Viðskipti innlent

Línur ljósar í Gretti

TM selur hlut sinn í Gretti Sund kaupir hlutinn og á orðið 49 prósent hlutafjár.
TM selur hlut sinn í Gretti Sund kaupir hlutinn og á orðið 49 prósent hlutafjár.

Sund hefur keypt 31 prósents hlut Tryggingamiðstöðvarinnar í Fjárfestingafélaginu Gretti og er þar með orðinn stærsti hluthafinn með 49 prósenta hlut.

Markaðurinn greindi frá því á dögunum að eigendur myndu verja stöðu sína eftir að TM fór fram á innlausn hluta í Gretti.

Aðrir hluthafar Grettis eru Landsbankinn og Ópera, fjárfestingafélag Björgólfsfeðga.

Grettir er meðal stærstu hluthafa í Straumi-Burðarási en á einnig hluti í Avion Group, Icelandic Group og Landsbankanum. Þetta er eitt öflugasta fjárfestingafélag landsins en markaðsverðmæti innlendra hlutabréfa nemur rúmum 34 milljörðum króna.

Ekki kemur fram hvert kaupverðið er, en TM bókfærði hlutinn á 5,5 milljarða króna þann 31. mars síðastliðinn. Greitt var með peningum.

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður hefur jafnframt verið ráðinn framkvæmdastjóri Grettis. Hann hefur starfað fyrir Jón Kristjánsson, stjórnarformann Grettis og einn eigenda Sunds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×