Fleiri fréttir

Stuðningur til námsgagnakaupa

Katrín Júlíusdóttir skrifar

Nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum.“ Þessa setningu er að finna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem samþykkt var af báðum þessum flokkum nú í vor. Þessi stjórnarsáttmáli er mjög merkilegur. Eiginlega merkilegri en stjórnarsáttmálar sem við höfum séð lengi – finnst mér, því hann einkennist af miklum metnaði og framsýni.

Lifi Sparisjóður Dalvíkur

Þetta gæti verið upphaf á gömlu lagi með Megasi: Það eru allir svo brjálaðir út í bankana. Svo gætu erindin tuttugu og sjö öll hafist á svipuðum nótum. Það eru allir svo bitrir út í bankana, það blæs ekki byrlega fyrir bönkunum...

Þakklæti

Fyrirbærið þakklæti er ekki hátt skrifað í nútímanum. Flestum finnst álíka fáránlegt að vera þakklátur og að safna sér fyrir einhverju. Til hvers að safna sér fyrir einhverju þegar maður fær lánað fyrir því á þremur mínútum? Til hvers að vera þakklátur fyrst allt kemur hvort sem er upp í hendurnar á manni?

Marktæku krúttin

Fyrir allra fyrsta skiptið sem ég hitti bankastjóra var auðmýkt mín gagnvart valdhafanum slík að ég undirbjó fundinn af kostgæfni. Andlega fyrst og fremst, því erindið var að sækja náðarsamlegast um dálítið lán. Því ákvað ég nákvæmlega hvað ég ætlaði að segja og rökin fyrir frekjunni. Jafnframt taldi ég rétt að vanda útlitið, fór í huggulegt pils, háa hæla og eyddi umtalsverðri stund í snyrtingu.

Hvað er að gerast í Palestínu?

Langvarandi neyð Palestínumanna er vel þekkt en undanfarna mánuði hefur ástandið versnað og er áætlað að meirihluti Palestínumanna þurfi neyðaraðstoð. Á Vesturbakkanum hefur lífskjörum manna hrakað með efnahagslegum refsiaðgerðum Ísraelsmanna.

Mat á vatnsréttindum

Helsta gagnrýni á úrskurð matsnefndar um greiðslur til vatnsréttarhafa sem tengjast Kárahnjúkavirkjun hefur falist í eftirfarandi:

Réttilega lagðar undirstöður

Í lagaumhverfi orkubúskaparins eru slæmir brestir. Úrskurður sérstakrar matsnefndar um verðmæti vatnsréttinda sem nýta þarf vegna Kárahnjúkavirkjunar varpar nokkuð skýru ljósi þar á.

Í hvað ásælist Landsvirkjun?

Kolbrún Halldórsdóttir skrifar

Það er eðlilegt að deilt sé um samkomulag íslenska ríkisins og Landsvirkjunar um yfirtöku vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár. Samkomulagið var gert þremur dögum fyrir kosningar á þeim tíma sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var logandi hrædd um að þjóðin kysi yfir sig ríkisstjórn, sem væri gagnrýnin á stóriðjustefnuna og auðlindakapphlaup orkufyrirtækjanna.

Með góðum óskum

Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar

Í langri bílferð um daginn sagði yngri dóttirin að ef hún fengi tíu óskir uppfylltar myndi hún ekki eyða þeim í sjálfselsku óskir. Síðan hófst upptalningin: Ég vildi óska þess að allir í heiminum væru góðir og það væru því engin stríð. Ég vildi óska að allir væru heilbrigðir. Ég vildi óska að allir ættu peninga.

Deyfingar fyrir aumingja

Karen D. Kjartansdóttir skrifar

Meðganga og fæðing er ekki sjúkdómur heldur eðlilegur hluti af lífinu, það er óeðlilegt að sjúkdómsvæða þetta ferli. Þessa klisju heyra líklega flestar barnshafandi konur og stilltar kinka þær flestar kolli til samþykkis.

Var verið að skemmta sér?

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Rætt hefur verið fram og aftur um það hvort téður vínkælir kunni að eiga sök á uppivöðslusemi róna í miðbænum – og er þá væntanlega hugmyndin sú að kældur bjór geri rónana illskeyttari en til dæmis kardímommudropar eða Pierre Roberts í appelsíni.

Hinir vammlausu

Fyrir um það bil ári fékk fólk sem býr í eldgömlu fjölbýlishúsi í 101-hverfinu óvænt símtal frá manni sem kynnti sig sem fasteignasala. Erindið var að spyrja hvað íbúð fjölskyldunnar ætti að kosta. Svarið var að íbúðin væri alls ekki til sölu.

Billjónsdagbók 26.8

Þegar ég hafði fullvissað mig um að var enginn í móttökunni, leyfði ég mér að dansa eins og indjánahöfðinginn „Óstöðugur vindur" hring eftir hring í kringum 12 fermetra fundarborðið, fórna höndum og hrópa í sífellu af léttgeggjaðri hrifningu: Djíníuss! Djíníuss!

Ástandið

Með reglulegu millibili blossar upp á Íslandi umræða um hið svokallaða ástand í miðbænum, en "ástandið í miðbænum" er eiginlega orðið sérstakt hugtak í íslenskri umræðu, notað af þeim sem telja miðbæinn vera gróðrastíu ofbeldis, óláta og óhreininda. Alla mína hundstíð hef ég hlýtt með litlu millibili á bölv og ragn í fjölmiðlum út af miðbænum.

Vatnsréttindin of lágt metin

Ekki kom á óvart að mat nefndar vegna eignaréttar á rennandi vatni, sem knýja skal virkjanir kenndar við Kárahnjúka og álver á Reyðarfirði, færi talsvert hærra en forstöðumenn Landsvirkjunar töldu sæmilegt að greiða. Þeirra hugmyndir um verðmæti vatnsréttinda sem þeir vilja komast yfir eru spaugsamar í meira lagi og hljóta að vekja almennan aulahlátur á stjórnarfundum Landsvirkjunar: Bjóðum bara túkall ha ha ha.

Til bæjarstjóra Vestmannaeyinga

Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjun, Elliði Vignisson, sendi mér tóninn í Fréttablaðinu á miðvikudag. Talar hann um „draugasögur“ og „dómsdagsspár“ og gerir lítið úr þátttöku minni í umræðunni um samgöngur á sjó til Vestmannaeyja.

Þannig er laganna hljóðan

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar

Þorsteinn Pálsson gerir ummæli mín um hugmyndir um olíuhreinsistöð að umfjöllunarefni í ritstjórnargrein 22. ágúst sl. Þar sér hann ástæðu til að taka nýjan umhverfisráðherra í kennslustund í stjórnsýslufræðum og segir m.a.

Þankar um sparisjóði

Sparisjóðirnir hafa verið nokkuð í umræðunni að undanförnu. Viðskiptaráð telur þá staðnaða og á fallanda fæti, deilur hafa verið um formbreytingar Sparisjóðs Skagafjarðar, Spron er að breytast í öflugt hlutaféag og eftirspurn er eftir stofnfjárhlutum margra sparisjóða.

Mér til málsvarnar

Góðir fundarmenn. Ég vil byrja á að biðjast forláts á þeirri töf sem orðið hefur á boðun til þessa húsfundar. Ég taldi hins vegar rétt að veita forvera mínum í formannsembætti svigrúm til að útskýra sinn þátt í málinu enda ljóst að ákvörðun um kaup og uppsetningu gervihnattadisks var tekin í hans stjórnartíð.

Öllum í hag

Í mannlífinu keppir fólk í margvíslegum leikjum, ekki nauðsynlega hvert við annað, heldur að einhverjum markmiðum. Leikjafræði (e. game theory) bregður þess vegna skæru ljósi á sum viðfangsefni okkar.

Enn af sagnfræði og trú

Kristni er í huga flestra háð því að ákveðnir atburðir hafi í raun og veru átt sér stað, að þeir séu sagnfræðilegar staðreyndir. Fræðimenn hafa átt það til að komast að öðrum niðurstöðum og veikja þar með grundvöllinn að kennivaldi kirkjunnar og jafnvel hefur verið litið á vísindi og trú sem andstæður.

Blikkbeljan tamin

Fyrstu fríkortin í strætó voru afhent námsmönnum í gær. Má segja að þar með sé hafin alvöru tilraun til þess að draga Íslendinga út úr einkabílunum og koma þeim upp á lagið með að notfæra sér almenningssamgöngur.

Mikilvægi framkvæmdar fjárlaga

Með fjárlögum samþykkir Alþingi þau útgjöld og þann tekjugrunn sem ráðuneytum og stofnunum ríkisins eru heimiluð vegna starfsemi sinnar. Áður en til frekari útgjalda er stofnað þarf að fá til þess frekari heimild hjá Alþingi. Stjórnarskráin kveður m.a. á um að ekkert gjald megi greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.

Mika

Á ísskápnum hanga Geðorðin 10 sem Lýðheilsustöð var svo elskuleg að senda mér um árið. Ég les sjaldnast lengur en fyrsta geðorðið þegar ég fer í skápinn, enda á það kannski best við mig: Hugsaðu jákvætt, það er léttara.

Bankaskjálfti í Ameríku

Atkvæðisréttur í þingkosningum var í öndverðu bundinn við eignir manna og fór sums staðar eftir fjölda glugga á húsum þeirra. Hugsunin var þá sú, að eignamönnum einum væri treystandi fyrir stjórnmálum. Framsókn lýðræðisins í okkar heimshluta rauf þessi tengsl milli lýðréttar og auðs með því að veita eignaleysingjum atkvæðisrétt og önnur réttindi til jafns við auðmenn.

Englar eru bestu skinn

Norska prinsessan Marta Lovísa kom þjóð sinni heldur betur á óvart í sumar þegar hún sagðist geta séð engla. Hún hafði gert það gott sem knapi, sjúkraþjálfari og barnabókahöfundur en þessu áttu Norðmenn ekki von á frá henni. Þegar Marta Lovísa opnaði síðan skóla til að kenna öðrum að sjá engla, þessar tindilfættu verur, var Norðmönnum nóg boðið.

Raup dagsins

Menningarnóttin með Glitnishlaupinu innanborðs nálgaðist óþægilega hratt þetta sumarið. Vegna heitstrenginga frá í fyrra hefur það verið undirlagt af hlaupatilraunum þeirrar sem áður var þekktari af værukærri heimasetu og þrátt fyrir ríflegan undirbúningstíma hefðu reyndar tvær, þrjár vikur í viðbót verið vel þegnar.

Menningarnótt og miðborgarótti

Menningarnótt hefur verið fastur liður um árabil og lífgað upp á líf íbúa og gesta höfuðborgarinnar. Í ár virðist hátíðin hafa tekist einstaklega vel og er það mikið fagnaðarefni.

Færanleg lögreglustöð

Sá sem býr í miðborg veit að þar er ýmislegt öðruvísi en í úthverfum. Sumt betra. Annað verra. Aðeins eitt er óþolandi og það er að búa á svæði þar sem löggan hefur gefist upp á að framfylgja landslögum. Með lögum skal land byggja – nema miðborg Reykjavíkur.

Svona ætti að vera …

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Við ákváðum að skilja bílinn eftir í Hlíðunum og labba niður í bæ – taka svo strætó til baka. Við vorum hluti af innrásarhernum; fótgönguliðarnir úr nágrenni borgarinnar; komin í heimsókn til Reykjavíkur, og brýndum fyrir sjálfum okkur að fara nú ekki að spræna á neinar útihurðir …

Fjölga þarf störfum á Vestfjörðum

Undirritaður setti fram tillögu í ársbyrjun 2003, um að náttúruverndar­sinnar sem vildu að hætt yrði við Kárahnjúka og álver eystra, kæmu vestur og sköpuðu þar þau 700 störf sem þeir sögðust skapa fyrir austan ef hætt yrði við framkvæmdir þar.

Góðkynja vandi í miðborginni

Ef miðborgin er hjarta Reykjavíkur, þá er Reykjavík hjartveik; það er menningarslys ef húsin við Laugaveg 4 og 6 eru rifin; ástæða er til að óttast um líf sitt og limi að nóttu til um helgar í miðbænum.

Enn eru til hugsjónarmenn

Ögmundur Jónasson skrifar

Mikil gerjun er nú í sparisjóðum landsins. Til þeirra var stofnað til að efla samfélagið í héraði, þjóna fólki og fyrirtækjum. Þeir sem lögðu fram stofnfé gerðu það iðulega af hugsjón enda kveðið á um það í lögum að stofnféð mætti aðeins greiða þeim til baka með eðlilegum vöxtum og verðbótum.

Hugleiðing um háðung

Nýlega var kvikmyndin um Simpson fjölskylduna talsett á íslensku. Ekki eru allir á einu máli um ágæti þeirrar ráðstöfunar.

Letingja í valdastöður

Borgar Þór Einarsson skrifar

Það er ekki margt að í íslensku samfélagi, sem betur fer. Fáar þjóðir búa við aðra eins hagsæld og velmegun. Verkefni og viðfangsefni sem áður voru á höndum stjórnmálamanna, eins og að reka bankakerfið og ákveða verð á vörum og þjónustu, er að verulegu leyti komin í hendur einkaaðila.

Góðan dag Reykvíkingar

Hugmyndin um menningarnótt var innflutt eins og margt annað, reyndar dönsk. Hugmyndin var góð og hún hefur á liðnum árum veitt Reykvíkingum og nærsveitamönnum gleymda vissu sem var þarna undir að þeir búi í borgarsamfélagi, eigi miðbæ, eitthvert hjarta í byggðinni milli holta, mela og hálsa.

Maraþon

Á hverju ári, yfirleitt um vorið eða í upphafi sumars, hvarflar að mér að það gæti verið sniðugt að stefna að því að hlaupa maraþon.

Sóknarfæri með breyttri sýn

Helga Björg Ragnarsdóttir skrifar

Á fundi leikskólaráðs á miðvikudaginn var samþykkt tillaga frá Vinstri grænum sem markaði tímamót í ýmsum skilningi. Í tillögunni fólust tilmæli um að nýta ákvæði kjarasamnings til tímabundinna greiðslna til að bregðast við tímabundnum aðstæðum á vinnumarkaði sem leiða af sér meira starfsálag.

Starfmannaekla í leik og grunnskólum

Sú staða sem upp er komin vegna manneklu bæði á leikskólum og í grunnskólum borgarinnar kallar á tafarlausar aðgerðir borgaryfirvalda. Nauðsynlegt er að halda góðri samstöðu meðal þeirra starfsmanna sem þegar eru við störf og tryggja nauðsynlega þjónustu.

Öldurót lífs og dauða

Ég sit á veröndinni og horfi á öldurnar gjálfra í fjörunni. Ein af annarri velta þær upp í sandinn og svo fjara þær út. Eins og lífið. Eins og við manneskjurnar.

Söfnum góðum minningum

Menningarnótt í miðborginni er nokkurs konar uppskeruhátíð eftir gott og veðursælt sumar. Hún er orðinn sá viðburður sem fáir vilja missa af því hún er aldrei eins; alltaf ný og óvænt.

Stöndum vörð um Nónhæð

Það var í maí s.l. að nokkrir íbúar Nónhæðar komust að því fyrir tilviljun að innan tíðar stæði til að hefja umfangsmiklar byggingarframkvæmdir á lóðunum Arnarsmára 32 og 36 (efst á Nónhæð).

Illt í maganum

Litríkasta helgi sumarsins er yfirstaðin. Allt frá prestum yfir í teknótæfur flykktust niður í miðbæ til að veifa fánum til stuðnings samkynhneigðum. Allt var blessað í bak og fyrir og bólaði ekki á Gunnari í Krossinum, sem fjölmiðlar eru vanir að draga fram í sviðsljósið í hvert sinn sem minnst er á réttindabaráttu samkynhneigðra. Til þess að spyrja hvað honum finnist nú um þetta.

Olíuhreinsistöð stenst ekki lög

Árni Finnsson skrifar

Áður hafði bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar beitt sér fyrir stóriðjulausum Vestfjörðum. Þess í stað skyldi nýta einstaka náttúru Vestfjarða til að laða að ferðamenn. Hvernig væri nú að bæjarstjórinn léti sér detta í hug að beita sér fyrir hvalaskoðun á Vestfjörðum? Það gæti skapað nokkur raunveruleg störf við arðbæra ferðaþjónustu.

Pönkhagfræði

Eftir því sem ég kemst næst er gott að græða, en slæmt að tapa. Þessa þulu tuldrar nútímamaðurinn fyrir munni sér. Samt tapa allir á endanum í gröfinni, en það er víst önnur saga. Þangað til er hámarksgróði eina markmiðið og skiptir þá litlu hvort þrælahald komi við sögu eða ekki.

Sjá næstu 50 greinar