Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slegist um Yukos Lögsókn í Bandaríkjunum getur sett strik í reikninginn vegna fyrirhugaðrar sölu dótturfélaga Yukos upp í skattskuld. Vestrænir fjárfestar óttast að sala eigna Yukos fari fram á alltof lágu verði og hafa því farið fram á lögbann. 17.12.2004 00:01
Yfirtökutilboði Íslandsbanka tekið Eigendur 90% hlutafjár í BNbank, að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka, samþykktu í dag yfirtökutilboð Íslandsbanka í BNbank (Bolig- og Næringsbanken ASA) í Noregi. 17.12.2004 00:01
Danir kaupa Hörpu Sjöfn Málningafyrirtækið Harpa Sjöfn hefur verið selt til danska fyrirtækisins Flügger. Félögin hafa átt samstarf um árabil. Íslensk fyritæki hafa verið iðin við kaup í útlöndum en fátíðara er að erlend fyrirtæki fjárfesti hér á landi. Helgi Magnússon, forstjóri Hörpu Sjafnar, verður stjórnarformaður félagsins hér á landi en danskur framkvæmdastjóri, Holger Søe, mun sinna daglegum rekstri. 16.12.2004 00:01
Dregur til tíðinda hjá Baugi Allar líkur eru á því að Baugur leggi fram yfirtökutilboð í Big Food Group í dag og bjóði 95 pens á hlut. Miðað við það er markaðsvirði BFG ríflega 40 milljarðar króna eða 326 milljónir punda.. Endurfjármagna þarf allar skuldir félagsins og við það bætast 42 milljarðar króna. 16.12.2004 00:01
Fleiri kvarta vegna Bandaríkjabíla Kvörtunum hefur heldur farið fjölgandi að undanförnu í kjölfar bílakaupa einstaklinga beint frá Bandaríkjunum, að sögn Stefáns Ásgrímssonar hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Þangað berast nú einhverjar kvartanir í viku hverri.</font /> 16.12.2004 00:01
Enn at í fasteignasölu Velta vegna fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri en í fyrstu viku desember. Formaður Félags fasteignasala segir góða sölu á stærri eignum og sérbýli. Með nýjum lánamöguleikum séum við að hoppa inn í nútímann. 16.12.2004 00:01
Sigurður valinn maður ársins Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, hefur verið útnefndur maður ársins í íslensku atvinnulífi. Það er tímaritið Frjáls verslun sem stendur fyrir valinu. 15.12.2004 00:01
Kauphöllinni boðið í OMX Mikill áhugi er á því hjá sameinaðri kauphöll Danmerkur, Finnlands, Svíþjóðar og Eystrasaltslandanna, sem standa að OMX samstarfinu, að fá Ísland og Noreg inn í samstarfið. Enn á eftir að taka afstöðu til þess í stjórn Kauphallarinnar hvernig brugðist verði við þessum áhuga. 15.12.2004 00:01
Noregur er heimamarkaður Noregur er skilgreindur sem heimamarkaður Íslandsbanka ásamt Íslandi. Skráning í norsku kauphöllina þykir áhugaverð og verður skoðuð gaumgæfilega þegar fram líða stundir. 15.12.2004 00:01
Kaupa 160 pöbba í London KB banki fjármagnar ásamt Bank of Scotland kaup bresk-íranska milljarðamæringsins Robert Tchenguiz á 160 krám í verslunarhverfum í Bretlandi. Auk þess að vera einn höfuðlánardrottinn viðskiptanna eignast bankinn hlut í fyrirtæki. 15.12.2004 00:01
Danske bank keypti tvo írska banka Danske Bank keypti í morgun ráðandi hlut í tveimur írskum bönkum. Kaupin eru fyrstu kaup dansks banka utan Skandinavíu. Það er til marks um stemninguna á Bretlandi að þegar fréttist af því að norrænn banki sýndi bönkunum áhuga, beindist grunurinn strax að íslenskum fjárfestum. 14.12.2004 00:01
Bílar keyptir á uppboði á ebay Fjöldi einstaklinga velur nú að kaupa sér bíla á Netinu í stað þess að kaupa þá af bílasölum eða umboðum hérlendis. Fólk leitar helst til Bandaríkjanna þar sem dollarinn er mjög hagstæður innkaup þar. 14.12.2004 00:01
Fróði skiptir um nafn Nýtt félag hefur verið stofnað um útgáfu á vegum Fróða og heitir það Tímaritaútgáfan Fróði ehf. 14.12.2004 00:01
Eignir lífeyrissjóða stóraukast Lífeyrissjóðirnir íslensku hafa ekki farið varhluta af uppgangi á innlendum hlutabréfamarkaði. Eignir þeirra hafa hækkað um 138 milljarða króna í ár einkum vegna mikilla hækkana á verði hltuabréfa í íslenskum fyrirtækjum. 14.12.2004 00:01
Skráning Actavis með vorinu Mikill áhugi var hjá breskum fjárfestum á nokkrum af leiðandi fyrirtækjum í Kauphöll Íslands. Kauphöllin stóð fyrir kynningu á íslenskum fyrirtækjum í London. Augu fjárfesta beindust að Actavis, enda fyrirhugað að félagið verði skráð í kauphöllina í London á næsta ári. Slíkt hefur þó ekki verið tilkynnt í Bretlandi, en líklegt að breskir fjárfestar hafi nasaþef af fyrirætlunum félagsins. 14.12.2004 00:01
Fimm milljónir gesta í Kringlunni Fimm milljónasti gestur Kringlunnar á árinu gekk inn um aðalinnganginn klukkan fjórtán mínútur í þrjú í gær. 14.12.2004 00:01
Skuldir Landsvirkjunar lækka Styrking krónunnar og lækkun bandaríkjadals lækkar skuldir Landsvirkjunar um þrjá og hálfan milljarð króna og leiðir til verulegs gengishagnaðar. Orkusölutekjur fyrirtækisins af stóriðju eru hins vegar í dollurum og því veldur veik staða hans áhyggjum. 14.12.2004 00:01
KB banki hækkar vexti KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. desember. 13.12.2004 00:01
Gengi dollarans lækkar á ný Gengi dollarans lækkaði enn á ný gangvart helstu gjaldmiðlum í morgun eftir að hafa staðið í stað eða hækkað lítillega seinnipart síðustu viku. Á morgun koma upplýsingar um þróun í viðskiptum í Bandaríkjunum sem hafa áhrif á ákvarðanir bandaríska seðlabankans um vaxtastigið. 13.12.2004 00:01
Frekari samruni norrænna kauphalla Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, sagði í viðtali við alþjóðlegu CNBC- fréttastofuna í dag að hann væri hlynntur frekari samruna norrænu kauphallanna. Hann lagði þó áherslu á að sameining íslensku kauphallarinnar við aðra verðbréfamarkaði á Norðurlöndunum væri ekki á dagskrá og ekki lægi enn fyrir hvaða kosti slíkt kynni að hafa í för með sér. 13.12.2004 00:01
50% verðmunur á hjartalyfjum Allt að 50 prósenta verðmunur reyndist vera á tilteknum hjartalyfjum í apótekum í könnun sem Velferð, málgagn Hjartaheilla, gerði á dögunum. 13.12.2004 00:01
Búast má við bensínlækkun Heimsmarkaðsverð á eldsneyti lækkaði um 16 prósent í nóvembermánuði og fram í byrjun desember, að viðbættu sigi dollars. 13.12.2004 00:01
Hægði á hækkun eignaverðs Heldur hægði á hækkun eignaverðs í október samkvæmt hálffimmfréttum KB banka. Tólf mánaða hækkun eignaverðsvísitölu bankans fer úr 25,5% niður í 20,5%. Ástæða þess liggur í að eignaverðsvísitalan lækkaði um 2,2% að raunvirði í október að sögn bankans. 13.12.2004 00:01
Mikill hagvöxtur Hagvöxturinn á milli þriðja ársfjórðungs í ár og í fyrra var 7,4 prósent og hefur ekki mælst hærri síðan á fyrsta ársfjórðungi árið 2001. 13.12.2004 00:01
Vill breytt markmið Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að breyta eigi lögum um Seðabanka Íslands. Samkvæmt þeim hefur Seðlabankinn það hlutverk að stuðla að verðstöðugleika. 13.12.2004 00:01
Kaupauka skotið undan skatti Mörg dæmi eru um að forsvarsmenn fyrirtækja sem gera kaupréttarsamninga komi sér undan greiðslu tekjuskatts af bréfunum. Þetta kemur fram í skýrslu skattsvikanefndar sem skilaði niðurstöðu til Alþingis fyrir helgi. 13.12.2004 00:01
Landsbankinn orðaður við Írland Breska blaðið Times telur að Landsbankinn sé líklegastur til þess að kaupa National Irish Bank á Írlandi. Times segir að á miðvikudag muni koma í ljós hvaða norræni banki muni vera í viðræðum við Natonal Australian Bank um kaup á eignarhlut í írska bankanum. 13.12.2004 00:01
KB banki langstærstur HB Grandi og Opin kerfi falla út úr úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands um næstu áramót. Í stað þeirra koma Flugleiðir á ný inn í vísitöluna og Kögun sem er að ljúka yfirtöku Opinna kerfa mun koma í úrvalsvísitölu fimmtán fyrirtækja. Kb banki mun sem fyrr vega þyngst í vísitölunni. Vægi bankans er 38,7 prósent af vísitölunni. 13.12.2004 00:01
Leiðandi risi með kaupum á Geest Það fór eins og margan grunaði að Bakkavör myndi hefja yfirtökutilraunir á breska matvælafyrirtækinu Geest hið fyrsta eftir að tækifæri gafst. Bakkavör mátti hefja vinnu við yfirtöku 29. nóvember og þá var þegar hafist handa. Opinbert ferli hófst svo 9. desember. 12.12.2004 00:01
Fráleitt að bankar stundi lögbrot Það er alvarlegt mál að ýja að því að fjármálafyrirtæki hér á landi komi nálægt ráðgjöf um hvernig svíkja eigi undan skatti, segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann segir fráleitt að þau stundi slíka starfsemi. 12.12.2004 00:01
Sala ákveðin Baugur hefur komist að samkomulagi um að selja Woodwards-matvælabúðirnar til keppinautarins 3663, eftir því sem fram kom í breska blaðinu Sunday Telegraph í gær. 12.12.2004 00:01
Hætta af lánum og viðskiptahalla Raungengi krónunnar er hátt um þessar mundir og sterk fylgni er milli þess og mikils viðskiptahalla. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, sagði á fjölsóttum fundi KB banka um krónuna og þróun hennar að mikill viðskiptahall væri helsta ógn við stöðugleika fjármálakerfisins. Erlend skuldsetning þeirra sem hafa eignir á móti og/eða tekjur skapaði hættu á vandræðum þegar viðskiptahallinn leiðréttist með lækkun á gengi krónunnar 10.12.2004 00:01
Íslandsbanki eykur hlutafé Íslandsbanki hefur tryggt sér tvo þriðju hlutafjár í hinum norska BN banka í yfirtökutilboði sem rennur út 17. desember. Í ljósi þessa hefur Íslandsbanki ákveðið að selja nýtt hlutafé að nafnvirði 1,5 milljarða króna. 10.12.2004 00:01
Mogginn flytur Morgunblaðið flytur úr Kringlunni og upp í Hádegismóa við Rauðavatn þar sem ný prentsmiðja blaðsins er. Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur selt fasteign sína við Kringluna fyrir 2,1 milljarð króna. 10.12.2004 00:01
Stóraukinn útflutningur lambakjöts Alls verða flutt út um 230 brúttó tonn af fersku íslensku lambakjöti til Bandaríkjanna á þessu ári og er það 30 prósenta aukning miðað við árið 2003. Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Áforms sem hefur unnið að markaðssetningu lambakjöts í Bandaríkjunum, segist búast við enn meiri aukningu á næsta ári. 10.12.2004 00:01
Útlendingar skoða meðferð sauðfjár Allar líkur eru á því að íslenska lambakjötið fái á næsta ári sérstaka vottun frá verslunarkeðjunni Whole Foods Markets um góða meðferð sauðfjár að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra Áforms. Baldvin segir þetta afar mikilvægt þar sem verslunarkeðjan sé með mjög kröfuharða gæðastýringu sem njóti mikillar virðingar á markaðnum. 10.12.2004 00:01
Eigendur 67% hlutafjár samþykkja Eigendur að meira en 67% hlutafjár í BNbank, að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka, hafa samþykkt yfirtökutilboð Íslandsbanka í norska bankanum. Tilboðstímabilið hófst 1. <span class="GramE">desember</span> og því lýkur 17. <span class="GramE">desember.</span> 9.12.2004 00:01
Bakkavör í viðræðum við Geest Bakkavör tilkynnti í morgun að félagið ætti í viðræðum um yfirtöku á helsta matvælaframleiðslufyrirtæki Bretlands, Geest. Vegna þessa voru viðskipti stöðvuð með hlutabréf Bakkavarar í Kauphöll Íslands. Í tilkynningu Bakkavarar segir að félagið sé á byrjunarstigi viðræðna við Geest sem geti leitt til þess að tilboð verði gert í allt hlutafé félagsins. 9.12.2004 00:01
Kaupæði því dollarinn svo lágur Fjölmargir Íslendingar fara nú til Bandaríkjanna til að versla og kunna sér ekki hóf þegar gengi dollarans er jafn lágt og nú. Farþegarnir hafa greitt hundruð eða milljónir króna í aðflutningsgjöld og sektir. 9.12.2004 00:01
Lántökur heimilanna aukast um 100% Erlend lán íslenskra heimila hafa aukist um meira en eitt hundrað prósent síðan í byrjun september og eru nú tíundi hluti af lánum heimilanna. KB banki varar við þessari þróun og segir að greiðslubyrði heimilanna geti stóraukist, lækki gengi krónunnar. Gengislækkun sé hins vegar nauðsynleg til að draga úr viðskiptahallanum. 9.12.2004 00:01
OPEC dregur úr framleiðslu OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, munu draga úr olíuframleiðslu strax í byrjun næsta árs til þess að koma í veg fyrir að heimsverð á olíu lækki meira en það hefur gert. Ahmad Fahad Al-Ahmad, olíumálaráðherra Kúvæt, kynnti þetta í gær en í dag funda olíumálaráðherrar ríkjanna í OPEC. 9.12.2004 00:01
Frjálst fall Bandaríkjadals Gengi Bandaríkjadals heldur áfram að veikjast á gjaldeyrismörkuðum og íslenska krónan styrkist. Við lokun viðskipta í gær var kaupgengi Bandaríkjadals rúmlega 61 króna og hefur ekki verið lægra frá 1992. 8.12.2004 00:01
Skuldirnar lifa Skuldarar geta ekki lengur treyst því að kröfurnar á þá fyrnist eftir ákveðinn tíma og það þó að þeir hafi verið lýstir gjaldþrota. Kröfurnar eru nú settar í svokallaða kröfuvakt. Þar geta þær lifað að eilífu og minna sífellt á sig. </font /></b /> 8.12.2004 00:01
Neyðast til að flytja úr landi Viðvarandi hátt gengi krónunnar getur leitt til þess að útflutningsfyrirtæki neyðist til þess að flytja starfsemi sína úr landi, segir framkvæmdastjóri útflutningsráðs. Blessunarlega hafi frjálst fall dollarans minni áhrif en ella vegna minnkandi útflutnings til Bandaríkjanna. 8.12.2004 00:01
Norðurljós heyra sögunni til Norðurljós munu heyra sögunni til þegar óuppgerðar skattaskuldbindingar fyrirtækisins hafa verið gerðar upp, segir stjórnarformaður Norðurljósa. Hann segir að séð verði til þess að eftirstandandi eignir muni duga til þess að greiða skuldir sem eftir á að gera upp. 8.12.2004 00:01