Fleiri fréttir

Brad passar upp á gyðjuna sína

Stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt héldust hönd í hönd þegar þau yfirgáfu veitingahús í Frakklandi í gær eins og sjá má á myndunum en þau eru stödd á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem Angelina kynnir teiknimyndina Kung Fu Panda 2 sem hún talsetur.

Aniston of gróf

Atriði með Jennifer Aniston í gamanmyndinni Horrible Bosses þóttu of gróf til að geta ratað í stiklu myndarinnar. Myndin verður frumsýnd 8.júlí næstkomandi og hefur stikla hennar þegar vakið mikla athygli. Þar sést hinn rúmlega fertuga Aniston spóka sig um á nærfötunum og áreita samstarfsfélaga sinn kynferðislega. Leikstjóri myndarinnar, Seth Gordon, segir atriðin þó vera hreinan barnaleik miðað sumt af því sem Aniston gerir í myndinni. „Það er bara of gróft til að geta sýnt það í svona stiklu.“

Vandræðaleg Lopez

Fallegasta kona heims, American Idol dómarinn Jennifer Lopez, átti ekki í vandræðum með að bjarga sér úr vandræðum í Los Angeles í gærkvöldi á Wango Tango tónlistarhátíðinni. Klædd í kynþokkafulan kóngulóargalla tók Jennifer nokkrar vel útfærðar mjaðmahnykkingar þegar slokknaði á hljóðnemanum hennar í miðju lagi. Þá má skoða ævintýralega gallan hennar í myndasafni.

Síðu lokkarnir horfnir

Leikkonan Katherine Heigl, 32 ára, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Josh Kelley, voru mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles í fyrradag...

Mikið rétt fallegu fljóðin eru í ferðabransanum

Meðfylgjandi má sjá myndir úr árlegu boði sem Flugfélag Íslands hélt síðasta föstudag fyrir ferðaskrifstofur, upplýsingamiðstöðvar og gestamótttökufólk á höfuðborgarsvæðinu. Eins og myndirnar sýna leiddist engum í skýli 4 á Reykjarvíkurflugvelli þar sem fagnaðurinn fór fram.

Hvaða yngingarmeðal tekur þú inn?

Eins og myndirnar sýna var Madonna, 52 ára, klædd í ljósbláan Stellu McCartney síðkjól og Sergio Rossi skó í New York á dögunum, stórglæsileg að vanda. Þá má sjá söngkonuna hjóla um götur New York borgar og með börnum sínum, Rocco John, 11 ára, David Banda Ritchie, 6 ára og Mercy, 5 ára, á Heathrow flugvellinum.

Gaurinn er kominn með 10.000.000 læk

David Beckham, 36 ára, lék sér við yngsta son sinn, Cruz, á fótboltaæfingu í Los Angeles 13. maí síðastliðinn eins og sjá má á myndunum. Kappinn þakkaði pent fyrir sig á Facebook síðunni sinni þegar 10 milljónir manna höfðu ýtt á like-takkann á síðunni hans. Þá má sjá eiginkonu hans, Victoriu Beckham, í myndasafni þegar hún fagna væntanlegri komu stúlkunnar sem hún gengur með undir belti í heiminn ásamt vinum.

Hvað er í gangi hérna?

Það fór ekki fram hjá nærstöddum þegar leikkonan Eva Longoria spókaði sig um í gallastuttbuxum í verslunarleiðangri í Los Angeles í fyrradag. Eins og myndirnar sýna gaf leikkonan sér tíma til að máta.

Benedikt landar Baltasar og Bonnevie

Leikkonan Maria Bonnevie og Baltasar Kormákur hafa samþykkt að leika í fyrstu kvikmynd Benedikts Erlingssonar sem gengur undir vinnuheitinu Hross um oss. Margir muna eftir Bonnevie, sem er fædd í Svíþjóð, úr myndinni Hvíti víkingurinn eftir Hrafn Gunnlaugsson en þá var hún 22 ára.

Átti að fara fyrr

Jesse James, sem er í hópi hötuðustu karlmanna Bandaríkjanna eftir að hafa svikið Óskarsverðlaunaleikkonuna Söndru Bullock, segist hafa átt að fara fyrr frá Hollywood-stjörnunni. James, sem er ákaflega virtur mótorhjólasmiður, viðurkennir að hann hafi ekki sýnt fyrrum eiginkonu sinni þá virðingu sem hún hafi átt skilið.

Borgarstjóri skammar Smith

Dagblöð og vefsíður í Bandaríkjunum hafa fylgst grannt með deilum bandaríska leikarans Will Smith og íbúa í SoHo-hverfinu í New York en þar fara nú tökur fram á þriðju myndinni í MIB-myndaflokknum. Will Smith hefur löngum verið þekktur fyrir ofvaxið egó en þykir hafa farið fram úr sér með nýjasta uppátækinu. Íbúar hverfisins ráku nefnilega upp stór augu þegar vörubíll af stærstu gerð kom fyrir risavöxnum íbúðarvagni í miðju íbúðarhverfinu.

Er orðinn of gamall

Breski leikarinn Jude Law kveðst vera orðinn of gamall til að leika hjartaknúsara á hvíta tjaldinu. Hinn 38 ára gamli Law leikur svikinn eiginmann á móti Keiru Knightley í Önnu Kareninu sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni í Cannes um þessar mundir.

Ferrell í spænskri mynd

Will Ferrell segir að spænska myndin Casa de mi Padre, sem hann leikur í á móti Gael Garcia Bernal og Diego Luna, sé blanda af Tarantino-stílnum og Robert Rodrigues-kvikmyndum.

Stuð hjá Íslendingunum í Cannes

Frumsýning kvikmyndarinnar Eldfjall í Cannes í gekk vonum framar með standandi lófataki. Aðstandendur myndarinnar fögnuðu frábærum viðtökum í frumsýningarpartýi í gærkvöld.

Gunnar söng Two Tricky-lagið fyrir Matta og frú

„Við áttum tíu ára brúðkaupsafmæli á fimmtudagskvöldinu en héldum uppá það á degi fyrr enda átti hún þá líka afmæli. Við fórum allur hópurinn á fínan veitingastað og fengum okkur gott að borða. Svo átti Gunni Óla líka tíu ára Eurovision-afmæli og söng af því tilefni Angel fyrir okkur,“ segir Matthías Matthíasson úr vinum Sjonna.

Hræðileg rödd Jolie

Angelina Jolie lenti í miklum erfiðleikum þegar hún var að tala inn á teiknimyndina Kung Fu Panda 2.

Í rómantískri gamanmynd

Robert De Niro og Diane Keaton hafa samþykkt að leika í rómantísku gamanmyndinni The Big Wedding. Þar leika þau fyrrverandi hjón sem þykjast vera ennþá gift til að eyðileggja ekki brúðkaup ættleidds sonar síns. Með önnur hlutverk fara Katherine Heigl og Amanda Seyfried. Leikstjóri er Justin Zackham, handritshöfundur The Bucket List.

Milljónir í skaðabætur

Breska leikkonan Sienna Miller fær að öllum líkindum greiddar tæpar nítján milljónir króna í skaðabætur eftir að götublaðið News Of The World játaði að hafa brotist inn í farsímann hennar.

Perry tekur sér frí

Matthew Perry, best þekktur fyrir leik sinn í gamanþáttaröðinni Friends, hefur ákveðið að taka sér frí frá skemmtanaiðnaðinum til að ná betri tökum á edrúmennsku sinni. Perry hefur lengi átt í erfiðleikum með áfengis- og verkjalyfjafíkn sína og fór meðal annars tvívegis í meðferð á meðan á velgengni Friends stóð.

Myers pabbi í fyrsta sinn

Mike Myers, þekktastur fyrir leik sinn í Austin Powers-myndunum, verður pabbi í fyrsta sinn á þessu ári. Eiginkona hans, Kelly Tisdale, á von á sér. Myers og Tisdale gengu að eiga hvort annað við leynilega athöfn í New York og Myers hefur alla tíð verið ákaflega annt um einkalíf sitt.

Saman á sviði í fyrsta sinn

Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Egill Egilssynir stíga í fyrsta sinn saman á svið í leik- og dansverkinu Klúbburinn. Aðeins eitt og hálft ár skilur bræðurna að.

ELLA opnar vefverslun

Meðfylgjandi myndir tók Aldís Pálsdóttir þegar ELLA opnaði nýja vefverslu Ellabyel.com með pompi og prakt með heljarinnar sýningu á 1919 hótel Reykjavík. Fjöldi manns kom saman til að sjá vandaðan kvenfatnað ELLU sem saumaður er í Evrópu. Fatnaðurinn er einnig fáanlegur í Kronkron.

Spennandi tónlistarsumar

Emmsjé Gauti, Jón Jónsson, Mugison og FM Belfast gefa út nýjar plötur í sumar sem margir bíða með mikilli eftirvæntingu. Fleiri sólríkar og spennandi útgáfur úr ýmsum áttum eru á leiðinni.

Mikill metnaður á Íslandi

Atvinnumaðurinn fyrrverandi Brett Kirk er á ferðalagi um heiminn til að kynna ástralskan fótbolta. Hann segir íslenska andspyrnumenn vera metnaðarfulla og hafa mikla ástríðu fyrir íþróttinni.

Ekki reyna að segja mér að þessir séu þægilegir

Leikkonan Blake Lively átti ekki í vandræðum með að ganga um í Christian Louboutin hælaskónum sínum í Frakklandi á Chanel tískusýningu þar sem fatnaður fyrir árið 2012 var sýndur. Þá má einngig sjá Karolínu og Alexöndru, prinsessurnar af Mónakó, í myndasafni.

Sjáðu þessa handleggi maður

Heiðrún Fitness Sigurðardóttir kynnti nýja Fitness poppið í höfuðstöðvum Iðnmark í dag. Fitnesspoppið er hvítur maís laus við transfitu og því kjörið sem millimál eða snakk á kvöldin fyrir þá sem vilja halda sér í líkamlega góðu formi að sögn Heiðrúnar. Þá má einnig sjá stælta handleggi Heiðrúnar í meðfylgjandi myndskeiði.

DiCaprio á lausu

Leonardo DiCaprio er hættur með kærustu sinni, ísraelsku fyrirsætunni Bar Rafaeli. Þetta kemur fram í New York Post. Þau hafa verið saman í fimm ár og ákváðu í síðustu viku að þetta væri orðið gott.

Heldur Perry á jörðinni

Katy Perry segir að eiginmaður hennar, Russell Brand, haldi henni jarðtengdri. Hún eigi það til að missa stundum fótanna í glamúr og glys fræga fólksins. Þetta kemur fram í Vanity Fair.

Er þetta ekki full gróft?

Meðfylgjandi má sjá leikkonuna Jennifer Aniston í vægast sagt dónalegri stellingu og að ekki sé minnst á atriðin þar sem hún sýnir fullmikið hold. Í myndinni leikur Jennifer tannlækni sem hegðar sér afbrigðilega eins og sjá má í myndskeiðinu.

Pippa í stríð við gulu pressuna

Pippa Middleton, yngri systir Katrínar hertogaynju, hyggst höfða mál á hendur nokkrum slúðurblöðum fyrir að birta myndir af sér og systur hennar á snekkju í bikiní samkvæmt AP-fréttastofunni. Birting myndanna hefur leitt til þess að Middleton-fjölskyldan hefur kvartað til siðanefndar Blaðamannafélags Bretlands.

Björn Bragi og Þórunn Antonía taka við af Audda og Sveppa

Björn Bragi Arnarsson, ritstjóri Monitor, og Þórunn Antonía Magnúsdóttir úr Steindanum okkar hafa verið ráðin til að stjórna vikulegum sjónvarpsþætti á Stöð 2. Þátturinn á að koma í staðinn fyrir Audda og Sveppa, sem hefur verið á dagskrá á föstudagskvöldum síðan í janúar 2009.

Leikur knattspyrnu með stjörnunum í Cannes

Leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson tekur þátt í góðgerðaleik í fótbolta á Cannes-hátíðinni í Frakklandi á morgun. Á meðal þátttakenda verða Zinedine Zidane, Eric Cantona og Jude Law. „Maður má ekkert taka á því í kvöld því maður verður að vera „fitt" fyrir laugardaginn," segir Friðrik Þór, sem átti afmæli þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Hann lætur því eingöngu vatn inn fyrir sínar varir fram að leik og ætlar að sleppa kokteilunum og kampavínsglösunum sem freista gesta Cannes hvað eftir annað.

Gucci gyðjurnar eru svo með´etta

Leikkonurnar Jennifer Lopez og Salma Hayek klæddust báðar keimlíkum Gucci kjólum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum með viku millibili þó. Báðar voru stórglæsilegar með hárið tekið aftur. Þá má einnig sjá Antonio Banderas bregða á leik með Sölmu.

Eurovision ekki bara hommar með meik

"Ég er forfallinn Eurovision-sjúklingur. Hef lifað tímana tvenna og man ekki eftir maí þar sem ég fylgdist ekki með Eurovision,“ segir þúsundþjalasmiðurinn Gunnar Sigurðarson. Gunnar og Viðar Ingi Pétursson, félagi hans úr útvarpsþættinum sáluga Grútvarp, lýsa Eurovision-keppninni á morgun í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni X977. Gunnar segist vera að svara kalli þjóðarinnar, en nokkur óánægja var með fjarveru Sigmars Guðmundssonar í undankeppninni á þriðjudaginn.

Dásamlegt dömuboð

Á meðfylgjandi myndum má sjá gesti sem mættu í dásamlegt dömuboð sem haldið var í Ásmundarsafni þar sem nýr ilmur sem ber heitið Aura og er frá Swarovski var kynntur með stæl. Eins og sjá má í þessu myndskeiði var gríðarlega góð stemning á meðal kvennanna. Sjá meira um Aura ilminn á Facebooksíðu Sigurborgar.

Ósáttir við að vera á lista styrktarsjóðsins Kraums

Ultra Mega Technobandið Stefán er ósátt við að vera á lista Kraums yfir hljómsveitir sem hafa hlotið styrk frá sjóðnum. Ekkert mál að taka hljómsveitina af listanum, segir fráfarandi framkvæmdastjóri Kraums.

Hreimur: Við erum í nettu losti með þetta allt saman

Við höfðum samband við Hreim Örn Heimisson, einn af vinum Sjonna í Dusseldorf, til að forvitnast hvað þýska söngkonan Lena, sigurvegari Eurovision í fyrra, eldaði fyrir okkar menn. "Lena eldaði kartöflusalat með pylsum," svaraði Hreimur og sagði spurður út í líðan hans og félaganna eftir að þeir komust óvænt áfram í keppninni. "Við erum í nettu losti með þetta allt saman." "Dagurinn í dag var undirlagður af fjölmiðlaviðtölum. Átta tíma vakt takk fyrir," sagði Heimur glaður í bragði eins og honum er von og vísa spurður út í viðburði dagsins.

Vampíruleikari á nýjum slóðum

Flestar táningsstúlkur og mæður þeirra þekkja Robert Pattinson eða vampírupersónuna hans, Edward Cullen, úr Twilight-myndunum. En um helgina gefst fólki tækifæri til að sjá þennan mikla hjartaknúsara 21. aldarinnar í nýju hlutverki í ástarmyndinni Water for Elephants.

Spears í myndasögu

Líf Britney Spears mun brátt birtast í myndasöguformi. Það er myndasögufyrirtækið Bluewater sem stendur fyrir því en það hefur áður gert sér mat úr hrakfallasögu Lindsay Lohan, velgengni Lady Gaga og ástarsambandi Twilight-stjarnanna Robert Pattinson og Kristen Stewart.

Angelina útskýrir nýja húðflúrið

Leikararnir Angelina Jolie og Jack Black spjalla í meðfylgjandi myndskeiði um nýju teiknimyndina Kung Fu Panda 2, á kvikmyndahátíðinni í Cannes en þau ljá aðalsöguhetjunum raddir sínar. Það sem merkilegra þykir er þegar Angelina, í umræddu viðtali, útskýrir hvað nýjasta húðflúrið sem hefur bæst við fæðingarstaði barna sem hún hefur látið húðflúra á handlegginn á sér merkir. Svarið er fæðingarstaður unnusta hennar, leikarans Brad Pitt.

Ólétt með truflaða útgeislun

Leikkonan Jessica Alba, 30 ára, sólar sig ásamt dóttur sinni, Honor Marie, í Mexíkó þessa dagana. Eins og sjá má á myndunum er Jessica barnshafandi og þetta líka glæsileg. Þá má einnig sjá Jessicu í Ralph Lauren síðkjól með Neil Lane hring ásamt eiginmanni sínum, Cash Warren í New York 2. maí síðastliðinn.

Lúxuslíf Will Smith á tökustað

Bandaríski leikarinn Will Smith vill hafa það gott á tökustað, ef marka má nýlegar fréttir New York Post, því hann hefur leigt sér tveggja hæða færanlegan íbúðarvagn til að geta slakað á milli takna. Smith er nú staddur í New York þar sem tökur á MIB 3 eða Menn í svörtu 3 standa yfir og hefur komið íbúðarvagninum sínum fyrir í miðju SoHo-hverfinu.

Margrét skrifar ævisögu Ellýjar

Margrét Blöndal, útvarpskonan góðkunna af Rás 2, hefur síðastliðna tvo mánuði unnið að gerð ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir