent

Rekstraráætlanir voru óraunhæfar

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að rekstraráætlanir Hörpu hafi verið óraunhæfar og þurft að endurskoða. Hún segir að ákveðið hafi verið að bíða með ýmsar breytingar þar til reynsla væri komin á reksturinn. Því hafi verið beðið um úttekt eftir fyrsta heila rekstrarárið.

„Hinar gömlu rekstraráætlanir voru endurskoðaðar þar sem þær voru taldar óraunhæfar. Við vorum hins vegar líka meðvituð um að áhætta væri fólgin í þessu. Margir höfðu áhyggjur af tónlistar- og menningarþættinum, en kannski er það að koma á daginn að það eru frekar aðrir þættir sem þarf að skoða."

Katrín segir að eigendur hússins, ríki og Reykjavíkurborg, muni skoða alla þætti rekstrar hússins, bæði auknar tekjur og hagræðingu.

„Það er mikilvægt að báðir aðilar taki sína ábyrgð á lausn vandans. Leigusamningar sinfóníunnar og óperunnar eru ekki undanþegnir þessari skoðun. Ríkið hefur sagt að það ætli ekki að setja fé í rekstur hússins, en styrkja það með því að finna þessari starfsemi, sem styrkt er af ríkinu, þar stað."- kóp / sjá síðu 10






Fleiri fréttir

Sjá meira


×