Með allt í eigin hendi 14. júní 2004 00:01
Tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki áttu góð ár í lok nýliðinnar aldar. Við lok gullaldarinnar stofnuðu þrír skólabræður úr verkfræði fyrirtækið Handtölvur eða Handpoint, eins og fyrirtækið heitir á ensku. Á þessum tíma voru margar ævintýralegar hugmyndir í gangi sem ekki lifðu af niðursveiflu á markaðnum. "Það var gæfa okkar í gegnum þetta ferli að við vorum að vinna lausnir sem spara fyrirtækjum tíma og peninga. Eigendum fyrirtækja er alveg sama hvort menn hafa gaman af að nota handtölvur eða ekki. Ef þær spara peninga, þá eru þær notaðar." segir Davíð Guðjónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Í niðursveiflunni drógu fyrirtæki úr fjárfestingum. Davíð segir Handpoint ekki hafa farið varhluta af samdrættinum. "Við urðum að halda okkur á jörðinni." Fyrirtækið er ekki stórt, en hefur á þessum tíma orðið algjörlega leiðandi í lófatölvulausnum fyrir fyrirtæki. Stærstu heildsölurnar og stærstu verslunarfyrirtækin nota nú búnaðinn sem sparar mikinn tíma og fjármuni. Tilkoma stýrikerfa fyrir handtölvur opnaði möguleika á því að búa til kerfi og vera með úrvinnslu á staðnum. Stöðlun í heimi sérlausna Þessa möguleika nýttu þeir félagarnir sér og þróuðu staðlaðan hugbúnað sem heldur utan um vörur, pantanir og fleira sem lítur að heildsölu og smásöluverslun. Við hófum að búa til staðlaðar lausnir í heimi þar sem sérsmíðaðar lausnir voru allsráðandi. Davíð segir að sama hafi verið uppi á teningnum þegar PC-tölvurnar komu fyrst fram. Sama þróun muni verða í þróun handtölva og hugbúnaðar fyrir þær. Handtölvurnar eru með strikamerkjalesara og geta sent pantanir beint í kerfi heildverslunar. Pöntun liggur því fyrir um leið og hún er lesin inn og við það sparast bæði tími og pappírsvinna. Þar við bætist að villur í pöntunum snarminnka vegna þess að við innslátt pantana geta alltaf orðið villur, segir Davíð. Það fer ekki á milli mála að hann er vanur að telja upp kostina fyrir væntanlega viðskiptavini. Fyrirtækið stendur á tímamótum. Að baki er vöruþróun og árangursrík markaðssókn innanlands. Framundan eru spennandi tímar þar sem hafin er sókn á erlenda markaði. Verslun hér á landi er framarlega í að nýta sér upplýsingatækni. Varan okkar er þróuð í samstarfi við verslanir, þannig að viðbrögð við vörunni og árangur af notkuninni er komin inn í lausnina. Áhugi fjárfesta á sprotafyrirtækjum hvarf eftir að netbólan sprakk. Þeir félagar hjá Handtölvum hafa því þurft að stíga varlega til jarðar. Dýr sókn á erlenda markaði var því ekki inni í myndinni.Við erum í samstarfi við Landsteina Streng sem selja kassakerfi og verslanakerfi. Þeir eru með samstarfsaðila um allan heim. Þannig komumst við inn í þeirra dreifikerfi. Síðan höfum við komið okkur upp okkar eigin samstarfsaðilum líka. Framleiða eigin vélar Þegar er lausn Handpoint í notkun í Levi’s-búðinni á Oxfordstreet sem er hluti verslanakeðju sem hyggst nota lausnina í búðum sínum. Dansk Supermarked er einnig að skoða lausnir fyrirtækisins. Þegar við komum til Dansk Supermarked, þá sögðu þeir við okkur að við kæmum á heppilegum tíma. Þeir sögðust akkúrat ætla að nota þetta ár til þess að skoða lausnir. Þetta var 2002 og Danirnir reiknuðu með þremur árum í að velja kerfi. Hér heima er ákvörðunarferlið nokkrir mánuðir, segir Davíð og brosir. Það er margt að gerast í fyrirtækinu. Handpoint hefur hafið framleiðslu á eigin lófatölvum. Kveikjan að því er samningur við Norvik sem rekur BYKO og Kaupásverslanirnar. "Þeir þurftu harðgerðar vélar með tilteknum búnaði og báðu okkur að athuga möguleikana. Við fórum á stúfana og sáum fyrir okkur að við gætum framleitt eigin vél. Það er hægt að láta framleiða fyrir sig eldflaug í verksmiðjum í Asíu, ef manni dettur það í hug og kemur með teikningar og peningana," segir Davíð. Niðurstaðan var sú að þessi framleiðsla reyndist hagkvæm. Davíð segir vélarnar töluvert ódýrari sem liggi í því að í þeim sé sá búnaður sem kúnninn þarf, en enginn óþarfi. "Þessi framleiðsla þýðir að við bjóðum nú viðskiptavinum okkar pakkalausn með vélbúnaði, hugbúnaði og verkferlum." Stórir samningar í vinnslu Lófatölvurnar eru í stöðugri þróun og ein af nýjungum Handpoint er þráðlaust kassakerfi fyrir verslanir og farandsala. "Það getur komið sér vel á álagstímum í stórmörkuðum að bæta við einum kassa án mikils tilkostnaðar," segir Davíð. Maður sér það fyrir sér að slíkt nýtist sérlega vel þeim sem selja vöru og eru á ferðinni. Til dæmis flugfélögum. Davíð játar því og verður leyndardómsfullur á svipinn. Handpoint er nefnilega langt komið í viðræðum við bæði stórt flugfélag og fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörusölu til flugfélaga. Vonir standa til að hægt verði að landa þeim samningum á næstu mánuðum. Handpoint hefur tekist hingað til að eflast með því að taka skynsamlegar ákvarðanir. "Stjórnarmenn skamma mig stundum fyrir að ég sé of jarðbundinn," segir Davíð. Flugdrekarnir liggja nú líka margir á jörðinni með brotnar spýtur.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira