Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengi dollars komið í 61,84 krónur Gengi dollarans hefur enn lækkað gagnvart íslensku krónunni og var nú skömmu fyrir fréttir 61,84 krónur. Í dag hefur gengið lækkað um 1,11 samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka. Lækkun dollarsins hefur þó enn sem komið er ekki haft verulega mælanlega vöruverðslækkun í för með sér. 7.12.2004 00:01
KB banki fundar um gengi krónunnar KB banki hefur ákveðið að efna til morgunverðarfundar um gengi krónunnar á fimmtudaginn. Erindi flytja Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, Ásgeir Jónsson, hagfræðingur greiningardeildar KB banka, og Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn á Hótel Nordica og hefst klukkan 8. 7.12.2004 00:01
Gengið orðið skuggalega hátt Gengi krónunnar gangvart helstu erlendu gjaldmiðlum hefur hækkað töluvert í dag og segja sérfræðingar íslensku bankanna það orðið skuggalega hátt. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur dollar lækkað um 2,10% gagnvart krónunni, evran um 2,13% og breska pundið um 2,90%. 7.12.2004 00:01
Olíuverð á heimsmarkaði lækkar enn Olíuverð á heimsmarkaði lækkar enn. Í gær hækkaði verðið á olíufatinu um 44 sent á markaði í New York en hefur nú þegar lækkað um 62 sent það sem af er degi. Allar líkur eru taldar á því að olíumálaráðherrar OPEC-ríkjanna ákveði að draga úr olíuframleiðslu á fundi sínum á föstudaginn en framleiðslan var aukin mjög þegar olíuverð náði hámarki í haust. 7.12.2004 00:01
Og Vodafone kaupir allt hlutaféð Stjórnir Og Vodafone og Norðurljósa, sem eiga meðal annars Bylgjuna og Stöð 2, hafa komist að samkomulagi um kaup Og Vodafone á öllu hlutafé tveggja dótturfélaga Norðurljósa, Íslenska útvarpsfélagins ehf. og Fréttar ehf. Þetta er breyting frá því fyrirkomulagi sem kynnt var í október sl. þar sem gert var ráð fyrir að Og Vodafone myndi kaupa allt hlutafé í Norðurljósum. 7.12.2004 00:01
Gengi krónunnar hækkaði um 1,77% Gengi krónunnar hækkaði um 1,77 prósent í dag. Staða krónunnar gagnvart dollaranum hefur ekki verið hærra síðan í nóvember árið 1992 og segja sérfræðingar greiningardeilda bankanna gengið skuggalega hátt. 7.12.2004 00:01
Skattaóvissa Norðurljósa ástæðan Og Vodafone hætti við að kaupa allt hlutafé í Norðurljósum en eignast samt Íslenska útvarpsfélagið og Frétt ehf. Forstjóri félagsins segir óvissu varðandi skattamál Norðurljósa valda þessari breytingu. 7.12.2004 00:01
Stofna banka í Lúxemborg Íslandsbanki hefur sótt um leyfi til að stofna og reka banka í Lúxemborg. Fyrir hefur bankinn rekið útibú í Lúxemborg. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir tilgang stofnunar bankans vera að útvíkka starfsemi bankans í landinu og bjóða alþjóðlega einkabankaþjónustu 7.12.2004 00:01
Vísar ásökunum á bug Valgerður Sverrisdóttir telur umfjöllun danska blaðsins Berlingske Tidende um íslenska fjárfesta í Danmörku ekki að öllu leyti sanngjarna. Þar hefur því verið haldið fram að hætta steðji að íslenska efnahagskerfinu vegna flókinna innbyrðis eignatengsla. 7.12.2004 00:01
Hætta vegna hagstjórnarblöndu Greiningardeild Íslandsbanka gagnrýnir hagstjórn á Íslandi í Morgunkorni sínu í gær. Þar segir að aðhald í ríkisfjármálum sé langt frá því að vera fullnægjandi. Þetta hefur í för með sér að mikill þungi fellur á Seðlabankann sem þarf að grípa til harðra aðgerða sem haft geta slæm áhrif á samkeppnisatvinnuvegina. 6.12.2004 00:01
Bakvinnslusvið KB banka hefur starfsemi á Akureyri KB banki hefur tekið í notkun nýja deild á Akureyri og er hún hluti af bakvinnslusviði bankans. Nú þegar hafa átta nýir starfsmenn tekið til starfa við deildina og munu þeir annast ýmis bakvinnslustörf fyrir höfuðstöðvar bankans og útibú hans. Gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í allt að 15 manns á árinu 2005. 6.12.2004 00:01
Umfjöllun fjölmiðla vitleysa Stjórnarformaður KB banka segir að gagnrýnin umfjöllun danskra fjölmiðla, um innbyrðis tengsl íslenskra fjárfesta og fjármálafyrirtækja, byggi á sögusögnum og vitleysu. 5.12.2004 00:01
Samstarf um íbúðarlán Sparisjóðirnir eru komnir í samstarf við Íbúðalánasjóð um fjármögnun húsnæðis en jafnframt hafa þeir tekið höndum saman um framkvæmd greiðslumats. Aðrar lánastofnanir eru boðnar velkomnar gangist þær undir skilyrði Íbúðalánasjóðs. 5.12.2004 00:01
Bankarnir spáðu minni hækkun Greiningardeildir bankanna höfðu allar gert ráð fyrir vaxtahækkun en hún var meiri en þær spáðu. Greiningardeild Landsbankans sagði í Vegvísi í gær að vaxtahækkunin væri "nauðsynleg leiðrétting á vaxtaferlinum." Greiningardeildin segir að hækkunin í gær hafi verið nauðsynleg til þess að stýrivextir Seðlabankans hafi þau áhrif sem þeim sé ætlað. 3.12.2004 00:01
Frekari aðhaldsaðgerðir mögulegar Seðlabankinn útilokar ekki enn frekari aðhaldsaðgerðir í peningamálum á næstu mánuðum til að hemja verðbólguna. Með stýrivaxtahækkun sem bankinn boðaði í gær hafa þeir hækkað um tæp þrjú prósentustig síðan í maí. 3.12.2004 00:01
Olíuverð lækkar enn Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði. Það hefur lækkað um 12% á tveimur sólarhringum í Bandaríkjunum og kostar tunnan þar rúma 43 dollara. Þar hefur olíuverð ekki verið lægra síðan í september. Norðursjávarolía lækkaði líka um rúma tvo dollara í gær og er komin niður í rétt rúma 40 dollara. 3.12.2004 00:01
Skeljungur og Esso lækka Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði og náði lækkunin til íslenskra neytenda í morgun. Skeljungur lækkaði bensínverðið um eina krónu í morgun og dísillítrann um 1,50 krónur. Þá tilkynnti Esso um lækkun á tólfta tímanum og gagnstætt venju er lækkunin þar meiri en hjá Skeljungi. 3.12.2004 00:01
BNbank taki tilboði Íslandsbanka Stjórn BNbank sendi í morgun frá sér yfirlýsingu til kauphallarinnar í Osló um yfirtökutilboð Íslandsbanka þar sem mælt er með því við hluthafa að þeir taki tilboðinu. Í yfirlýsingunni kemur fram að bæði stjórn bankans og fulltrúi starfsmanna telji að vel sé hugsað fyrir hagsmunum starfsmanna með yfirtökunni. 3.12.2004 00:01
Kennitöluflakk eykst Samtök iðnaðarins rekja í pistli á vef sínum raunir fyrirtækis sem margsinnis varð fyrir því að tapa tekjum vegna gjaldþrota viðskiptavina sinna. Vakin er athygli á því í pistlinum að mörg fyrirtækjanna hafi samt sem áður haldið áfram störfum undir svipuðu nafni, með sömu stjórn og sömu símanúmer þrátt fyrir gjaldþrotið. 3.12.2004 00:01
Krónan hækkað um 2,76% Gengi krónunnar hefur hækkað um 2,76% í dag og hefur sjaldan eða aldrei hækkað meira á einum degi. Bandaríkjadollar hélt áfram að lækka og er nú kominn niður í 62 krónur og 50 aura. Miklar sveiflur voru á gjaldeyrismarkaði í dag og var gjaldeyrisveltan á millibankamarkaði 17,7 milljarðar króna. 3.12.2004 00:01
Mikil viðskipti með krónuna í dag Krónan hækkaði um 2,73% í miklum viðskiptum í dag og stendur gengisvísitalan nú í 114,3 samkvæmt háffimmfréttum KB banka. Að sögn bankans má hér greina áhrif 1% vaxtahækkunar Seðlabanka sem boðuð var við útgáfu Peningamála í gær. 3.12.2004 00:01
Örasta olíuverðlækkun í 13 ár Bensínverð var lækkað hér á landi í dag. Undanfarna sólarhringa hefur olíuverð lækkað svo ört á heimsmarkaði að leita þarf aftur til ársins 1991 til að finna sambærileg dæmi. Olía og dollar eru í frjálsu falli og því hugsanlegt að verðið geti lækkað enn frekar. 3.12.2004 00:01
Með seðlaprentsmiðju í kjallaranum Íslenskir bankar hafa tekið þyngdaraflið úr sambandi og stefna beint til himins. Þetta hafa danskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sem þekkja vel til íslensks viðskiptalífs og þeir segja ennfremur að miðað við vöxt þeirra mætti halda að bankarnir væru með seðlaprentsmiðju í kjallaranum. 3.12.2004 00:01
Vaxtahækkun Seðlabankans gagnrýnd Einar Oddur Kristjánsson, oddviti sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd Alþingis, gagnrýndi vaxtahækkun Seðlabankans frá því í gær harðlega á þingi í dag. Fjármálaráðherra segir hana myndarlegt inngrip og gerir ekki athugasemdir við hækkunina. Seðlabankastjóri segir enga gagnrýni á stjórnvöld felast í hækkuninni. 3.12.2004 00:01
Gengi krónunnar styrkist Gengi krónunnar styrktist um 2,73 prósent í miklum viðskiptum í gær og var gengisvísitalan 114,3 í lok dags. Greiningardeildir banka telja margar hverjar að í styrkingunni megi greina áhrif hækkunar stýrivaxta Seðlabankans á fimmtudag, en hún var umfram væntingar á markaði. 3.12.2004 00:01
Stýrivextir Seðlabankans hækka um 1% Stýrivextir Seðlabankans hækka um eitt próesentustig og verða 8,25% frá 7. desember n.k. Þetta er mun meiri hækun en greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð fyrir um. Seðlabankinn telur að grípa þurfi hratt til aðgerða því þensla er meiri en talið var áður. Hagvöxtur á næsta ári verður 6,1 prósent samkvæmt spá bankans. </font /></b /> 2.12.2004 00:01
Ráðstöfunarfé eykst hröðum skrefum Landsbankinn gerir ráð fyrir að lánaveisla bankanna leiði til þess að einkaneysla hækki um 0,5-1 prósent næstu tvö ár og að veislan endi með verðbólguskoti allt að sex prósentum um áramótin 2006-2007. </font /></b /> 2.12.2004 00:01
Selja aðgang að sjúkrasögum Bandaríska líftæknifyrirtækið ACLARA mun borga Urði, Verðandi, Skuld fyrir að nota blóð og æxlissýni úr íslenska krabbameinsverkefninu. Einnig mun ACLARA fá aðgang að sjúkrasögum krabbameinssjúklinga. 2.12.2004 00:01
Samkomulag um verð fyrir Big Food Baugur hefur lýst sig tilbúinn að greiða 95 pens fyrir hvern hlut í Big Food Group. Verðmæti Big Food er samkvæmt þessu verði ríflega 40 milljarðar króna. Með fjármögnun skulda yrði heildarumfang viðskiptanna milli 85 og 90 milljarðar króna. Baugur á fyrir 22 prósenta hlut í Big Food. Stjórn Big Food hefur lýst sig samþykka yfirtökuverðinu. 1.12.2004 00:01
Bankarnir spá hækkandi verðbólgu Bæði KB banki og Íslandsbanki hafa hækkað verðbólguspár sínar fyrir desember. Íslandsbanki spáir að hún hækki um 0,2%, meðal annars vegna hækkunar á áfengisskatti, og KB banki spáir að hún hækki um 0,3% vegna áfengisskattsins og óvæntrar hækkunar á bensíni hér á landi. Tólf mánaða verðbólguspá KB banka er nú komin upp í 3,7% en var 3,5%. 1.12.2004 00:01
Neitar meintu samráði Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja vísar því á bug að viðskiptabankarnir hafi skipulagt samráð um hámark íbúðalána. Hann segir óeðlilegt að líkja starfi innan samtakanna við ólöglegt samráð olíufélaganna. 1.12.2004 00:01
Búist við vaxtahækkun Líklegt er að Seðlabankinn hækki stýrivexti í dag. Bankinn hefur gjarnan tilkynnt um hækkanir samhliða útgáfu á Peningamálum. Stýrivextir hafa hækkað um 1,95 prósentustig á þessu ári og eru nú 7,25 prósent. 1.12.2004 00:01
Bankarnir neita samráði Bankarnir eru í hatrammri samkeppni og ræða aldrei nokkurn tíman verð til viðskiptavina á sameiginlegum fundum sínum, fullyrðir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og býðst til að sýna fundargerðir því til sönnunar. Bankastjórar fjögurra banka sitja saman í stjórn samtakanna. 1.12.2004 00:01