Bakþankar

Hugleiðing um háðung

Nýlega var kvikmyndin um Simpson fjölskylduna talsett á íslensku. Ekki eru allir á einu máli um ágæti þeirrar ráðstöfunar. Af ýmsu sem látið hefur verið flakka mætti hreinlega halda að hér sé ekki um það að ræða að myndin sé sýnd með íslensku tali auk frummálsins og að í tilefni þess hafi fjögurhundruðasti þátturinn verið sýndur á íslensku auk frumútgáfunnar, en ekki bara á ensku eins og hinir 399. Nei, af viðbrögðum sumra mætti ætla að teiknuð hafi verið skopmynd af þeirra persónulega Múhameð.

Að vísu virðist andúð fólks á talsetningunni vera meiri eftir því sem það er verr skrifandi á íslensku. Þannig agnúast einn netverji út í talsetninguna í næstu færslu á eftir frásögn af keppnisferð „til Akranesar". Guð forði honum frá því að heyra íslensku talaða.

Annar netverji er svo góður í ensku að hann segir: „Simpsons á íslensku er discrace [sic]". Hann bætir við: „ ... dicrace [sic] fyrir þáttinn ömurlega sett inná hljóðið ömurlegar raddir bara átti ekki að setja það á islensku [sic]". Stafsetning og greinarmerkjasetningar eru bloggarans.

Enn einn fullyrðir að þeir sem tóku þýðinguna að sér ættu að skammast sín. Nú var það aðeins sá sem þetta skrifar sem tók hana að sér og hefði verið hægðarleikur að komast að því. Fyrir hvað ég á að skammast mín veit ég hins vegar ekki. Líklega fyrir að vera í þessu starfi og þiggja krefjandi verkefni sem mér eru boðin - í þeirri trú að ekkert verði úr þeim hafi ég bara manndóm í mér til að segja „nei takk".

Loks kallar einn þetta peningasóun án þess að geta þess hvernig 20th Century Fox kvikmyndasamsteypan hefði getað varið fé til íslenskrar tungu án þess að sóa því. Alltaf lá fyrir að talsetningin var að kröfu og á kostnað hennar.

Einhvern veginn er ég ekkert miður mín yfir þessum viðbrögðum. Í ljósi staðreynda er frekar ástæða til að vera þakklátur fyrir að vera ekki kallaður „hvítnegri" eða hótað lífláti og líkamsmeiðingum, eins og alsiða er í netheimum þegar fólki þar er misboðið. Þegar upp er staðið er nefnilega fátt íslenskri þjóð til jafnmikillar háðungar (e. disgrace) og netgasprið sem hér líðst.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×