Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar 5. október 2026 08:02 Það eru tvö ár síðan ég skrifaði greinina „Það er þetta með þorpið“. Mikið hefur gerst á þessum tveimur árum og eitthvað breyst, en eitt stendur enn: börnin okkar þurfa á okkur öllum að halda. Þau þurfa gott skólasamfélag, stuðning og fullorðið fólk sem trúir á þau og vinnur saman að því að skapa þeim góðar aðstæður til náms og þroska. Á alþjóðadegi kennara langar mig hins vegar að beina sjónum að öðru. Ekki því sem betur má fara, heldur því sem er þegar til staðar. Því þegar ég horfi inn í skólann minn og á skólastarf almennt séð þá sé ég fyrst og fremst að það er ótrúlega margt gott að gerast. Á hverjum morgni mæta kennarar og annað starfsfólk í skólana og takast á við ólíka nemendahópa, ólíkar þarfir og ólíkar áskoranir. Kennarastarfið er krefjandi og verkefnin eru mörg. Enginn dagur er alveg eins og sjaldnast fer hann nákvæmlega eftir því plani sem maður mætti með um morguninn. Kennslustund sem átti að fara í eina átt getur tekið allt aðra stefnu vegna spurningar frá nemanda, samtal í frímínútum getur orðið upphaf að einhverju mikilvægu og stundum þarf einfaldlega að leggja áætlunina til hliðar og bregðast við því sem dagurinn færir manni. Mér finnst það samt vera eitt af því sem gerir starfið svona skemmtilegt. Við fáum að vera með fólki sem er að þroskast og finna sig. Við fáum að fylgjast með nemendum læra eitthvað nýtt, ná tökum á einhverju sem hafði verið erfitt, öðlast meira sjálfstraust eða einfaldlega finna gleðina í því að geta. Þetta eru oft litlir sigrar sem sjást ekki utan skólans en þeir skipta miklu máli fyrir þann sem upplifir þá og fyrir kennarann sem fær að fylgjast með. Það er líka svo margt í skólastarfi sem verður til vegna þess að kennarar eru tilbúnir að prófa eitthvað nýtt. Hugmyndir verða að verkefnum, verkefni þróast og stundum verða þau að einhverju sem maður hefði ekki getað séð fyrir þegar hugmyndin kviknaði. Ég hef sjálf fengið að upplifa þetta í verkefnum eins og „Hundur í skólastofunni“ og „Förustafir í skólastofunni“. Þetta eru verkefni sem hafa þróast út frá áhuga, hugmyndum og þeirri trú að hægt sé að nálgast nám og skólastarf á fjölbreyttan hátt. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt þegar hægt er að tengja það sem vekur áhuga nemenda við námið og skapa þannig aðstæður þar sem þeir taka virkan þátt. Verkefnið „Hundur í skólastofunni“ miðar að því að nýta nærveru hunds sem íhlutun í skólastarfi til að styðja við nám, vellíðan og félagslegan þroska nemenda. Hundurinn getur haft jákvæð áhrif á andrúmsloftið með því að skapa ró, öryggi, jákvæð samskipt, eflt sjálfstraust, ábyrgð og samkennd. Hundurinn verður þannig stuðningur við jákvætt námsumhverfi þar sem tekið er tillit til ólíkra þarfa nemenda. Orka hefur verið stór hluti af þessu verkefni og því fylgir auðvitað söknuður að hún sé nú farin. Hún skildi eftir sig margar góðar minningar og reynslu sem við tökum með okkur áfram. Nú er leit að nýjum hundi hafin og það finnst mér á sinn hátt lýsa skólastarfinu ágætlega. Við lærum af því sem við höfum gert, við geymum það sem gaf okkur eitthvað gott og svo höldum við áfram að leita nýrra leiða. Förustafirnir hafa sömuleiðis þróast í verkefni sem hefur gefið okkur ný tækifæri til að vinna með nemendum. Það er einmitt þetta sem mér finnst svo heillandi við kennarastarfið. Það er rými fyrir hugmyndir og sköpun og maður veit aldrei alveg hvert góð hugmynd getur leitt mann. Þetta er það sem ég sé svo oft í skólum. Kennarar og annað starfsfólk eru stöðugt að leita leiða til að mæta nemendum þar sem þeir eru, gera námið áhugaverðara, skapa góð tengsl og finna lausnir þegar eitthvað gengur ekki eins og vonast var til. Það er mikil fagmennska fólgin í þessu starfi, en líka mikil sköpun, sveigjanleiki og mannleg samskipti. Stundum finnst mér umræðan um skóla verða svo upptekin af því sem er erfitt að við gleymum að segja frá því sem gengur vel. Áskoranirnar eru raunverulegar og þær eiga að fá umræðu. Við þurfum áfram að ræða álag, mönnun, stuðning, námsefni, námsumhverfi og hvernig við getum skapað enn betri aðstæður fyrir bæði nemendur og starfsfólk. En það má alveg gera það án þess að gera lítið úr því góða starfi sem er unnið á hverjum degi. Í skólunum okkar er fólk sem mætir á hverjum morgni og leggur sig fram um að gera daginn góðan fyrir nemendur. Fólk sem kennir, hlustar, hvetur, hughreystir, leitar lausna og stundum byrjar einfaldlega aftur þegar eitthvað hefur ekki gengið. Það er meðal annars unnið með lestur, skrift, stærðfræði, vísindi, list- og verkgreinar, íþróttir, samskipti og gagnrýna hugsun. En um leið er verið að byggja upp sjálfstraust, vináttu, ábyrgð og trú á eigin getu. Það er stórt verkefni að fá að taka þátt í því. Og ég held að það sé einmitt það sem mig langar að fagna á þessum degi. Ekki bara kennurum heldur öllum þeim sem vinna í kringum börnin okkar og leggja sitt af mörkum til skólastarfsins. Það þarf heilt þorp til að skapa gott skólasamfélag og þegar það vinnur saman gerast ótrúlega góðir hlutir. Ég er enn mjög stolt af því að vera kennari. Ekki vegna þess að starfið sé auðvelt eða vegna þess að allt sé fullkomið, heldur vegna þess að það skiptir máli. Ég fæ að fylgjast með börnum læra og vaxa, ég fæ að læra sjálf og ég fæ að vinna með fólki sem vill gera vel. Ég fæ að prófa hugmyndir, þróa verkefni og stundum upplifa þau dásamlegu augnablik þegar maður sér að eitthvað sem maður var að vonast til að myndi virka virkar í raun. Það eru tvö ár síðan ég skrifaði um þorpið. Í dag langar mig að minna á að í þessu þorpi er ekki bara margt sem við þurfum að laga. Þar er líka ótrúlega margt sem við getum verið stolt af. Þar er fullt af fólki sem mætir á hverjum degi, sinnir starfi sínu af fagmennsku og hjarta og gerir sitt besta fyrir börnin okkar. Það er ekki alltaf sýnilegt. Það kemst ekki alltaf í fréttirnar og fær ekki alltaf mikla athygli. En það er þarna og það skiptir máli. Til hamingju með alþjóðadag kennara og takk fyrir allt það góða, mikilvæga og metnaðarfulla starf sem unnið er í skólunum okkar, alla daga. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun