Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tom Clansy's Ghost Recon 2 Margir leikir hafa komið út undir nafni Tom Clancy’s, og hefur hans nafn oft verið merki um mikil gæði í tölvuleikjaiðnaðinum. Núna er Ghost Recon 2 kominn út á markaðinn, og eftir miklar vinsældir fyrri leiksins, voru væntingarnar miklar. Ghost Recon snýst um sérsveit innan bandaríska hersins, þekktir sem “Draugarnir”, sem hafa það hlutverk að útrýma óvinum í leyni, án þess að til stórátaka komi. Þú spilar leikinn sem foringi þessarar sveitar, og þitt hlutverk er að halda bæði þér, og þínum liðsmönnum á lífi, og útrýma allri mótspyrnu. 30.4.2005 00:01
Devil May Cry 3: Dante's Awakening Fyrir tæplega fjórum árum síðan kom leikurinn Devil May Cry út og sló heldur betur í gegn. Shinji Mikami og vinum hans í Capcom tókst enn einu sinni að sanna að þeir eru einhverjir allra bestu leikjahönnuðir heims. Hann kom út frekar stutt eftir að PS2 fór á markaðinn og þótti einn af þessum stóru „upphafsleikjum” á tölvuna. Á eftir honum fylgdi framhald sem stóð engan vegin undir væntingum og var því pressan á Capcom að bæta fyrir það með Devil May Cry 3. Ég get með góðri samvisku sagt að það hafi tekist fullkomlega, búið ykkur undir einhvern klikkaðasta hasarleik sem komið hefur út. Devil May Cry 3 er lentur. 29.4.2005 00:01
Sean Connery sem 007 Electronic Arts kynnir næsta leik í hinni vinsælu James Bond seríu, eða From Russia With Love, þar sem Sean Connery mætir aftur sem leyniþjónustumaðurinn 007. Leikurinn verður gefinn út í haust fyrir PlayStation 2, Xbox og Nintendo GameCube. 28.4.2005 00:01
CM5 kemur á leikjatölvur Eidos hefur tilkynnt að Championship Manager 5 muni verða gefinn út á Xbox og PlayStation 2 13.maí 2005. Championship Manager 5 er að koma út í fyrsta skipti á PlayStation 2, en þetta er mest seldi knattspyrnustjóraleikur allra tíma. 27.4.2005 00:01
SIMS 2 á leiðinni í allar vélar Aðdáendur seríunnar hafa beðið um Sims 2 á leikjatölvurnar alveg síðan við gáfum hann út á PC í september í fyrra. Það er því mikil ánægja að geta gefið hann út," segir Sinjin Bain, Framkvæmdarstjóri EA/Maxis. 26.4.2005 00:01
SpyToy fyrir EyeToy Sony Computer Entertainment Europe (SCEE) kynnir útgáfu SpyToy á PlayStation 2 í September næstkomandi. Leikurinn er framleiddur af EyeToy hópnum hjá SCE London Studios, en SpyToy er tilvalið fyrir þá sem ætla sér að verða njósnarar eða leynilöggur. 26.4.2005 00:01
Sony PSP kemur út í haust Eftir gríðarlega velgengni PSP í Japan og Bandaríkjunum, mun PSP fara í sölu í Evrópu 1. september 2005, og verður tölvan gefin út í svokölluðum Value Pack. Pakkinn inniheldur fjölda aukahluta og afþreyingarefni, en þar á meðal er hulstur utan um vélina, 32MB Memory Stick Duo minniskort, rafhlöðupakki, heyrnatól með fjarstýringu, hleðslutæki, festing fyrir úlnlið og diskur sem inniheldur prufur af myndböndum, tónlist og leikjum. 26.4.2005 00:01
Mynd af nýju Xbox lekur út Nú styttist í að nýja Xbox vélin verði afhjúpuð almenningi en það mun gerast 12 og 13 maí á MTV. Áhugasamir ættu að hafa viðtækin stillt inn á tónlistarstöðina vinsælu enda er hún byrjuð að kynna þennan viðburð að krafti. 25.4.2005 00:01
Star Wars Battlefront 2 í vinnslu Framhaldið af mest selda Star Wars leik allra tíma mun bæta við sig geimbardögum, spilanlegum jedi persónum og efni úr STAR WARS: EPISODE III REVENGE OF THE SITH myndinni 22.4.2005 00:01
Scarface: The World Is Yours Vivendi Universal Games tilkynnir hér með hvaða leikarar koma til með að ljá andlit sitt og rödd í tölvuleikinn Scarface: The World Is Yours. Leikurinn, sem er áætlaður í útgáfu í haust, gefur leikmönnum tækifæri á að upplifa hasarinn og harða undirheimana þar sem einhver mesti glæpamaður allra tíma – Tony Montana – þarf að byggja upp veldi sitt aftur. Scarface: The World Is Yours verður sýndur blaðamönnum á E3 leikjasýningunni í Los Angeles í maí næstkomandi. 22.4.2005 00:01
Smá upplýsingar um Quake 4 Activision hafa loksins gefið út smá upplýsingar um Quake 4. Leikurinn mun gerast eftir að Quake 2 endar þar sem einn liðsmaður nær að uppræta varnir heimaplánetu Strogg óvættanna ásamt leiðtoganum Makron. 18.4.2005 00:01
GTA San Andreas Svindl fyrir GTA San Andreas. Til að ræsa svindlin skal ýta á rétta takkablöndu á stýripinnanum meðan leikurinn er í gangi. Athugið að svindlin geta raskað spilun leiksins. 18.4.2005 00:01
Mercenaries Svindl fyrir Mercenaries. ATH að notkun svindla geta haft áhrif á spilun leiksins. Til að virkja svindlin farið í PDA tölvuna og veljið “Factions” og stimplið inn kóðan. 18.4.2005 00:01
Call Of Duty Finest Hour Svindl fyrir Call Of Duty Finest Hour á Playstation 2. Hjálpar þér að opna öll borð og fá endalaus skot. 18.4.2005 00:01
Doom 3 PC Doom 3 er einn drungalegasti skotleikur sem gerður hefur verið fyrir PC. Fyrir þá sem vilja smá aðstoð í baráttunni við hin illu öfl á Mars geta nýtt sér eftirfarandi svindl 18.4.2005 00:01
Legokallar öðlast máttinn Nú þegar þriðji hluti stjörnustríðsmyndanna í seríunni er á næsta leiti eru tölvuleikjaframleiðendur og leikfangaframleiðendur að gíra sig upp í gósentíð í sölu. Sumir ganga skrefinu lengra og gefa út tölvuleik byggðan á myndunum með leikföngum í forgrunni. 15.4.2005 00:01
Lego Star Wars í lok apríl Tölvuleikurinn Lego Star Wars kemur út í lok þessa mánaðar á PC, PlayStation 2, Xbox og Gameboy Advance. Hér er á ferðinni þriðju persónu hasarleikur þar sem allar nýju Star Wars-myndirnar eru teknar fyrir og settar upp í heimi Lego. 15.4.2005 00:01
Midnight Club 3 kominn í verslanir Rockstar Games ásamt bílablaðinu DUB kynna bílaleikinn Midnight Club 3 DUB Edition. Þetta er þriðji leikurinn í seríunni sem færði bílaleikina af brautunum og inn á götur stórborganna. Midnight Club 3 DUB Edition er fáránlega hraður bílaleikur, þar sem leikmenn geta ekið frjálst um Atlanta, San Diego og Detroit, einir og sér eða með allt að 8 öðrum á netinu. 15.4.2005 00:01
Ratchet snýr aftur, með aukahluti. Insomniac Games, sem hafa skapað sér stórt nafn í tölvuleikjaiðnaðinum með Ratchet & Clank leikjunum, hafa tilkynnt útkomu 4 leiksins í þessari seríu, sem áætlað er að komi á markað í haust. Mun sá leikur bera titilinn: Ratchet: Deadlocked. Í þessum leik lendir tvíeykið góðkunna aldeilis í klandri, þegar þeim er rænt af fjölmiðlakonunginum Gleeman Vox, sem neyðir þá til að taka þátt í raunveruleikaþættinum sínum, Dreadzone. 15.4.2005 00:01
Demon Stone Demon stone er hlutverkaleikur (RPG) í anda ADD hlutverkaspilsins og sækir í Forgotten Realms heiminn, sem hlutverkaspilarar ættu að þekkja ágætlega. Fyrir þá sem ekki þekkja hann þá myndi LOTR sennilega lýsa þessum heimi best þar sem ADD heimurinn er óneitanlega spunninn uppúr Tolkien sögunum. Þú spilar 3 kalla, konu sem er þjófur (rouge) og er blanda af álfi og manni, mann sem er stríðsmaður (fighter) og svo seiðkarl (wizard). 14.4.2005 00:01
Ubisoft hætta við Ghost Recon 2 Ubisoft hafa tilkynnt að Þeir munu ekki gefa út Ghost Recon 2 fyrir PC. Ástæðan er sú að vinna er núþegar hafin á Ghost Recon 3 og hafa Ubisoft menn áhyggjur af því að annarhvor leikurinn verði verri fyrir vikið ef þeir gefi út báða. 12.4.2005 00:01
Hitchhikers Guide í símann þinn Það þekkja margir bækur Douglas Adams, Hitchhikers Guide To The Galaxy enda þrælskemtileg lesning. Kvikmynd eftir bókunum verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 29.apríl en hér heima verður hún frumsýnd í Sambíóunum 06. maí næstkomandi. 12.4.2005 00:01
Harry Potter og Eldbikarinn Electronic Arts og Warner Bros. Interactive Entertainment kynna hér nýjan leik byggðan á Harry Potter og eldbikarnum. Útgáfa leiksins er áætluð í nóvmeber 2005, í tengslum við samnefnda kvikmynd sem fjallar um þessa fjórðu bók Harry Potter eftir JK. Rowlings. Í leiknum upplifir þú öll helstu atriði myndarinnar og þar reynir á töfrahæfileika þína í samvinnu við vini þína. 12.4.2005 00:01
Need for Speed: Most Wanted Electronic Arts hefur tilkynnt að framleiðendur Need for Speed Underground leikjanna, sem selst hafa í meira en 15 milljónum eintaka, eru byrjaðir að vinna að Need for Speed Most Wanted hjá EA Kanada. Leikurinn sameinar spennandi og ólöglegan götuakstur og uppfærslur á bílum með nötrandi bílaeltingaleikjum þar sem leikmenn eru með lögregluna á hælunum, allt matreidd í alvöru Hollywood stíl. Need for Speed Most Wanted hvetur leikmenn til að tapa sér í keppninni um að verða sá besti í götuakstri. 11.4.2005 00:01
Blood Will Tell Þeir gerast varla Japanskari leikirnir en Blood Will Tell. Maður fer í hlutverk Hyakkimaru, Samúræja sem var afmyndaður í æsku. Það vantaði á hann næstum alla útlimi, raddböndin, augun og ég veit ekki hvað og hvað. Faðir hans losar sig við kvikindið en góðhjartaður læknir finnur hann og tekur að sér. Læknirinn byggir svo hreinlega nýja líkamsparta á hann (guð má vita hvernig hann fer að því) og Hyakki lærir að ganga og berjast. Vondu skrímslin, svokallaðir „fiends”, gerðu þetta við hann og þegar hann fullorðnast fer hann í ferð til að drepa þá alla og fá líkamspartana sína aftur. En áður en hann fer lætur fósturpabbi hans hann fá innbyggð vopn í líkama hans sem gjöf. Já, þetta er vægast sagt furðulegt. Enda er leikurinn byggður á “anime” teiknimyndum, sem eru þekktar fyrir allt annað en að vera venjulegar. 9.4.2005 00:01
Ratchet & Clank 3 Up Your Arsenal Ratchet og Clank er tveir góðir vinir sem allir dyggir Platform-leikja aðdáendur kannast við. Þessir leikir, sem skapaðir eru með grafíkvélinni sem Naughty Dog hannaði fyrir Jak leikina, hafa slegið rækilega í gegn með fyrstu tveim leikjunum, og Ratchet & Clank 3: Up Your Arsenal, er alls engin undantekning. Eftir svaðilfarir þeirra félaga í fyrri ævintýrum, hefur Clank hlotið heimsfrægð sem Special Agent Clank í samnefndum sjónvarpsþáttum, en því miður hefur Ratchet lent á varamannabekknum. 9.4.2005 00:01
Shrek 2 Shrek 2 er stórt grænt og úrillt tröll sem flestir íslendingar ættu að vera farnir að kannast vel við. Hann snýr núna aftur í þessum tölvuleik sem fylgir söguþræðinum úr seinni myndinni sem var mjög vinsæl í íslenskum kvikmyndahúsum. Leikurinn byrjar á því að Shrek og konunni hans, Fionu, er boðið á konunglegt ball hjá foreldrum hennar, í konungdæminu Langt langt í Burtu. Eftir það fylgjum við þeim á leið þeirra til konungdæmisins, en jafnvel eftir að þau koma þangað er ævintýrið bara rétt að byrja. 9.4.2005 00:01
Rumble Roses Rumble Roses er glímuleikur þar sem mætast tveir söluhæstu eiginleikar í öllum skemmtanaiðnaðinum: Kynlíf og Ofbeldi. Þótt að þessi blanda hafi mjög oft skapað frábæra leiki á borð við GTA, þá eru þetta hlutir sem erfitt er að setja saman á góðan hátt án þess að endurtaka gamla hluti sem allir eru komnir með leið á. Því miður þá býður Rumble Roses ekki upp á neina nýja hluti, en nær þrátt fyrir það að bjóða upp á ágætis skemmtun, ef manni tekst að líta fram hjá stærstu göllunum. 9.4.2005 00:01
The Incredibles The Incredibles er byggður á samnefndri kvikmynd sem kom í kvikmyndahús fyrir stuttu og vakti mikla lukku. Myndin, og leikurinn, fjalla um fjölskyldu af ofurhetjum, sem hafa neyðst til að setjast í helgan stein gegn vilja sínum, en þurfa svo að grípa aftur í búningana þegar nýr ofurglæpamaður byrjar að útrýma ofurhetjum. Þar sem myndin vakti svona mikla, og verðskuldaða athygli, var bara spurning um tíma hvenær leikurinn kæmi út, og myndi hann standast þær háu kröfur sem myndin hafði sett? 9.4.2005 00:01
Spongebob Squarepants: The Movie Spongebob Squarepants, eða Svampur Sveinsson eins og hann kallast á Íslensku þýðingunni, er áhugaverður djúpsjávarsvampur sem hefur skemmt yngri kynslóðinni hér á klakanum og útum allan heim. Hann er orðinn nokkurskonar “icon” í Bandaríkjunum og er einnig byrjaður að afla sér mikilla vinsælda hér á landi. Svampur Sveinsson býr á Bikinibotnum með besta vini sínum Pétri (Patrick) sem er krossfiskur sem stígur ekki beint í vitið. Leikurinn er byggður á söguþræði myndarinnar, sem er komin í bíóhús á Íslandi, og snýst um það að Svampur og Pétur þurfa að leggja í leiðangur til að endurheimta kórónu konungsins sem hefur verið stolið og Herra Krabba hefur verið kennt um glæpinn. 9.4.2005 00:01
Robots Robots er tölvuleikur byggður á samnefndri teiknimynd sem að vakti miklar vinsældir hérna á klakanum. Myndin, og leikurinn, fjalla um Rodney Copperbottom sem er, eins og titillinn gefur til kynna, vélmenni. Hann býr í heimi alsettum vélmennum þar sem allir hlutir eru vélrænir á einn eða annan hátt. Rodney er talinn vera mikill uppfinningamaður af öllum þeim sem þekkja til hans, og fjallar leikurinn um ferð hans til stórborgarinnar þar sem hann ætlar að hitta uppáhalds uppfinningamanninn sinn, Bigweld, og kynna fyrir honum uppfinningar sínar. 9.4.2005 00:01
Full Spectrum Warrior Margir rauntíma hernaðarleikir hafa litið dagsins ljós undanfarin ár með misjöfnum áherslum og útkomum. Full Spectrum Warrior er sérstakur leikur í þessum geira. Hann er í raun æfingaleikur hannaður sérstaklega fyrir Bandaríska herinn til að þjálfa hermenn í baráttu á strætum Íraks. Leikurinn kennir hermönnum að meta hættu og bregðast við umhverfinu. Tvö teymi Alpha og Bravo þurfa að vinna saman til að halda lífi í hermönnum teymanna og tapast leikurinn ef einhver liðsmaður fellur. 9.4.2005 00:01
Republic Commando Stjörnustríðsleikirnir eru nú orðnir ansi margir og misjafnir eru þeir líka. Í hvert sinn sem ég skelli nýjum stjörnustríðsleik í gang þá fæ ég smá angistartilfinningu yfir því hvort hann sé útþynnt útgáfa eða frábær afurð gerð að metnaði. Republic Commando segir frá fjórum klónuðum hermönnum sem eru partur af sérsveit. Þeir eru hæfari en allir aðrir klónar enda með meiri þjálfun í farteskinu. Þetta er Delta sveitin sem tekur að sér erfið sérverkefni sem aðrir klónar ráða ekki við. 9.4.2005 00:01
EyeToy: Play 2 EyeToy myndavélin hefur farið sigurför um leikjaheiminn enda alveg frábær viðbót fyrir Playstation 2. Þeir sem þekkja ekki til EyeToy þá er það myndavél sem tengist með usb tengi við Playstation 2 vélina og er sett ofan á sjónvarpið. Leikmaðurinn stillir sér upp fyrir framan sjónvarpið og notar handa og fótahreyfingar til að spila leikina. Í EyeToy: Play 2 eru tólf nýir leikir sem ættu að ná vel í mark enda mismunandi spilunarleikar í boði. 8.4.2005 00:01
Halo 2 Stærsti leikurinn sem hefur komið á Xbox leikjavélina var lengi vel Halo. Engin annar leikur hefur náð sömu hæðum og hann fyrr en nú. Halo 2 tekur við forystuhlutverkinu frá forvera sínum með nýjungum og viðbótum fyrir seríuna. Master Chief mætir aftur í sögufléttuna eftir að hafa eyðilagt risastóran dularfullan hring í útgeimi sem var í rauninni ofurvopn. Illu geimverurnar í Covenant eru nú á leið til jarðarinnar og þarf Master Chief að bjarga heimaplánetunni sinni frá innrás þeirra. 8.4.2005 00:01
Killzone Þegar Killzone leikurinn var í framleiðslu þá var hann hylltur af mörgum sem andstæðingur skotleiksins Halo 2 en í rauninni eiga þeir lítið sameiginlegt nema að vera báðir fyrstu persónu skotleikir og hafa fjöldaspilunarmöguleika fyrir leikjatölvur. Killzone gerist í framtíðinni þar sem mannkynið hefur lagt undir sig aðrar plánetur í sólkerfinu og skiptist mannkynið niður í tvær fylkingar, 8.4.2005 00:01
Mercenaries Það er ljóst að áhrif GTA leikjanna eru ótvíræð í leikjaheiminum. Það sannast enn og aftur í leiknum Mercenaries sem ber mikinn GTA keim. Leikurinn fjallar um málaliða sem þurfa takast á við öfgastjórn í Norður Kóreu sem hafa hertekið landið með áform um frekari landvinninga með kjarnorkuvopnum.Öfgastjórnin kallast “Deck of 52” því skúrkarnir sem þú eltist við eru 52 talsins. Ef þú nærð þeim á lífi þá þrengist hringurinn en ef þú nærð þeim látnum þá tekur lengri tíma að fara í gegnum stokkinn og einnig fær málaliðinn minna borgað fyrir vikið. 8.4.2005 00:01
Star Wars KOTOR 2: The Sith Lords Star Wars leikirnir hafa notið töluverða vinsælda í gegnum tíðina, þó aðalega hjá þeim sem fíla Star Wars, sem er alveg skiljanlegt því leikirnir fjalla mikið um þá hluti sem tengjast myndunum sbr “the force” og þessháttar sem fólk ætti kanski ekki að þekkja svo auðveldlega. Sith Wars er engin undantekning, þú leikur Jedi riddara sem vaknar á yfirgefnu eldsneytis tungli, nakinn og minnislaus. Þú þarft að skoða þig um og reyna að komast að því hvað er að gerðist og leysa gátuna. 8.4.2005 00:01
Rome: Total War Rómaveldið var ansi magnað eins og flestir vita og eru þeir sennilega ófáir sem hafa dreymt um að vera Sesar og hafa öll þau völd sem því fylgdi. Í Total War:Rome færðu tækifæri til þess að byggja upp veldi og er markmið leiksins að leggja undir sig allar nýlendur sem mögulegt er að leggja undir sig. Þú spilar sem annaðhvort Julii, Scipii eða Brutii veldin og hafa þeir allir mismunandi áherslur. 8.4.2005 00:01
GoldenEye Rogue Agent Bond. James B... nei ekki í þetta skiptið! Nú ert þú fyrrverandi starfsfélagi njósnara 007 sem hefur sagt upp starfi sínu hjá leyniþjónustu Breta MI6 og farið að starfa fyrir óvininn. Þegar Rouge Agent starfaði hjá MI6 var hann þekktur fyrir grófar og mjög hættulegar aðferðir sem dugðu þó alltaf til að klára verkefnið. En höfuð MI6 var alls ekki sátt við ósiðferðislegan starfshátt Rouge Agent og segir að hann sé að verða að því sem MI6 er einmitt til að berjast gegn. Móðgaður af M, segir útsendarinn starfi sínu lausu og verður að Rouge Agent, fyrsta spilanlega illmenni í sögu Bond leikja. 8.4.2005 00:01
Fight Club Fyrsta regla Fight Club er: ekki tala um Fight Club. Nú ætla ég að brjóta þessa reglu og tjá hvað mér finnst um Fight Club leikinn. Fight Club leikurinn er gerður eftir virkilega góðri og frumlegri kvikmynd frá árinu 1999 sem er byggð á skáldsögu. Eftir skáldsögu er gerð kvikmynd sem svo er gerður tölvuleikur eftir: ósköp venjulegur gangur í dag. En í þessi tilfelli er þetta svolítið kaldhæðið þar sem að saga Fight Club er upprunalega hörð ádeila á markaðshyggju, stórfyrirtæki og nútíma afþreyingu eins og sjónvarp. 8.4.2005 00:01
Spider Man 2 Það sem kom kannski mest á óvart í leikjaheiminum árið 2004 var hversu góðir nokkrir leikir sem byggðir voru á bíómyndum voru. Yfirleitt er hægt að afskrifa alla slíka leiki jafnvel áður en maður spilar þá. Þessu er rignt yfir mann í hvert skipti sem einhver mynd fær góða aðsókn. Beljan er mjólkuð meðan hún gefur. En það eru alltaf undantekningar. Spider-Man 2 kom eins og þruma úr heiðskýru lofti og sló í gegn. Hann fylgir söguþráði myndarinnar algjörlega eftir en býður upp á margt annað. 8.4.2005 00:01
Sonic Mega Collection Plus Ég held að það sé óhætt að segja að Sonic sé ein ástsælasta tölvuleikjapersóna allra tíma. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að færa hann í nútímabúning í nýlegum þrívíddarleikjum en það hefur gengið frekar illa. Það er meira að segja að koma nýr Sonic leikur þar sem maður leikur skuggalegan fýr vopnaðan skammbyssum. Hvað er í gangi? Það eru gömlu góðu Sega Mega leikirnir sem standa eftir sem hin eina sanna snilld. Sonic Mega Collection Plus er því eins og hvalreki fyrir gamlar Sonic kempur sem vilja rifja upp gömlu taktana jafnt sem þá sem misstu kannski af þeim hér áður fyrir. 8.4.2005 00:01
Atari Anthology Það að gefa út gamla leiki aftur er alltaf frekar örugg leið fyrir framleiðendur til að græða pening á þess að þurfa að vinna mikið. Hér ákváðu Atari-menn að fá Digital Eclipse, sem eru vanir í þeirri list að “emulata” leiki til þess að setja 85 leiki af Atari 2600 og Atari Arcade á einn disk. Þetta hljómar án efa eins og góð kaup, allir þessir leikir á nokkra þúsund kalla. Digital Eclipse hafa ákveðið að setja þennan pakka upp eins og stjörnukerfið. Hægt er að velja stjörnumerki til að byrja með, sem er merkt því hvaða tegund leikirnir þar tilheyra. Þetta er flott uppsetning en verður fljótt frekar þreytt því það er svolítið vesen að fara á milli “stjörnukerfa”. En það er kannski smáatriði, það eru leikirnir sem skipta máli. 8.4.2005 00:01
Shadow Of Rome Skylmingarþrælar urðu aftur svaka töffarar með mynd Ridley Scott “Gladiator”. Í Shadow Of Rome er umfjöllunarefnið Róm til forna stuttu eftir að Sesar er myrtur. Agrippa er hermaður sem snýr heim til Rómar og kemst að því að faðir hans er grunaður um tilræðið. Með hjálp félaga síns Octavianus ætla þeir að afhjúpa morðingjann og bjarga föður Agrippa frá dauðadóm í hringleikahúsinu ógurlega. Agrippa gerist skylmingarþræll í þeirri von að geta unnið leikanna en sigurvegarinn fær það böðulshlutverk að taka morðingja Sesars af lífi. 8.4.2005 00:01