Viðskipti innlent

Hægir á einkaneyslu

Greiðslukort Greiðslukortavelta í maí nam 58 milljörðum króna.
Greiðslukort Greiðslukortavelta í maí nam 58 milljörðum króna.

Greiðslukortavelta í maí nam rúmum 58 milljörðum króna og hefur aukist um 12,6 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands.

Greiðslukortavelta innanlands nam tæpum 54 milljörðum og jókst um fjórtán prósent milli mánaða. Veltan hefur hins vegar dregist saman um 0,7 prósent miðað við maí í fyrra. Greiðslukortavelta erlendis dróst lítillega saman í maí.

Fram kemur á vef greiningardeildar KB banka að greiðslukortavelta hafi aukist um 0,9 prósent miðað við sama tíma í fyrra, en í apríl síðastliðnum hafi vöxtur greiðslukortaveltu hins vegar verið neikvæður um tæp sex prósent. Þetta þykir gefa vísbendingu um að heldur hafi hægst á einkaneyslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×