Lífið

Gerir aðra heimildarmynd

Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir, sem landsmönnum er að góðu kunn fyrir störf sín í sjónvarpi, á dagblöðum og tímaritum, leggur þessa dagana drög að nýrri heimildarmynd.

Efniviður myndarinnar er þó enn á huldu, þótt heimildir blaðsins hermi að efnistökin skýrist von bráðar þegar Þóra fer að viða að sér efni í myndina. Þetta er í annað sinn sem Þóra gerir heimildarmynd.

Frumraun hennar á þessu sviði, "Stelpurnar okkar!", um baráttu íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu um að komast á Evrópumeistaramótið í Finnlandi 2009, þótti afar vel heppnuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×