Viðskipti innlent

Sameining matvörukeðja í biðstöð

Verslun Costcutter í York Samtök smærri hluthafa í Nisa telja sameiningu við Costcutter ekki fýsilega. Kauthing Banki fjármagnar viðskiptin.
Verslun Costcutter í York Samtök smærri hluthafa í Nisa telja sameiningu við Costcutter ekki fýsilega. Kauthing Banki fjármagnar viðskiptin.

Sameining bresku matvörukeðjanna Nisa og Costcutter er í uppnámi eftir að smærri hluthafar í Nisa sendu stjórnendum fyrirtækisins bréf þar sem sameiningunni var mótmælt. Kaupthing Banki fjármagnar viðskiptin sem sögð eru nema 27,5 milljörðum íslenskra króna auk þess að ráða einhverjum hluta bréfa í sameinuðu fyrirtæki.

Samtök smærri hluthafa í NISA segja sameininguna skuldsetja fyrirtækið um of auk þess sem stjórnendur fái óeðlilega stóran hlut í sameinuðu fyrirtæki. Mark nokkur Proudfoot fer fyrir smærri hluthöfum, en sá er kunnur fyrir að hafa kært matvörurisann Tesco fyrir breska samkeppniseftirlitinu.

Stjórn NISA hefur þó rétt fram sáttahönd og hefur boðið smærri hluthöfum fimmtíu og eitt prósent í sameinuðu fyrirtæki, en áður stóð til að hlutur þeirra yrði um fjörutíu prósent. Hlutur stjórnenda verður um þrjátíu prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×