Fleiri fréttir

Einvígi háð í Kringlunni í dag

Núverandi og fyrrverandi Norður-Evrópumeistarar í borðtennis munu heyja einvígi í Kringlunni í dag klukkan hálf sex. Leikurinn er í tilefni Norðurlandamóts sem fram fer í íþróttahúsi TBR við Gnoðarvog í Reykjavík nú um helgina.

Bíllinn fundinn

Rauðum Subaru Legacy sem sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag að hefði verið stolið af plani við NFS í Skaftahlíð er fundinn. Bílnum var stolið aðfaranótt sunnudags en athugull lesandi Vísis þekkti bílinn af mynd á vefnum og lét vita af honum. Þjófarnir höfðu ekki farið lengra en upp að Sjómannaskóla og skildu bílinn þar eftir, svo til óskemmdan.

Platan Vorvindar komin verslanir

Tríó Björns Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir hafa sent frá sér þrettán laga plötu sem ber heitið Vorvindar. Á henni syngur Andrea dáðustu alþýðusöngva þjóðarinnar frá síðustu öld.

Loach fékk Gullpálmann

Kvikmyndin „The Wind That Shakes the Barley", í leikstjórn breska leikstjórans Ken Loach, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gærkvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Loach fær þessi virtu verðlaun en hann hefur sjö sinnum áður átt mynd á hátíðinni.

Sif keppir í Miss Universe

Sif Aradóttir, nýkjörin Ungfrú Ísland, mun veða fulltrúi Íslands í Miss Universe í Los Angeles 23. júlí næstkomandi. Enginn íslensku keppandi hefur verið sendur í keppnina síðan árið 2003 þegar Manúela Ósk Harðardóttir fór utan en þurfti að hætta keppni vegna veikinda, aðeins tveimur dögum fyrir aðalkeppnina.

Jon Spencer og félagar í Heavy Trash á Íslandi

Í kvöld verður blásið til mikillar veislu á Nasa í Reykjavík. Þar mun snillingurinn Jon Spencer, úr Jon Spencer Blues Explosion og Pussy Galore, koma fram með rokkabillýbandi sínu Heavy Trash.

Jónas Örn meistari og 5 milljónum ríkari

Jónas Örn Helgason 21 árs gamall verkfræðinemi fór með sigur úr bítum í spurningaþættinum Meistaranum - en úrslitaþátturinn var sýndur á Stöð 2 fyrr í kvöld. Þar lagði Jónas Örn Ingu Þóru Ingvarsdóttur í hörkuspennandi og bráðskemmtilegri viðureign, og hlaut að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum og nafnbótina Meistarinn.

Ný plata frá Láru væntanleg

Hin unga og hæfileikaríka söngkona, Lára Rúnarsdóttir, sendir frá sér sína aðra sólóplötu þann 26. maí næstkomandi. Ber platan heitið Þögn og kemur út hjá Senu undir merkjum Dennis Records.

Íslensk tónlist í dreifingu í Kanada

Dimma ehf. hefur samið um dreifingu á íslenskri tónlist útgáfunnar í Kanada. Samningurinn er við dreifingarfyrirtækið PHD Canada distributing, sem er staðsett í Vancouver og með söludeildir í Quebec og Montreal.

Styrktartónleikar fyrir konur í Palestínu

Samstöðu- og styrktartónleikar verða haldnir fyrir konur í hertekinni Palestínu á morgun. Það eru Félagið Ísland-Palestína og UNIFEM á Íslandi standa fyrir tónleikunum.

Nick Cave á leið til landsins

Tónlistarmaðurinn Nick Cave er aftur á leið til landsins. Áætlað er að hann haldi tónleika í Laugardalshöllinni 16. september.

Hver vinnur Meistarann?

Inga Þóra og Jónas Örn etja kappi í úrslitum Meistarans að kveldi uppstigningardags. Athygli vekur að þau eru með yngstu keppendum í Meistaranum.

Dúx með 9,4 í meðaleinkunn

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði útskrifaði nemendur sl. laugardag. Dúx skólans kláraði námið á þremur árum með 9, 4 í meðaleinkunn.

Stjórnmálamenn gáfu blóð

Fulltrúum úr framboðum stjórnmálaflokkanna í Reykjavík fyrir bæjar- og sveitastjórnarkosningar var boðið að gefa blóð í morgun. Þar klæddust fulltrúar flokkanna skikkjum sem einkenna nýjustu auglýsingaherferð Og Vodafone og Blóðbankans.

NYLON á toppi íslenska listans

Lagið Losing a Friend með Nylon er komið á topp Íslenska listans. Listinn er unnin af útvarpstöðinni FM957 og endurspeglar smekk hlustenda hverju sinni. Laginu hefur verið gríðarlega vel tekið af íslenskum hlustendum eins og árangur lagsins á listanum gefur til kynna.

Idol styrkir Barnaspítala Hringsins

Í úrslitaþætti Idol Stjörnuleitar ákváðu Stöð 2, OgVodafone og Síminn að efna til aukakosningar um eftirminnilegasta keppanda Idol 3 og rann ágóðinn til Barnaspítala Hringsins.

Nóg komið í Cannes

Það er fúlt að missa af Zidanemyndinni hans Sigurjóns Sighvatssonar og hinni umtöluðu United 93 en það er samt alveg kominn tími til að koma sér heim. Sjö dagar í Cannes ætti því ekki að þykja mikið en þeir eru miklu meira en nóg fyrir sál og líkama.

Seiðandi samsuða

Klassískir tónar með austur-evrópsku ívafi munu hljóma í Íslensku óperunni eftir helgi. Þá leiða saman hesta sína Kolbeinn Ketilsson tenórsöngvari og Rússíbanarnir.

Horft í augun á Halle Berry

X-Men The Last Stand er hörkugóð mynd sem á ekki eftir að svíkja aðdáendur stökkbreyttu ofurhetjanna. Halle Berry klikkar ekki heldur og eftir að hafa horft í augun á henni get ég fullyrt að hún er miklu fallegri í eigin persónu en í nokkuri kvikmynd.

Kennir óvinum sínum um ósigurinn í Eurovision

„Ég er það besta sem hefur hent þessa djöfuls keppni,“ sagði Silvía Nótt við evrópska fjölmiðla eftir að ljóst var að hún kæmist ekki í aðalkeppnina í Eurovision. „Þið ljótu skepnur. Þið kjósið forljóta Finna, sem eru ekki einu sinni með alvöru förðunarfræðinga. Þið völduð ekki mig af því að ég er ekki dræsa frá Hollandi og ekki djöfulsljót tík frá Svíþjóð,“ öskraði Silvía í gegnum tárið í ríflega tíu kvikmyndavélar auk sinna eigin.

Hroki verður þér að falli

Páll er að vonum hundsvekktur með það að Silvía Nótt skyldi ekki komast áfram í úrslit Eurovision en tekur engu að síður ofan fyrir Ágústu Evu Erlendsdóttur fyrir að hafa haldið út atriðið miðað við viðtökurnar sem hún fékk.

Mátturinn er með mér

Gamalt máltæki segir að það séu allir froskar stórir í eigin drullupolli. Þetta sannast heldur betur í Cannes þar sem íslenskir blaðamenn eru álíka öflugir og moskítófluga á köldu Reykjavíkurkvöldi.

Á elleftu stundu

Það er ekki alveg málið að mæta í bíó í Cannes á slaginu. Biðraðirnar á pressusýningarnar eru klikkaðar og gamla frumskógarlögmálið fyrstir koma, fyrstir fá er í fullu gildi og skyldi engan undra þegar um 5000 manns vaða hér uppi með blaðamannapassa um hálsinn.

Uppnám í Menntaskólanum á Akureyri

Nemendur í uppeldis-og menntunarfræðum við Menntaskólann á Akureyri hafa unnið að rannsóknar- og heimildarverkefnum á vorönn og munu þeir kynna niðurstöður sínar á ráðstefnu í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri, laugardaginn 20. maí nk.

Forseti Íslands ræðir við Dadi Janki

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson á viðræðufund á morgun með Dadi Janki, virtri indverskri forystu- og baráttukonu á vettvangi mannréttinda, friðarmála og andlegra gilda.

Nýtt listaverk á Bessastaði

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú tóku í dag, föstudaginn 19. maí kl. 13:00, við umfangsmiklu listaverki sem grunnskólanemendur úr Álftanesskóla og frá Norður-Írlandi hafa sett upp norðan við heimreiðina að Bessastöðum.

Silvía Nótt komst ekki áfram

Lagið Congratulations í flutningi Silvíu Nætur komst ekki áfram í úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fara á laugardag. Undankeppni fór fram í kvöld og flutti Silvía íslenska lagið síðust keppenda.

Stefnumót við engil

Það vantar ekki lífið í tuskurnar hérna í Cannes en samt er það altalað í hópi þeirra sem hafa komið hingað árum saman að þessi hátíð sé óvenju róleg. Það segir sína sögu að ég fékk strax borð á besta ítalska staðnum í bænum í hádeginu.

Romario unnusti Sylvíu Nóttar með matareitrun

Romario, unnusti Sylvíu Nóttar og annar tveggja sem eiga að dansa með Sylvíu Nótt á sviðinu í OAKA höllinni í Aþenu í kvöld er með matareitrun og var gefin næring í æð. Romario hefur ekki haldið neinu niðri og var því gefin næring í æð baksviðs í OAKA höllinni þar sem forkeppni Eurovision fer fram í kvöld en óttast var að hann gæti ofþornað. Romario ætlar þó að stíga á svið með Sylvíu Nótt eftir rúmar tvær klukkustundir.

Stórtónleikar á Nasa á föstudagskvöld

Cod Music í samstarfi við THULE og Tonlist.is heldur stórtónleika á NASA föstudaginn 19. maí. Fram koma þeir 6 flytjendur sem COD Music hefur á sínum snærum en útgáfufélagið hóf leit að 15 flytjendum í upphafi árs og en nú hefur verið ákveðið að vinna nánar með þessum sex flytjendum.

"Bright Nights" í Árnesi

Rafræn Reykjavik hefur verið iðinn við kolann í vetur að kynna og bjóða íslendingum upp á fyrsta flokks raftónlistarmenn. Nú hafa þeir sett saman eina allsherjar listahátíð sem mun fara fram í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða og Gnjúpverjahreppi helgina 9-11 júní.

300 nördar hafa skráð sig

Sjónvarpsstöðin Sýn leitar að þátttakendum Í nýjum íslenskum raunveruleikaþætti sem heitir FC Nörd - eða Nördarnir - og verður tekinn til sýninga haustið 2006. Skráning hefur gengið vonum framar og nú hafa um þrjú hundruð manns lýst yfir áhuga á að taka þátt með því að skrá sig á www.syn.is.

Snýr baki við Silvíu Nótt

"Dropinn sem fyllti mælinn var fjarvera Silvíu Nætur á bensínstöð Esso við Ártúnshöfða nú á dögunum, þar sem aðdáendur hennar voru samankomnir í þeim tilgangi að fá nýja geisladiskinn hennar áritaðan. Þarna var fjöldi manns samankominn, en sorglegast var að sjá yngstu kynslóðina standandi þarna eins og strandaglópar með tárin í augunum og reiðar mæður að róa þau."

Gæti skitið á sviðið og unnið

“Æfingin var æðisleg. Hvað sem ég geri er æðislegt. Ég gæti skitið á sviðið og samt unnið keppnina,” sagði Silvía á ensku við blaðamann Fréttablaðsins rétt áður en einkabifreið hennar flutti hana burt úr O.A.K.A höllinni í Aþenu fyrr í dag, þar sem Eurovision fer fram: “Þau elska mig.”

McCartney-hjónin skilin

Bítillinn fyrrverandi, Paul McCartney, og kona hans, Heather Mills, eru að skilja að borði og sæng eftir fjögurra ára hjónaband. Í yfirlýsingu segir að þeim hafi reynst erfitt að viðhalda eðlilegu sambandi vegna mikils ágangs fjölmiðla.

Silvía Nótt dregur sig úr sviðsljósinu

Undankeppni Eurovision keppninnar er á morgun og þá stígur Silvía Nótt á sviðið fyrir hönd Íslands. Margt hefur gengið á og Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur fylgst grannt með.

Mammút í Þýskalandi

Mammút lagði Leipzig að fótum sér sl. föstudagskvöld á stórhljómleikum með belgunum í Deus. Mammút sendi nýlega frá sér sinn fyrsta geisladisk, sem hefur fengið fína dóma tónlistargagngrýnenda. Íslenska gítarrokkinu var tekið fagnandi af Þjóðverjum. Hljómleikarnir voru haldnir í tónleikasal sem áður var verksmiðjusalur í A-þýskri vopnaverksmiðju.

20 ár í Eurovision

Hin magnaða safnskífa "Til hamingju Ísland! 20 ár í Eurovision" er komin út. Eins og nafnið gefur til kynna geymir hún þau íslensku lög sem keppt hafa til úrslita fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva allt frá því að Ísland tók þátt í fyrsta sinn með Gleðibankanum í Bergen árið 1986.

Stefnumót við leiðtoga

Mikhail Gorbatsjov, fyrrverandi aðalritari sovéska Kommúnistaflokksins og leiðtogi Sovétríkjanna mun flytja hátíðarfyrirlestur í Háskólabíó fimmtudaginn 12. október í tilefni af 20 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða. Miðasalan hófst í dag klukkan 10:00.

Baðst afsökunar á orðbragðinu

Silvía Nótt blótaði sviðsmönnum, reitti yfirmann Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva til reiði og móðgaði Grikki, sem gengu út úr Ólympísku höllinni. Bretar hlóu, en sögðust þó pínulítið vonsviknir í lokin.

Sjá næstu 50 fréttir