Viðskipti innlent

Kaupthing rífur og byggir

loftmynd af middlesex-sjúkrahúsinu Á myndinni sést hversu stórt framkvæmdasvæðið er í Lundúnum.
loftmynd af middlesex-sjúkrahúsinu Á myndinni sést hversu stórt framkvæmdasvæðið er í Lundúnum.

Alþjóðlegi fjárfestingasjóðurinn Project Abbey (Guernsey) Ltd hefur tryggt sér stærsta framkvæmdaverk í Bretlandi nú um stundir.

Um er að ræða kaup á lóð bresku ríkisspítalanna í West End-hverfinu í Lundúnum. Fyrirtækið mun meðal annars rífa Middlesex-sjúkrahúsið, sem staðið hefur autt síðan starfsemi þess flutti fyrir nokkru, og sinna uppbyggingu á svæðinu.

Singer & Friedlander, breski bankinn sem að fullu í eigu Kaupthings banka, kom að fjármögnun kaupa Project Abbeys á framkvæmdum á reitnum, sem er rúmir 12.000 fermetrar að flatarmáli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×