Fleiri
Haustlína Elie Saab 2011 Sjáðu haustlínu Elie Saab 2011 í meðfylgjandi myndasafni. 2.6.2011 08:38 Haustlína Helmut Lang 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu Helmut Lang 2011. 1.6.2011 08:47 Sjá næstu 50 fréttir
Speisað vinnuspeis Í myndasafni má sjá myndir, líkan og teikningar af skrifstofuhúsnæði sem er staðsett í Shanghai í Kína. Hönnunin er eftir Taranta arkítekta. Vinnustöðvarnar eru skemmtilega hannaðar með það í huga að efla sköpun á meðal starfsmanna. Á neðri hæð skrifstofunnar má sjá loftið falla niður í mitt rýmið líkt og um stóran vatnsdropa væri að ræða. Þá er gólfið á efri hæðinni nýtt sem skrifstofuborð eins og sjá má hér. 30.6.2011 12:46
Naomi Campbell hannar gallabuxnalínu Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur verið fengin til að hanna gallabuxnalínu fyrir ítalska tískumerkið Fiorucci. Sögur herma að línan verði frumsýnd á herratískuvikunni í Mílanó sem fram fer um þessar mundir. 29.6.2011 21:00
Lampi í anda Eyjafjallajökuls "Þegar Eyjafjallajökull og öskuskýið tóku yfir fréttatímann og dagblöðin í heiminum í fyrra heillaðist ég af myndunum sem birtust og þaðan kom hugmyndin að lampanum," segir Mia E. Göransson, sænskur leirhönnuður sem hefur hannað lampa sem ber nafnið Eyjafjallajökull. 29.6.2011 14:00
Hvítt heltekur Hollywood Meðfylgjandi myndir sýna að Hollywoodstjörnurnar eru hrifnar af skjannahvítum kjólum. Sjáðu Kim Kardashian, Carrie Underwood, Kate Middleton, Lucy Liu, Evu Longoria og fleiri í myndasafni. 28.6.2011 18:14
Spennandi tækifæri Herborg Eðvaldsdóttir er á leið í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. „Þetta verður skemmtileg upplifun,“ segir Herborg Eðvaldsdóttir en tilkynnt var um valið á alþjóðlegu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín. 28.6.2011 18:00
Dýrgripir úr ólíkum þræði Sýningin Þræðir var opnuð á þjóðhátíðardaginn í Sparki á Klapparstíg 33. Þar mætast tvær kynslóðir sem fást við skartgripagerð á ólíkan hátt en þó eiga þær margt sameiginlegt. 28.6.2011 16:00
Sundlaugin kallar á mann Sundlaugin við húsið sem staðsett er í Ástralíu kallar svo sannarlega á mann. Húsið, sem er hannað af arkitektum sem kalla sig Vibe Design Group, er sérstak í útliti eins og sjá má í myndasafni en lögð var áhersla á að birtan fengi að njóta sín og að allar hliðar hússins myndu gleðja íbúa þess þegar kemur að útliti og notagildi. 28.6.2011 10:41
Vera Wang - haust 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má sjá haustlínu Veru Wang árið 2011. 28.6.2011 09:43
Kaupendur hanna fötin Fyrsti íslenski internetklæðskerinn sem sérhæfir sig í sérsaumuðum og sérhönnuðum jakkafötum á karlmenn og drögtum á konur hefur hafið rekstur. Áætluð er útrás til Skandinavíu og Bretlands. 27.6.2011 21:00
Kaðlar og krúsidúllur Tískuvikunni í Sao Paulo lauk á dögunum en þar mátti sjá kvenleg snið og múlbundnar fyrirsætur. 27.6.2011 16:00
Klikkað útsýni í strandhúsi Litagleðin er allsráðandi í skemmtilegu strandhúsi sem staðsett er í Perú eftir Longhi arkitekta eins og sjá má í myndasafni. Ekki spillir útsýnið fyrir stemningunni í svefnherberginu. Skoða egglaga hús á stærð við hjóhýsi hér. 27.6.2011 11:07
Haustlína Vivienne Westwood 2011 Sjáðu haustlínu Vivienne Westwood fyrir árið 2011 í meðfylgjandi myndasafni. 25.6.2011 12:53
Barnvænt hús í Belgíu DmvA arkítektar hönnuðu húsið sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er í Belgíu, var teiknað fyrir fjölskyldufólk sem lagði ríka áherslu að húsið væri barnvænt og að umferðin fyrir utan húsið hyrfi um leið og stigið væri inn í það. Garðurinn snýr ekki að götunni og það á einnig við um svefnherbergin og stofuna. 23.6.2011 10:51
Litaðar gallabuxur rokka Meðfylgjandi má m.a. sjá myndir af Hollywoodstjörnum eins og Kylie Minogue, Siennu Miller, Hayden Panettiere, Hilary Duff og Khloe Kardashian sem allar eiga það sameiginlegt að ganga í lituðum gallabuxum í sumar. Skoða buxurnar betur í meðfylgjandi myndskeiði. 22.6.2011 16:36
Gaman að byrja svona vel Emilía Borgþórsdóttir iðnhönnuður hlaut gullverðlaun á stærstu húsgagnasýningu Bandaríkjanna, NeoCon, sem haldin er árlega í Chicago. Verðlaunin þykja mikill heiður og reynist mörgum stökkpallur í fremstu línu hönnuða á heimsvísu. Emilía fékk verðlaun í flokki sófaborða en sérstaka athygli vekur ytra að fyrsta vara hönnuðar, eins og raunin er með borð hennar, hljóti svo stóra viðurkenningu. 21.6.2011 13:30
Þetta er almennileg lofthæð Meðfylgjandi má skoða myndir af húsi í Tokyo í Japan hannað af Ikimono arkitektum. Við hönnun hússins, sem líkist helst skemmu, var lögð áhersla á mikla lofthæð og endalaust rými sem lætur íbúum hússins líða eins og þeir séu staddir úti en ekki inni. Ryðfrítt stál er aðaluppistaða hússins eins og sjá má á myndunum. 21.6.2011 10:08
Lela Rose - haust 2011 Fatahönnuðurinn Lela Rose fékk hugmyndina að munstrinu sem hún notar í haustlínunni sinni fyrir árið 2011, sem skoða má í myndasafni, á listasýningu þýska listamannins Gerhard Richter í Chicago. Sjá haustlínu Lelu í meðfylgjandi myndasafni. 21.6.2011 09:37
Haustlína Jil Sander 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má skoða haustlínu Jil Sander 2011. 13.6.2011 13:57
Kalt hús í steikjandi hitanum Meðfylgjandi má sjá glæsilegt hús í Aigina í Grikklandi hannað af arkitektinum Helen Sfakianaki. Eins og sjá má í myndasafni kjósa íbúar hússins að kæla sig niður í miðhlutanum, eða öllu heldur í skugganum þar sem gluggar hússins eru færanlegir. Bæði lag og útlit hússins harmonerar afskaplega vel við hlýtt loftslagið og fagurblátt hafið. Sjá myndir hér. 12.6.2011 02:18
Hrá steypan nýtur sín þarna Meðfylgjandi má skoða hús í Schliersee í Þýskalandi. Við byggingu hússins var lögð rík áhersla á einfaldleikann. Eins og sjá má er flæðið gott í húsnæðinu þar sem viðurinn mætir steypunni á ljómandi fallegan hátt. 11.6.2011 13:53
Mjúkar og léttar línur að sunnan Tískuvikan í Ástralíu var haldin hátíðleg fyrstu vikuna í maí og var margt fallegt að sjá á tískupöllunum þar eins og myndirnar bera vitni um. Forvitnilegt er að fylgjast með tískustraumunum sem þar ríkja og eru ástralskir hönnuðir engir eftirbátar þeirra frönsku eða ítölsku. 9.6.2011 20:30
Klikkað kaffihús Mocha – Mojo er kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta þar sem húsgögn staðarins eru að mestu dýnur og púðar. Kaffihúsið er ævintýralegt, eins og sjá má í myndasafni, nánast í líkingu við Legoland. Áhersla var lögð á að skapa þrívíddar umhverfi á staðnum sem heppnaðist líka svona afburða vel. 9.6.2011 09:38
Stórar og ýktar augabrúnir eru málið Stúlkur, fleygið plokkaranum og leyfið augabrúnunum að vaxa villtum. Á tískupöllunum í haust mátti víða sjá fyrirsætur bera ýktar og dökkar augabrúnir með sóma og eiga augabrúnirnar því að taka vaxtarkipp með gróðrinum í vor. 9.6.2011 09:30
Gamlir gimsteinar í Nostalgíu Verslunin Nostalgía við Laugaveg hefur fyrst verslana tekið til sölu "vintage“ hönnunarflíkur og geta tískuunnendur nú fest kaup á kjólum frá Pucci og Yves Saint Laurent, skóm frá Prada, tösku frá Moschino og ýmsu öðru girnilegu. 8.6.2011 20:30
Egglaga hús Veggirnir í egglaga húsi, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, eftir dmvA arkítekta, eru afskaplega vel nýttir. Sofa má í hliðum hússins, elda, vaska upp sem og geyma ýmsa hluti. Þá er einnig klósett í öðrum enda hússins. Húsið, sem er á stærð við hjólhýsi, má nota sem gestaherbergi, vinnustofu eða móttöku. Það er færanlegt hvert sem er. 8.6.2011 16:30
Hvítt, hið nýja svart Þrátt fyrir yfirvofandi litadýrð í sumartískunni verður hvíti liturinn einnig áberandi og hafa rómantískir kjólar, hvítar blúndur og gegnsæ pils sjaldan verið heitari. 8.6.2011 14:30
Fjölskylduvænt hús þar sem sólin skín Arkitektinn Bernando Rodrigues lagði ríka áherslu á að öllum fjölskyldumeðlimum liði vel í húsinu eftir hann sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er staðsett á Azore, eyjaklasa í Atlantshafi vestur af strönd Portúgals þar sem hlý sólin kemur upp í suðri og kaldur vindurinn blæs úr norðri, er skemmtilega hannað með tilliti til veðráttunnar þar sem börnin geta svo sannarlega unað sér vel á þakinu. 7.6.2011 11:07