Ætlum að stækka sjóðinn 21. apríl 2005 00:01
Hallarbylting var gerð í Sparisjóði Hafnarfjarðar á aðalfundi sjóðsins í fyrrakvöld. Stóð fundurinn á fimmta tíma. Listi sitjandi stjórnar var felldur með eins atkvæðis mun í kosningu gegn lista skipuðum fimm stofnfjáreigendum. Nýja stjórnin er skipum þeim Eyjólfi Reynissyni, Ingólfi Flygenring, Páli Pálssyni, Trausta Ó. Lárussyni og Þórði Magnússyni. Páll hefur tekið við starfi stjórnarformanns SPH. Páll segir að hann og fleiri stofnfjáreigendur hafi verið ósáttir við rekstrarniðurstöðu SPH undanfarin ár og vilji því ná fram breytingum. Hann segir hagnað sjóðsins tilkominn vegna mikils gengishagnaðar en að afkoma af bankastarfsemi sé óviðunandi. Ný stjórn ætlar að leitast við að tryggja rekstur SPH sem sé sterk og góð fjármálastofnun. Páll sér meðal annars tækifæri í því að stækka hlutdeild SPH á fyrirtækjasviði. "Við boðum hugmyndir um ákveðna útrás og ætlum að stækka sjóðinn," segir Páll. Hann bætir því við að höfuðstöðvar Sparisjóðsins verði áfram í Hafnarfirði. Sparisjóður Hafnarfjarðar gæti því bæst í hóp hinna stóru sparisjóðanna, SPRON og Sparisjóðs vélstjóra, sem hafa boðað frekari vöxt á starfseminni. Stofnfé SPH er ekki nema brot af þriggja milljarða króna eigin fé hans, aðeins fimmtán milljónir, og er í eigu 47 stofnfjáreigenda. Árni Grétar Finnsson, sem sat í gömlu stjórninni og var fundarstjóri, segir að þetta hafi komið sér mjög á óvart. Hann hefur ekki orðið var við óánægju annarra stofnfjáreigenda fyrr en nú. Stjórn hafi undantekningarlaust verið sjálfkjörin og hélt hann að fara þyrfti aftur til ársins 1940 til að finna aðalfund þar sem síðast var kosið var í stjórn. Árni Grétar segist vona að ný stjórn fari ekki út í miklar breytingar á starfsemi sjóðsins. "Sparisjóðurinn hefur reynst farsæl stofnun í Hafnarfirði. Síðasta ár kom mjög vel út eftir nokkur erfið ár á undan." Matthías Á. Mathiesen lét af störfum sem stjórnarformaður SPH fyrir fundinn en hann hefur verið stjórnarformaður sjóðsins í 47 ár og var ennfremur sparisjóðsstjóri um tíma.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira