Viðskipti innlent

Örlög Straums í höndum Björgólfs Thors og Jóns Ásgeirs

Í þá gömlu góðu daga Björgólfur Thor Björgólfsson, Þórður Már Jóhannesson og Magnús Kristinsson þegar allt lék í lyndi - að minnsta kosti á yfirborðinu.
Í þá gömlu góðu daga Björgólfur Thor Björgólfsson, Þórður Már Jóhannesson og Magnús Kristinsson þegar allt lék í lyndi - að minnsta kosti á yfirborðinu.

Þetta átti sér mjög stuttan aðdraganda. Við töldum okkar geta slegið þrjá flugur í einu höggi að taka þennan hlut, segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group, um kaup félagsins á 24,2 prósent hlutafjár í Straumi-Burðarási af Kristni Björnssyni, Magnúsi Kristinssyni og Þórði Má Jóhannessyni.

Heildarhlutur FL Group er þar með kominn í 26 prósent í fjárfestingabankanum. Kaupverðið nemur 47 milljörðum króna sem seljendur fá aðallega í hlutabréfum í FL Group sem metin eru á 35 milljarða.

Hannes leggur á það áherslu að kaupin eru gerð í því skyni að efla Straum og ætlar FL Group að leggja sitt af mörkum til þess koma á starfsfriði inn eigendahópsins. Viðskiptin tengjast ekkert þeim deilum sem hafa átt sér stað í Straumi. Við teljum að þessi kaup geri bæði FL Group og Straum að enn öflugri félögum og leggjum áherslu á að einblína fram á veginn, sagði forstjóri FL Group á þriðjudagskvöldið. Sú mynd sem Hannes dró upp af stöðu mála umrætt kvöld er þó engan veginn svona skýr og einföld.



Hittust um helgina
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Hann og Þórður Már Jóhannesson voru forkólfar þess að FL Group keypti hluti Kristins og Magnúsar.Vísir/MHH

Eftir sögulegan stjórnarfund í síðustu viku, þegar meirihluti stjórnar Straums undir forystu stjórnarformannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar lét reka forstjórann Þórð Má Jóhannesson, vaknaði upp sú hugmynd hjá Kristni og Magnúsi, sem fóru fyrir minnihlutanum, að koma bréfum sínum í hendur annarra. Sættu þeir sig illa við málalok og töldu að þar sem búið var að afgreiða boðun hluthafafundar í júlí hefði stjórnin ekkert umboð til að vísa forstjóra frá störfum. Viðræður þeirra við FL Group fóru á flug um helgina og var ekki aftur snúið. Viðskipti þessi fóru fram án þess að samráð væri haft við stjórnarformanninn.

Þetta hlýtur að teljast nokkuð óvæntur leikur af hálfu FL Group en félagið nýtti sér þá spennu sem hafði verið að magnast í Straumi og keypti hlutabréf af miklum móð eftir því sem gengi Straums hækkaði. Eftir þessi viðskipti er ljóst að þræðir FL Group liggja orðið víða í bankakerfinu. Félagið, sem er að langstærstum hluta í eigu Hannesar, og Baugs Group, er stærsti hluthafinn í Glitni banka með 24 prósenta hlut, sem er metinn á um það bil 62 milljarða króna, og það er einnig stærst í Straumi-Burðarási með 26 prósenta hluti, um sex prósentum meira en Samson Global Holding, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga. Auk þess heldur FL Group utan um þriggja prósenta hlut í KB banka. Við kaupin eflist FL Group enn þá frekar en eftir útgáfu nýs hlutafjár fyrir 1,8 milljarða að nafnvirði verður eigið fé félagsins um 110 milljarðar og markaðsvirði líklega um 140 milljarðar.



Ekkert kaffiboð
Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss Heldur utan um 38 prósent hlutafjár. Talið er að hann muni eiga næstu leiki í skákinni um völdin í Straumi.

Það er gaman að velta því fyrir sér hvort þessi viðskipti séu leikur í þeirri fléttu að steypa saman Straumi-Burðarási og FL Group eins og margir í viðskiptalífinu hafa velt fyrir sér. Björgólfur Thor og Hannes Smárason hafa ekki áður starfað saman og ekki heldur Björgólfsfeðgar, aðaleigendur Landsbankans, og Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sem hefur nú orðið mikil ítök í FL Group, Glitni og Straumi i gegnum eignarhlut Baugs í FL Group. Ekki má því horfa framhjá því að þessir aðilar gætu verið að horfa enn lengra fram tímann, jafnvel á sameiningu Glitnis og Landsbankans, sem áður hefur komið til umræðu.

Hins vegar segja heimildamenn Fréttablaðsins að FL Group sé ekki komið inn í Straum til að drekka kaffi með Björgólfi Thor. Leikfléttan er sú að FL Group kemur Magnúsi og Kristni úr óþægilegri stöðu, eignast sjálft yfir fjórðung hlutafjár í Straumi sem er staða sem félagið getur átt um langa hríð og síðan komi í ljós hver niðurstaðan verður. Arkitektarnir á bakvið þessa skák eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og fyrrverandi forstjóri Straums, Þórður Már Jóhannesson, sem naut mikils trausts hjá Kristni og Magnúsi. Ákvörðun um framhaldið ræðst af því hvað Björgólfur Thor vill gera, enda ráði hann enn för í Straumi með hlut Samsonar og Fjárfestingafélagsins Grettis á bak við sig en hefur óþægilega minnihlutaeigendur í samstarfi við sig. Hugsanlegt er að Straumi-Burðarási verði hreinlega skipt upp milli FL Group, sem fengi Straum, og Björgólfsfeðga sem fengju Burðarás. Og jafnvel gæti það gerst Björgólfur að taki yfir Straum gegn því að greiða öðrum hluthöfum gott verð fyrir sinn snúð.

Síðustu sviptingar vekja jafnframt spurningar um stöðu Björgólfs Thors í íslensku viðskiptalífi sem virðist eiga fáa bandamenn þessa dagana. Samstarfsmönnum Jóns Ásgeirs hefur aftur á móti fjölgað um tvo.



Björgólfur vildi Magnús útNiðurstaðan er stórgóð fyrir þá félaga Kristinn og Magnús, sem leika stórt hlutverk í þessari fléttu, eftir að hafa verið komnir í óþægilega stöðu sem minnihlutaeigendur í Straumi. Andað hefur köldu milli Björgólfs Thors og Magnúsar um langa hríð, miklu lengur en frá aðalfundi Straums þegar allt fór í háaloft. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vildi Björgólfur Thor losna við Magnús úr Straumi í janúar með því að kaupa fimmtán prósenta hlut Eyjamannsins en Magnús tók það ekki í mál. Björgólfur Thor sagði sjálfur í viðtali við Fréttablaðið í síðustu viku að hann hefði verið tilbúinn að selja hlut sinn í mars fyrir reiðufé, en ekki hlutabréf, en enginn kaupandi var til staðar.

Hagnaður þeirra Kristins og Magnúsar af fjárfestingu sinni í Straumi er með ólíkindum en þeir keyptu stóran hlut árið 2003 þegar Straumur var lítið en stórhuga fjárfestingafélag. Magnús keypti tæp tíu prósent á genginu 4,55 en salan fór fram á genginu 18,9. Þeir félagar munu vera hæstánægðir með viðskiptin og eru síður en svo sestir í helgan stein, enda fá þeir stóran hlut í FL Group, Magnús fimmtán prósent og Kristinn tíu prósent sem þýðir væntanlega að þeir munu setjast síðar í sjö manna stjórn. Ekki er þó víst að bandalag þeirra nái lengra en sem því nemur, en því má ekki gleyma að þeir eru með óbeinum hætti hluthafar í Straumi, og gleyma líklega aldrei samskiptum sínum við Björgólf. Boltinn hjá BjörgólfiEftir stendur að þau læti, sem valdið hafa Straumi ómældum skaða, eru horfin en valdamynstrið í eigendahópnum hefur tekið breytingum. Björgólfur Thor fer áfram með meirihluta en minnihlutinn hefur margfaldað styrk sinn eftir komu FL Group, félags í eigu fjölda peningamanna, og lætur seint vaða yfir sig. Ekki er talið ólíklegt að mikið eigi eftir að gerast í Straumi og á hlutabréfamarkaði á næstunni. Boltinn er hins vegar hjá Björgólfi sem ræður stöðunni. Vill hann nánara samstarf, uppskiptingu eða yfirtöku? eggert@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×