Samstarf

Omnis fagnar tíu ára afmæli

,,Við getum óhikað veitt faglega og oháða ráðgjöf til viðskiptavina okkar varðandi tölvukaup,'' segir Bjarki Jóhannesson, framkvæmdastjóri verslanasviðs Omnis.
,,Við getum óhikað veitt faglega og oháða ráðgjöf til viðskiptavina okkar varðandi tölvukaup,'' segir Bjarki Jóhannesson, framkvæmdastjóri verslanasviðs Omnis.
Upplýsingatæknifyrirtækið Omnis fagnar tíu ára afmæli í ár. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt mikinn metnað í breitt úrval af fartölvum og segir Bjarki Jóhannesson, framkvæmdastjóri verlanasviðs, að öll helstu merkin fáist í verslunum þeirra.

"Omnis býður upp á öll þekktustu merkin á markaðnum. Við getum óhikað veitt faglega og óháða ráðgjöf til viðskiptavina okkar varðandi tölvukaup þar sem við erum ekki að ýta einu vörumerki út umfram önnur. Við teljum okkur vera með sterkustu vélarnar á hverjum tíma og erum með gott úrval tölva í öllum verðflokkum fyrir ólíkar þarfir viðskiptavina okkar."

Omnis rekur fjórar verslanir og tölvuverkstæði, í Reykjavík og Reykjanesbæ, á Akranesi og í Borgarnesi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík þar sem einnig er rekin tækniþjónusta fyrir heimili og öflugt fyrirtækjasvið sem sinnir rekstri tölvukerfa hjá fjölmörgum fyrirtækjum á suðvesturhorni landsins.

Verðvernd og hátt þjónustustig Omnis leggur mikla áherslu á samkeppnishæf verð og sýnir þann hug í verki með því að bjóða viðskiptavinum verðvernd á tölvum. Fólk getur því verið visst

um að fá tölvur á góðu verði. En það er ekki það eina. "Við leggjum okkur fram um að veita góða þjónustu," segir Bjarki. Sem dæmi um áherslu Omnis á þjónustu þá býður Omnis ókeypis árlega þjónustuskoðun fyrir tölvur sem keyptar eru hjá fyrirtækinu og boðið er upp á ókeypis heimsendingu hvert á land sem er.

Einnig býður fyrirtækið upp á sérstaka tæknisveit sem aðstoðar viðskiptavini í ýmsum tæknimálum heima fyrir. "Tæknisveitin okkar mætir heim til viðskiptavina, setur upp búnaðinn, sér um lagnavinnu, stafrænar lausnir og fleira." Bjarki segir algengustu verkefni Tæknisveitarinnar snúa að sjónvarpsmálum heima fyrir, að koma myndefni á fleiri sjónvörp, bæta merki á þráðlausu neti og setja upp nettengda heimahýsingu sem geymir miðlægt allt efni heimilisins.

Auk fartölva býður Omnis upp á mikið úrval spjaldtölva, þá helst frá Apple og Samsung. "Við lítum á spjaldtölvur sem mikilvægan hluta af tæknivæðingu heimila. Til dæmis þegar kemur að nýtingu spjaldtölvu til að stýra hvernig þú streymir tónlistinni úr tölvunni. Starfsmenn verslana okkar eru mjög færir í notkun spjaldtölva og erum við með ýmsar útfærslur uppsettar í verslunum okkar."

Bjarki segir sölu á spjaldtölvum í ár hafa verið mjög góða og í raun hafi hún hafist af fullum krafti í fyrra.

Bjarki segir verslunina í Reykjavík einblína helst á tölvur, aukahluti í þær og tæknilausnir fyrir heimilið. "Þangað getur fólk komið og séð hvernig maður nýtir tæknina til að streyma myndefni og tónlist í sjónvörp og hljómflutningstæki. Starfsmenn okkar eru sérfræðingar í slíkum lausnum enda með mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Tæknisveitin getur síðan séð um að setja þetta upp heima hjá fólki."

Allar frekari upplýsingar um vörur og þjónustu Omnis má finna á vefnum omnis.is, auk þess sem hægt er að fylgja Omnis eftir á Facebook á slóðinni facebook.com/omnis.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×