Fleiri fréttir

Það gerist ekki svalara

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Diesel Black Gold haustlínu í ár sem einkennist af svalheitum, leðri og rúskinni. Hér má sjá myndband frá sýningunni (Dieselblackgold.com).

Stundum er ein sundlaug einfaldlega ekki nóg

Meðfylgjandi má sjá myndir af svölu svörtu einbýlishúsi, sem er í eigu ungra barnlausra hjóna, 30 km frá Buenos Aires í Argentínu. Ef myndirnar eru skoðaðar má greinilega sjá að gler er notað í miklum mæli og að ekki er lagt mikið upp úr öryggi (enda engin börn á heimilinu) þegar kemur að sundlaugunum. Húsið er kjörið fyrir veisluhöld og sundlaugarpartý.

D&C haustlína karla 2012

Haustlínu Dolce & Gabbana árið 2012 fyrir herra má skoða í meðfylgjandi myndaalbúmi.

Skammarkrókur laus við lúxus

Meðfylgjandi myndir sýna kofa sem er staðsettur í skógi í Bordeaux í Frakklandi. Hugmyndin var að byggja lítinn látlausan kofa sem skaðaði ekki umhverfi sitt á nokkurn hátt. Kofinn minnir helst á skammarkrók fyrir einhvern sem hefur gert eitthvað af sér því lúxusinn er enginn eins og sjá á myndunum.

Fléttu-fílingur í Hollywood

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frábærar hugmyndir þegar kemur að því að flétta hárið. Nicole Kidman, Rihanna, Jennifer Lopez og Paris Hilton vita hvað þarf til að tolla í tískunni. Í sumar er það fléttað hár og það á rauða dreglinum. Skoða myndir hér.

Haustlína Gwen Stefani

Meðfylgjandi má sjá haustlínu L.A.M.B. sem er fatalína söngkonunnar Gwen Stefani.

500m² stofa

Þriggja manna fjölskylda býr í þessu glæsilega 500m² húsi í Vín í Austurriki sem skoða má í myndasafninu. Um er að ræða fjögurra hæða heimili. Jarðhæð og þrjár hæðir, þar sem garðurinn er beint framhald af stofu og eldhúsi hússins.

Bara holl samkeppni

Agla Stefánsdóttir og Sigrún Unnarsdóttir útskrifuðust með MA í fatahönnun frá Designskolen í Kolding í vor. Þær eru báðar austan af Fljótsdalshéraði en segjast ekki hafa verið neinar samlokur í skólanum.

Samnýta fataskápa

Vinkonurnar Anika Laufey Baldursdóttir og Krista Sigríður Hall ganga óhikað í fataskápana hjá hvor annarri og segja það hið besta kreppuráð. Þær hafa búið saman í miðbæ Reykjavíkur frá því í byrjun sumars og geta, með því að samnýta fataskápa, skartað "nýrri“ flík á nánast hverjum degi. Við vinnum báðar í Spútnik og segjum reglulega: "Þurfum við ekki að fá okkur svona,“ segir Krista. "Við erum líka með mjög svipaðan stíl,“ segir Anika, " erum báðar svolítið rokkaðar.“

Hákarlinn sló í gegn

Allt ætlaði um að koll að keyra þegar Sruli Recht frumsýndi nýja herralínu í París á dögunum. Meðal viðstaddra var hinn heimsþekkti Lenny Kravitz, sem keypti aðklæðnað fyrir væntanlegt tónleikaferðalag.

Sýnir í einu stærsta hönnunarsafni heims

Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður var fengin til að taka þátt í sýningu í einu stærsta hönnunar- og listasafni heims með útskriftarverkefni sitt. Þórunn hannaði meðal annars kjól með QR-kóðum.

Stígvélaæði á Glastonbury

Hunter-fyrirtækið hefur framleitt stígvél allt frá árinu 1856 og er enn einn vinsælasti stígvélaframleiðandinn í Bretlandseyjum. Stígvélin frá Hunter voru algeng sjón á fótum gesta Glastonbury-tónlistarhátíðarinnar í ár eins og fyrri ár.

Fljótlegt að hoppa í kjól

Hanna Rún Óladóttir, margfaldur Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum, á fjölbreytt föt í fataskápnum

Köflótt undir kleinurnar

Sannkölluð keramíkveisla stendur nú yfir í Kraumi í Aðalstræti 10 en þar sýnir Ólöf Erla Bjarnadóttir nýja línu kökudiska. Einnig sýna nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík vörur sem unnar voru fyrir Kahla.

Hannar mynd á breskan bol

Mynd eftir íslenska hönnuðinn Sigga Eggertsson birtist á bolum Asos í júlí. Asos er stærsta sjálfstæða tísku- og snyrtivöruverslun Bretlands á netinu. Siggi er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur með Asos.

Sjá næstu 50 fréttir