Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúðalánasjóður hækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur í kjölfarið útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti íbúðalána sjóðsins um 0,10 prósentustig og verða þeir 4,95 prósent. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25 punkta lægri vöxtum eða 4,70 prósent. 30.6.2006 17:41
Vöruskiptahallinn við útlönd meiri en nokkru sinni Vöruskiptahallinn við útlönd það sem af er árinu er meiri en nokkru sinni í sögu lýðveldisins, mældur á föstu verðlagi. Óvenju miklar tolltekjur skýra að hluta miklar tekjur ríkissjóðs. 30.6.2006 13:39
Hluthafar styðja yfirtökutilboð Mittal Steel Rúmur helmingur hluthafa í evrópska stálframleiðandanum Arcelor var mótfallinn samruna við rússneska stálfyrirtækið Severstal á hluthafafundi fyrirtækisins í dag. Meirihluti hluthafa er hins vegar fylgjandi yfirtökutilboði Mittal Steel í fyrirtækið. 30.6.2006 13:06
Bauð hæst í mat með Buffett Kvöldverðarboð með bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett fór á 620.100 Bandaríkjadali, jafnvirði 47,6 milljónir íslenskra króna, á uppboðsvefnum e-bay í gær. Þetta er hæsta boð sem einstaklingur hefur greitt fyrir að snæða með „vitringnum frá Omaha“, sem á dögunum ákvað að láta 85 prósent af auðæfum sínum renna til góðgerðarmála. 30.6.2006 12:18
Eimskip tapaði 1,37 milljörðum Eimskip tapaði rúmum 1,37 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 496 milljónum króna. Afkoman er í takt við væntingar stjórnenda Eimskips. Starfsemi félagsins er háð árstíðasveiflum og myndast meirihluti af árshagnaði félagsins á síðari hluta rekstrarársins. 30.6.2006 10:50
Stýrivextir hækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa á Wall Street í Bandaríkjunum hækkaði talsvert í kjölfar þess að Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í gær um 25 punkta í 5,25 prósentur. Þetta er 17. stýrivaxtahækkunin í Bandaríkjunum en Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, gaf til kynna að hækkanaferlið væri brátt á enda. 30.6.2006 10:10
Loftleiðir kaupa lettneskt flugfélag Loftleiðir Icelandic, leiguflugfélag Icelandair Group, hefur gengið frá kaupum á 55 prósentum hlutafjár í lettneska leiguflugfélaginu Latcharter Airlines. Þá hafa Loftleiðir skuldbundið sig til að kaupa félagið að fullu innan ákveðins tíma. 30.6.2006 06:00
Lánshæfismat Straums-Burðaráss staðfest Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka í kjölfar tilkynningar um nýjan forstjóra og breytingar í hluthafahópi. Fyrirtækið staðfesti langtímaeinkunnina BBB- og segir horfur lánshæfiseinkunna stöðugar. 29.6.2006 14:35
EADS kærir dagblaðið Le Monde EADS, móðurfélag evrópsku flugvélasmiðjanna Airbus, hefur lagt fram kvörtun vegna leka á upplýsingum til franska dagblaðsins Le Monde þess efnis að stjórn EADS hafi verið kunnugt um tafir á framleiðslu Airbus A380 risaþota mánuði áður en tafirnar voru formlega tilkynntar. 29.6.2006 14:03
Ingimundur nýr bankastjóri Seðlabankans Forsætisráðherra skipaði í dag Ingimund Friðriksson, aðstoðarbankastjóra, í embætti bankastjóra í Seðlabanka Íslands til sjö ára frá 1. september næstkomandi. 29.6.2006 13:40
Verðbólgan skapar óvissu Mervyn King, seðlabankastjóri Englands, sagði á fundi með breskum þingmönnum í Bretlandi í dag að hættan sem stafi af verðbólguhækkunum á heimsvísu hafi skapað óvissu í efnahagslífi margra þjóða. 29.6.2006 11:53
Hlutabréfaverð hækkaði í morgun Gengi hlutabréfa hækkað á Norðurlöndunum í morgun eftir lækkanir í gær og nokkrar sveiflur undanfarnar vikur. Aðalvísitalan hækkaði um 1,2 prósent í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn í Danmörku í morgun, um 1,4 prósent í Osló í Noregi og í Stokkhólmi í Svíþjóð og um 2,1 prósent í Kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi. 29.6.2006 10:45
Örlög Straums í höndum Björgólfs Thors og Jóns Ásgeirs Kaup FL Group á 24 prósenta hlut í Straumi-Burðarási er leikflétta sem er hönnuð af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og Þórði Má Jóhannessyni, fyrrum forstjóra Straums. Ítök FL Group í fjármálakerfinu stóraukast en seljendur eignast fjórðung hlutafjár í félaginu. Björgólfur á næsta leik. 29.6.2006 08:15
Segja ekkert tilefni til að ógilda samruna við Senu Forstjóri Dagsbrúnar furðar sig á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda kaup félagsins á afþreyingarfyrirtækinu Senu. Ákvörðuninni hefur verið skotið til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Verði samruni fyrirtækjanna ógiltur ganga kaupin til baka. 29.6.2006 08:00
Línur ljósar í Gretti Sund hefur keypt 31 prósents hlut Tryggingamiðstöðvarinnar í Fjárfestingafélaginu Gretti og er þar með orðinn stærsti hluthafinn með 49 prósenta hlut. 29.6.2006 07:45
Kaupthing rífur og byggir Alþjóðlegi fjárfestingasjóðurinn Project Abbey (Guernsey) Ltd hefur tryggt sér stærsta framkvæmdaverk í Bretlandi nú um stundir. Um er að ræða kaup á lóð bresku ríkisspítalanna í West End-hverfinu í Lundúnum. Fyrirtækið mun meðal annars rífa Middlesex-sjúkrahúsið, sem staðið hefur autt síðan starfsemi þess flutti fyrir nokkru, og sinna uppbyggingu á svæðinu. 29.6.2006 07:00
Karen Millen vinsæl í Rússlandi Fáar breskar tískuvöruverslunarkeðjur skila jafn miklum hagnaði á erlendri grundu og Mosaic Fasions, að sögn Dereks Lovelock, forstjóra félagsins. Á síðasta rekstrarári jókst velta félagsins um 41 prósent erlendis. Einkum hafa verslanir undir merkjum Karen Millen og Oasis gengið vel í útrás til annarra landa og er viðbúið að verslunum fjölgi hratt á næstu árum. 29.6.2006 06:30
Forstjóraskipti hjá Opnum kerfum Agnar Már Jónsson hefur að eigin ósk sagt upp störfum sem forstjóri Opinna kerfa. Gylfi Árnason, forstjóri móðurfélagsins Opinna kerfa Group, tekur tímabundið við störfum hans. Gylfi gegndi starfinu jafnframt á undan Agnari sem tók við starfinu í nóvember 2004. 29.6.2006 06:00
Sund kaupir hlut Grettis í TM Sund hefur keypt 31 prósents hlut Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) í Fjárfestingafélaginu Gretti. Grettir er meðal stærstu hluthafa í Straumi-Burðarási en á einnig hluti í Avion Group, Icelandic Group og Landsbankanum. 28.6.2006 16:34
Mecom kaupir Orkla Media Breska fjárfestingarfélagið Mecom Group hefur keypt útgáfufélagið Orkla Media, sem gefur út fjölda dagblaða og tímarita, m.a á Norðurlöndum og í Póllandi. Á meðal dagblaðanna er danska dagblaðið Berlingske Tidende, sem greinir frá kaupunum í dag. 28.6.2006 15:24
HM eykur væntingar Þjóðverja Svo virðist sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu (HM), sem nú fer fram í Þýskalandi, hafi aukið væntingar þýskra neytenda umtalsvert. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega markaðsrannsóknafyrirtækisins Gfk. Væntingavísitalan, sem gildir fyrir júlí, hækkaði um 7,8 punkta og hefur hækkun milli mánaða ekki verið meiri í fimm ár. 28.6.2006 11:33
Arcelor styður tilboð Mittal Steel Stjórnvöld í Lúxemborg, sem eiga 5,6 prósent í evrópska stálrisanum Arcelor, og eignarhaldsfélagið Carla Tassara International, sem á 7,8 prósenta hlut í stálfyrirtækinu, eru fylgjandi endurskoðuðu yfirtökutilboði Mittal Steel í fyrirtækið. Mittal Steel gerði yfirtökutilboð í Arcelor í janúarlok á þessu ári en andstaða hluthafa í Arcelor varð til þess að gengið var til samninga við rússneska stálrisann Severstal um sameiningu. 28.6.2006 10:33
Boltinn til Mið-Ameríku Það hefur verið nóg að gera hjá efnisveitunni Hexia í tengslum við HM í knattspyrnu í Þýskalandi en fyrirtækið sendir myndskeið af mörkum í HM til farsímanotenda í Mið-Ameríku fimm mínútum eftir að boltinn lendir í netinu. 28.6.2006 07:45
Neytendur á báðum áttum Væntingavísitala Gallup hækkaði um 4,3 prósent milli maí og júní og stendur nú í 100,8 stigum. Vísitalan hefur lækkað um tuttugu og sjö stig frá áramótum. 28.6.2006 07:45
Hægir á einkaneyslu Greiðslukortavelta í maí nam rúmum 58 milljörðum króna og hefur aukist um 12,6 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. 28.6.2006 07:30
Of skammt gengið Sérfræðingar segja meira þurfa að koma til hjá ríkisstjórninni. Aðgerðir hennar gætu haft áhrif á vexti Seðlabankans. 28.6.2006 07:30
PLIVA hugnast best tilboð frá Bandaríkjunum Líkur hafa minnkað á að Actavis nái að ljúka einum af stærstu fyrirtækjakaupum Íslandssögunnar. Stjórn samheitalyfjafyrirtækisins PLIVA horfir til Barr Pharmaceuticals. 28.6.2006 07:15
Prenta bæði Newsweek og Time Breska prentsmiðjan Wyndeham Press Group, sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur gengið frá samningum um prentun á tímaritunum Time og Newsweek fyrir Bretlandsmarkað næstu þrjú árin. Wyndeham mun vikulega prenta 195.000 eintök af blöðunum, 142.000 eintök af Time og 53.000 eintök af Newsweek. 28.6.2006 07:00
Erlend verðbréf í 400 milljarða króna Erlend verðbréfaeign íslensku lífeyrissjóðanna hefur stóraukist það sem af er ári eða um eitt hundrað milljarða frá áramótum. Um áramótin áttu sjóðirnir 297 milljarða í erlendum eignum en í lok mars fór erlend verðbréfaeign yfir fjögur hundruð milljarða króna í fyrsta skipti í sögunni. Þetta er 34,7 prósenta aukning. 28.6.2006 06:45
Sameining matvörukeðja í biðstöð Kaupthing banki fjármagnar 27,5 milljarða samning breskra matvörukeðja. 28.6.2006 06:45
Gengið frá sölu Matas Danska lyfjaverslanakeðjan Matas verður seld breska fjárfestingafélaginu CVC Capital. Kaupsamningurinn var naumlega samþykktur á hluthafafundi í Matas í gær. 28.6.2006 06:30
Seldu fyrir milljarð Innlendir aðilar seldu erlend verðbréf fyrir einn milljarð króna í maí síðastliðnum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Nokkuð jafnt var keypt af hluta- og skuldabréfum. 28.6.2006 06:30
Útflutningshandbókin fer yfir til Heims Útflutningshandbókin Iceland Export Directory verður eftirleiðis gefin út af Útgáfufélaginu Heimi sem meðal annars gefur út tímaritið Frjálsa verslun. Handbókin hefur verið gefin út frá árinu 1992 í samvinnu Útflutningsráðs og íslenskra fyrirtækja. 28.6.2006 06:15
Verður þriðja stærsta kvenfatakeðja Bretlands Aðeins Arcadia og New Look verða stærri en Mosaic í sölu á tískufatnaði til kvenna. Aukin umsvif eru á erlendum mörkuðum, einkum hjá Karen Millen, en dró úr sölu hjá Oasis. 28.6.2006 06:00
Moskva er dýrust borga Moskva er dýrasta borg heims samkvæmt nýrri könnun ráðgjafafyrirtækisins Mercer Human Resource. Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, varð í öðru sæti, Tókýó í því þriðja og Hong Kong í fjórða. Lundúnir eru fimmta dýrasta borg heims. 28.6.2006 06:00
Enn hækkar NWF Group Atorka heldur áfram að auka hlut sinn í breska iðnaðarfyrirtækinu NWF Group og heldur nú utan um átján prósenta hlut. 28.6.2006 06:00
Bongó kaupir Exton Bongó ehf. hefur keypt meirihluta í upplýsingatæknifyrirtækinu Exton ehf. Exton er þjónustufyrirtæki á sviði ljósa-, hljóð- og myndlausna. Fyrirtækið er einkum þekkt fyrir tækjaleigu vegna tónleika, ráðstefna og skemmtana. Það setti m.a. upp svið, lýsingu og hljóðbúnað á tónleikum Roger Waters í Egilshöll á dögunum. 27.6.2006 14:06
Hlakkar til að vinna að frekari prófunum á lyfinu Íslensk erfðagreining er langt komin með að þróa lyf við astma upp úr lyfi sem upphaflega var ætlað að fást við Parkinson-sjúkdóm. 27.6.2006 06:00
Álverð lækkaði um 23 prósent Verð á flestum málmum hefur lækkað stöðugt síðan það náði hámarki um miðjan maí. Álverð er þar engin undantekning. Tonnið kostaði um 3.185 dali, jafnvirði tæpra 242.000 íslenskra króna, um miðjan mánuðinn en er nú komið í 2.450 dali, eða 186.000 krónur. Lækkunin nemur 23 prósentum. Verðið er engu að síður hátt miðað við verðþróun undanfarinna ára. 26.6.2006 11:33
Buffett setur auð sinn í styrktarsjóð Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett ætlar að gefa 37 milljarða dollara, jafnvirði 2.800 milljarða íslenskra króna, til velgjörðasjóðs Bill Gates, stofnanda hugbúnaðarrisans Microsoft. Þetta er meirihluti auðæfa Buffetts en eigur hans eru metnar á 44 milljarða dali eða rúma 3.300 milljarða króna. 26.6.2006 10:33
Airbus hækkar verðið Flugvélaframleiðandinn Airbus hefur ákveðið að hækka verð á A380 risafarþegaþotunum. Að sögn stjórnenda fyrirtækisins hækkaði verð á öllum gerðum flugvéla fyrirtækisins fyrir hálfum mánuði líkt og gerist á hverju ári. Franska ríkið á stóran hlut í EADS, móðurfélagi Airbus. Hefur verið þrýst á ríkisstjórnina að hún skipti um yfirstjórn fyrirtækisins vegna ítrekaðra tafa á framleiðslu risaþotanna. 23.6.2006 10:51
Handtekinn fyrir innherjasvik Lögregluyfirvöld í Japan handtóku í dag Yoshiaki Murakami, einn helsta fjármálamann landsins, og ákært vegna vafasamra verðbréfaviðskipta. Murakami hefur viðurkennt að hafa keypt bréf í japanska fyrirtækinu Nippon Broadcasting System á síðasta ári. 23.6.2006 10:06
Mosaic Fashions horfir á tískufyrirtækið Rubicon Breska tískukeðjan Mosaic Fashions, sem skráð er í Kauphöll Íslands og er að stórum hluta í eigu Baugs, hyggst kaupa tískufyrirtækið Rubicon. Kaupverð er rúmir 48,6 milljarðar króna. 22.6.2006 16:29
Meðlimur peningamálanefndar Englandsbanka látinn David Walton, sá eini meðlimur peningamálanefndar Englandsbanka sem í tvígang hefur verið fylgjandi hækkun stýrivaxta í Bretlandi, lést í gærkvöldi eftir skammvinn veikindi. Greint var frá því í gær að bankinn hefði ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í júní en þeir standa í 4,5 prósentum. 22.6.2006 11:24
ESA athugar ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu stofnunarinnar í gær. 22.6.2006 10:51