Leikjavísir

Lego Star Wars í lok apríl

Tölvuleikurinn Lego Star Wars kemur út í lok þessa mánaðar á PC, PlayStation 2, Xbox og Gameboy Advance. Hér er á ferðinni þriðju persónu hasarleikur þar sem allar nýju Star Wars-myndirnar eru teknar fyrir og settar upp í heimi Lego. Þarna verða meðal annars atriði og persónur úr nýju myndinni Episode 3: Revenge of the Sith, sem verður frumsýnd 19. maí. Leikurinn hefur fengið fínar viðtökur hjá erlendum gagnrýnendum og fékk meðal annars 8 af 10 mögulegum bæði hjá Games Master og Xbox World.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×