Fleiri fréttir

Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

Vísindarannsóknum á heilbrigðissviði hefur vaxið mjög ásmegin á Íslandi á undanförnum 10-15 árum. Í dag er um mikilvæga atvinnugrein að ræða, sem veitir þúsundum hámenntaðra starfsmanna atvinnu við hæfi.

Hver gætir hagsmuna heildarinnar?

Davíð Þorláksson skrifar

Stjórnvöld höfðu gefið okkur skattgreiðendum fögur fyrirheit um að tekjuskattur einstaklinga yrði lækkaður um tvö prósent um áramótin. Það var m.a.s. búið að lögfesta þá lækkun.

Tökum þátt í forvali

Forval Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fer fram í dag. Þá veljum við þá sveit sem mun leiða framboð flokksins í þremur kjördæmum, í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Þetta er áreiðanlega í fyrsta skipti sem valið er sameiginlega á framboðslista fyrir fleiri en eitt kjördæmi utan Reykjavíkur. Hefur þessi nýbreytni vakið athygli langt út fyrir raðir flokksmanna VG og mælst vel fyrir.

Gott að vera bara 50%!

Það virðast engin mörk á afbrigðilegu hegðunarmynstri þessarar þjóðar. Umræðan um innflytjendur þróaðist í karp og taut um orðalag, hvað þessi sagði þarna og hve miklir fordómar væru hjá þessum sem sagði þetta.

Heimilisofbeldi – falið vandamál

Nú stendur yfir 16 daga átak í 16. sinn undir yfirskriftinni: Eflum mannréttindi – stöðvum ofbeldi gegn konum. Af því tilefni hafa Kvenfélagasamband Íslands, Soroptimistasamband Íslands og Zonta á Íslandi tekið höndum saman um að opna augu almennings fyrir heimilisofbeldi.

Nýsköpun í stjórnmálum

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Ég hefði líklega orðið hissa ef einhver hefði sagt mér árið 1996 að ég myndi taka þátt í forvali og stefna að þingsæti áratug síðar. Eins og mörgum öðrum fannst mér stjórnmálalífið ekki spennandi á þeim tíma.

Framlag okkar bjargar mannslífum

Í dag verður haldin landssöfnun UNICEF á Íslandi. Ég fékk nýlega tækifæri til að sjá með eigin augum hversu miklu starf UNICEF getur skilað er ég heimsótti Afríkuríkið Síerra Leóne ásamt fulltrúum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Meinleg málsvörn borgarstjóra

Dagur B. Eggertsson skrifar

Eftir snarpa fimm tíma rimmu í borgarstjórn var samningur um sölu á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun samþykktur. Það var sérkennilegur andi í salnum. Yngri deildin í meirihlutanum gaf lítinn kost á augnsambandi undir umræðunum, brosti vandræðalega, beit á jaxlinn og greiddi atkvæði.

Flokkur í einkaeign?

Stjórnmálaflokkur er félagsskapur fólks sem sameinast til að koma fram málum. Til þess er mótuð stefna og teknar ákvarðanir um það hvernig framboðum er hagað hvort heldur er til embætta innan flokks eða á opinberum vettvangi. Sumir líta öðru vísi á málin og þannig er þeim feðginum Sverri Hermannssyni og Margréti dóttur hans farið. Þau líta á Frjálslynda flokkinn sem sína einkaeign og að félagar þar eru eigi að vera sporgöngumenn og þjónar þeirra.

Hver kemur til með að annast Hannes Hólmstein?

Ögmundur Jónasson skrifar

Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.

Umsátrið um Frjálslynda flokkinn

Innreið Jóns Magnússonar og félaga úr Nýju afli í Frjálslynda flokkin vekur athygli. Lengi hefur Jón langað á þing og svo lengi sem elstu menn muna hefur hann tekið þátt í þjóðmálaumræðu. Flokkur hans, Nýtt afl hefur þó aldrei náð mælingu. Honum er staðan ljós. Verkið er vonlaust.

Orðheldni skiptir máli

Kennarar í skólum borgarinnar hafa á undanförnum vikum ályktað og sent frá sér yfirlýsingar þar sem þeir lýsa óánægu sinni með að ekki hefur fengist niðurstaða í hvort endurskoðunarákvæði í samningum þeirra komi þeim til góða.

Færi á að losna undan EES

Nú virðist vera komið tækifæri til þess að losna undan EES-samningnum eða að minnsta kosti að láta reyna á undanþágumöguleikana frá hinum allt óaðgengilegri valdboðum ESB.

Þjónusta Stígamóta um allt land?

Það hefur lengi verið ljóst að þjónusta Stígamóta nýtist best fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir brýna þörf alls staðar á landinu. Fólk hefur lagt á sig ómældan kostnað og fyrirhöfn til þess að sækja ráðgjöf til Stígamóta og aðeins í litlum hluta tilfella hefur verið farið fram á fjárhagslega aðstoð sveitarfélaga.

Meðferð átröskunarsjúklinga

Í sjónvarpsþættinum 6 til sjö á Skjá einum hinn 14. nóvember sl. var viðtal við tvær ungar konur sem veita átröskunarsjúklingum og aðstandendum þeirra ráðgjöf.

Framsókn rifjar upp gamla takta

Gaman væri nú að skrifa virkilega krassandi pistil um nýleg ummæli formanns Framsóknarflokksins um hömlulaust afturhald, öfgahugmyndir í umhverfismálum og um niðurrifsöflin á vinstri væng stjórnmálanna.

Aumur blettur í frístundamálum?

Þau eru merkileg viðbrögð sumra framsóknarmanna við litlu viðtali sem Fréttablaðið birti í gær við Dofra Hermannsson, varaborgarfulltrúa og föður barns á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Grafarvoginum.

Að villa á sér heimildir

Í viðhorfi í þessu blaði sl. þriðjudag gefur Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi í skyn að ég nýti mér í pólitískum tilgangi að dóttir mín hafi verið á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum borgarinnar.

Ekki öll sagan sögð

Fréttablaðið tók í gær viðtal við ungan mann, sem á dóttur sem bíður enn eftir plássi á frístundaheimili í borginni. Ræðir ungi maðurinn, Dofri Hermannsson, þessa stöðu og gagnrýnir mig m.a. sem formann ÍTR fyrir að vera athafnastjórnmálamann en sinna þó ekki þessum skyldum mínum.

Karlar til ábyrgðar

Síðastliðið vor urðu þau ánægjulegu tíðindi að verkefnið Karlar til ábyrgðar (KTÁ) var endurreist. Verkefnið er meðferðartilboð fyrir karla sem beita ofbeldi í nánum samböndum. Hafi þeir gert sér grein fyrir því að ofbeldisbeiting þeirra er vandamál og vilji þeir reyna að breyta hegðun sinni þá er KTÁ leið sem þeim stendur til boða.

Latibær – alltaf hress, aldrei skemmtilegur!

Í Fréttablaðinu á sunnudaginn var viðtal við Magnús Scheving um frægð og framgang Latabæjar. Þetta er eitt af fjölmörgum viðtölum og greinum og fréttum um „ólinnandi söngfrægð“ þessa sjónvarpsefnis fyrir börn um heim allan svo vitnað sé í söguna góðu um Garðar Hólm.

Rangfærslur útvarpsstjóra

Erna Kettler skrifar

RÚV yfirbauð 365 í umræddan einkaréttarsamning við Disney-samsteypuna. 365 átti ekki möguleika í því tilfelli á að jafna verð eða magn efnis - og hefur ekki síðan samningurinn var gerður átt þess kost að kaupa efni frá Disney. Slíkur samningur kallast einkaréttarsamningur (output deal) og ekkert annað.

Reynir, skólar og kristniboð

Reynir minnist einnig á Ásatrúar-menn. Reynir telur sig sjá að heiðið siðgæði taki hinu kristna töluvert fram að mörgu leyti. Eitthvað minna þessi orð meira á trúboð en fræðslu. Ef hann er í Ásatrúar-félaginu er spurning hvort ekki sé ráð að hreinsa til í eigin ranni áður en taka á til hjá öðrum?

Árangur lyfjaeftirlits á Íslandi

Notkun ólöglegra árangursbætandi efna er hinsvegar ekki bundin við skipulagða íþróttaiðkun og það þarf einnig að sporna við almennri notkun með aukinni fræðslu og forvarnarstarfi í samfélaginu.

Alfriðun á Laugaveginum

Bolli Kristinsson á sjálfur persónulega ótrúlega stóran þátt í því að Laugavegurinn hefur ekki fengið frið til að þróast á eigin forsendum bæði með aðkomu sinni að deiliskipulagsmálum og svo það að hann hefur sjálfur staðið í lóðabraski.

Hvað á vitleysan að ganga langt?

Íslenska kvótakerfið er vitleysistilraun sem hefur ekki gengið upp og engin von til þess að gangi upp, þar sem hún stríðir gegn lögmálum náttúrunnar. Fleiri tilraunir, álíka vitlausar, hafa verið gerðar í smærri skala á síðustu árum, s.s. þegar reynt var að gefa villtum þorski loðnu í Arnarfirði til þess að koma í veg fyrir að þorskurinn æti rækjuna í sama firði.

Ég verð alltaf Íslendingur

Ræða Magnúsar Þórs sem hann hélt á dögunum á Alþingi er örþrifaráð Frjálslyndaflokksins til þess að þurrkast ekki út í næstu kosningum. Hún er illa ígrunduð og væri í raun hlægileg ef ekki væri fyrir undirtón rasisma og þjóðernisöfga og í kjölfarið aukið fylgi flokksins.

Á tímamótum

Af hverju velja þau ekki heiðurinn. Nú eiga Hafnfirðingar kost á að losna við allan óþverrann, því eigendurnir hóta að fara, fái þeir ekki að stækka. Ef Fjarðarbúar veita álverinu brautargengi, verður Hafnarfjörður með menguðustu stöðum landsins, fyrir utan falska atvinnuöryggið.

Hvalveiðar, hvalkjöt og ferðaþjónusta

Ímynd byggð á heilindum laðar að fólk sem kemur af heilum hug og það er ferðafólk sem ég vil sjá á Íslandi. Hvalaskoðun hefur þjónað þeirri ímynd landsins sem kynnt hefur verið hingað til afar vel og fengið til landsins fólk sem af heilum hug unnir náttúru. Mér finnst óráð að spilla því.

Áhugi fyrir framboði

Tillaga ríkisstjórnarinnar kveður á um, að lífeyrir aldraðra hækki í 126 þúsund um næstu áramót, þ.e. hækki um 3 þúsund krónur. Þetta er hlægilega lítil hækkun. Það er til skammar, að ríkisstjórnin skuli skammta öldruðum slíka hundurlús á sama tíma og stjórnarflokkarnir státa af því, að Ísland sé ein ríkasta þjóð í heimi.

60 eða 600 þúsund tonn?

Álfheiður Ingadóttir skrifar

Nú stendur til að fá sér einn stróriðjuafrétt-ara á Suðurlandi, drekkja Langasjó, Kerlingarfjöllum og Markarfljóti. Stóriðjustefnan er sprelllifandi sem aldrei fyrr.

Einstök menntasókn – Ranghugmyndir menntamálaráðherra.

Í Fréttablaðinu hinn 29. október birtist grein eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-40 ára sem stunda háskólanám. Þar hrósaði hún ítrekað þeim árangri sem íslensk stjórnvöld hafa náð í framlagi til menntamála, samanborið við hin Norðurlöndin.

Er óeigingirni guðleg?

Á dögunum varði sr. Hildur Eir Bolladóttir þann sjálfsagða rétt guðfræðinga að tjá sig opinberlega um siðferðileg ágreiningsmál með þeim furðulegu rökum að "siðfræði er guðfræði“. Í þessum orðum kristallast sú sjálfhverfa skoðun sumra guðfræðinga að rætur allrar siðlegrar breytni liggi í trúnni á Guð Biblíunnar.

Sagan í sjónvarpi

llugi Gunnarsson er menningarsinni eins og gömlum róttæklingi sæmir. Honum er annt um hlutverk Ríkisútvarpsins og líka um sögu landsins (Fréttablaðið, 5. nóv.). Hann vill sjá heimildamyndir um þessa sögu í Ríkisútvarpinu. Heyr, heyr! Hann er velkominn í hóp áhugamanna um þessi mál. Við þurfum þó ekki að stofna ný stjórnmálasamtök um þennan áhuga því hann sker á öll flokksbönd og á hljómgrunn víða þó að minna verði úr framkvæmdum.

Hugmyndafræðileg flatneskja?

Björgvin Guðmundsson (mis)notar sl. fimmtudag stöðu sína á Fréttablaðinu til að lýsa í pistlinum Frá degi til dags, málefnastarfi Heimdallar síðastliðin tvö ár, sem „hugmyndafræðilegri flatneskju". Nú geti hins vegar „frjálshyggjumenn andað léttar" því „hugsjónir Heimdallar lifi góðu lífi" hjá núverandi stjórn, sem nýlega hafi mótmælt kaupum ríkisfyrirtækis á prentsmiðju og að ríkið reki RÚV.

Kristniboðsskipunin í skólum

Fréttablaðið greindi í síðasta mánuði frá mótmælum Siðmenntar vegna Vinaleiðar, „kristilegrar sálgæslu" í grunnskólum, á þeim forsendum að þar væri um óeðlileg tengsl skóla og kirkju að ræða. Í fréttinni hafnaði Karl Sigurbjörnsson biskup því að um trúboð væri að ræða.

Afa vill aðgerðir

Afa-samtökin, félag aðstandenda aldraðra, héldu blaðamannafundfyrir skömmu um ástandið í vistunarmálum aldraðra. Gagnrýndu þau harðlega "útspil" heilbrigðisráðherra en ráðherrann tilkynnti með miklum áróðurbrag fyrir skömmu ,að verja ætti 1,3 milljörðum í byggingu hjúkrunarheimila næstu 4 árin

Björn á leikinn

Hreinn Loftsson skrifar

Í leiðara Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu í gær kemur fram áskorun til Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um viðbrögð við grein Arnars Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra, sem birtist í Morgunblaðinu sl. miðvikudag.

Stóriðja, er sátt í sjónmáli?

Víða um land virðist mikill áhugi á að byggja lítil álver. Of lítil álver ef marka má það sem fram hefur komið um rekstrarhagkvæmni álvera. Á Suðurnesjum og Húsavík vilja menn byggja álver með 250.000 tonna framleiðslugetu. Það hefur lengi legið fyrir að til þess að njóta hagkvæmni stærðarinnar þurfa álver að vera talsvert stærri en sem þessu nemur.

Úthýst, útrýmt og fordæmt

Litlu munaði að Felix Rottberger yrði sendur í gasklefann með systrum sínum árið 1944. Í dag sendir hann sínar bestu kveðjur og óskar nýbúum og útlendingum, án tillits til trúar og uppruna, farnaðar á Íslandi. Höfundur er fornleifafræðingur.

Meint endalok landsbyggðar

Fyrri hluta október birtist greinaflokkur í Fréttablaðinu undir heitinu „Flóttinn af landsbyggðinni“. Þar var hlutur dreifbýlis settur undir mæliker ameríkskrar hagspeki með þeirri niðurstöðu að þéttbýli utan Reykjavíkur, annars staðar en á Akureyri og í Bolungavík, væri dauðadæmt. Þarna birtust greinar með dramatískar fyrirsagnir eins og: „Austfirðingar í útrýmingarhættu,“ „Hvergi lægri tekjur“ og „Akureyri ein með framtíð.“

Kaupmáttur eftir skatta og eldri borgarar

Eins og fram kom í síðustu grein hafa skattar á lægri tekjur allt frá árinu 1988 hækkað mikið vegna þess að skattleysismörkin hafa setið eftir að raungildi. Þannig greiðir sá sem nú hefur 110 þús kr. í tekjur á mánuði 10,3 prósent af þeim í tekjuskatta en hann greiddi ekki eina krónu í skatta af sambærilegum rauntekjum við upptöku staðgreiðslunnar.

Auður Lilja Erlingsdóttir: Hæfasti einstaklingurinn kosinn?

Kosningabaráttan er hafin og tími prófkjöranna er runninn upp. Sú umræða sem alltaf virðist fylgja prófkjörsbaráttu er á sínum stað. Umræðan um hvort það skipti máli að kjósa konur eða karla eða hvort markmiðið sé einfaldlega að kjósa hæfasta einstaklinginn óháð kyni.

Sjá næstu 50 greinar