Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iceland Express komið í sölu Söluferli á flugfélaginu Iceland Express er hafið og eru væntanlegir kaupendur búnir að fá útboðsgögn í hendur. Að sögn Sigurjóns Pálssonar hjá KB Banka eru áhugasamir kaupendnur vel á anna tug og meirihluti þeirra séu innlendir aðilar. 26.1.2006 14:05
Stýrivextir Seðlabankans hækka Seðlabanki Íslands hækkaði í morgun stýrivexti sýna um 0,25 prósentustig. Hækkunin er í samræmi við spár greiningardeilda bankanna sem spáð höfðu 25 til 50 punkta hækkun. 26.1.2006 09:00
Gullgrafaraæði grípur um sig í FlyMe Það rignir inn tilboðum frá einstaklingum, segir verðbréfamiðlari um sænska lággjaldaflugfélagið FlyMe en íslenskir fjárfestar, smáir sem stórir, hafa streymt inn í félagið að undanförnu samkvæmt upplýsingum Markaðarins. 25.1.2006 10:30
Actavis kaupir Fako allt Actavis hefur keypt 11 prósenta hlut í tyrkneska samheitalyfjafyrirtækinu Fako fyrir 20,4 milljónir Bandaríkjadala. Fako er nú að fullu í eigu Actavis, en í desember 2003 keypti Actavis 89 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 63 milljónir dala. 23.1.2006 13:22
Lífleg viðskipti með bréf Avion Lífleg viðskipti voru með hlutabréf Avion Group, fjárfestingafélags á sviði flutningastarfsemi, en félagið var í morgun skráð á aðallista Kauphallar Íslands. Þegar viðskipti hófust klukkan tíu í morgun stóð verð hvers hlutar í 49,1 krónu, hækkaði á fyrstu mínútunum yfir 50 krónur, en var tæpum klukkutíma síðar komið í 45,2 krónur. 20.1.2006 10:58
Keyptu í lettneskum banka Íslenskir fjárfestar hafa keypt sextíu prósent í Lateko-banka í Lettlandi. Eignir bankans, sem rekur tíu útibú, nema um þrjátíu milljörðum króna. 19.1.2006 00:01
Lækkun í Kauphöll Íslands Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa lækkað töluvert í morgun samfara lækkunum á erlendum hlutabréfamörkuðum. Úrvalsvísitalan lækkaði þannig um tvö prósent á fyrsta hálftímanum. Hlutabréf í FL Group, Landsbankanum og Íslandsbanka höfðu lækkað meira en þrjú prósent og bréf í KB banka um 2,5 prósent. 18.1.2006 10:27
Pálmi eykur hlut sinn í Ticket Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Fons, heldur áfram að kaupa í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket en samkvæmt sænska viðskiptablaðinu Näringsliv 24 á hann nú yfir fimmtungshlut í fyrirtækinu. 17.1.2006 08:00
Gagnrýnir Kjartan Gunnarsson Henrik Didner, sem situr í valnefnd sem leggur fram tillögu að næstu stjórn sænska verðbréfafyrirtækisins Carnegie, er ósáttur við vinnubrögð Kjartans Gunnarssonar, formanns nefndarinnar, og ætlar að ganga úr henni. 13.1.2006 00:01
Herðir tök sín á Skandia Erlendir hluthafar eiga orðið 72 prósent hlutafjár í sænska fjármálafyrirtækinu Skandia. Í nóvember var þessi tala hins vegar 63 prósent. 13.1.2006 00:01
Áfram hækkar Íslandsbanki Hlutabréf í Íslandsbanka hækkuðu um 2,5 prósent í byrjun viðskiptadags í gær eftir að greint var frá því að nokkrir lykilstjórnendur í Íslandsbanka hefðu gert kaupréttarsamninga við bankann til þriggja ára. Í lok dags höfðu bréf bankans hækkað um rúm tvö prósent. 13.1.2006 00:01
Vísitalan yfir sexþúsund stig Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands fór yfir 6000 stig í gær og sló með því enn eitt metið. Vísitalan endaði í 6009 stigum. Hækkun vísitölunnar frá áramótum nemur 8,56 prósentum. 13.1.2006 00:01
Endurfjármagna lán Símans Í kjölfar samrunans við Skipti hefur efnahagsreikningur Símans vaxið úr 26 milljörðum króna í rétt rúma 84 milljarða. Kom þetta fram á hluthafafundi sem haldinn var 21. desember á síðasta ári og sagt var frá í Fréttablaðinu í gær. Á hluthafafundinum var samruninn samþykktur. Skipti ehf. er félagið sem keypti Símann af ríkinu í sumar fyrir 66,7 milljarða króna. 13.1.2006 00:01
Virkur eignarhlutur í SPH frá upphafi Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) telur að samkvæmt skilgreiningu Fjármálaeftirlitsins hafi virkur eignarhlutur verið til staðar í sjóðnum frá upphafi og undrast því rannsókn eftirlitsins nú. Kemur þetta fram í greinargerð sem Sparisjóðurinn sendi frá sér í gær. 13.1.2006 00:01
6000 stiga múrinn rofinn Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands fór í morgun yfir 6000 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,5 prósent frá áramótum. Íslandsbanki hækkaði í morgun, en tilkynnt var um kaupréttarsamning við framkvæmdastjóra bankans. 12.1.2006 11:24
Yfirtaka sjónvarpsfélags stöðvuð Þýska útgáfufyrirtækið Axel Springer fær ekki að taka yfir sjónvarpskeðjuna ProSiebenSat1, samkvæmt úrskurði eftirlitsstofnunar fjölmiðla í landinu. Líklegt þykir að Axel Springer áfrýji úrskurðinum til þýskra dómstóla. 12.1.2006 00:01
FlyMe tvöfaldast í verði Hlutabréf í sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe, sem er að stærstum hluta í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar í Fons eignarhaldsfélagi, hækkuðu gríðarlega í gær í miklum viðskiptum. Gengið stóð í 0,23 sænskum krónum á hlut rétt fyrir lokun markaða og hafði hækkað um 30 prósent á einum degi. Frá áramótum er hækkunin um 85 prósent. 12.1.2006 00:01
Sjö fyrirtæki mega þegar byrja að selja raforku Sjö fyrirtæki hafa fengið leyfi til að selja raforku til neytenda eftir að raforkusala var gefin frjáls um síðustu áramót. Veitur sem framleiða rafmagn þurfa sérstakt leyfi til að selja utan síns dreifisvæðis. Þær sem hafa fengið leyfi eru Hitaveita Suðurnesja, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Rafmagnsveitur ríkisins - RARIK og Rafveita Reyðarfjarðar. 12.1.2006 00:01
Bandaríkjadalur að lækka Erlendir sérfræðingar telja að gengi bandaríkjadals muni lækka gagnvart helstu gjaldmiðlum á árinu. Kemur þetta fram á vefsíðu greiningardeildar Íslandsbanka. 12.1.2006 00:01
Góð ávöxtun Vista Séreignarsjóðurinn Vista, sem rekinn er af KB banka og tekur við viðbótarlífeyrissparnaði, skilaði góðri ávöxtun árið 2005. Ein fjárfestingaleiða sjóðsins, innlend hlutabréf, skilaði 67,4 prósenta nafnávöxtun eða 60,7 prósenta raunávöxtun. Er það 2,7 prósentum umfram hækkun úrvalsvísitölunnar. 12.1.2006 00:01
Trillukarlar í flugrekstur Um tuttugu Hornfirðingar, sem flestir tengjast smábátaútgerð, keyptu skömmu fyrir áramót 10 prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu City Star. Félagið er að megni til í eigu Íslendinga en það er móðurfélag skoska flugfélagsins City Star Airlines og Landsflugs. Kaupin koma í kjölfar skemmtiferðar hornfirskra trillukarla í september síðastliðnum en þá flugu þeir með City Star Airlines frá Hornafirði. til Írlands. 10.1.2006 00:01
Metviðskipti í Kauphöll eftir sölu í Íslandsbanka Samherjamenn, Nóatúnsfjölskyldan og Byggingafélag Gylfa og Gunnars koma ný í hluthafahóp Íslandsbanka. Hlutabréfaviðskipti fyrir rúma 122 milljarða í gær. Forstjóri Straums-Burðaráss sáttur við söluna. 10.1.2006 00:01
100 milljarða króna fjármögnun Actavis Actavis hefur gengið frá 100 milljarða fjármögnun sem byggist annars vegar á sambankaláni og hins vegar á sölu forgangsréttarhlutabréfa. Sambankalánið er að upphæð 80 milljarðar króna sem er það mesta sem íslensku fyrirtæki hefur verið veitt. 10.1.2006 00:01
Stelios hefur ekki gert upp hug sinn Stofnandinn og stærsti eigandi easyJet, Stelios Haji-Ioannou, segir í viðtali við Evening Standard að hann hafi ekki gert upp hug sinn hvort hann myndi fallast á hugsanlega yfirtöku FL Group. "Ég er hvergi nærri því að selja. Ég tel enn að bréfin eigi meira inni." 10.1.2006 00:01
Tilboð í Jarðboranir vel ásættanlegt Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur sem óháður aðili lagt mat á yfirtökutilboð Atorku Group í Jarðboranir og telur að tilboð Atorku sé vel ásættanlegt og sanngjarnt fyrir hluthafa í Jarðborunum. 10.1.2006 00:01
Söluhagnaður Straums-Burðaráss 16 milljarðar króna Söluhagnaður Straums-Burðaráss af sölu á tæplega fjórðungshlut fyrirtækisins í Íslandsbanka nemur um 16 milljörðum króna, að sögn Þórðar Más Jóhannessonar forstjóra. Miklar vangaveltur eru þegar uppi um frekari eignatilfærslur hér innanlands eftir að Straumur-Burðarás fékk um 80 milljarða króna fyrir hlutinn. 9.1.2006 07:47
Skýrari blokkir eftir Íslandsbankasöluna Sala Straums til FL Group, Þáttar og fleiri aðila skýrir línur í eignarhaldi stærstu bankanna. Þrjár megin viðskiptablokkir eru með stærstu viðskiptabankanna í miðju sinni. Viðskiptin marka skil í átökum sem verið hafa í eigendahópi bankans. 9.1.2006 00:01
160 milljarðar í árshagnað Hagnaður helstu Kauphallarfélaga nærri fjórfaldast á fjórða ársfjórðungi. Gengishagnaður fjármálafyrirtækja í sögulegu hámarki. Spáð minni hækkun Úrvalsvísitölunnar í ár. 8.1.2006 00:20
Dregur úr vexti íbúðarlána Sérfræðingar greiningardeildar Landsbankans segja íbúðalán bankanna á árinu 2005 hafi numið alls 203,6 ma.kr. en síðustu fjóra mánuði ársins 2004 voru afgreidd ný lán fyrir samtals 120 ma.kr. 6.1.2006 17:29
FL-group eykur eignarhlut sinn í Finnair FL-group hefur keypt rúmlega þrjú og hálft prósent í finnska flugfélaginu Finnair Oyj með framvirkum samningi. Fyrir átti félagið um tvö og hálft prósent í fyrirtækinu og eignarhluturinn því orðinn ríflega sex prósent. 4.1.2006 17:27
Steypustöðin og Merkúr sameinast undir MEST Steypustöðin og Merkúr hafa sameinað starfsemi sína undir nafninu MEST. Í tilkynningu frá hinu nýsameinaða félagi segir að með sameiningunni verði til öflugt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á vörum og þjónustu til verktaka og fagaðila í byggingariðnaði og verklegum framkvæmdum. 2.1.2006 12:24
Pálmi kaupir 12 prósenta hlut í sænskri ferðaskrifstofu Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Fons, hefur keypt tólf prósenta hlut í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket og er þar með stærsti einstaki hluthafinn í félaginu. Þetta kemur fram á fréttavef sænska blaðsins Dagens Industri. Þar segir einnig að Pálmi hafi greitt um 400 milljónir íslenskra króna fyrir hlutinn, en hann á einnig stærstan hlut í sænska lággjaldaflugfélaginu Flyme. 2.1.2006 08:52
Eimskip tekur við rekstri á Herjólfi Eimskip hefur tekið við rekstri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs frá og með áramótum. Við þá breytingu hefur nýtt bókunar- og greiðslukerfi verið tekið í notkun ásamt nýju afsláttarfyrirkomulagi auk þess sem ný siglingaáætlun hefur verið tekin í gagnið. 1.1.2006 16:19
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf