Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kaupfélag ásælist sparisjóð Mikil ólga er í Skagafirði vegna þess að Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri hefur verið neyddur til að segja upp störfum. Þetta er talið vera þáttur í valdabaráttu sem átt hefur sér stað um Sparisjóð Hólahrepps þar sem Kaupfélag Skagfirðinga hefur leynt og ljóst stefnt að yfirráðum. </font /></b /> 30.6.2004 00:01
Þorlákur Karlsson til HR Þorlákur Karlsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann tekur við af Agnari Hanssyni, sem hefur verið forseti deildarinnar síðastliðin fimm ár. Þorlákur tekur við starfinu fyrsta ágúst, næstkomandi. 30.6.2004 00:01
Með næstbestu ávöxtun í Evrópu Icelandic Equity sjóðurinn hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Evrópu, með 18,6 prósenta ávöxtun á öðrum ársfjórðungi þessa árs, að því er fram kemur í viðskiptafréttum Bloomberg.com. Litið var til gengis allra sjóða í Evrópu á tímabilinu 31. mars til 22. júní. 30.6.2004 00:01
Rafveita Selfossveitna seld Hitaveita Suðurnesja hefur keypt rafveituhluta Selfossveitna fyrir 615 milljónir króna. Rúmar 400 milljónir verða greiddar með peningum en rúmar 200 milljónir verða greiddar með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Verðlag á veitusvæði Selfossveitna lækkar um 10% þegar salan hefur gengið í gegn eða frá og með 1. september. 30.6.2004 00:01
Væntingavísitalan lækkar enn Væntingavísitala landsmanna hefur ekki verið lægri síðan í desember 2003 samkvæmt mælingu Gallup í júnímánuði og birt var í dag. Gildi vísitölunnar mældist 104,7 og lækkar því um 5,2% á milli mánaða. 29.6.2004 00:01
Tveggja milljarða tap á ríkissjóði Heildartekjur ríkissjóðs námu tæpum 67 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt Hagstofu Íslands, sem birtir nú í fyrsta sinn samandregið talnaefni yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á rekstrargrunni innan ársins, en ekki eingöngu árstölur eins og verið hefur. 29.6.2004 00:01
Íslenska hagkerfið í 5. sæti Ísland er í fimmta sæti ríkja heimsins í samkeppnishæfni í viðskiptum samkvæmt athugun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Bandaríkin eru í efsta sæti, Singapore í öðru, Kanada í þriðja og Ástralía í fjórða sæti. Íslenska hagkerfið þykir þar með hið samkeppnishæfasta í Evrópu. 28.6.2004 00:01
Húsbréfum skipt í íbúðabréf Eigendur húsbréfa og húsnæðisbréfa geta skipt bréfum sínum í íbúðarbréf til 1. júlí. Það hentar þeim sem nýtt hafa bréfin í sparnaðarskyni. Hallur Magnússon, sviðstjóri þróunar- og almannatengsla hjá Íbúðarlánasjóði, segir að verið sé að bjóða skipti á ákveðnum skiptikjörum. Þau verði aðeins í boði í þetta eina sinn. 28.6.2004 00:01
„Gróðurhúsaáhrif“ á bensínverð Stjórnvöld ætla ekki að lækka nein gjöld eða skatttekjur af bensíni og olíu, til að milda neikvæð áhrif af miklum hækkunum á heimsmarkaði á íslenskt efnahagslíf, og réttlæta það með baráttu sinni gegn gróðurhúsaáhrifum. Þetta kemur fram í greinargerð á heimasíðu fjármálaráðuneytisins þar sem fjallað er um þjóðarbúskapinn. 24.6.2004 00:01
Neysluútgjöld heimilanna hækka Neysluútgjöld heimilanna hækkuðu um rúm 52% frá árinu 1995 til 2002. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 25%. Meðalneysluútgjöld heimilanna í landinu eru um 3,5 milljónir króna ár hvert, eða um 300 þúsund krónur á mánuði. 24.6.2004 00:01
Útgjöld heimilanna aukast um 50% Útgjöld heimilanna í landinu hafa aukist um meira en 50% frá árinu 1995 en vísitala neysluverðs hefur aðeins hækkað um 28%. Símakostnaður Íslendinga hefur þrefaldast á þessu tímabili. 24.6.2004 00:01
Íslensk hlutabréf í hæstu hæðum Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur tvöfaldast á tólf mánaða tímabili. Vísitalan nálgast nú óðfluga 3.000 stig og hefur hækkað mikið á þessu ári eftir metár í fyrra. Hækkunin frá áramótum er um 50 prósent. 23.6.2004 00:01
Aukin umsvif KB banka í Svíþjóð? Stjórnendur KB banka í Svíþjóð hafa hug á að auka umsvif sín í Svíþjóð og mun hluthafafundur bankans taka ákvörðun um það á fundi sínum í Reykjavík 5. júlí. 23.6.2004 00:01
Jafnvægi fasteigna og kaupmáttar Ekki er jafnrík ástæða til þess að hafa áhyggjur af hækkun húsnæðisverðs hér á landi og í mörgum nágrannaríkjanna. Þetta er niðurstaða Tryggva Þórs Herbertssonar og Axels Hall, hagfræðinga á Hagfræðistofnun. 22.6.2004 00:01
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. 21.6.2004 00:01
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. 21.6.2004 00:01
Sameining lífeyrissjóða Viðræðunefnd Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna hefur lokið 1. áfanga athugunar á hagkvæmni þess að sameina sjóðina í þeim tilgangi að styrkja tryggingafræðilega stöðu þeirra, efla eignastýringu, auka hagkvæmni í rekstri og þjónustu við sjóðfélaga. Að mati nefndarinnar hefur margt komið fram sem mælir með sameiningu og því lagði hún til að viðræðum verði fram haldið. 21.6.2004 00:01
Næsti áfangastaður London <em><strong>KB banki náði stórum áfanga með kaupum á dönskum banka. Áframhald verður á útrás og fjárfestingum bankans og viðskiptafélaga hans. London mun verða í kastljósi viðskiptalífsins næstu mánuði.</strong></em> Kaup KB banka á danska bankanum FIH fyrir 84 milljarða króna verða að teljast til stórtíðinda í íslensku viðskiptalífi. Með kaupunum gleypti KB banki vel rekinn banka sem er stærri en þeir sjálfir. 20.6.2004 00:01
Bakkavör að yfirtaka Geest Bakkavör hefur eignast yfir 20 prósenta hlut í breska matvörufyrirtækinu Geest. Þar með er Geest orðið hlutdeildarfélag Bakkavarar og kemur sem slíkt fram í reikningum félagsins. Bakkavör hefur einnig stækkað skuldabréfaflokk um 2,5 milljarða. 19.6.2004 00:01
Þýskur banki aðili að Kauphöllinni Stjórn Kauphallar Íslands hefur samþykkt aðild Deutsche Bank AG London að Kauphöllinni. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir þetta mikilsverðan áfanga fyrir íslenska markaðinn. 18.6.2004 00:01
Lækkun tekjuskatts án verðbólgu Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að ríkisstjórnin geti lækkað tekjuskatt eins og stjórnarsáttmálinn kveður á um, án þess að hleypa af stað verðbólgu, með því að beita niðurskurðarhnífnum. Hann telur þó óþarft að einblína á velferðarkerfið í því sambandi. 18.6.2004 00:01
KB banki á sænska úrvalslistann KB-banki hefur verið skráður á úrvalslista kauphallarinnar í Stokkhólmi, fyrstur íslenskra fyrirtæka. Er bankinn þar með kominn í hóp fjörtíu öflugustu fyrirtækjanna í sænsku kauphöllinni. Þetta er talið auka mjög möguleika bankans í tengslum við fyrirhugað tugmilljarða hlutafjárútboð. 17.6.2004 00:01
Financial Times fjallar um kaup KB Dagblaðið Financial Times fjallar í dag um kaup KB banka á danska bankanum FIH í gær. Í grein blaðsins segir að kaupin hafi komið á óvart í Skandinavíu og að búist hafi verið við að sænskur banki, til að mynda Nordea eða SEB, myndi kaupa FIH. Hermt er að enginn hafi heyrt talað um KB í þessu samhengi fyrr en í gær, þegar gengið var frá kaupunum. 15.6.2004 00:01
Góðæri vegna skattalækkana Ástæða þess hvernig efnahagslíf Íslands blómstrar eru skattalækkanir á fyrirtækjum og einkavæðing. Þetta sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, á fundi íhaldsamrar rannsóknarstofnunar, American Enterprise Institute, í gær. 15.6.2004 00:01
KB stærri en LÍ og Íslandsbanki KB banki er orðinn stærri en Landsbankinn og Íslandsbanki til samans eftir kaup á dönskum fjárfestingarbanka í gær og er orðinn nánast jafn stór og stærsti banki Finnlands. 15.6.2004 00:01
Forstjóraskipti hjá SÍF Jakob Óskar Sigurðsson, hinn kunni handboltakappi og Valsari, hefur verið ráðinn forstjóri SÍF og tekur til starfa í þessum mánuði. Örn Viðar Skúlason, sem gegnt hefur starfi forstjóra SÍF undanfarna mánuði, tekur við sínu fyrra starfi sem aðstoðarforstjóri félagsins. 15.6.2004 00:01
Útflutningsgreinin fjármál Eftir kaup KB banka á danska bankanum FIH koma um þrír fjórðu hlutar tekna bankans frá útlöndum. Þetta hlutfall ræðst að nokkru leyti af því hvernig sum verkefna bankans eru skilgreind, en sumar þessara erlendu tekna eru vegna verkefna fyrir íslensk fyrirtæki á erlendum vettvangi. 15.6.2004 00:01
Fær gott lánshæfismat Íbúðalánasjóður hefur í fyrsta skipti fengið innlendar lánshæfiseinkunnir Aaa og AA+ frá alþjóðlegu matsfyrirtækjunum Moody’s og Standard & Poor’s. Einkunnir þær sem Íbúðalanasjóður fær eru hliðstæðar einkunnum sem innlend skuldabréfaútgáfa ríkisins fær og endurspeglar þannig náin tengsl Íbúðalánasjóðs og ríkisins og stöðu hans sem ríkisfyrirtækis. 15.6.2004 00:01
Markaðurinn vanmetur áhættu Íslenskur hlutabréfamarkaður hefur tekið út ríflega það sem hann á inni að mati Greiningardeildar Landsbankans. Vænt ávöxtun hlutabréfa er neikvæð til næstu tólf mánaða. Það þarf þó ekki að þýða að bréf muni fara lækkandi. 15.6.2004 00:01
Velgengni KB eykur hagvöxt Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segist vera glöð yfir velgengni KB banka á erlendri grundu sem hún telur að eigi eftir að auka hagvöxt hér á landi. Henni þykir ólíklegt að tvöföldun KB banka í gær auki líkur á sameiningu Landsbanka og Íslandsbanka. 15.6.2004 00:01
Stærð KB banka tvöfaldast KB banki tvöfaldaðist að stærð í nótt þegar fulltrúar hans og Swedbank náðu samkomulagi um að bankinn keypti danska fjárfestingabankann FIH sem Swedbank átti. KB banki var fyrir lang stærsti banki hér á landi og tíundi stærsti banki á Norðurlöndum en eftir kaupinn verður hann stærstur á sviði fyrirtækjalána í Danmörku með um 17% hlutdeild í markaðnum þar. 14.6.2004 00:01
Með allt í eigin hendi Hugbúnaðar- og tæknifyrirtæki hafa átt erfiða daga eftir mikla veislu. Fyrirtækið Handtölvur hefur jarðbundna stefnu að leiðarljósi og gengur hægt um gleðinnar dyr. Árangurinn er góður og mörg lönd ónumin.</font /></b /> 14.6.2004 00:01
Kynna nýjan fasteignavef Undirritaður hefur verið samningur milli Vísis og Eskils um þróun nýs fasteignavefs. Vefurinn verður meðal nýjunga sem kynntar verða á nýjum frétta-, afþreyingar- og þjónustuvef Vísis innan skamms. 14.6.2004 00:01
Samherji selur í hraðfrystistöð "Markmiðið með kaupunum er að tryggja framgang fyrirtækisins og áframhaldandi rekstur," segir Björn Ingimarsson, formaður stjórnar Fræs ehf. og sveitarstjóri Þórshafnar á Langanesi, en félagið hefur keypt ráðandi hlut í Hraðfrystistöð Þórshafnar af Samherja. 14.6.2004 00:01
KB banki tvöfaldast Eftir kaup KB banka á danska fjárfestingarbankanum FIH verða heildareignir KB banka tæplega 50 prósent meiri en samanlagðar eignir Íslandsbanka og Landsbankans. Heildareignir KB banka verða 1.470 milljarðar króna, en samanlagaðar eignir hinna bankanna tveggja eru tæpir þúsund milljarðar króna. 14.6.2004 00:01
Seinkað til 2005 Actavis, sem áður hét Pharmaco, hefur seinkað boðaðri skráningu sinni í Kauphöllinni í London. Fyrirtækið hafði boðað skráningu á þessu ári, en af því verður ekki. Í tilkynningu frá félaginu er ekki getið um ástæðu seinkunarinnar, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hún tæknilegs eðlis. 14.6.2004 00:01
Íslenskir bankar bitust um danskan KB banki keypti í gær danska bankann FIH fyrir 84 milljarða króna. Landsbankinn var einnig að skoða kaup á bankanum. KB banki ríflega tvöfaldast að stærð við kaupin með heildareignir upp á tæpa fimmtán hundruð milljarða króna. 14.6.2004 00:01
KB banki tvöfaldast KB banki tvöfaldaði stærð sína í dag með kaupum á danska bankanum FIH fyrir áttatíu og fjóra milljarða króna. Tveir íslenskir viðskiptabankar tóku þátt í slagnum um bankann sem er talinn hafa forystu í lánveitingum til fyrirtækja í Danmörku. 14.6.2004 00:01
Strangar reglur LSH Framkvæmdastjórn Landspítala háskólasjúkrahúss hefur sett strangar reglur um boðsferðir erlendra fyrirtækja til starfsmanna spítalans. Reglurnar ná einnig yfir kynningar sem starfsmönnum kunna að bjóðast á lyfjum, öðrum vörum og þjónustu. </font /></b /> 14.6.2004 00:01
Samherji selur sinn hlut Samherji seldi í morgun helmingshlut sinn í Hraðfrystistöð Þórshafnar til heimamanna. Í fréttatilkynningu frá Samherja segir að fyrirtækið hafi í dag, samið um sölu á 49,66% hlut sínum í Hraðfrystistöð Þórshafnar. 13.6.2004 00:01
Úr halla í hagnað Lánasýsla ríkisins sýndi hagnað í rekstri sínum árið 2003 samkvæmt nýútkominni ársskýrslu stofnunarinnar um 9,4 milljónir króna. Er það talsverð breyting frá fyrra ári þegar hallinn nam 37 milljónum króna og þakkar forstjóri stofnunarinnar, Sigurður Árni Kjartansson, aðhaldsaðgerðum og hagræðingu við þessar breyttu aðstæður. 13.6.2004 00:01
Áhugi á íslenskum lófatölvum Lófatölvufyrirtækið Handpoint á í viðræðum við stórt erlent flugfélag og þjónustufyrirtæki við flugfélög um sölu á þráðlausu búðarkassakerfi. Davíð Guðjónsson, framkvæmdastjóri Handpoint vill ekki greina nánar frá viðræðunum. 13.6.2004 00:01
Kaup VÍS á Lyfju af Baugi Gengið hefur verið frá kaupum á lyfsölukeðjunni Lyfju. Vátryggingafélag Íslands fór fyrir hópi fjárfesta sem keyptu Lyfju. Þá kom fram að heildarskuldbinding VÍS vegna kaupanna væri 500 milljónir króna. 12.6.2004 00:01
Vísitalan búin að ná hámarki "Það munar aðallega um hvað húsnæðisverð hefur verið að hækka mikið," segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands. Neysluvöruverðsvísitalan hækkaði um 0,77 prósent milli mánaða og hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði. 12.6.2004 00:01
KB banki hækkar vexti KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra lána frá og með deginum í dag. Hækkunin kemur í kjölfar tilkynninga Seðlabankans um hækkun stýrivaxta. Vextir óverðtryggðra útlána hækka almennt um 0,45 prósent; þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 7,95 prósentum í 8,40 prósent. 12.6.2004 00:01
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent