Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heitir tímabundið MS/MBF Mjólkursamsalan hefur nú formlega sameinast Mjólkurbúi Flóamanna og hefur nú fengið nýtt nafn sem reyndar er einungis skammstöfun, MS/MBF. Það er til allrar hamingju tímabundin ráðstöfun því ný stjórn ætlar að velja nýtt nafn fljótlega að undangenginni samkeppni meðal starfsmanna og mjólkurframleiðenda þess. 30.4.2005 00:01
Boeing og Airbus berjast í Asíu Flugvélaframleiðendurnir Airbus og Boeing keppast nú við að selja flugfélögum í Asíu framleiðslu sína en eftirspurn flugfélaga í álfunni eftir flugvélum hefur aukist mikið með batnandi efnahag. Boeing, sem er bandarískt fyrirtæki, hefur að undanförnu misst fjölmarga samninga til evrópska samkeppnisaðilans Airbus. 30.4.2005 00:01
Reynt að halda viðskiptum FL Group Forstjóri Skeljungs, sem selur Icelandair eldsneyti, segir að fyrirtækið ætli að reyna að halda viðskiptunum, en flugfélagið ætlar að hefja eigin innflutning. Flugleiðir keyptu á síðasta ári eldsneyti fyrir tæplega sex milljarða króna, þar af um helminginn hér á landi. 30.4.2005 00:01
Methagnaður og kaup á banka KB banki hefur gert bindandi tilboð í breska bankann Singer & Friedlander. Stjórn breska bankans hefur ákveðið að mæla með tilboðinu. Þar með er nánast ekkert sem komið getur í veg fyrir að KB banki kaupi breska bankann. KB banki birti einnig uppgjör sitt í gær og nam hagnaður bankans rúmum ellefu milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er í samræmi við spár. 29.4.2005 00:01
Keahótel reka Hótel Borg Keahótel og Hótel Borg undirrituðu í gær samning um að fyrrnefnda félagið taki við rekstri Hótel Borgar við Austurvöll. Ekki er um kaup á hótelinu að ræða heldur var gerður leigusamningur til næstu 15 ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keahótelum. 29.4.2005 00:01
Vinna saman að tilboði í Símann Hópur fjárfesta vinnur nú að tilboði í Símann. Í hópnum eru Atorka Group, Frosti Bergsson, Jón Helgi Guðmundsson, Jón Snorrason og Sturla Snorrason. Hópurinn útilokar ekki samstarf við aðra, en í fréttatilkynningu frá þeim segir að fjárfestarnir hafi ekki starfað saman áður. Þeir vonast til að einkavæðingarferlið verði gagnsætt þannig að allir sitji við sama borð. 29.4.2005 00:01
FL Group íhugar olíuinnflutning Stærsti kaupandi eldsneytis á landinu íhugar að hefja innflutning sjálfur og hefur fest sér lóð fyrir birgðastöð. Forsvarsmenn FL Group útiloka ekki að hefja sölu á flugvélabensíni til annarra flugfélaga. 29.4.2005 00:01
Nýta sér forkaupsrétt í Mogganum Hluthafar í <em>Morgunblaðinu</em> hafa skrifað sig fyrir þeim hlut sem var til sölu í blaðinu og er því útlit fyrir að ekkert verði af sölu hans til hóps tengdum Íslandsbanka. 29.4.2005 00:01
Gerir tilboð í Singer&Friedlander Kaupþing banki, sem á tæp tuttugu prósent í breska bankanum Singer og Friedlander, hefur gert bindandi kauptilboð í bankann upp á röska 64 milljarða króna. 28.4.2005 00:01
Hagnaður Avion 2,5 milljarðar Hagnaður af rekstri Avion Group, móðurfélags Atlanta, Íslandsflugs og Exel Airways, nam tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta í fyrra og munaði þar mestu um mikinn hagnað af Exel Airways. 28.4.2005 00:01
Hagnaður jókst um 266% Hagnaður af rekstri Kaupþings banka eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi nam ellefu milljörðum króna og jókst um rúm 266 prósent frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður á hvern hlut nam 17 krónum en var sjö krónur í fyrra. 28.4.2005 00:01
Verðmæt stofnfjárbréf í SPH Nýir stjórnendur hafa mikinn hag af því að bæta rekstur Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Stofnfjárbréf eru ekki nema brot af eigin fé sjóðsins en fjárfestar gætu verið tilbúnir að borga mjög hátt verð til að komast yfir sparisjóðinn. 27.4.2005 00:01
Myndlistin í sókn Tryggvi Páll Friðriksson telur að markaður með myndlist sé vanmetinn og verð muni hækka. Málverk getur verið órjúfanlegur hluti af lífi einstaklings segir hann í samtali við Eggert Þór Aðalsteinsson. 27.4.2005 00:01
Varað við erlendri skuldasöfnun Viðskiptahallinn í ár stefnir í að vera sá mesti síðan eftir fyrra stríð og á sér ekki hliðstæðu í þróuðu ríki. Seðlabankastjóri segir skuldasöfnun helst ógna stöðu þjóðarbúsins en fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. 27.4.2005 00:01
Birta skýrslu Morgan Stanley Einkavæðingarnefnd tekur ákvörðun á fundi sínum í dag um hvort birta eigi ráðgjafaskýrslu Morgan Stanley, sem unnin var í tenglsum við undirbúning á sölu Símans. Samkvæmt heimildum Markaðarins má telja öruggt að það verði gert á næstunni. 27.4.2005 00:01
Methagnaður BP-olíurisans Breska risaolíufyrirtækið BP, sem m.a. vinnur olíu úr Norðursjó, skilaði methagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Olíuhluti Norsk Hydro sýndi líka mjög góða afkomu. 27.4.2005 00:01
Ekki aðhafst frekar KB banki segir að Fjármálaeftirlitið hafi lýst því yfir við bankann að það telji ekki tilefni til að aðhafast frekar í máli er varðar ítrekuð tilmæli Fjármálaeftirlitsins til bankans um að hann veiti fyrrverandi viðskiptavini tilteknar upplýsingar. 27.4.2005 00:01
Hagnaður Straums 4,5 milljarðar Straumur Fjárfestingabanki hagnaðist um rúma fjóra og hálfan milljarð eftir skatta á fyrsta þremur mánuðum ársins. Það er 127 prósenta hækkun miðað við árið í fyrra en þá nam hagnaðurinn rúmum tveimur milljörðum. 27.4.2005 00:01
Enn barist um vörumerkið Iceland Enn er barist um notkun orðsins Iceland sem vörumerkis. Breska verslanakeðjan Iceland, sem er í eigu Baugs, hafði boðist til að draga til baka umsókn um einkarétt á skráningu heitisins í löndum Evrópusambandsins, að beiðni íslenskra stjórnvalda. 27.4.2005 00:01
Almenningur í klemmu Almenningur ehf. sem hyggst bjóða í hlut í Símanum er í klemmu milli þess að undirrita trúnaðareið vegna útboðsgagna við sölu Símans og þess að upplýsa væntanlega hluthafa félagsins. 27.4.2005 00:01
Esso hækkar olíu- og bensínverð Olíufélagið Esso hefur hækkað verð á bensíni og díselolíu um eina krónu og fimmtíu aura og má rekja hækkunina til hækkunar á heimsmarkaðsverði og lækkunar á gengi krónunnar. Gengi krónunnar lækkaði um liðlega eitt prósent í gær sem er mikil lækkun á einum degi. 26.4.2005 00:01
Nýr sparisjóðsstjóri í Hafnarfirði Ný stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, sem komst til valda í síðustu viku, hefur þegar skipt um sparisjóðsstjóra. Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi borgarverkfræðingur, sem ráðinn var sparisjóðsstjóri síðastliðið haust hefur nú vikið fyrir Magnúsi Ægi Magnússyni sem starfað hefur hjá Sparisjóðnum í sjö ár. 26.4.2005 00:01
Skeljungur og Olís í fótspor Esso Öll stóru olíufélögin, Esso, Olís og Skeljungur, hafa hækkað verð á bensíni og díselolíu um eina krónu og fimmtíu aura og má rekja það til hækkunar á heimsmarkaðsverði og lækkunar krónunnar. 26.4.2005 00:01
Fékk ekki að kveðja starfsfólk Nýrri stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar lá svo á að reka sparisjóðsstjórann í gær að hann fékk ekki að kveðja starfsfólkið á starfsmannafundi eins og til stóð. 26.4.2005 00:01
Íbúðarverð hækkar um 13% Hækkun á verðmæti íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta ársfjórðungi nemur þrettán prósentum. Það jafngildir 315 þúsund krónum á hvern íbúa samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Það bætist við drjúga verðmætaaukningu á síðasta ári þegar verð íbúða á svæðinu hækkaði um 23 prósent. 26.4.2005 00:01
Skattaumhverfi gæti orðið betra Íslensk fyrirtæki greiða ekki háan tekjuskatt miðað við fyrirtæki í öðrum löndum og skattaumhverfi hér gæti orðið með því besta í heiminum, samkvæmt skýrslu sem Deloitte vann fyrir Samtök atvinnulífsins. Frjáls félagasamtök telja hins vegar skattaumhverfið óhagstætt góðgerðafélögum. 26.4.2005 00:01
Olíuverð hækkar á ný Olíuverð fer nú hækkandi á ný eftir að bilanir komu upp í olíuhreinsunarstöðvum í Bandaríkjunum. Að auki ríkir vissa um að jaðra muni við skort þegar sumarleyfatímabilið hefst á Vesturlöndum en þá eykst eldsneytisþörfin jafnan. Á Bandaríkjamarkaði kostaði fatið um 56 dollara. 25.4.2005 00:01
Frekari fjárfestingar í Hollandi Samskip hafa keypt frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Kloosterboer og verður hún sameinuð frystiflutningastarfsemi Samskipa. Með kaupunum eykst heildargeymslupláss Samskipa á frystum sjávarafurðum um 84 þúsund tonn, en fyrir var Samskip með sex þúsund tonna frystigeymslu í Sundahöfn. 25.4.2005 00:01
Samruni við Línu.Net samþykktur Samkeppnissráð samþykkti í dag samruna Og Vodafone og Línu.Nets. Þetta kemur fram á heimasíður Kauphallar Íslands. Í ákvörðun ráðsins segir að samkeppnisráð telji ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans. 25.4.2005 00:01
Straumur kaupir meira Straumur fjárfestingarbanki keypti á föstudag bréf í Íslandsbanka fyrir þrjá milljarða króna. Þessi kaup benda eindregið til þess að Straumur muni leggja upp í lokaorrustu um bankann. Kaupin verða tilkynnt á mánudag. Eigendur Landsbankans og viðskiptafélagar þeirra hafa veruleg ítök í hluthafahópi Straums. 24.4.2005 00:01
Ný stjórn komst til valda í SPH Óvænt tíðindi urðu á óvenju löngum aðalfundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar í gær þegar ný stjórn komst til valda með naumum meirihluta. Páll Pálsson fer fyrir nýju stjórninni en samkvæmt heimildum fréttastofu fara nýju stjórnarmennirnir fyrir þeim hópi stofnfjárfesta sem eru óánægðir með afkomu sjóðsins. 22.4.2005 00:01
Dregur úr hækkun íbúðaverðs Verð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4% milli febrúar og mars samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Næstu mánuði á undan mældist meiri hækkun á milli mánaða, um eða yfir 5% þegar litið er til janúar og febrúar á þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. 22.4.2005 00:01
50 milljarða kortaviðskipti Seðlabankinn segir að gríðarleg eyðsla landsmanna að undanförnu geti leitt til þenslu í hagkerfinu sem ástæða sé til að hafa áhyggjur af. Landsmenn hafa sjaldan eytt eins miklu og á fyrstu þremur mánuðum ársins þegar þeir notuðu kreditkort fyrir tæplega fimmtíu milljarða króna. 22.4.2005 00:01
Tenging rafrænna viðskipta Síminn hefur sett á markað nýja lausn, svokallaða „Viðskiptamiðju, sem er virðisaukandi þjónusta ofan á IP-net Símans. Lausnin hentar sérstaklega þeim fyrirtækjum sem þurfa að tengjast öðrum fyrirtækjum, stórum sem smáum, í rafrænum viðskiptum, að því er segir í tilkynningu. 22.4.2005 00:01
Telur hátt olíuverð draga úr áhuga Forstjóri bílaumboðsins Heklu telur að hátt verð á díselolíu sé í andstöðu við tilganginn með afnámi þungaskatts og dragi úr áhuga almennings á að eignast díselbíl. 21.4.2005 00:01
Ætlum að stækka sjóðinn Páll Pálsson, nýr stjórnarformaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar boðar útrás. Gamla stjórnin var felld í æsispennandi stjórnarkjöri. Atburðarásin kemur fráfarandi stjórnarmanni mjög á óvart. </font /></b /> 21.4.2005 00:01
Enn fækkar í Kauphöllinni Enn fækkar skráðum félögum í Kauphöll Íslands með kaupum Atorku á 65 prósenta hlut í Austurbakka fyrr rúman hálfan milljarð. Kaupendur munu gera öðrum eigendum yfirtökutilboð og væntanlega afskrá félagið úr Kauphöllinni í sumar. 20.4.2005 00:01
Ævintýraleg ávöxtun á bankabréfum Allt að 850 prósenta ávöxtun af bankabréfum frá 1998. Átta þúsund krónur í Búnaðarbankanum eru orðnar að 75.000 krónum í KB banka. Sá sem keypti hámarkshlut í Landsbankanum fyrir 104.000 krónur hefur fengið yfir 750 prósenta ávöxtun. 20.4.2005 00:01
Stjórnarmenn bankans sæti ábyrgð Stórir hluthafar í Straumi íhuga að láta opinbera matsmenn meta raunvirði Sjóvár-Almennra og að láta þá stjórnarmenn Íslandsbanka, sem gengu frá sölu á Sjóvá-Almennum út úr bankanum, sæta fjárhagslegri ábyrgð á hugsanlegum mismun á matsvirði og söluvirði. 20.4.2005 00:01
Enn deilt um völdin í Íslandsbanka Enn og aftur er deilt um völdin í Íslandsbanka. Stærstu hluthafar bankans höfðu áhuga á að kaupa tryggingafélagið Sjóvá en einungis öðrum var boðið að samningaborðinu. 20.4.2005 00:01
Verðbólga eilítið hærri en á EES Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,9 stig í mars og hækkaði um hálft prósent frá febrúar. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,8 stig, hækkaði um 0,4 prósent frá fyrra mánuði. Frá mars 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan að meðaltali tvö prósent í ríkjum EES en hún var 2,1 prósent á evrusvæðinu og 2,5 prósent á Íslandi. 19.4.2005 00:01
Deilir um gögn við eftirlit Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Fjármálaeftirlitsins um að KB banki afhendi tiltekin gögn hefur bankinn ekki orðið við þeim með fullnægjandi hætti. Þá hefur bankinn á síðari stigum sagst myndu vísa því til kærunefndar ef Fjármálaeftirlitið ítrekaði tilmæli sín enn frekar og hefur aðili málsins sent viðskiptaráðherra til athugunar hvort það samrýmist lögum um fjármálastofnanir og tilskipanir Evrópusambandsins. 19.4.2005 00:01
Loftleiðir leigja Bretum flugvél Loftleiðir Icelandic hafa samið við breska flugfélagið British Midland Airways um leigu á einni Boeing 757 þotu. Samningurinn er til 6 mánaða og tekur gildi þann 13. maí næstkomandi að því er fram kemur í tilkynningu frá Loftleiðum. 19.4.2005 00:01
Þáttur kaupir tvo þriðju í Sjóvá Íslandsbanki hf. og Þáttur eignarhaldsfélag ehf. hafa komist að samkomulagi um kaup Þáttar á 66,6 prósent hlutafjár í Sjóvá fyrir 17,5 milljarða króna. Íslandsbanki mun áfram eiga 33,4 prósent hlutafjár í Sjóvá og samstarf bankans og vátryggingarfélagsins, einkum á sviði sameiginlegrar vöruþróunar og markaðsfærslu, verður með óbreyttum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka og Sjóvá. 19.4.2005 00:01
Síminn kvartar vegna Og1 Landssími Íslands hefur kvartað til Samkeppnisstofnunar yfir auglýsingum vegna Og1, nýrrar þjónustu Og Vodafone. Landssíminn telur að auglýsingar vegna Og1 séu ólögmætar því óheimilt sé að gefa til kynna í auglýsingum eða með öðrum hætti að þjónusta fyrirtækis sé að kostnaðarlausu ef greiða þarf fyrir einhvern þátt þjónustunnar. 19.4.2005 00:01
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent