Gleraugu á viðráðanlegu verði 20. apríl 2012 06:00 Vörurnar koma aðallega frá Bandaríkjunum og Asíu þó eitthvað sé um vörur frá Evrópu líka. Fréttablaðið/Stefán
Í Gleraugnaversluninni Eyesland á fimmtu hæð í Glæsibæ er að finna mikið úrval af gleraugum, linsum og sjóntækjum á mun viðráðanlegra verði en almennt þekkist. „Það vita fáir af þessari verslun hér á fimmtu hæð í Glæsibæ en við höfum verið að störfum í eitt og hálft ár," segir sjóntækjafræðingurinn Helga Kristjánsdóttir „Við förum óhefðbundnar leiðir í vöruvali og leitum mikið til Bandaríkjanna og Asíu þó eitthvað sé um vörur frá Evrópu líka. Þannig náum við að halda verðinu niðri og eru dæmi um að fólk gangi út með þrenn gleraugu á verði einna," segir Helga. Hún segir viðtökurnar hafa verið framar vonum enda getur fólk leyft sér að kaupa fleiri týpur og jafnvel átt til skiptanna. „Hingað kemur mikið af ungu fólki enda hægt að fá fín gleraugu á tólf til fjórtán þúsund og þá er jafnvel hægt að skipta í takt við ríkjandi tískustrauma," segir Helga. Hún segir úrvalið ríkulegt og eru um átta hundruð umgjarðir á boðstólum. Helga hefur starfað sem sjóntækjafræðingur í bráðum tvo áratugi en langaði að leita leiða til að bjóða alhliða þjónustu á viðráðanlegu verði. „Það er mjög ánægjulegt að sjá fólk sem hefði öllu jafna keypt sér ein göngugleraugu fara út með margskipt göngugleraugu, margskipt sólgleraugu og jafnvel margskipt tölvugleraugu á sama verði." Helga segir tölvugleraugun sækja í sig veðrið enda sífellt fleiri sem sitja við tölvu daglangt. „Fólk sem er komið yfir fertugt þarf oft stækkun við tölvuna en styrkurinn er ekki endilega sá sami og á lesgleraugum. Þá er hægt að fá væga skiptingu þannig að notandinn geti horft afslappað á tölvuskjáinn en engu að síður skoðað eitthvað mjög smátt eða þrætt nál svo dæmi séu nefnd. Helga segir einnig hægt að fá sólgleraugu og ýmiss konar íþróttagleraugu með styrk án þess að það teljist til munaðar. Í versluninni er einnig að finna gott úrval af linsum en Helga hefur sérhæft sig í linsum fyrir fólk með óvenjulega sjón. „Þetta getur verið fólk með háan styrk, mikla sjónskekkju og óreglulegar hornhimnur. Þá er hægt að fá margskiptar linsur sem gagnast þeim sem þurfa lesgleraugu með linsum. Logo verslunarinnar, sem er staðsett á sömu hæð og augnlæknastofan Sjónlag, er skemmtilegt og minnir á stafaspjald augnlækna. Helga hefur verið spurð að því hvort verslunin heiti Yesland og svarar því yfirleitt á þá leið að Eyesland sé jákvæða gleraugnaverslunin í Glæsibæ.
Heilsa Mest lesið Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Neytendur Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Viðskipti innlent Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Viðskipti innlent Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Viðskipti innlent Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Viðskipti innlent 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira