Fleiri fréttir Heildin skiptir höfuðmáli Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari. 20.11.2008 06:00 Ókeypis rafmúsik „Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen. 20.11.2008 06:00 Óútgefið verk eftir The Beatles Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda. 20.11.2008 04:45 Dikta fær aðstoð frá Svíþjóð Rokkararnir í Diktu eru að ljúka upptökum á nýju lagi, Let Go, sem fer líklega í spilun í byrjun desember. Fylgir það eftir vinsældum, Just Getting Started, sem kom út í sumar og fór á toppinn bæði hjá Rás 2 og X-inu. Svínn Jens Bogren mun hljóðblanda og leggja lokahönd á laginu en hann var upptökustjóri nýjustu plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth sem hefur getið sér gott orð að undanförnu. 20.11.2008 04:30 Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. 20.11.2008 04:00 Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. 20.11.2008 03:45 Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. 19.11.2008 06:00 Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. 17.11.2008 03:00 Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. 17.11.2008 03:00 Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. 16.11.2008 04:00 Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. 14.11.2008 09:00 Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. 14.11.2008 07:00 Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. 14.11.2008 06:00 Marco V á árshátíð Hollenski plötusnúðurinn Marco V spilar á árshátíð Techno.is sem verður haldin á Nasa á laugardaginn. Einnig koma fram þetta kvöld vinsælir íslenskir plötusnúðar. 13.11.2008 06:00 Árituðu ólöglegar plötur Hljómsveitin Mezzoforte er nýkomin heim frá Minsk í Hvíta-Rússlandi þar sem hún spilaði í fyrsta sinn á ferli sínum. Tónleikahöllin í borginni tekur tvö þúsund manns í sæti og var fullt út úr dyrum. 13.11.2008 03:15 Íslenskar á by:Larm Hljómsveitirnar Hjaltalín og Retro Stefson spila á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem verður haldin í Ósló í ellefta sinn í febrúar á næsta ári. 12.11.2008 06:00 Samstarf við Nova Scotia Fulltrúar frá Nova Scotia-fylki í Kanada sýndu mikinn áhuga á samstarfi við Ísland á tónlistarráðstefnunni Nova Scotia Music Week sem var haldin í Glasgow í Skotlandi á dögunum. 12.11.2008 06:00 Frítt inn á útgáfutónleika Buffsins 11.11.2008 16:06
Sjá næstu 50 fréttir
Heildin skiptir höfuðmáli Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari. 20.11.2008 06:00
Ókeypis rafmúsik „Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen. 20.11.2008 06:00
Óútgefið verk eftir The Beatles Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda. 20.11.2008 04:45
Dikta fær aðstoð frá Svíþjóð Rokkararnir í Diktu eru að ljúka upptökum á nýju lagi, Let Go, sem fer líklega í spilun í byrjun desember. Fylgir það eftir vinsældum, Just Getting Started, sem kom út í sumar og fór á toppinn bæði hjá Rás 2 og X-inu. Svínn Jens Bogren mun hljóðblanda og leggja lokahönd á laginu en hann var upptökustjóri nýjustu plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth sem hefur getið sér gott orð að undanförnu. 20.11.2008 04:30
Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. 20.11.2008 04:00
Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. 20.11.2008 03:45
Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. 19.11.2008 06:00
Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. 17.11.2008 03:00
Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. 17.11.2008 03:00
Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. 16.11.2008 04:00
Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. 14.11.2008 09:00
Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. 14.11.2008 07:00
Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. 14.11.2008 06:00
Marco V á árshátíð Hollenski plötusnúðurinn Marco V spilar á árshátíð Techno.is sem verður haldin á Nasa á laugardaginn. Einnig koma fram þetta kvöld vinsælir íslenskir plötusnúðar. 13.11.2008 06:00
Árituðu ólöglegar plötur Hljómsveitin Mezzoforte er nýkomin heim frá Minsk í Hvíta-Rússlandi þar sem hún spilaði í fyrsta sinn á ferli sínum. Tónleikahöllin í borginni tekur tvö þúsund manns í sæti og var fullt út úr dyrum. 13.11.2008 03:15
Íslenskar á by:Larm Hljómsveitirnar Hjaltalín og Retro Stefson spila á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem verður haldin í Ósló í ellefta sinn í febrúar á næsta ári. 12.11.2008 06:00
Samstarf við Nova Scotia Fulltrúar frá Nova Scotia-fylki í Kanada sýndu mikinn áhuga á samstarfi við Ísland á tónlistarráðstefnunni Nova Scotia Music Week sem var haldin í Glasgow í Skotlandi á dögunum. 12.11.2008 06:00
Kynna sína nýjustu plötu Sprengjuhöllin heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í kvöld til að fagna annarri plötu sinni, Bestu kveðjur. Hljómsveitin mun leika lög af nýju plötunni í bland við eldra efni. Fjöldi aukahljóðfæraleikarar mun einnig stíga á stokk. 11.11.2008 06:00
Ágætt að vera Íslendingur „Þeim finnst voða spennandi að ég sé Íslendingur. Eins vont og það er að vera Íslendingur dag þá getur það verið ágætt líka,“ segir Akureyringurinn Rúnar F. Rúnarsson, eða Rúnar eff, sem tekur þátt í danska raunveruleikaþættinum All Stars. 11.11.2008 06:00
Erlendir nafnar Lay Low Lay Low er án efa einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, auk þess sem erlendir útgefendur slást um krafta hennar. Hún er þó ekki sú eina sem ber þetta sérstæða listamannsnafn því hún á sér að minnsta kosti fjóra nafna úr tónlistarbransaum vestanhafs. 10.11.2008 06:00
Aðdáendur upp á svið Rivers Cuomo, forsprakki hljómsveitarinnar Weezer, ætlar að bjóða aðdáendum sínum upp á svið með sér á tónleikum í Kaliforníu 25. nóvember. Cuomo er að kynna sína nýjustu sólóplötu, Alone II, og vill með þessu vekja enn meiri athygli á gripnum. 10.11.2008 02:00
Leika á Rosenberg Hljómsveitin Thin Jim and the Castaways heldur tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíg á miðvikudagskvöld kl. 21. 9.11.2008 03:00
Radiohead er ekki betri Noel Gallagher, liðsmaður Oasis, er ósáttur þegar gagnrýnendur telja Radiohead vera betri hljómsveit en Oasis eingöngu vegna þess að hún sé tilraunakenndari. 8.11.2008 06:30
Poetrix predikar úti á landi „Ég er bara að rúnta um landið, rappa fyrir krakkana og borða núðlur. Fokk kreppa!“ segir rapparinn Poetrix – Sævar Daniel Kolandavelu – sem er búinn að vera eina viku á vegum úti og á tvær vikur eftir enn. Hann og dj-inn og bítboxarinn Siggi Bahamas, eða NENNIsiggi, gera nú víðreist og troða upp á 32 stöðum á landsbyggðinni. Þar skemmta þeir og reyna að hafa jákvæð áhrif á krakkana. 8.11.2008 06:00
Kreppupönk í áttunda bekk Fjórar þrettán ára stelpur kynntust pönktónlist hjá tónmenntakennaranum sínum. Á fjórum vikum tókst þeim að spila lag og fá það leikið á Rás 2. 8.11.2008 06:00
Framlag May í ruslið Axl Rose, forsprakki Guns "N" Roses, hefur hætt við að nota framlag Brians May, gítarleikara Queen, til plötunnar Chinese Democracy. May var aðalgítarleikari í laginu Catcher N" The Rye en á endanum var framlagi hans hent í ruslið. „Þetta er synd því ég lagði mikla vinnu í þetta og var stoltur af minni þátttöku," sagði May. „En ég get alveg skilið ef Axl vill gefa út plötu sem endurspeglar verk þeirra sem eru í hljómsveitinni hans í dag." 8.11.2008 05:30
Grohl með Prodigy Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, spilar á trommur í laginu Run With Wolves á nýrri plötu Prodigy, Invaders Must Die. Grohl gerði garðinn frægan sem trommari Nirvana og eftir að sú sveit hætti hefur hann verið duglegur við að taka í kjuðana með öðrum sveitum. Má þar nefna Queens of the Stone Age og Probot. 8.11.2008 04:30
Segjast vera finnskir Rokkhljómsveitin Noise ætlar að stinga hausnum í kjaft breska ljónsins og spila þar á fimm tónleikum. Túrinn hefst í kvöld í Donchester. „Við erum nú bara að pæla í að kynna okkur sem band frá Finnlandi,“ segir Stefán Vilberg, bassaleikari Noise. „Þetta eru víst svaðalegar skítabúllur, til dæmis sú í Grimsby. Maður tekur engar óþarfa áhættur.“ 8.11.2008 03:45
Litlir kassar orðnir tómir kassar Kreppan hefur ýmsar aukaverkanir. Ein þeirra er að hljómsveitin Þokkabót hefur búið til nýjan texta við vinsælasta lag sitt, „Litlir kassar“. Núna heitir það „Tómir kassar“ og er á leið í spilun. 7.11.2008 08:00
Neikvæð orka hressir Fjórða plata Singapore Sling er komin út og heitir Perversity, Desperation and Death, Öfuguggaháttur, örvænting og dauði. „Þetta eru þau þrjú atriði sem hressa mig alltaf við, sama hvað á bjátar," segir Henrik Björnsson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar. 7.11.2008 06:00
Foo Fighters besta sveitin Foo Fighters var kjörin hljómsveit ársins á verðlaunahátíð tímaritsins Classic Rock sem var haldin í London. Á sama tíma fagnaði tímaritið tíu ára afmæli sínu. 6.11.2008 07:00
Johnny á laugardag Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Johnny and the Rest sem áttu að vera á föstudag hafa verið færðir yfir á laugardagskvöld vegna óviðráðanlegra aðstæðna. 6.11.2008 07:00
Hæfileikar, fegurð og fágun Plata hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons, fær sjö af tíu mögulegum á bresku tónlistarsíðunni Drowned in Sound. „Hjaltalín býr til góð popplög í tilraunakenndum útsetningum á að því er virðist áreynslulausan hátt og sýnir að hún er virkilega hæfileikarík og hljómar ekkert eins og landar sínir í Sigur Rós,“ segir í umsögninni. 6.11.2008 06:30
Samdi lag fyrir Obama Tónlistarmaðurinn Will.i.am hefur gefið út nýtt lag og myndband til að fagna kjöri Baracks Obama sem forseta Bandaríkjanna. Lagið nefnist It"s A New Day og eyddi Will kosninganóttinni í að ljúka við lagið. 6.11.2008 06:00
Fagnar tíu ára afmæli Hljómsveitin Guitar Islancio fagnar tíu ára afmæli sínu með tónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudag. Á þessum tíu árum hefur sveitin gefið út fimm plötur og leikið á tónleikum víða um heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kína, Japan og Þýskalandi. 6.11.2008 06:00
Kraumur verðlaunar í desember Stefnt er á að afhenda Kraumsverðlaunin í fyrsta sinn í byrjun desember. Um er að ræða plötuverðlaun sem eru sett á fót í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Fimm plötur sem eru gefnar út á árinu verða tilnefndar til verðlaunanna, líklega í lok nóvember. 5.11.2008 08:00
Ómar Guðjóns í hringferð Tríó gítarleikarans Ómars Guðjónssonar er á leiðinni í hringferð um landið sem hefst í Borgarnesi í kvöld. Með Ómari leika í sveitinni trommuleikarinn Matthías MD Hemstock og Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari. 5.11.2008 05:00
Fyrsta plata Johnnys Blús- og rokksveitin Johnny and the Rest heldur útgáfutónleika á Domo á föstudag til að kynna sína fyrstu plötu, sem er samnefnd henni. Upptökur á plötunni stóðu yfir í einungis tvær til þrjár vikur sem telst ekki mikið nú til dags. 5.11.2008 05:00
Frítt inn á tónleika í kvöld Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur sannarlega reynst þjóðinni vel í því leiða efnahagsástandi sem nú ríkir. Hljómsveitin hefur lagt sig fram við að gleðja landsmenn með fallegri tónlist og haldið tónleika hér og þar um landið. 5.11.2008 04:00
Gefa út geisladisk í bakaríi Trúnaðarmál nefnist nýr diskur með Guðmundi Guðfinnssyni og Tómasi Malmberg. Í dag á milli kl. 17 og 18 ætla þeir að gefa diskinn út í bakaríi Guðmundar, Brauðhúsinu í Grímsbæ. „Okkur fannst það bara hljóma vel að gefa út diskinn á þennan hátt," segir Guðmundur. 3.11.2008 07:00
Útgáfu frestað á 13 plötum Þrjú af stærstu plötufyrirtækjum landsins hafa ákveðið að fresta fjölmörgum útgáfum fyrir jólin sökum erfiðs efnahagsástands. Sena hefur slegið á frest sjö plötum, Smekkleysa mun líklega fresta fjórum og 12 Tónar tveimur. 3.11.2008 04:00
Enn meiri Vonbrigði Hljómsveitin Vonbrigði, sem neitaði um daginn að selja frægasta lag sitt, „Ó Reykjavík“ í símaauglýsingu, hamast nú við að klára nýja plötu með Halli Ingólfssyni. „Menn eru alveg að tapa sér,“ segir Jóhann Vilhjálmsson, Jói í Vonbrigðum. „Þetta er rokk og ról út í gegn og allt á fullu blasti. Engin róleg lög.“ 2.11.2008 04:00
Fer ekki á svið með Jackson 5 Michael Jackson hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að taka þátt í fyrirhugaðri endurkomu hljómsveitarinnar Jackson 5. Yfirlýsing Jacksons kom degi eftir að eldri bróðir hans Jermaine sagði að Jackson ætlaði í tónleikaferð með sveitinni. 1.11.2008 04:15