Stjórnarmenn bankans sæti ábyrgð 20. apríl 2005 00:01
Stórir hluthafar í Straumi íhuga að láta opinbera matsmenn meta raunvirði Sjóvár-Almennra og að láta þá stjórnarmenn Íslandsbanka, sem gengu frá sölu á Sjóvá-Almennum út úr bankanum, sæta fjárhagslegri ábyrgð á hugsanlegum mismun á matsvirði og söluvirði. Forstjóri Straums og lögmaður eiga væntanlega fund um málið með Fjármálaeftirlitinu í dag. Að öðru leyti segja Straumsmenn, sem fréttastofan hefur rætt við í morgun, að þeir séu að meta stöðuna. Þeir segjast þó halda að gjörningurinn standist ekki og verði jafnvel látinn ganga til baka. Það geti einfaldlega ekki staðist, að þeirra mati, að nokkrir stjórnarmenn ákveði að selja stærstu eign bankans án þess að bera það undir hluthafafund Þeir rifja líka upp hversu talsmenn bankans lýstu fjálglega samlegðaráhrifum tryggingafélagsins og bankans þegar bankinn keypti Sjóvá-Almennar fyrir átján mánuðum. Þá hafi þeir einnig fullyrt að þetta væri langtímafjárfesting. Auk þess spyrja þeir sig af hverju bankinn seldi ekki allt hlutafé í Sjóvá-Almennum, en sitji nú eftir sem minnihlutaeigandi í félaginu. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar fengu Straumsmenn pata af því fyrir 5-6 vikum að til stæði að selja Sjóvá. Þá strax lýstu þeir yfir áhuga við Bjarna Ármannsson bankastjóra að koma að samningaborðinu. Eftir því sem heimildarmenn fréttastofu segja mun Straumi þá hafa verið sagt að ekkert yrði úr sölunni. Þegar forsvarsmenn Straums fengu svo pata af því fyrir síðustu helgi að til stæði að selja, sendu þeir öllum stjórnarmönnum Íslandsbanka bréf og lýstu yfir vilja að að koma að kaupunum. Eina svarið sem þeir höfðu fengið við lok viðskipta í gær var: „Þið eigið von á bréfi.“ Straumsmenn benda meðal annars á að ef til vill hefði bankinn getað fengið hærra verð fyrir Sjóvá, ef fleirum hefði staðið kaupin til boða. Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjori Burðaráss, staðfesti við fréttastofuna að Burðarás hafi líka haft áhuga á að skoða möguleika á að kaupa Sjóvá-Almennar. Fréttastofan náði ekki að kanna fleiri hugsanlega kaupendur fyrir hádegið.
Innlent Viðskipti Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Sjá meira