Næsti áfangastaður London 20. júní 2004 00:01
Kaup KB banka á danska bankanum FIH fyrir 84 milljarða króna verða að teljast til stórtíðinda í íslensku viðskiptalífi. Með kaupunum gleypti KB banki vel rekinn banka sem er stærri en þeir sjálfir. Miðað við sögu Kaupþings ættu kaupin ekki að koma á óvart. Undanfarin ár hafa Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri gert það að leiðarljósi sínu að tvöfalda bankann árvisst. Margir hafa velt vöngum yfir því hversu lengi þeim tækist að halda þessum dampi. Sigurður Einarsson hefur ávallt bent á það að þótt KB banki sé stór banki á íslenskan mælikvarða, þá sé hann næsta smár í því alþjóðlega samhengi sem bankinn setur sig í. Sigurður hefur aldrei verið feiminn við að viðurkenna að bankinn taki áhættu. "Þeir sem ekki vilja taka áhættu, ættu að snúa sér að einhverju öðru en viðskiptum," hefur hann ítrekað sagt. Það eru einfaldlega ekki allar ferðir til fjár, en ef horft er yfir feril KB banka manna síðustu árin verður ekki hjá því komist að viðurkenna að árangurinn er glæsilegur. Margir um hitunaAllir vildu Lilju kveðið hafa sögðu menn um Lilju munksins Eysteins Ásgrímssonar. Liljan í þessu tilviki var danski bankinn. Allir íslensku bankarnir vildu kaupa danska bankann og vonbiðlarnir voru fleiri. Nordea og SEB bankinn, auk fleiri norrænna banka báru víurnar í FIH. Íslandsbanki féll út á fyrstu stigum viðskiptanna og eru menn hugsi yfir því. Bent hefur verið á að bankinn hafi ekki nægjanlega sterkan eigendahóp, en meðal eigendanna er það ekki talin líkleg skýring. Bjarni Ármannsson, forstjóri vann að málinu, en ekki var settur hópur í málið. Sennilegast er þó að verkefnið hafi verið of stórt fyrir bankann til þess að hann réði við það með góðu móti. Landsbankinn þurfti að snúa við öllum vösum og leita að krónum í sokkum og skóm til þess að eiga fræðilegan möguleika á kaupum. Landsbankinn hafði tryggt sér fjármögnun, með aðkomu Straums og Burðaráss. Auk þess var bankinn búinn að tryggja sér tíu milljarða lán í Íslandsbanka og nokkra milljarða í KB banka. Snurða hljóp á þráðinn hjá KB banka þegar ljóst var að báðir voru að keppa að sama marki. Það mun þó ekki hafa ráðið neinu um niðurstöðuna. Mat meðal ráðandi afla í Landsbankanum er að einfaldlega hafi verið lagt of seint af stað í verkefnið. KB banki hafi unnið heimavinnuna sína betur. Þar við bætist að innan KB banka er orðin til veruleg reynsla af alþjóðlegum verkefnum. Reynsla sem skiptir miklu þegar menn spila á stórmótum. Óþolinmæði í LandsbankanumInnan Landsbankans telja menn of hægt ganga í útrás bankans. Reikna má með að veruleg pressa verði sett á stjórnendur bankans að skila vexti með útrás á næstunni. Erlend fjárfestingarverkefni hafa einnig skilað KB banka viðskiptatengslum við stóra banka svo sem Deutsche Bank og Royal Bank of Scotland. Árangursrík samvinna við þessa banka er mikill styrkur fyrir KB banka. Innan Íslandsbanka eru menn einnig hugsi. Þessi fyrrum stærsti banki landsins og sá virkasti er nú að dragast aftur úr hinum. Við það munu menn örugglega ekki una. Bankinn er afar vel rekinn, en hefur ekki verið tiltakanlega sókndjarfur. Skipurit bankans hefur verið endurskoðað og binda menn vonir við það að skýrari verkaskipting og ábyrgð muni skila sér í sókndjarfari og betri banka. Íslandsbanki og Landsbankinn ætla að fylgja í fótspor KB banka. KB banki er stærri og sterkari en hinir bankarnir. Bankinn hefur verið leiðandi í útrás, bæði eigin og þeirra fyrirtækja sem þeir hafa fóstrað og komið á legg. Ef heldur fram sem horfir verður einungis brot af tekjum bankans af innlendri starfsemi. Vel heppnuð útrás gerir það að verkum að fjármálastarfsemin er orðin öflug útflutningsgrein. Þar við bætist að erlend starfsemi íslenskra banka virkar eins og pípulögn fyrir íslensk fyrirtæki. Í bönkunum verður til mikil þekking á erlendum mörkuðum sem hefur nýst og mun nýtast íslenskum fyrirtækum. Við það bætist að stærri bankar geta stutt við bakið á stærri verkefnum. KB banki er með yfirburðastöðu. Lánshæfismat bankans stefnir í hækkun. Þar með verður fjármögnun hans ódýrari. Íslandsbanki er þegar með gott lánshæfismat, en Landsbankinn þarf á hækkun lánshæfismatsins að halda eigi hann að geta keppt við hina tvo á innanlandsmarkaði. Stækkun og meiri áhættudreifing eru lyklarnir að hækkuðu mati. London í brennidepliÞví fer fjarri að útrás og stækkun KB banka sé lokið. Bankinn er þátttakandi í verkefnum með íslenskum fyrirtækjum í London. KB banki verður nú í enn betri stöðu til þess að styðja við útrás og vöxt fyrirtækja eins og Bakkavarar og Baugs. Baugur og eigendur fyrirtækisins voru skilgreindir saman sem einn aðili af Fjármálaeftirlitinu sem gerði það að verkum að þeir voru að verða of stórir fyrir óbreyttan KB banka. Þau vandræði eru nú úr sögunni. KB banki er einnig í samvinnu við Bakkavör. Bæði bankinn og Bakkavör munu að öllum líkindum yfirtaka bresk fyrirtæki á árinu. KB banki á þegar tæplega 20 prósenta hlut í breska bankanum Singer and Friedlander sem metinn er á 50 milljarða króna. Bakkavör jók hlut sinn í bresku matvörukeðjunni Geast í vikunni og fór yfir 20 prósent. Það þýðir að Geast kemur inn í samstæðureikninga Bakkavarar sem hlutdeildarfélag. Mikil tengsl eru á milli Bakkavarar og KB banka. Kaupþing studdi dyggilega við bakið á bræðrunum Ágústi og Lýð Guðmundssonum og þeir launa fyrir sig með því að vera stórir hluthafar í bankanum og standa þétt við bakið á stjórnendum hans. Bakkavör á undan Actavis?Bakkavör stækkaði skuldabréfaflokk sinn um 2,5 milljarða á föstudag. Það verður að teljast sterk vísbending um að Bakkavör sé á fullu við að undirbúa fjármögnun yfirtöku á Geast með stuðningi KB banka. Enda þótt Geast sé stærra og verðmætara fyrirtæki en Bakkavör, þá ætti Bakkavör að geta klárað yfirtöku án þess að auka hlutafé sitt verulega. Ástæðan er sú að Geast er með sterka eiginfjárstöðu. Hlutdeild Bakkavarar í eigin fé eftir að þeir komust yfir 20 prósenta hlut gefur þeim færi á að auka skuldsetningu sína á móti eigin fé Geast í samræmi við eignarhlut sinn í félaginu. Bakkavör hafði safnað digrum sjóðum og voru sérfræðingar á markaði að verða óþolinmóðir yfir að þeim væri ekki beitt við kaup á fyrirtæki. Nú koma þeir sér vel. Lyfjafyrirtækið Actavis stefnir að skráningu í London. Henni hefur verið frestað fram yfir áramót. Fræðilega séð gætu bæði Bakkavör og KB banki verið skráð í kauphöllinni í London áður en að skráningu Actavis kemur. Það væri þá gert með svokallaðri öfugri yfirtöku. Þá yrði íslenska félagið tæknilega séð yfirtekið af erlenda félaginu. Hluthafar íslenska félagsins réðu för, en fyrirtækið væri skráð með heimili og varnarþing í London. Þetta er mun flóknara ferli en venjuleg yfirtaka. Í tilfelli KB banka er ekki áhugi á þessari leið. Bakkavör gæti farið þessa leið, enda þótt engin ákvörðun hafi verið tekin. Slík tilfærsla er ekki eins flókin í tilfelli framleiðslufyrirtækis og fyrir banka. KB banki er auk þess skráður í Stokkhólmi. Fyrirtækið komst í vikunni í hóp 40 fyrirtækja sem eru á lista athyglisverðra fyrirtækja. Sá áfangi eykur áhuga á KB banka á Norðurlöndum og með tíð og tíma gæti bankinn vaxið inn á A listann í Stokkhólmi og sótt sér fé inn á sænska markaðinn í framtíðinni. Afar ólíklegt er því að bankinn flytji sig um set á næstunni. Newcastle-farar á útsöluRökin á móti erlendri skráningu nú um stundir eru að íslensk fyrirtæki eru hærra verðlögð en bresk. Íslenskir fjárfestar eru því tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir hlutabréf fyrirtækja en þeir bresku. Í þessu liggja tækifæri fyrir Íslendinga sem vanir eru verðlaginu heima og eru eins og Newcastle-farar á útsölu. Augu Breta eru farin að beinast að Íslendingum. Baugur er þegar orðið þekkt nafn í fjármálaheiminum. Í smásöluverslun er ekki lagt af stað í eignabreytingar án þess að Baugur komist að borðinu og skoði hvort þeir hafi áhuga. Tíðinda af fjárfestingum þeirra verður því örugglega að vænta á næstunni. KB banki vekur líka vaxandi athygli. Fyrirtækjasviði bankans hefur vaxið fiskur um hrygg. Viðskiptatækifærin eru ekki enn sem komið er lögð á borðið hjá þeim eins og í tilviki Baugs, en sívaxandi athygli er á bankanum og hann kemst æ oftar að borðinu í fyrirtækjaverkefnum. Þátttaka bankans í fjármögnun tilboða í verslunarkeðjuna Londis og kvikmyndahúsakeðjuna Odeon hafa beint sjónum manna að íslenska bankanum. Kaupin í Danmörku urðu svo til þess að Financial Times sá ástæðu til þess að fjalla um þau og eiga viðtal við Sigurð Einarsson. Grein í Financial Times bæði sýnir og vekur áhuga bresks viðskiptalífs á bankanum. Blaðamaður Financial Times rekur ágreining KB banka og forsætisráðherra. Sigurður vill litlu svara um það, en segir að það fari ekki hjá því að í göngutúrnum frá minnsta bankanum til þess stærsta hafi verið stigið á einhverjar tær. Undrun breskraBreskir fjármálamenn klóra sér í hausnum og furða sig á innrás Íslendinga á breska markaðinn. Í þeirra huga eru einungis tvær skýringar líklegar. Þarna séu galnir fjármálamenn á ferð sem tilbúnir séu í meiri áhættu en hinir reyndu og sjóuðu bresku bankamenn treysta sér í. Hin skýringin er sú að þarna komi ferskir gestir sem sjái möguleika sem heimamenn eru samdauna og hættir að taka eftir. Verð fyrirtækja og rekstur er ekki fasti. Sínum augum lítur hver silfrið og fjárfestingar KB banka og viðskiptafélaga þeirra í Bretlandi hafa gengið vel. Alltaf er nóg af úrtölumönnum. KB banka menn hafa mátt heyra slíkar raddir frá því að þeir voru lítill fjárfestingarbanki í Ármúlanum. Þeir hafa haldið stefnu sinni og láta sig sjálfsagt einu gilda hvort úrtölurnar eru á ensku, sænsku eða íslensku.
Mest lesið Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum Neytendur Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Atvinnulíf Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Viðskipti innlent Rækja fannst í skinkusalati Neytendur Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Viðskipti innlent Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Viðskipti innlent Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Atvinnulíf Fleiri fréttir Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Sjá meira