Fleiri fréttir

Bláa Lónið fær alþjóðlega viðurkenningu

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Bláfáninn var dreginn að húni í Bláa Lóninu í tíunda sinn En Bláa Lónið hefur nú flaggað fánanum árlega frá árinu 2003. Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er til að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. Í ár er honum flaggað á 3850 stöðum í 46 löndum. Leikskólabörn frá leikskólanum Króki í Grindavík aðstoðuðu við athöfnina en leikskólinn hefur hlotið umhverfisviðurkenninguna Grænfánann. Við athöfnina sungu börnin Grænfánalagið og einnig Hafið Bláa Hafið.

Prófleysið gott fyrir línurnar

"Ég á granna foreldra þannig að genin spila inn í en ég borða ekki hveiti þannig að kex og brauð og slíkt er ekki á boðstólum. Svo forðast ég mjólkurvörur og borða helling af ávöxtum, mikið grænmeti og fisk og drekk vatn í staðinn fyrir gosdrykki. Einnig stundaði ég ballett í níu ár og bý óneitanlega vel að þeim grunni og svo finnst mér gott að fara í sund og jóga,“ segir Þórunn Antonía sem prýðir forsíðu Lífsins í dag aðspurð um glæsilegt líkamlegt form sitt. "Ég lenti reyndar í bílslysi í fyrra sem ég er enn þá að jafna mig eftir en ég reyni að hreyfa mig sem mest ég get. Svo hjálpar til að ég hef aldrei tekið bílpróf þannig að ég neyðist til að labba allt sem er gott fyrir línurnar.“ Lesa má viðtalið í heild sinni við Þórunni í Lífinu í Fréttablaðinu í dag, föstudag.

Við höfum öll ljós sem oft mætti skína betur

"Hugmyndin fæddist upphaflega þegar ég var enn einu sinni að reyna að troða tómri krukku inn í troðfullan skáp þar sem ég á voðalega erfitt að henda tómum krukkum því mér finnst ég alltaf geta notað þær. Og svo kom þetta upp að gera eitthvað fyrir Krabbameisnfélagið og þá fannt mér þetta svo tilvalið, að útbúa lítil kertaljós með jákvæðum skilaboðum og gefa þannig krukkunum annað tækifæri, dálítið eins og krabbameinsfélagið gerir fyrir sína skjólstæðinga og aðstandendur þeirra,“ segir Ingunn Jónsdóttir hönnuðurinn á bak við þessI fallega bleiku kerti sem komin eru í sölu víðs vegar um landið að tilefni október mánaðar sem er mánuður Bleiku slaufunnar. "Og skilaboðin "láttu ljós þitt skína," á við alla, því við höfum öll ljós sem oft mætti skína betur.“ Nálgast má kertin á eftirtöldum sölustöðum: 18 rauðar rósir, Hamraborg Kópavogi, Syrusson, Síðumúla 33 Rvk, Sirka, Skipagötu 6 Akureyri, Hús Handanna, Miðvangi 1 Egilstöðum, Home Desing, Austurvegi 58 Selfossi, Búbót bændaverslun og Þingborg Flóahreppi.

Glæsileg í gylltu

Leikkonan Kate Bosworth og eiginmaður hennar Michael Polish voru stórglæsileg á rauða dreglinum í Sidney í gær. Bosworth valdi náttúrulegt útlit þegar það kom að hári og förðun en klæddist glitrandi gullkjól við. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá hjónin á dreglinum.

Lokaæfing fyrir Ellý Vilhjálms

Gríðarlega góð stemning var á lokakvöldæfingu fyrir minningartónleika Ellýjar Vilhjálms sem fram fara annað kvöld í Laugardalshöllinni sem verður breytt í tímavél þar sem gestir munu eiga kost á því að hverfa aftur til 7. áratugarins eina kvöldstund. Eins og sjá má á myndunum var fjör á æfingunni.

Sjóðheit í samfesting

Eins og sjá má á myndunum var Jennifer Lopez, 43 ára, klæddd í steinaskreyttan samfesting á tónleikum sem hún hélt í Bologna á Ítalíu í gærkvöldi. Það verður ekki tekið af henni að af þessari tveggja barna móður að hún haldi athygli tónleikagesta með framkomu, söng og að ekki sé minnst á klæðaburði.

Helgarmaturinn - Föstudagsmatur Freyju Sigurðardóttur

"Föstudagsmaturinn hjá okkur fjölskyldunni er oft kjúklingur og sætar kartöflur en kjúklingur er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Ég borða mikið af kjúklingi þegar ég er að búa mig undir fitnessmót. En þá fæ ég ekkert krydd eða sósur með,“ segir Freyja Sigurðardóttir þjálfari.

Poppstjarna í gegnsæjum kjól

Stórstjarnan hún Kylie Minogue kann svo sannarlega að gera allt vitlaust á rauða dreglinum en hún mætti í gegnsæjum kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar Holy Motors á kvikmyndahátíðinni í New York í gær. Minogue hefur aldrei verið feimin við að sýna línurnar og var engin undandtekning þar á í gær.

Norrænir tölvuleikjaframleiðendur taka höndum saman

Samtök norrænna leikjaframleiðenda, Nordic Game Institude, verða stofnuð á mánudaginn næstkomandi. Fulltrúar samtaka leikjaframleiðenda í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi skrifa undir stofnsamninginn. Formaður IGI, Icelandic Game Industry, skrifar undir fyrir hönd Íslands.

Glæsilegt blað hjá Þórunni Högna

NUDE HOME er komið út en um er að ræða nýtt tímarit um heimili, hönnun, mat og vín. Blaðið er gefið út af Origami ehf. sem er útgáfufyrirtæki NUDE magazine sem komið hefur út frá árinu 2010. Þetta fyrsta tölublað af NUDE HOME er 154 síður að stærð. Ritstjóri blaðsins er Þórunn Högnadóttir, stílisti og blaðamaður, sem er fyrrverandi ritstjóri sjónvarpsþáttarins Innlit/Útlit.

Tímalausar teikningar

Falleg og oft hnýsileg sýning sem vekur sérstaka athygli á verkum Johns Baines, en nær einnig að velta upp spurningum um stöðu og gildi teikningarinnar í samtímanum.

Kíkt í heimsókn til Lóu Pind

Fréttakonan Lóa Pind fréttakona býr í fallegu, skandinavísku húsi í Góugötu í litla Skerjafirði í Reykjavík ásamt eiginmanni og tveimur sonum. Lóa leggur mikla áherslu á að heimilið sé þægilegt og vill sem minnst af styttum og öðrum fínum hlutum í kringum sig. Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason heimsækir Lóu í þættinum Heimsókn sem er í opinni dagskrá strax að loknum kvöldfréttum á Stöð 2 annað kvöld.

Fyrirgefning syndanna

Hallgrímur Helgason velti því fyrir sér á Facebook-síðu sinni hvort ekki sé kominn tími til að fyrirgefa Jóni Ragnari "leiðindin" frá því í sumar.

Bæði ljúft og skylt

Þáttur sem átti að heita "Ert þú ljósmyndarinn?" en eftir fund með Ljósmyndarafélagi Íslands var tekin ákvörðun um að skipta yfir í "Ljósmyndakeppni Íslands".

Frægir fjölmenntu í þetta partý

Það var glatt á hjalla í glæsilegu hófi sem haldið var í Eymundsson Austurstræti þegar ný bók Magnúsar Orra Schram alþingismanns, sem ber heitið Á tímamótum, kom út. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga lét sjá sig eins og sjá má í myndasafni.

Ber að ofan í Cosmo

Fyrirsætan Kate Upton vippar sér úr toppnum í myndaseríu fyrir nóvemberhefti tímaritsins Cosmopolitan.

Við skiljum ekki!

Hollywood-sambönd koma og fara og það hefur hvílt ákveðin bölvun yfir hjónaböndum í stjörnuheiminum.

Eldgamlar módelmyndir af Victoriu Beckham

Kryddpían Victoria Beckham er með smartari konum í heiminum. En hún lenti samt líka í þeirri hræðilegu tísku sem var boðið upp á snemma á tíunda áratugnum eins og sést á þessum gömlu myndum sem teknar voru árið 1992.

Rautt skal það vera

Rauði liturinn virðist vera að taka við af þeim svarta í Hollywood. Allar heitustu konurnar í Hollywood keppast um að sýna sig og sjá aðra í fallega rauðum kjólum eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Ég þurfti að klípa mig

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hönnuður og framkvæmdastjóri Gyðju fékk veitt Golden Quill verðlaun við hátíðlega athöfn á Golden Gala verðlaunaafhendingu metsöluhöfunda núna fyrir stuttu sem haldin var í Hollywood. Sigrún fékk verðlaunin fyrir The Success Secret sem hún skrifaði með goðsögninni Jack Canfield ásamt fleiri sérfræðingum úr viðskiptalífinu. Bókin kom út í Bandaríkjunum í ágúst s.l. og skaust strax ofarlega á sjö metsölulista vestanhafs og alla leið í annað sætið á metsölulista bóksölurisans amazon.com. Þetta er í annað sinn sem Sigrún Lilja hlýtur verðlaun á árlegri hátíð metsöluhöfunda en fyrsta bók hennar The Next Big Thing sem kom út í mars 2011 í Bandaríkjunum skaust strax ofarlega á metsölulista netverslunarinnar Amazon. Einstakt að standa á sviðinu ,,Þetta var virkilega vel heppnað kvöld og það var einstakt að standa á sviðinu með Jack Canfield sem er ein af mínum stæðstu fyrirmyndum og hefur verið lengi og fá veitt verðlaun fyrir bók sem við skrifuðum saman. Ég þurfti að klípa mig þegar þetta var afstaðið og sérstaklega þegar ég hugsa til baka að fyrir nokkrum árum horfði ég á hann í myndinni “The Secret” sem gjörbreytti mínum hugsunarhætti og í kjölfarið mínu lífi. Ég er gríðarlega stolt og þakklát fyrir að hafa fengið þennan mikla heiður að fá veitt mín önnur verðlaun fyrir metsölubók. Í kjölfar verðlaunanna hafa komið uppá borð hjá mér nokkur spennandi verkefni sem ég er að skoða vandlega með mínu fólki” segir Sigrún. Metsöluhöfundur Jack Canfield sem er best þekktur fyrir bókaseríu sína Chicken Soup for the Soul og hlutverk sitt í bíómyndinni The Secret fékk einnig verðlaun fyrir ævistarf sitt á verðlaunaafhendingunni sem fór fram á hinu margrómaða Roosevelt hóteli sem er í hjarta Hollywood. Kjóllinn íslenskur ,,Það var mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að skarta íslenskri hönnun frá toppi til táar. En það var fremur skammur tími til undirbúnings. Ég og stílistinn minn, Margrét Björnsdóttir, byrjuðum strax að huga að klæðnaði og skartinu sem ég bar á verðlaunaafhendingunni” segir Sigrún Lilja sem vakti mikla athygli gesta á hátíðinni þegar hún klæddist sérgerðum gulum kjól sem hún hannaði sjálf en það var kjóla og klæðskerinn Sigrún Elsa Stefánsdóttir sem er með íslenska merkið núrgiS sem saumaði kjólin frá grunni. ,,Við Sigrún Elsa þróuðum kjólin svo saman með hverri mátun og hann tók á sig loka myndina morgunin sem ég fór út. Sigrún Elsa vinnur mikið með sérsaum á brúðar- og samkvæmiskjólum.” segir Sigrún. Skór úr laxaroði Sigrún Lilja fékk Jóhannes Ottóson gullsmið sem er með skartgripamerkið Nox til liðs við sig en hann sérhannaði skartgripi fyrir viðburðinn en hún var með hárskraut úr gulli, hring og nælu á kjólnum í stíl. Skórnir sem hún klæddist voru að sjálfsögðu frá Gyðju Collection en þeir bera nafnið Ásdís og voru skórnir úr gylltu laxaroði. Sigrún bauð með sér á verðlaunaafhendinguna vinkonu sinni Berglindi Magnúsdóttir sem á hárgreiðslustofuna Control en hún er einnig hennar persónulega förðunar- og hárgreiðslukona. Gyðja á Facebook.

Heimsfræg en fær ekki frið

Leikkonan Cameron Diaz, 40 ára, var klædd í gallabuxur og peysu þegar hún var mynduð á hlaupum um götur New York borgar. Það er ekki tekið út með sældinni að vera heimsfræg leikkona eins og Cameron og skreppa aðeins í bæinn því ljósmyndararnir virðast elta hana hvert sem hún fer.

Kardashian systur snæða saman

Kim, Khloe and Kourtney Kardashian hittust í Miami í gær á japanska veitingarstaðnum Makoto og nutu kvöldsins saman. Eins og nánast alla aðdra daga ársins voru þær myndaðar í bak og fyrir og að venju litu þær allar óaðfinnanlega út. Þær kunna þetta stelpurnar.

Rokkaður stíll ofurfyrirsætu

Ofurfyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley kíkti út um helgina í hrikalega flottu dressi með rokkuðu ívafi. Eitthvað sem auðvelt er að tileinka sér. Lumir þú á dömulegum kjól, grófu belti og groddalegum skóm ertu komin áleiðis... Í meðfylgjandi myndasafni má fá smá innblástur af stílnum.

Húðflúr á hálsi Romeo Beckham

Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar vandlega má sjá að tíu ára Romeo, sonur David Beckham, er með gervihúðflúr á hálsinum eins og pabbi þar sem nafn litlu systur stendur skrifað með tengiskrift "Harper".

Breyta nafni á sjónvarpsþætti vegna gagnrýni ljósmyndara

"Í kjölfar umræðu um nafn sjónvarpsþáttarins "Ert þú Ljósmyndarinn?” sem sýndur verður á Skjá Einum vill Stórveldið tilkynna að eftir fund með Ljósmyndarafélagi Íslands þá höfum við tekið þá ákvörðun að breyta nafni þáttarins í Ljósmyndakeppni Íslands,“ þetta stendur í tilkynningu sem fjölmiðla- og veitingahúsamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, sendi á fjölmiðla fyrir stundu.

Erfiður missir fyrir Vilhjálm Bretaprins

Vilhjálmur Bretaprins yfirgaf skemmtistaðinn Loulou í gærkvöldi ásamt eiginkonu sinni Kate Middleton bakdyramegin í gær. Prinsinn átti erfiðan dag en barnfóstra hans til margra ára var borin til grafar fyrr um daginn. Vilhjálmur var mjög tengdur barnfóstrunni sem hugsaði um hann og bróður hans þegar þeir voru yngri.

Ýkt ástfangin og ýkt falleg

X-Factor dómarinn og söngkonan Britney Spears, 30 ára, var vægast sagt stórglæsileg þegar hún stillti sér upp á rauða dreglinum á gala viðburði með unnusta sínum Jason Trawick í Los Angeles í gærkvöldi.

Á Victoria Beckham von á fimmta barninu?

Sá orðrómur er farinn af stað að Victoria Beckham eigi nú von á sínu fimmta barni með eiginmanni sínum David Beckham. Hefur tískuhönnuðurinn og söngkonan víst neitað sér um áfengi undanfarið og neytt furðulegra matartegunda. Hefur hún jafnframt farið undan í flæmingi og glottað þegar hún er spurð út í fjölgunina.

Hefur reglulega samband við fyrrverandi

Fyrrverandi Hollywood parið Ben Affleck og Jennifer Lopez sem oft voru kölluð Bennifer hættu saman fyrir tæpum áratug eftir dramatískt samband. Engu að síður halda þau góðu sambandi enn í dag. Affleck sagði frá því í nýlegu viðtali að þau tækju reglulega púlsinn hvort á öðru í gegnum tölvupóst. Sagði hann einnig að samband þeirra í dag væri ekki þess eðlis að þau leituð til hvors annars eftir ráðum og þess háttar heldur eingöngu þess eðlis að þau hrósuðu hvort öðru fyrir vel unnin verkefni, flotta plötu eða bíómynd. "Ég ber mikla virðingu fyrir henni og samgleðst henni með allt sem hún tekur sér fyrir hendur.“

Mahler sunginn í Salnum

Á tónleikunum flytja Sesselja, Ágúst og Eva Þyri meðal annars lögin Wo die schönen Trompeten blasen, Urlicht og Wer hat dies Liedlein erdacht.

Svartur raunveruleiki eða vongóð kómedía

Myndin er að mestu leyti leikin á dönsku, þó að Brosnan hafi ekki þurft að hafa fyrir því að læra tungumálið því hann heldur sig bara við eigið móðurmál.

Gerir aðra heimildarmynd

Þóra Tómasdóttir hyggst gera aðra heimildarmynd, en fyrri kvikmyndin var hin vel heppnaða "Stelpurnar Okkar!“ um baráttu íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu um að komast á Evrópumeistaramótið í Finnlandi.

Sjá næstu 50 fréttir