Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagnaður Hennes & Mauritz jókst um 12 prósent Hagnaður sænsku tískuvörukeðjunnar Hennes & Mauritz jókst um 12 prósent á milli ára á öðrum fjórðungi þessa árs. Fyrirtækið ætlar í útrás til Kína á næsta ári og mun setja á laggirnar verslanir með föt fyrir bæði kynin. Verlsanirnar munu ekki verða reknar í nafni sænska fyrirtækisins. 21.6.2006 13:11
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn seðlabanka Bretlands ákvað á vaxtaákvörðunarfundi sínum í dag að halda stýrivöxtum í landinu óbreyttum. Stýrivextir í Bretlandi eru 4,5 prósent og hafa haldist óbreyttir í 10 mánuði í röð. 21.6.2006 10:59
Launavísitalan hækkaði um 0,9 prósent Launavísitalan í maí er 289,1 stig og hækkaði um 0,9 prósent frá fyrri mánuði. Vísitalan stóð í 286,4 stigum í apríl og hafði hækkað um 0,4 prósent á milli mánaða. Síðastliðna 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,7 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. 21.6.2006 09:32
Dagbrún eignast 96,47 prósent í EJS Dagsbrún hefur gert samning við hóp hluthafa EJS um kaup á 21,45 prósentum hlutafjár hlutafé í EJS fyrir 85,8 milljónir króna að nafnvirði. Gengi hlutanna er 5,23. Hluthafar bréfa í EJS eru 343 talsins. 20.6.2006 13:28
Abramovitsj kaupir í Rússlandi Millhouse Capital, fjárfestingafélag rússneska milljarðamæringsins Romans Abramovitsj, eiganda breska knattspyrnufélagsins Chelsea, hefur samþykkt að kaupa allt að 41 prósents hlut í rússneska námu- og stálfyrirtækin Evraz Group. Hluturinn metinn á 3,2 milljarða Bandaríkjadali, jafnvirði rúmlega 240 milljarða íslenskra króna. 19.6.2006 19:34
Allt í háaloft hjá Airbus Stjórn EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans Airbus, ætlar að hittast til fundar og fjalla um stöðu mála. Tvisvar hefur verið tilkynnt um tafir á framleiðslu Airbus A380 risaþota frá fyrirtækinu nú síðast í liðinni viku. Margir væntanlegir kaupendur hafa vegna þessa snúið sér annað og gengi hlutabréfa í EADS hefur fallið um heil 26 prósent vegna þessa. 19.6.2006 12:31
Ný kauphöll í Bretlandi? Samruni kauphallarinnar í New York (NYSE) og samevrópska hlutabréfamarkaðarins Euronext gæti leitt til þess að nýr hlutabréfamarkaður verði stofnaður í Lundúnum í Bretlandi til höfuðs kauphöllinni sem fyrir er í borginni. Þetta segir John Thain, forstjóri NYSE í samtali við breska blaðið Financial Times. 19.6.2006 11:23
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar milli mánaða Vísitala byggingarkostnaðar fyrir júlí, reiknuð eftir verðlagi um miðjan júni, hefur hækkað um 0,27 prósent frá fyrri mánuði. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,1 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Til samanburðar nam hækkun vísitölu byggingarkostnaðar fyrir júní 6,9 prósentum á 12 mánaða tímabili. 19.6.2006 10:52
Slóvenar taka upp evru á næsta ári Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur samþykkt að leyfa Slóveníu að ganga í myntbandalag sambandsins og taka upp evru sem gjaldmiðil í janúar á næsta ári. Slóvenía verður 13. landið á evrusvæðinu. 16.6.2006 14:26
Vinnslustöðin selur í Stillu Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur selt allan hlut sinn, 45 prósent, í Stillu ehf fyrir 417 milljónir króna. Söluverðið fæst greitt með hlutabréfum í Vinnslustöðinni og peningum. Söluhagnaður Vinnslustöðvarinnar af þessum viðskiptum nemur 65 milljónum króna. 16.6.2006 09:54
Mikil hækkun á hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa hækkaði um allt að 2,8 prósent á mörkuðum í Bandaríkjunum og í Evrópu í gær í kjölfar þess að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, kvaddi niður fréttir þess efnis að verðbólgudraugurinn væri á leiðinni vestra. 16.6.2006 09:27
Vill evrópska risakauphöll Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, segist frekar vilja að evrópska kauphallarsamstæðan Euronext sameinist Þýsku kauphöllinni, Deutsche Boerse, en Kauphöllinni í New York (NYSE). Forsvarsmenn Euronext hafa nú þegar tilkynnt að sameining við NYSE sé í burðarliðnum. 16.6.2006 08:30
Verðbólgan eykst vestra Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta jafngildir 4,2 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. 16.6.2006 08:15
Varði titilinn á golfmóti Um hundrað manns tóku þátt í árlegu fyrirtækjagolfmóti Og Vodafone sem nýverið fór fram á Grafarholtsvelli. 16.6.2006 07:45
Úrslitavafri Norska vafrafyrirtækið Opera Software hefur sent frá sér nýjan vafra í farsíma sem er sérstaklega ætlaður áhugafólki um HM í fótbolta. Vafrinn heitir Opera Mini Goal 06. 16.6.2006 07:30
Búast við 40 þúsund gestum í Egilshöll í september. Sýningin 3L EXPO verður haldin í Egilshöll dagana 7. til 11. september en VIVUS viðburðastjórnun stendur að sýningunni í samvinnu við 22 félagasamtök á öllum sviðum. Þetta er stærsta sýning sem haldin hefur verið á Íslandi en henni er beint að öllu sem tengist lífi, líkama og líðan. 16.6.2006 07:15
Olían stöðug við 70 dali Spákaupmennska og skortur á olíuhreinsistöðvum halda heimsmarkaðsverði á olíu í hæstu hæðum að mati markaðsstjóra Atlantsolíu. 16.6.2006 07:00
Núll prósent vextir Japanski seðlabankinn hefur tilkynnt að stýrivextir verði enn um sinn núll prósent. 16.6.2006 06:45
NIB tekur nýja stefnu Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) ætlar að leggja sérstaka áherslu á að efla samkeppnishæfi landa og fyrirtækja við Eystrasaltið auk þess að fjármagna umhverfisverkefni. Þetta er hluti af endurskipulagningu sem ráðist hefur verið í við bankann í tilefni af 30 ára afmæli hans á árinu. Þannig segir í tilkynningu bankans að bankinn muni einbeita sér að verkefnum á sviði orkumála, flutninga og umhverfistækni. 16.6.2006 06:30
Lítil verðbólga í EMU Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í maí, samkvæmt útreikningum Evrópusambandsins (ESB). Þetta er 0,1 prósenti meiri verðbólga en mældist á svæðinu í apríl. 16.6.2006 06:30
Methækkun hlutabréfa á Indlandi Gengi hlutabréfa hækkaði um 6,9 prósent á mörkuðum á Indlandi í dag og er það methækkun hlutabréfa á einum degi. Gengi bréfanna hafði lækkað mikið síðastliðna þrjá daga og því var hækkuninni tekið fagnandi, að sögn sérfræðinga. 15.6.2006 11:23
Smásöluverslun jókst um 0,5 prósent Velta í smásöluverslun í Bretlandi jókst um 0,5 prósent í maí, samkvæmt útreikningum hagstofu Bretlands. Helsta ástæða hækkunarinnar er aukin viðskipti með fatnað og raftæki. Verslunareigendur í Bretlandi segjast hafa tekið eftir aukinni sölu plasma-sjónvarpa og fótboltabola með merki enska landsliðsins. 15.6.2006 10:42
2,5 prósenta verðbólga á evrusvæðinu Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í maí, samkvæmt útreikningum Evrópusambandsins (ESB). Þetta er 0,1 prósenti meiri verðbólga en mældist á svæðinu í apríl. 15.6.2006 10:03
Krónubréf sjást aftur Eftir nokkurt hlé var tilkynnt um útgáfu krónubréfa í byrjun vikunnar. Þá jók þýski þróunarbankinn KfW við útgáfu sína um fimm milljarða króna. 15.6.2006 06:00
Merck selur hlut sinn í Schering Þýska lyfjafyrirtækið Merck hefur samþykkt að selja þýska lyfjaframleiðandanum Bayer AG 21,8 prósenta hlut sinn í Schering og auðvelda yfirtöku Bayer á Schering. Merck keypti óvænt bréf í Schering skömmu fyrir lokun markaða á föstudag í síðustu viku og hefði getað hindrað yfirtökuferlið. 14.6.2006 13:02
1,3 prósenta atvinnuleysi í maí Atvinnuleysi var 1,3 prósent í síðasta mánuði og er það óbreytt frá mánuðinum á undan. Alls voru 47.418 atvinnuleysisdagar skráðir á landinu öllu en það jafngildir því að 2.062 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar. 14.6.2006 10:46
Zara í Kringluna Spænska tískukeðjan Zara opnar 600 fermetra verslun í Kringlunni í haust þar sem Next var áður til húsa. Zara rekur 1.500 fermetra verslun sem er eitt af flaggskipum Smáralindar. Hagar, sem hafa sérleyfi fyrir Zöru á Íslandi, hafa verið umsvifamiklir á sérvörumarkaði að undanförnu og fjárfest í mörgum verslunum í Kringlu og Smáralind. 14.6.2006 08:45
Vinnur nýja rannsókn um samkeppnishæfni landsins Viðskiptagúrúinn Michael E. Porter er væntanlegur hingað í haust. Þá kynnir hann nýja rannsókn um samkeppnishæfni Íslands og tekur við heiðursdoktorsnafnbót. 14.6.2006 08:45
TM innleysir hlut sinn í Gretti Annaðhvort verður Grettir leystur upp eða aðrir hluthafar kaupa hlut TM. 14.6.2006 08:30
Túlkunin stendur Álit Yfirtökunefndar á rétti þeirra sem gerst hafa yfirtökuskyldir og kjósa að selja sig niður hefur ekki áhrif á túlkun Fjármálaeftirlitsins. 14.6.2006 08:30
Skjálfti skekur hlutabréfamarkaði Líklegar vaxtahækkanir innan- og utanlands og lækkun á erlendum hlutabréfum valda meðal annars verðfalli innlendra hlutabréfa að mati sérfræðings. 14.6.2006 08:15
Shoe Studio frestast Samkvæmt heimildum Markaðarins munu eigendur tískuverslanakeðjunnar Shoe Studio Group (SSG) bíða með ákvörðun fram til hausts um hvenær félagið verður skráð í Kauphöll Íslands. Jafnvel var búist við að SSG myndi verða skrásett í júní. 14.6.2006 08:00
HugurAx verður til Með sameiningu hugbúnaðarfyrirtækjanna Hugar og AX hugbúnaðarhúss varð til eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með um 125 starfsmenn. Sameinað fyrirtæki kallast HugurAx. 14.6.2006 07:45
Heildarafli eykst á milli ára Heildarafli íslenskra skipa var tæp 179.000 tonn í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Þetta er rúmum 38.000 tonnum meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Ástæðan er að stórum hluta sú að kolmunnaveiði var um 34.000 tonnum meiri nú en í maí á síðasta ári. 14.6.2006 07:30
Flutt inn fyrir 35,7 milljarða króna Vöruinnflutningur í maí var 35,7 milljarða króna virði samkvæmt bráðabirgðatölum fjármálaráðuneytisins um innheimtu virðisaukaskatts. Tólf mánaða aukning innflutnings, að skipum og flugvélum undanskildum, nam rúmum 23 prósentum. 14.6.2006 07:15
Fimm prósent hagvöxtur Hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi var fimm prósent á ársgrundvelli samkvæmt Hagstofu Íslands. Árstíðarleiðrétt landsframleiðsla sýnir 4,1 prósent vöxt fyrir sama tímabil. 14.6.2006 07:00
Breytingar á Wyndeham Starfsemi breska prent- og samskiptafyrirtækisins Wyndeham Press Group, sem Daybreak Acquisitions Limited, dótturfélag Dagsbrúnar á 94,5 prósenta hlut í, hefur verið skipt í svið útgáfulausna og svið markaðslausna. 14.6.2006 06:30
Fengu góð kjör í skuldabréfaútgáfu Glitnir banki gekk frá útgáfu víkjandi skuldabréfa í Bandaríkjunum að upphæð 500 milljónir Bandaríkjadala eftir lokun markaða vestra á mánudag. Útgáfan jafngildir um 37 milljörðum íslenskra króna og er til 10 ára með innköllunarákvæði eftir 5 ár af hálfu Glitnis. 14.6.2006 06:30
Atlantsskip leigja nýtt skip Atlantsskip hafa tekið nýtt skip á leigu. Segir í tilkynningu frá félaginu að fyrsta hlutverk þess verði að létta á Evrópuflutningum félagsins en síðan fari það í siglingar milli Íslands og Ameríku. 14.6.2006 06:00
Barist um þýskan lyfjarisa Bandaríska lyfjafyrirtækið Merck er komið í stöðu til að koma í veg fyrir yfirtökuáform þýska lyfjarisans Bayer á lyfjafyrirtækinu Schering. Merck keypti óvænt rúm 18 prósent í Schering rétt fyrir lokun markaða á föstudag. 13.6.2006 15:10
Mikil lækkun hlutabréfa í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði mikið í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag en Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,14 prósent. Vísitalan hefur ekki lækkað jafn mikið á einum degi í tvö ár. Ástæða lækkunarinnar er ótti fjárfesta í Bandaríkjunum og Japan við hugsanlega hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum. 13.6.2006 10:03
Vöruinnflutningur 35,7 milljarðar í maí Vöruinnflutningur í maí nam 35,7 milljörðum króna virði ef marka má bráðabirgðatölur um innheimtu virðisaukaskatts. Í Vefriti fjármálaráðuneytisins segir að sé horft á hreyfingar á milli mánaða megi sjá að helstu drifkraftar innflutnings séu innfluttar hrá-, rekstrar- og fjárfestingarvörur. Aukninguna má að mestu rekja til stóriðjuframkvæmda. 13.6.2006 09:47
Landsframleiðsla jókst um 5 prósent Landsframleiðsla er talin hafa aukist um 5 prósent að raungildi á fyrstu þremur mánuðum þessa árs frá sama tímabili í fyrra. Þá hafa þjóðarútgjöld vaxið talsvert, eða um 13,7 prósent, vegna mikillar aukningar í innflutningi og minni útflutningi. 13.6.2006 09:39
4,7 milljarða útlán Útlán Íbúðalánasjóðs námu 4,7 milljörðum króna í maí samkvæmt mánaðarskýrslu sjóðsins. Þar af námu almenn lán 3,9 milljörðum króna og leiguíbúðalán tæplega 800 milljónum. Það eru mestu útlán sjóðsins í einum mánuði það sem af er ári. 13.6.2006 07:45
Vísitölurnar falla Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði í gær í kjölfar birtingu vísitölu neysluverðs, en hækkun hennar var umfram væntingar. Krónan styrktist lítillega sem skýrist af væntingum um frekari strýrivaxtahækknair Seðlabankans. 13.6.2006 07:30