Strangar reglur LSH 14. júní 2004 00:01 "
Við viljum reyna að hafa þetta allt uppi á borðinu, það er öllum til góðs, líka kynnunum," sagði Jóhannes Gunnarsson hjúkrunarforstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss um nýjar reglur LSH um boðsferðir og vöru,- þjónustu- og lyfjakynningar. "Þetta er til að ekki sé verið að tortryggja þetta meira heldur en ástæða er til," bætti hann við. Reglurnar taka meðal annars til boðsferða starfsmanna LSH á vegum erlendra fyrirtækja. Slík boð verður að senda skriflega til sviðstjóra innkaupa- og vörustjórnunarsviðs sem tekur ákvörðun, í samráði við viðkomandi fagyfirmann, um hvort og þá hvaða starfsmaður muni fara í viðkomandi ferð. Sviðsstjóri innkaupa- og vörustjórnunarsviðs skal senda framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga, upplýsingar um ferðina og þátttakendur í henni og ákveði sviðsstjóri að fara sjálfur í slíka kynningarferð skal tilkynning þar að lútandi send framkvæmdastjóra skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga áður en ferð er farin. Framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga skal halda skrá yfir ferðirnar og þátttakendur. "Slíkar kynningarferðir fela ekki í sér neinar skuldbindingar af hendi LSH um neins konar frekari viðskipti og í tengslum við ferðir er starfsmanni óheimilt að gera ráðstafanir sem skuldbundið geta spítalann," segir í reglunum. Þá taka reglurnar til kynninga innan og utan spítalans. Þar skal hafa samráð við sviðsstjóra á innkaupa- og vörustjórnunarsviði. Þá þarf að afla heimildar yfirmanns á viðkomandi sviði eða deild. Kynnar þurfa að fara eftir ákveðnum reglum. Þeir mega afhenda á kynningarfundi gjöf sem hefur táknræna merkingu fyrir viðkomandi kynningu eða er í tengslum við starf viðkomandi starfsmanns. Að öðru leyti er óheimilt að bjóða starfsmönnum gjafir eða ívilnanir í tengslum við slíkar kynningar eða í því augnamiði að hvetja starfsmenn til að beita sér fyrir innkaupum viðkomandi vöru til stofnunarinnar. Starfsmönnum er óheimilt að þiggja slík boð. Jóhannes sagði, að ef starfsmaður yrði uppvís að ítrekuðum brotum á þessum reglum yrði farið með það eins og hvert annað starfsmannamál.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira