Viðskipti innlent

Frosti reynir að verja stöðu sína

Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa, lítur svo á að Kögun reyni nú yfirtöku á Opnum kerfum. Sú yfirtökutilraun er ekki gerð með samþykki annarra stórra hluthafa í félaginu. Í dag er hluthafafundur þar sem búast má við átökum um sæti í stjórninni. Líklegt er að sex bjóði sig fram í fimm manna stjórn félagsins á morgun. Þrír á vegum Frosta Bergssonar, tveir á vegum Kögunar og einn á vegum Straums fjárfestingabanka. Fullvíst má telja að nái Kögun og Straumur meirihluta í stjórninni muni fulltrúar þeirra standa saman að skipulagsbreytingum í Opnum kerfum. Straumur er stærsti hluthafinn í Kögun og hefur yfirráð yfir 26,5 prósent hlutafjár í félaginu. Kögun á nú 35,77 prósent í Opnum kerfum eftir að hafa keypt stóran hlut af Straumi um miðjan ágúst. Straumur jók svo hlut sinn í Opnum kerfum í gær úr 0,2 prósentum í 6,39 prósent. Samtals eiga því Straumur og Kögun ríflega 42 prósent hlutafjár. Ef þessir aðilar eru taldir nægilega skyldir þýðir það að yfirtökuskylda hefur myndast í félaginu. Frosti Bergsson jók hlut sinn í gær í 16,99 prósent. Íslandsbanki jók einnig hlut sinn og ræður nú 10,21 prósent hlutafjár. Frosti gerir ráð fyrir að Íslandsbanki styðji Frosta og frambjóðendur hans á fundinum í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×