Fleiri fréttir

Geðveikt grúví

Meðfylgjandi má sjá haustlínu A.F. Vandevorst í ár...

Baksviðs á tískuviku

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs þegar ástralska tískuvikan hófst formlega í Sydney í Ástralíu. Eins og sjá má var stemningin ekki síðri baksviðs en á sýningarpöllunum. Fyrirsæturnar sýndu fatnað eftir fjölda hönnuða.

Einfalt og litríkt

Haustlína Blumarine er einföld og kvenleg. Þá er litagleðin allsráðandi eins og sjá má í myndasafni.

Alexa í fatabransann

Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum.

Fimm íslensk merki á tískuvikuna í París

"Ég fer út með bjartsýnina að vopni og vonast til að næla mér í nokkra viðskiptavini,“ segir Rebekka Jónsdóttir fatahönnuður en hún fer nú í fyrsta sinn á tískuvikuna í París.

Afl til breytinga

Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönnuður situr í nefnd um mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland. Hún flytur einnig áhugaverða pistla um hönnun í Ríkisútvarpinu á miðvikudögum.

Gengur vel innan um þekkta tískuhönnuði

Íslensk hönnun verður í fyrsta sinn til sölu í Debenhams erlendis seinna á þessu ári en til eru um tvö hundruð Debenhams-búðir í 25 löndum. Hönnun Mörtu Jonsson er vinsæl og setti met á síðu VivaLaDiva.

Stíliserar H&M

Plötusnúðurinn og tískufyrirmyndin Leigh Lezark er nýjasti samstarfsaðili sænsku verslanakeðjunnar Hennes&Mauritz. Lezark ætlar að aðstoða verslunina að velja inn föt í fyrstu deild H&M í Selfridges í London.

Reykjavík Runway 2011

Meðfylgjandi myndband sýnir aðeins brotabrot frá Reykjavík Runway fatahönnunarkeppninni sem fram fór í Hafnarhúsinu í vikunni þar sem fjórir hönnuðir voru valdir í úrslitin; þær Eygló Margrét Lárusdóttir, Sólveig og Edda Guðmundsdætur, og Rosa Denise Winther Denison og Bryndís Þorsteinsdóttir og sigurvegarinn, Harpa Einarsdóttir. Harpa fær samning við Reykjavik Runway þar sem haldið verður áfram að vinna að uppbyggingu tískumerkis hennar, Zizka, á tískuvikunni í New York.

Glæsivilla við vatnið

Meðfylgjandi má sjá myndir af glæsivillu í Kaoyai, sem er þjóðgarður í Tælandi. Vatnið, grasið og trén skapa rómantíska stemningu í gluggastóru rúmgóðu húsinu sem er byggt á nokkrum pöllum. Þá eru stórir gluggar í þaki hússins sem sjá til þess að birtan flæði fallega í rýminu.

Leðurkjólatíska í Hollywood

Leður hefur heldur betur verið að ryðja sér til rúms á tískupöllunum undanfarið og nú hefur leðrið skilað sér á rauða dregilinn. Kjólar úr þessu sterka efni eru greinilega vinsælir hjá stjörnunum, sem keppast um að skarta glansandi leðurkjólum við fín tilefni. Merki á borð við Hermés og Chloe voru með litríkt leður í bolum, kjólum, pilsum og buxum í vetrarlínum sínum fyrir komandi haust og því þess virði að halda augunum opnum fyrir fögrum leðurflíkum.

Tískuviðburður í Kronkron á Menningarnótt

Á menningarnótt verður uppi heljarinnar húllumhæ í versluninni Kronkron við Laugaveg. Aðdáendur Kron by Kronkron gleðjast eflaust yfir því að ný vetrarlína merkisins verður komin í hús en einnig ætlar Hildur Yeoman fatahönnuður að sýna nýja fylgihlutalínu sína, Cherry Bomb Collection.

Ýkt sæt í Jason Wu

Leikkonan Diane Kruger var klædd í Jason Wu fatnað frá toppi til táar á rauða dreglinum. Blár retró jakkinn við stuttar buxurnar, skyrtan og upptekið hárið hefur fengið verðskuldaða athygli í tískudálkum vestan hafs. Takið eftir gula veskinu sem toppar heildina á skemmtilegan máta. Haustlína Jason Wu (myndir).

Sumartískan 2012 í Kaupmannahöfn

Hönnuðir og innkaupafólk frá öllum heimshornum sótti Kaupmannahöfn heim um helgina þar sem farið var yfir strauma og stefnur sumarsins 2012. Það er gaman að sjá að litadýrð sumarsins heldur áfram næsta sumar. Bleikur og myntugrænn voru ríkjandi á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem og ljósgrár og auðvitað hvítur, sem allajafna kemur sterkur inn í fataskápinn á sumrin.

Gellur ganga í gallajökkum

Gallajakkar eru sjóðheitir um þessar mundir. Gallajakkar passa nánast við allt, kjóla, pils eða buxur, sama hvort sem þeir eru snjáðir eða ekki. Meðfylgjandi má sjá myndir af gellum í gallajökkum.

Fullkomið fyrir liðið sem er alltaf að flytja

XBO gámurinn, sem 70°N arkítektar breyttu í færanlegt heimili, er 12 metrar að lengd, 3,2 metra breiður og lofthæðin er 3,5 metrar. Gámurinn er kjörinn fyrir fólk sem er sjaldan heima hjá sér og gerir litlar sem engar lúxuskröfur. Hann má flytja á auðveldan máta sem er vissulega kostur fyrir fólk sem er endalaust í stuði fyrir flutningar. Skoða gamámyndir hér. Klikkað kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta. Sjá hér.

Íslenskir hönnuðir flykkjast á tískuvikuna í Köben

Danska tískuvikan hefst í dag og er Kaupmannahöfn stútfull af innkaupafólki og fatahönnuðum víðs vegar að úr heiminum. „Þetta er í þriðja sinn sem við förum hingað út. Alltaf gaman þó að auðvitað séu þetta fyrst og fremst viðskipti,“ segir Jóel Pálsson, annar eigenda fatamerkisins Farmers Market. Jóel var að lenda í Kaupmannahöfn ásamt eiginkonu sinni, Bergþóru Guðnadóttur, þegar Fréttablaðið náði af honum tali.

Þetta hús leynir á sér

Þetta hús, sem staðsett er í Tucson í Bandaríkjunum, lætur ekki fara mikið fyrir sér séð frá götunni. Lóðin er í þröngu skipulagi borgarinnar og hvert herbergi hússins tekur mið að því að hámarka nýtingu rýmisins. Einfalt og nútímalegt hús sem leynir svo sannarlega á sér. Þegar inn í stílhreint húsið er komið leika himinn og sundlaug aðalhlutverkin eins og sjá má á myndum í myndasafni.

Sjá næstu 50 fréttir