Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekist hefur að slá gólfi undir gengið, segir seðlabankastjóri „Það hefur margt þróast til réttrar áttar í íslensku efnahagslífi á undanförnum mánuðum. Tekist hefur að slá gólfi undir gengið og það sem af er ári hefur viðskiptavegið gengi styrkst um rúm 12% en gagnvart evru er styrkingin tæp 17%, og það án nokkurra stuðningsinngripa Seðlabankans á tímabilinu.“ 29.9.2010 15:41
Hagnaður Iceland Express 586 milljónir í fyrra Hagnaður Iceland Express á árinu 2009 nam 586,6 milljónum króna eftir skatta. Árið áður var tap af rekstri félagsins upp á um einn milljar kr. Þar réði hátt olíuverð mestu. Hér er því um algjöran viðsnúning að ræða hjá félaginu, en þess ber þó að geta að góður hagnaður var á árinu 2007. 29.9.2010 15:25
Samið um rannsóknir og nýtingu jarðhita í Innri Mongólíu Samkomulag um samstarf á sviði rannsókna og nýtingar jarðhita milli stjórnvalda í Innri Mongólíu í Kína og Enex Kína og samstarfsaðila þeirra, Sinopec Star Petroleum var undirritað í sendiráðsbústað Íslands í Peking nýlega að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og Kristínu A. Árnadóttur sendiherra í Kína. 29.9.2010 14:46
Vill að Gordon Brown hljóti sömu örlög og Geir H. Haarde Jeremy Warner aðstoðarritstjóri blaðsins Daily Telegraph og helsti efnahagssérfræðingur þess vill að Gordon Brown fyrrum forsætisráðherra Bretlands hljóti sömu örlög og Geir H. Haarde fyrrum forsætisráðherra Íslands. 29.9.2010 13:58
Mesta velta í sögu Porsche bílaframleiðandans Bílar með merkinu Porsche seljast svo vel að bílaframleiðandinn skilaði mestu veltu í sögu sinni á síðasta reikningsári hans sem lauk í lok júlí. Veltan jókst um tæp 18% milli ára og nam tæpum 7,8 milljörðum evra eða um 1.200 milljörðum kr. 29.9.2010 13:29
Eik Banki biður skattgreiðendur um 12 milljarða Eik Banki í Færeyjum hefur beðið heimastjórn eyjanna um 600 milljónir danskra kr. eða um 12 milljarða kr. til þess að bankinn geti staðist kröfur danska fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall og gjaldþol. 29.9.2010 12:55
Ísland á dagskrá stjórnar AGS í dag Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) tekur í dag fyrir þriðju endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Við það fær Ísland aðgang að láni að upphæð 160 milljónir dollara eða sem nemur um 18 milljörðum króna. 29.9.2010 12:15
Kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeystareykjum Landsvirkjun og Orkuveita Húsavíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. 29.9.2010 11:58
FME veitir Virðingu hf. auknar starfsheimildir Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Virðingu hf. auknar starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki. Virðing hf. fékk upphaflega starfsleyfi þann 7. nóvember 2001 frá Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu á grundvelli um verðbréfaviðskipti. Starfsleyfi Virðingar var þann 23. september sl. endurútgefið með tilliti til aukinna starfsheimilda. 29.9.2010 11:22
Verulega dregur úr lækkunum á íbúðaverði Íbúðaverð á landinu öllu hefur nú lækkað um 2,7% að nafnverði og 5,7% að raunvirði á landinu öllu frá síðustu áramótum samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Síðustu 12 mánuði hefur íbúðaverð lækkað um 1% að nafnvirði á landinu öllu en á sama tíma í fyrra nam 12 mánaða lækkun húsnæðis 11%. 29.9.2010 11:15
Stjórn VBS hafði ekki heimild ráðuneytis til lánabreytinga Stjórnendur VBS fjárfestingarbanka leituðu ekki eftir samþykki hjá fjármálaráðuneytinu um form- eða skilmálabreytingar á veittum lánum félagsins. Hvorki á lánum veittum til starfsmanna né til annara viðskiptamanna félagsins. 29.9.2010 10:20
Landsbankinn: Iðnfyrirtækið Límtré Vírnet til sölu Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í iðnfyrirtækinu Límtré Vírnet ehf. 29.9.2010 09:40
Aflaverðmætið jókst um 13 milljarða á fyrri helming ársins Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 68 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 54 milljarða kr. á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 13 milljarða eða 24,7% á milli ára. 29.9.2010 09:04
Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2010 var 184,9 stig og lækkaði um 0,9% frá júlí 2010. 29.9.2010 09:01
Leyfir yfirtöku Sparisjóðabankans á S. Helgasyni ehf. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til þess að aðhafast frekar vegna yfirtöku Sparisjóðabanka Íslands (SPB) á S. Helgasyni ehf. 29.9.2010 08:24
Arion banki vill endurreisa Sigurplast Til að taka af vafa starfsmanna, viðskiptamanna og annarra hagsmunaaðila Sigurplasts vill Arion banki koma því á framfæri að hann hann hyggst óska eftir því við skiptastjóra að áframhaldandi rekstur félagsins verði tryggður. 29.9.2010 07:52
Telur að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist fyrir áramót Greining Arion Banka telur að verðbólga verði komin undir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrir árslok. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. 29.9.2010 07:44
Færri fóru út í leiðindaveður 2,6 milljónir gesta heimsóttu Tívolíið í Kaupmannahöfn í Danmörku í sumar. Þetta eru tvö hundruð þúsund færri gestir en komu þangað í fyrrasumar. 29.9.2010 05:00
Peningarnir leita á fasteignamarkað Gert er ráð fyrir að fasteignamarkaður standi í stað í nýrri hagspá greiningardeildar Arion banka. „Hann gæti þó tekið við sér fyrr en við gerðum ráð fyrir,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildarinnar. Þar segir hann gæta áhrifa þess hversu mikið magn peninga sé í umferð í bankakerfinu án þess að vænlegir fjárfestingarkostir séu í boði. 29.9.2010 04:45
Viðskiptavinir reikni út kjötverðið sjálfir „Verslunin á að sjá til þess að verðmerkja viðkomandi vöru með hillumiða með uppgefnu kílóverði. Þá þarf neytandinn að margfalda í huganum hvað varan kostar frammi á kassa," segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. „Varðandi afslætti við kassa, þá munu þeir einnig hætta." 29.9.2010 04:00
Einar Hannesson ráðinn sparisjóðsstjóri SpKef Stjórn SpKef Sparisjóðs hefur ráðið Einar Hannesson sem sparisjóðsstjóra. Einar er með B.Sc. gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniháskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál og rekstrarstjórnun. 28.9.2010 21:26
Eignir Kaupþings jukust um 119 milljarða Verðmæti eigna Kaupþings banka jókst að raunvirði um 119 milljarða króna eða um 15% á fyrri helmingi ársins 2010 samkvæmt tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings. 28.9.2010 17:32
Mikil velta áfram á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 1,2% í dag í 24,4 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 2% í 13,8 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,8% í 10,1 milljarða kr. viðskiptum. 28.9.2010 15:44
Aðkeypt þjónusta og ráðgjöf kostar ríkið yfir milljarð á ári Aðkeypt þjónusta, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta hefur kostað yfir milljarð á ári að jafnaði undanfarin þrjú ár. Frá maí árið 2007 til maí í ár nema heildargreiðslur fyrir þessa þjónustu og ráðgjöf samtals 3,4 milljörðum kr. 28.9.2010 15:18
Ríkið skuldar eigin lífeyrissjóðum 361 milljarð Hið opinbera skuldar eigin lífeyrissjóðum rúmlega 361 milljarð kr. Hér er um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóð hjúkraunfræðinga (LH) að ræða. 28.9.2010 14:42
Rafnar Lárusson ráðinn til Landsvirkjunar Rafnar Lárusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar. 28.9.2010 13:58
Ráðherra segir Brasilíu ógnað af gjaldmiðlastríði Gudio Mantega fjármálaráðherra Brasilíu segir að landinu sé nú ógnað af gjaldmiðlastríði sem geysi á alþjóðamörkuðum. Ríkisstjórnir um allan heim reyni nú að veikja gengi gjaldmiðla sinna til að auka samkeppnishæfi hagkerfa sinna. Á móti veikist samkeppnishæfni þjóða á borð við Brasilíu. 28.9.2010 13:26
Eik Bank braut lög um fjármálastarfsemi í Danmörku Stærsti netbanki Danmerkur, Eik Bank sem er dótturbanki hins færeyska Eik Banki, braut lög um starfsemi fjármálafyrirtækja í landinu. Rannsókn á vegum danska fjármálaráðuneytisins leiðir þetta í ljós. 28.9.2010 12:32
Gallup: Neytendur svartsýnni en fyrir mánuði síðan Neytendur eru aðeins svartsýnni nú en fyrir mánuði síðan ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun. Þannig lækkaði vísitalan lítillega milli ágúst og september, eða úr 69,9 stigum í 67,7 stig, og er það í fyrsta sinn sem hún lækkar milli mánaða síðan í mars síðastliðnum. 28.9.2010 11:58
Virðing hagnast um 48 milljónir á fyrri helmings ársins Verðbréfafyrirtækið Virðing hf. skilaði rúmlega 48,1 milljón króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins. Á sama tímabili 2009 nam tap fyrirtækisins tæpri 21 milljón króna. Að teknu tilliti til skatta nemur hagnaður fyrirtækisins á fyrri helmingi ársins nú 39,2 milljónum króna samanborið við tæplega 18 milljóna króna tap á sama tímabili 2009. 28.9.2010 11:30
Talsverður verðbólguþrýstingur er framundan Talverður verðbólguþrýstingur er framundan á síðasta fjórðungi ársins. Hækkun á heimsmarkaðsverði á kornvörum og öðrum hrávörum sem mikilvægar eru í matvælaiðnaði munu koma til með að hafa áhrif á matvælaverð á næstunni. 28.9.2010 11:13
Eignir sjóða hækkuðu um 11 milljarða í ágúst Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 284,8 milljörðum kr. í lok ágúst og hækkuðu um 11 milljarða kr. milli mánaða eða um 4%. 28.9.2010 11:04
Skuldatryggingaálag Írlands komið yfir 500 punkta Skuldatryggingaálag Írlands fór í 519 punkta í morgun og hækkaði um tæpa 30 punkta frá því í gær. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni sem vitnar í CMA gagnaveituna. Samhliða þessu hækkaði álagið á Portúgal í 455 punkta eða rúma 20 punkta frá í gær. 28.9.2010 10:54
Heimsmarkaðsverð á áli rýkur upp Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað töluvert í þessum mánuði og stendur nú í 2.315 dollurum fyrir tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. 28.9.2010 10:37
Sérfræðingur: Langt þar til Ísland losnar undan skuldaokinu Danski bankasérfræðingurinn Jörn Astrup Hansen segir að íslenska bankakerfið sé enn í öndunarvél og það muni líða langur tími þar til Íslendingar losna undan því skuldaoki sem bankakerfið skóp þeim fyrir hrunið haustið 2008. 28.9.2010 09:44
Strikið komið í hóp dýrustu verslunargatna heimsins Strikið í Kaupmannahöfn er komið í hóp 25 dýrustu verslunargatna heimsins. Skipar Strikið þar 23. sætið en þessi þekkta verslunargata hefur ekki áður náð inn á þennan topp 25 lista. Strikið er þar með einnig dýrasta verslunargatan á Norðurlöndunum. 28.9.2010 09:26
Ársverðbólgan komin niður í 3,7% Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september er 362,6 stig og er óbreytt frá fyrra mánuði. Þetta þýðir að ársverðbólgan minnkar niður í 3,7% en hún v ar 4,5% í síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 344,9 stig og er hún einnig óbreytt frá ágúst. 28.9.2010 09:04
Danskur auðmaður í samvinnu við Straum og Stoðir Danski auðmaðurinn Ole Vagner reynir nú að bjarga félagi sínu Nordicom með aðstoð Straums og Stoða en Nordicom er skráð fasteignafélag í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 28.9.2010 08:55
Eik Banki þarf 24 milljarða á næstu 57 tímum Eik Banki í Færeyjum þarf að útvega sér 1,2 milljarða danskra kr. eða um 24 milljarða kr. á næstu 57 tímum annars er sögu hans lokið. Þetta er krafan sem danska fjármálaeftirlitið gerir á hendur bankanum. 28.9.2010 08:32
Spákaupmennska skýrir öfgafull viðbrögð við vaxtaákvörðun Í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa segir að spákaupmennska skýri þau öfgafullu viðbrögð sem skuldabréfamarkaðurinn sýndi við vaxtaákvörðun Seðlabankans í síðustu viku. 28.9.2010 08:16
Segir skuldsetningu vera viðráðanlega Arion banki hefur ekki afskrifað neinar skuldir Haga-samstæðunnar né stendur til að gera það, að sögn Finns Árnasonar, forstjóra Haga. 28.9.2010 06:00
Selja danska starfsemi sína Gengi hlutabréfa í færeyska bankanum Eik banka hrundi um rúm fimmtíu prósent á dönskum hlutabréfamarkaði klukkustund eftir upphaf viðskipta í gær þegar greint var frá fjárhagsvanda bankans í skugga afskrifta. Hér féllu þau um 35 prósent. Þá tóku bankastjórarnir Marner Jacobsen og Bjarni Olsen poka sína ásamt Frithleif Olsen stjórnarformanni. 28.9.2010 05:00
Nýtt rislyf á íslenskan lyfjamarkað Fjögur ný samheitalyf frá Actavis komu á markað á Íslandi í ágúst og september samkvæmt tilkynningu frá Actavis. Um er að ræða Topiramat sem gefið er við flogaveiki og mígreni, Mycophenolatmofetil sem notað er við líffæraígræðslur, augnlyfið Latanoprost Actavis og Sildenafil Actavis sem er samheitalyf frumlyfsins Viagra. Öll lyfin eru lyfseðilsskyld. 27.9.2010 19:03
FME vill að fyrirtæki greiði í samræmi við dóm Hæstaréttar Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til lánastofnana á dögunum að meðferð fjármögnunarleigusamninga verði í samræmi við tilmæli sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gáfu út 30. júní síðastliðinn, eftir að dómur Hæstaréttar í gengistryggingarmálinu var kveðinn upp. 27.9.2010 15:12
Báðum tilboðum í Smáralind var hafnað Það er niðurstaða stjórnar Fasteignafélags Íslands, eiganda Smáralindar, að hvorugt kauptilboðið sem barst í Smáralind sé viðunandi og hefur þeim því báðum verið hafnað. 27.9.2010 15:24
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent