Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búist við óbreyttum stýrivöxtum í Bandaríkjunum Allar líkur eru taldar á því að Seðlabanki Bandaríkjanna haldi stýrivöxtum í landinu óbreyttum á morgun. Vextirnir eru 5,25 prósent og á morgun er vaxtaávkörðunardagur. Fjármálaspekúlantar eru flestir á því að þrátt fyrir ótta um vaxandi verðbólgu muni bankinn halda að sér höndum í þetta skiptið en ekki er loku fyrir það skotið að vestirnir verði hækkaðir enn frekar á næsta vaxtaákvörðunardegi. 27.6.2007 19:34
Norðmenn hækka stýrivexti Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 25 punkta í dag og standa þeir nú í 4,5 prósentum. Bankinn ætlar að halda stýrivöxtum að jafnaði í 5,75 prósentum næstu tvö árin sem er 50 punktum meira en bankinn hafði áður sagst ætla að gera. 27.6.2007 16:52
Bandaríkjamenn kaupa nýja ofurtölvu Tölvurisinn IBM hefur gefið út nýja ofurtölvu sem ber nafnið Blue Gene /P. Hún er þrisvar sinnum öflugri en forverinn Blue Gene /L. Ríkisstjórn bandaríkjanna hefur fest kaup á fyrsta eintakinu. 27.6.2007 14:50
Þeir ríkustu verða ríkari Ríkidæmi auðugustu einstaklinga í heimi jókst um 11,4 prósent á síðasta ári og nam þá rúmum 37 þúsund milljörðum bandaríkjadala. Á íslensku mannamáli jafngildir það 2.312 þúsund milljörðum króna, sem er mjög mikið. 27.6.2007 14:30
Stendur iPhone undir væntingum? Um símann hafa verið ritaðar 11.000 þúsund blaðagreinar, 69 milljón sinnum hefur nafnið verið sett í leitarvélar Google og bloggarar kalla hann Jesú símann. Enginn hefur enn snert þetta litla kraftaverkatæki sem kallað er iPhone. 27.6.2007 13:40
Ryanair meinað að kaupa Aer Lingus Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur meinað írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair að gera yfirtökutilboð í írska flugfélagið Aer Lingus. Í úrskurði framkvæmdastjórnarinnar segir að kaupin myndu koma niður á samkeppni og geta valdið hækkun á fargjöldum. 27.6.2007 12:57
Kaupþing spáir 3,6 prósenta verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,1 prósent á milli mánaða í júlí. Gangi það eftir lækkar verðbólga úr 4,0 prósentum í 3,6 prósent. Greiningardeildin spáir því að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist ekki fyrr en á þriðja fjórðungi næsta árs. 27.6.2007 12:42
Spá 150 þúsund tonna þorskkvóta Greiningardeild Glitnis spáir því að þorskkvótinn verði 150 þúsund tonn í ljósi nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar um þorskstofninn og viðbragða ráðamanna við henni. 27.6.2007 10:47
Íbúðalánasjóður hækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur hækkað vexti sína um 0,1 prósent í kjölfar útboðs í gær. Vextir lána með uppgreiðsluálagi eru nú 4,80 prósent en vextir lána án uppgreiðsluálags eru 5,05 prósent. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem sjóðurinn hækkar vexti sína en 6. júní hækkuðu vextir um 0,05 prósent. 27.6.2007 09:36
Landsstjórnin hyggst halda í ráðandi hlut Færeyska landsstjórnin, sem hefur selt um 66 prósent hlutafjár við einkavæðingu Føroya Banka, hefur skuldbundið sig til að eiga eftirstöðvarnar í 180 daga frá skráningu bankans á hlutabréfamarkað á Íslandi og í Kaupmannahöfn. Eyðun á Rógvi, stjórnarformaður Fíggingargrunnsins frá 1992 (Financing Fund of 1992), býst þó fastlega við því að ríkið haldi fast í ráðandi hlut sinn næstu árin og selji hann ekki nema í einu lagi. „Í samræmi við áætlanir okkar er vilji fyrir því að selja hlutinn á næstu þremur til fimm árum. En þetta veltur allt á pólitískum aðstæðum sem geta alltaf breyst.“ 27.6.2007 06:30
Barist við gúrkuna Gúrkan er alls ráðandi í fjölmiðlunum þessa dagana og fréttamenn berjast við að kreista fram fréttir; svona eins og fréttin um það að fjöldi fæðinga það sem af er ári væri svipaður og meðaltal undanfarinna ára. 27.6.2007 06:00
Líkar heimildir hér og í Evrópu Valdaheimildir eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum eru svipaðar en sektarfjárhæðir breytilegar. Þetta kemur fram í niðurstöðum kannana sem gerðar voru um mitt ár 2006 fyrir tilstilli Samstarfsnefndar eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum. 27.6.2007 06:00
Ekkert nema algjör yfirráð Þeim hluthöfum sem hefðu áhuga á að eiga áfram hlut sinn í Actavis, þrátt fyrir afskráningu félagsins, stendur það ekki til boða. Að minnsta kosti ekki ef Novator fær sínu framgengt. 27.6.2007 05:15
Krónan sterk Gengi krónu mun haldast hátt svo lengi sem vaxtamunur minnkar ekki að neinu marki, samkvæmt Greiningu Glitnis. Með áhrifum sínum á væntingar um vaxtamuninn hafa lækkandi verðbólga, lágar hagvaxtartölur og ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar dregið einhvern þrótt úr því styrkingarferli sem einkenndi gengisþróunina í apríl og maí. 27.6.2007 05:00
Arvato AG semur við OpenHand Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið OpenHand hefur gengið til samninga við alþjóðlega samskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Arvato AG. OpenHand útvegar Arvato AG lausn fyrir nýja þjónustu sem er væntanleg á markað í Þýskalandi, en hún samtvinnar nokkrar samskiptalausnir í eina áskriftarleið. Þannig verði til dæmis hægt að nota tölvupóstsþjónustu, skilaboðaþjónustu, eins og MSN, og tala um internetið. 27.6.2007 04:45
Litli hluthafinn Einn fremur varfærinn vildarvinur Markaðarins bættist í hóp minnstu hluthafa í Føroya banka í almennu hlutafjárútboði á dögunum. Vinurinn, sem kom inn í hluthafahópinn á genginu 189 danskar krónur á hlut lagði út rúmar 10.000 krónur í útboðinu fyrir fimm hluti í þeim færeyska. 27.6.2007 04:30
Slagurinn merki um þroska markaðar Það hefur verið spennandi að fylgjast með yfirtökuferli Actavis að undanförnu. Hér er í raun á ferð fyrsta yfirtaka félags sem lýtur venjulegum yfirtökulögmálum sem þekkist á stærri mörkuðum. Oft var þörf fyrir slíkt, en í jafn stóru félagi var skýr nauðsyn nú að yfirtökuslagur væri raunverulegur. Smærri hluthafar í Actavis virðast nefnilega raunverulega hafa tekið á móti í ferlinu. 27.6.2007 04:15
Hlutabréf lækka í Kína Gengi CSI-vísitölunnar lækkaði um þrjú prósent í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína í fyrradag eftir að kínverski seðlabanki landsins sagði nauðsynlegt að hækka stýrivexti til að draga úr verðbólgu og spennu í hagkerfinu. 27.6.2007 03:45
Líkur á hærri vöxtum í Bretlandi Skoðanir voru skiptar innan peningamálanefndar Englandsbanka að halda stýrivöxtum óbreyttum í byrjun mánaðar. Fimm nefndarmenn voru fylgjandi því að halda vöxtunum óbreyttum í 5,5 prósentum en fjórir studdu hækkun upp á 25 punkta. 27.6.2007 03:15
Neytendur sáttir við sitt Neytendur hafa aldrei mælst ánægðari með núverandi ástand. Þetta sýnir nýbirt væntingavísitala Gallup sem birt var í gær fyrir júnímánuð. Hins vegar dregur örlítið úr væntingunum þegar þeir líta til næstu sex mánaða. Þrátt fyrir það eru væntingarnar miklar. 27.6.2007 03:15
Samstarf sem allir hagnast á Í síðustu viku innsigluðu Alþjóðahúsið og Landsbankinn tímamótasamning í rekstri hússins. Hann hljóðar upp á tíu milljóna króna peningastyrk á þessu ári. Samstarfið þeirra á milli tekur þó til fleiri þátta og er til þess fallið að nýtast báðum aðilum vel. 27.6.2007 03:15
Nýtur ekki stuðnings Breska fjárfestingafélagið Candover birti í gær skilyrði fyrir væntanlegu yfirtökutilboði í hollensku samsteypuna Stork. Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða evra, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna en felur í sér að það sé bindandi berist ekki fimm prósentustiga hærri tilboð í samstæðuna. Þá er skilyrði um að 80 prósent hluthafa verði að taka boðinu. Samþykki 95 prósent hluthafa þarf til að afskrá félagið. 27.6.2007 03:00
Væntur gróði Þegar netbólan reis sem hæst í kringum síðustu aldamót reiknuðu margir með því að gengi hlutabréfa myndi halda áfram að hækka og reiknuðu þeir út væntan hagnað af hlutabréfakaupum með því að margfalda hækkun á einum viðskiptadegi langt fram í tímann. Þeir draumar rættust ekki. 27.6.2007 03:00
Sveiflur í raungengi eru langar og stórar Jón Steinsson, hagfræðingur og verðandi lektor við Columbia University í New York, hefur fengið grein samþykkta til birtingar í fræðitímaritinu American Economic Review. Greinin, sem nefnist „The Dynamic Behavior of the Real Exchange Rate in Sticky Price Models“, fjallar um þróun raungengis í helstu iðnríkjunum, það er G-7 löndum, á síðustu þrjátíu árum þar sem reynt er að útskýra langar sveiflur í þróun raungengis. 27.6.2007 02:45
Nýherji opnar lífsstílsverslun Nýherji hefur opnað verslun sem leggur áherslu á stafrænan lífsstíl að Hlíðasmára 3 í Kópavogi. Í versluninni munu einstaklingar geta nálgast vörur og þjónustu fyrir nútímaheimili, að því er fram kemur í tilkynningu frá Nýherja. Á efri hæð er svo fyrirtækjaþjónusta Sense til húsa. „Með breytingunni er Nýherji að svara síaukinni eftirspurn einstaklinga og fyrirtækja eftir hágæða vörum og þjónustu á þessu sviði,“ segir í tilkynningunni. 27.6.2007 02:00
Gætum dottið inn í undanúrslitin „Við erum bara að bíða. Við getum átt von á því að detta inn í þriggja liða úrslitin í næsta mánuði,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi. Fyrirtækið fól honum að kanna grundvöll fyrir því að byggja netþjónabú hér á landi og komu fulltrúar frá Microsoft hingað til lands fyrir um hálfum mánuði. Á bilinu átta til tíu lönd koma til greina þar sem reisa á gagnageymslu fyrirtækisins. 27.6.2007 02:00
Unnið á ströndinni Sífellt fleiri starfsmenn sækjast eftir því að fá að komast út úr skrifstofum sínum og vinna heima eða sitja utandyra við vinnu. Fyrirtækið Microsoft Windows Mobile í Bretlandi ætlar að vera með þeim fyrstu til þess að kynna slíkar aðstæður í sumar. 27.6.2007 02:00
Fimm félög á yfir þrjú hundruð milljarða Í fyrsta skipti eru fimm fyrirtæki í Kauphöll Íslands metin á þrjú hundruð milljarða króna eða meira. Fyrirtækin eru fjármálafyrirtækin Kaupþing, Glitnir, Landsbankinn og Exista og samheitalyfjafyrirtækið Actavis sem datt inn í þennan hóp eftir að Novator hækkaði yfirtökutilboð sitt í félagið. Átta stærstu félögin í Kauphöllinni eru alls metin á tæpa þrjú þúsund milljarða króna. 27.6.2007 02:00
Hagnaður Straumborgar dróst saman Straumborg hagnaðist um 2,05 milljarða króna í fyrra samanborið við tæplega fimm milljarða króna hagnað árið áður. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu félagsins til Kauphallarinnar í tilefni af útgáfu víxla. 27.6.2007 02:00
Aðgerð „Albatross“ hafin hjá Glitni Innan Glitnis er hafin vinna við að móta framtíðarskipulag bankans í Noregi og nefnist verkefnið „Albatross“. Bankinn mun óska eftir heimild til að samræma starfsemina í Noregi, þar á meðal að fella Bolig- og Næringsbanken (BNbank) og Glitnir Bank í eina sterka heild. Þó er tekið fram að engar formlegar ákvarðanir hafi verið teknar þar að lútandi. Höfuðstöðvar Glitnis Bank yrðu í Þrándheimi en fyrirtækjabankastarfsemin í Álasundi. 27.6.2007 01:45
Ísland hefur allt að bjóða Þórður H. Hilmarsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingastofu Íslands, kynnti skýrslu um samkeppnishæfni Íslands varðandi uppbyggingu netþjónabúa hér á landi í síðustu viku. Hann segir um tug fyrirtækja hafa leitað hingað til lands á tiltölulega stuttum tíma og kannað málið. Skýrslan staðfesti það sem flesta í upplýsingatækni hafi grunað, að veruleg viðskiptatækifæri felist í uppbyggingu netþjónabúa hér á landi. 27.6.2007 01:15
Mikill ávinningur fyrir landsmenn „Ávinningurinn af rekstri netþjónabúa hér á landi gæti orðið til þess að lækka bandbreiddarkostnað fyrir fyrirtæki og heimili í landinu ef tekjulindin verða erlend fyrirtæki sem hýsa búnaðinn hér,“ segir Þorvaldur Sigurðsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna hjá Skýrr. Hann bendir á að innlend notkun hafi verið fremur lítil en bandbreiddarnotkun muni aukast mikið komi erlend fyrirtæki hingað. 27.6.2007 01:15
Hefur sjávarútvegurinn glatað þjóðhagslegu mikilvægi sínu? Enn á ný er komin upp umræða um hlutverk og mikilvægi sjávarútvegsins í atvinnulífi Íslendinga. Umræðan snýst að nokkru um áhrif greinarinnar á byggðir landsins og einnig um hvort hlutverk þessarar undirstöðuatvinnugreinar hafi breyst í grundvallaratriðum frá því að núverandi stjórnkerfi fiskveiða var tekið upp. Við skulum skoða þetta aðeins nánar. Hvað hefur breyst frá upphafi níunda áratugar síðustu aldar þegar aflamarkskerfinu var komið á? 27.6.2007 01:00
Kaupþing selur um þrettán milljarða „samúræjabréf“ Kaupþing horfir í vaxandi mæli til skuldabréfaútgáfu í Asíu. Japan er orðið einn af mörgum hornsteinum í fjármögnun bankans en fyrr á árinu fékk Kaupþing lánshæfismat frá ROI, japönsku lánhæfismatsfyrirtæki. Bankinn greinir frá „samúræjaútgáfu“ í Japan í dag þar sem seld voru skuldabréf fyrir um 25 milljarða jena, um 12,5 milljarða króna, til fjárfesta en kjörin lágu ekki fyrir við gerð þessarar fréttar. 27.6.2007 00:30
Netþjónabúin skera úr um sigurvegarann Niðurstöður athugunar á samkeppnishæfni Íslands fyrir netþjónaúbú voru kynntar í síðustu viku. Að baki skýrslunni stóðu Fjárfestingastofa Íslands, Hitaveita Suðurnesja, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, Farice, Síminn og Teymi. Niðurstöðurnar voru einkar jákvæðar. Þar kom fram að ytri skilyrði fyrir byggingu og rekstur netþjónabúa er einkar hagkvæmt fyrir hugbúnaðar- og tölvufyrirtæki. 27.6.2007 00:15
Tryggðu sjálfstæði Wall Street Journal Stjórnir bandarísku fjölmiðlasamsteypanna Dow Jones & Co. og News Corporation, sem er í eigu ástralska auðkýfingsins Ruperts Murdoch, eru sögð hafa komist að samkomulagi sem tryggir ritstjórnarlegt sjálfstæði bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. Með því er stærstu hindruninni fyrir yfirtökutilboði Murdochs í Dow Jones & Co. velt úr vegi. 26.6.2007 23:08
Minni væntingar nú en áður Væntingar Bandaríkjamanna lækkuðu um 4,6 stig og standa í 103,9 stigum í þessum mánuði samanborið við 108,5 stig í maí. Þetta er meiri lækkun á væntingum manna vestanhafs en gert hafði verið ráð fyrir. Niðurstaðan mun líklega skila sér í óbreyttum stýrivöxtum bandaríska seðlabankans. 26.6.2007 17:00
Íbúðalán bankanna ekki meiri síðan í fyrra Ný íbúðalán bankanna námu um 5,5 milljörðum króna í maí. Á sama tíma lánaði Íbúðalánasjóður 6,0 milljarða krónur til íbúðarkaupa. Útlán bankana hafa aukist jafnt og þétt á síðustu mánuðum og hafa ekki verið meiri síðan í maí í fyrra. 26.6.2007 16:30
Rígur um tilboð í Stork Rígur er á milli stærstu hluthafa hollensku samstæðunnar Stork og stjórnenda um framtíð félagsins eftir að fjárfestingafélagið Candover sagðist ætla að leggja fram yfirtökutilboð í félagið. Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða evrur, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna. Fáir hluthafar eru sagðir styðja tilboðið. 26.6.2007 16:11
Actavis með nýtt lyf á markað í Bandaríkjunum Actavis hefur sett nýtt forðalyf á markað í Banaríkjunum. Lyfið heitir Nifedipine XR og er notað við háþrýstingi, ýmist eitt sér eða með öðrum blóðþrýstingslyfjum. Dreifing lyfsins er þegar hafin og er fyrsta markaðssetning Abrika síðan Actavis keypti fyrirtækið í apríl. 26.6.2007 14:36
Útvarpsstöðvar í BNA stöðva útsendingar í mótmælaskyni Nokkrar af helstu vefútvarpsstöðvum Bandaríkjanna hyggjast halda svokallaðan Dag þagnar á fimmtugaginn og gera þá hlé á útsendingum sínum. Er það gert í mótmælaskyni við áæltanir Copyright Royalty Board um að auka greiðslur til sérleyfishafa þegar tónlist er spiluð á vefnum. Álagningin á að skella á þann 15 júlí. 26.6.2007 14:31
OpenHand semur við stórt alþjóðlegt fjölmiðlafyrirtæki Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið OpenHand hefur selt alþjóðlega samskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu arvato AG hugbúnað vegna nýrrar þjónustu sem væntanleg er á markað í Þýskalandi. 26.6.2007 10:04
Candover býður í Stork Breski fjárfestingasjóðurinn Candover hefur gert formlegt yfirtökutilboð upp á 1,5 milljarða evrur, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna, í hollensku samsteypuna Stork. Hollenska félagið LME Holding, sem er í eigu Eyris Invest, Marel og Landsbankans, á 11 prósent í félaginu. 26.6.2007 09:29
Greiða ekki bónus Japanski bílaframleiðandinn Nissan ætlar ekki að greiða framkvæmdastjórum fyrirtækisins bónus fyrir síðasta ár og undanfarin ár. Ástæðan er dræm sala á nýjum bílum undir merkjum Nissan og samdráttur hjá fyrirtækinu í fyrra, sem er sá fyrsti á sjö árum. 26.6.2007 06:45
Hlutabréf gefa ekkert eftir Hlutabréfamarkaðurinn heldur áfram að hækka en Úrvalsvísitalan náði nýju hámarki í gær í 8.279 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 29,1 prósent og styttist óðfluga í það að hún hafi hækkað tvöfalt meira en allt árið í fyrra. 26.6.2007 06:45