Viðskipti innlent

Marel tekur stökk upp á við

Gengi bréfa í Marel hefur hækkað mikið í dag, eða um 4,45 prósent. Gengi bréfa félagsins stendur nú í 152,2. Gengi bréfa í Össuri hefur lækkað í dag um 0,47 prósent og stendur í 212. Gengi bréfa í Högum hefur hækkað um 0,27 prósent og stendur nú í 18,9. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað um 0,32 prósent í dag og stendur nú í 6,32.

Marel tilkynnti í dag um að gengið hefði verið frá samningum um sölu á nýrri sérframleiddri flæðilínu fyrir hvítfisk við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína, en samningurinn er metinn á tæplega tvo milljarða króna.

Sjá má ítarlegar markaðsupplýsingar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×