Viðskipti innlent

PLIVA hugnast best tilboð frá Bandaríkjunum

Stjórnendur Actavis Róbert Wessman forstjóri og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Actavis, sjást hér á aðalfundi félagsins í fyrra. Óvíst er hvernig fer með kaup fyrirtækisins á króatíska samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA.
Stjórnendur Actavis Róbert Wessman forstjóri og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Actavis, sjást hér á aðalfundi félagsins í fyrra. Óvíst er hvernig fer með kaup fyrirtækisins á króatíska samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA. MYND/Valli

Óli Kristján Ármannson

skrifar

Króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA upplýsti í gær að stjórn þess litist best á kauptilboð bandaríska lyfjarisans Barr Pharmaceuticals í öll hlutabréf fyrirtækisins. Fyrirtækið hóf að meta stöðu sína eftir að Actavis lagði fram óbindandi kauptilboð í fyrirtækið 13. mars síðast liðinn.

Actavis hefur boðið rúmlega 150 milljarða króna í fyrirtækið og Barr tæplega 170 milljarða. Tilboð Barr er þó háð því að Barr eignist yfir helmingshlut í félaginu. Söluferli PLIVA lýkur hins vegar ekki fyrr en eftir um mánuð og því ekki útilokað að Actavis bjóði betur. Greiningardeild Glitnis telur þó að verðið kunni að vera orðið það hátt að virðisaukning til hluthafa Actavis réttlæti ekki kaupin.

Zeljko Covic, forstjóri PLIVA, segir Barr vera besta kostinn hvað varði framtíðarvöxt fyrirtækisins. Saman erum við viss um að verða eitt fremsta og farsælasta samheitalyfjafyrirtæki heims, segir hann, en PLIVA hyggur á landvinninga á sviði líftækni þar sem Barr hefur þegar náð fótfestu. Enn er þó nokkuð óljóst um fyrirætlanir bandaríska lyfjarisans og kunna hugmyndir þeirra um reksturinn að skipta máli þegar að því kemur að hluthafar PLIVA geri endanlega upp hug sinn. Bruce L. Downey, starfandi stjórnarformaður Barr, er þó ekki í vafa um hagkvæmni samrunans enda muni fyrirtækin saman hafa aðgang að mörkuðum beggja vegna Atlantshafsins og samlegðaráhrif við markaðssetningu nýrra lyfja væru veruleg.

Kaupin á PLIVA eru mjög umfangsmikil og falli þau á endanum Actavis í skaut verða þau með stærstu viðskiptasamningum Íslendinga og Actavis um leið þriðji stærsti framleiðandi samheitalyfja í heiminum.

Halldórs Kristmannsson, talsmaður Actavis, sagði verið að leggja á ráðin um næstu skref og kvaðst ekki getað tjáð sig um málið að sinni þegar leitað var eftir viðbrögðum hans í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×