Viðskipti innlent

Gætum dottið inn í undanúrslitin

Þar sem Microsoft hefur reist netþjónabú hafa yfirleitt fleiri fyrirtæki fylgt á eftir. Framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi segir byggingu netþjónabúa hafa mikil keðjuverkandi áhrif.
Þar sem Microsoft hefur reist netþjónabú hafa yfirleitt fleiri fyrirtæki fylgt á eftir. Framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi segir byggingu netþjónabúa hafa mikil keðjuverkandi áhrif. Markaðurinn/GVA

„Við erum bara að bíða. Við getum átt von á því að detta inn í þriggja liða úrslitin í næsta mánuði,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi. Fyrirtækið fól honum að kanna grundvöll fyrir því að byggja netþjónabú hér á landi og komu fulltrúar frá Microsoft hingað til lands fyrir um hálfum mánuði. Á bilinu átta til tíu lönd koma til greina þar sem reisa á gagnageymslu fyrirtækisins. Ísland er þar á meðal. Málin skýrast í byrjun júlí en þá verða þrjú lönd valin til frekari skoðunar.

Halldór segir Microsoft skoða 31 atriði varðandi hagkvæmni þess að reisa netþjónabú áður en ákvörðun verður tekin. Þar er á meðal er raforkuverð, tengingar við umheiminn og lóðaverð. „Þeir skoða meira að segja verð á sementi,“ bendir Halldór og bætir við að til skoðunar sé að reisa eitt bú þótt gjarnan hafi fyrirtækið reist tvö á svipuðum tíma. Tíminn muni leiða í ljós hvort af verkefninu verði.



Ekki liggur fyrir hvar Microsoft geti hugsað sér að reisa netþjónabú. Nálægðin við raforku og ljósleiðara skipta höfuðmáli. Halldór bendir á að jafnvel geti fyrirtækið reist búið þar sem sæstrengurinn kemur til landsins fyrir austan. Þegar nýi sæstrengurinn verður lagður kemur hann inn í landið á öðrum stað og geti hann allt eins orðið fyrir valinu, að sögn Halldórs.



„Þetta skýrist allt í næsta mánuði. Ef Ísland kemst í þriggja landa úrslitin sendir Microsoft þrjá vinnuhópa hingað sem skoða hvert sitt atriðið,“ segir hann.



Halldór segir netþjónabú hafa komið í stað stóriðju og álvera í nokkrum löndum. Þar hafi verið veitt ýmsar skattalegar ívilnanir vegna þessa og megi vel hugsa sér að stjórnvöld hér bjóði eitthvað slíkt þegar fram í sæki. „Þar sem Microsoft byggir netþjónabú laðar það að sér gífurlega mikið af öðrum erlendum aðilum sem vilja gera svipaða hluti eða þjónusta þau. Það má því gera ráð fyrir keðjuverkandi áhrifum af byggingu netþjónabúa,“ segir hann og bendir á að í Quincy í Washingtonríki í Bandaríkjunum þar sem Microsoft reisti bú í fyrra hafi fleiri fyrirtæki, svo sem þróunarsetur um ákveðin verkefni, fylgt í kjölfarið. „Ég held að netþjónabúin verði samkeppnisvöllur framtíðarinnar. Að eiga netþjónabúin, reiknigetuna og plássið mun skera úr um það hvaða upplýsingafyrirtæki muni í framtíðinni verða stærst í heimi,“ segir Halldór.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×