Fleiri fréttir

Spilað eftir eyranu

Tónheimar í Fákafeni 9 hafa þá sérstöðu á meðal tónlistarskólanna að þar er nemendum kennt að spila á píanó eftir eyranu. Hann hefur starfað í þrjú ár og er Ástvaldur Traustason skólastjóri. Nemendur geta valið að leika sín uppáhaldslög, hvort sem þau eru eftir Beethoven eða Bítlana,

Einstaklingar virkjaðir

"Við erum að virkja getu hvers og eins til að takast á við framtíðina. Markmiðið hjá okkur er að aðstoða fólk sem misst hefur vinnuna vegna andlegra eða líkamlegra áfalla. Það gerum við meðal annars með því að tengja saman mennta- og heilbrigðiskerfið."

Hækkun á húsnæðisverði

Greiningardeild Landsbankans telur að innkoma bankanna á fasteignalánamarkaðinn kunni að valda allt að fimmtán prósenta hækkun á húsnæðisverði, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Það sé þó háð framboði á nýju húsnæði þannig að ef það eykst verði hækkunin minni.

Ætlar að verða Herra Skandinavía

Garðar Gunnlaugsson, 21 árs málari, er Herra Ísland. Hann fer til Helsinki í næsta mánuði til að taka þátt í keppninni Herra Skandinavía.

Vinkonur með persónulegan stíl

Dís og vinkonur hennar í samnefndri kvikmynd tolla í tískunni en eru ekki tískudrósir og þær fara eigin leiðir í fatastíl segir Bergþóra Magnúsdóttir hönnuður sem sá um búningana í kvikmyndinni sem frumsýnd var á dögunum.

Svínað á breskum i-Tunes notendum

Neytendasamtök á Englandi hafa sent yfirvöldum kvörtun vegna kostnaðar sem lagður er á breska i-Tunes eigendur sem hlaða niður lögum af heimasíðu Apple.

Nýtt lag á safnplötu Britney

Nýtt lag sem kallast, Do Something, verður að finna á væntanlegri safnplötu Britney Spears sem kemur út 9. nóvember. Einnig verður þar lagið (I´ve Just Begun) Having Fun sem aðeins hefur verið fáanlegt á DVD-útgáfu síðustu plötu Britney, In the Zone, í Evrópu.

Sony kaupir MGM

Japanski útgáfurisinn Sony er nánast búinn að ganga frá kaupum á kvikmyndafyrirtækinu Metro-Goldwyn-Mayer (MGM) en gengið var frá drögum að samningi þess efnis í fyrradag.

Daðrað í rauntíma

Það er best að segja það strax að þeir sem vilja skotbardaga, bílaeltingarleiki og tæknibrellur í bíó er ekki ráðlagt að sjá Before Sunset, nema þá að viðkomandi séu reiðubúnir að leggja allar sínar væntingar sem þeir hafa haft til kvikmynda til hliðar, og opna hug sinn fyrir allt öðruvísi kvikmyndalist en þeirri sem hæfir best poppi og kóki. Það er ólíklegt að slíkt gerist í stórum stíl. Ég var einn í bíó.

Heimildarmynd um Medúllu

Á dögunum kom út DVD-útgáfa af nýjustu plötu Bjarkar, Medúllu. Þar er meðal annars að finna heimildarmyndina "The Inner Or Deep Part of an Animal or Plant Structure," sem er orðabókaskýring á hugtakinu Medulla. Á íslensku myndi það útleggjast sem "innri eða dýpri hluti af dýri eða plöntu." 

70 mínútur hætta á Popptíví

Sjónvarpsþátturinn 70 mínútur verður tekinn af dagskrá Popptíví þann 20. desember en þá verður eitt þúsundasti þátturinn sýndur. Það þýðir að einungis 68 þættir eru eftir af þessum vinsælasta sjónvarpsþætti ungu kynslóðarinnar.

Hafnarfjarðarlöggan á skjáinn

Nýr íslenskur gamanþáttur, Hafnarfjarðarlöggan, verður frumsýndur á Stöð 2 föstudaginn 24. september. Leikstjóri er Hallur Helgason og með aðalhlutverk fara Steinn Ármann Magnússon, Björk Jakobsdóttir, Jón Páll Þorbergsson, Bergþór Pálsson og Nanna Gunnarsdóttir.

Líkamsrækt að spila á orgel

"Það er nú ákveðin líkamsrækt að spila á orgel, bæði fingraleikfimi og þó einkum fóta því maður reynir að láta rjúka úr pedalanum," segir Steingrímur Þórhallsson, organisti í Neskirkju, hlæjandi þegar hann er inntur eftir því hvernig hann haldi sér í formi dags daglega.

Námskeið í notkun hjólastóla

Hvernig kemst maður upp og niður stiga, yfir kanta og áfram í þrengslum þegar maður er í hjólastól? Og hvað gerir maður ef maður dettur um koll? Þetta og margt annað í sama dúr var kennt á námskeiði á Reykjalundi í lok síðustu viku.

Í nafni jóga

<em>Guðjón Bergmann, jógakennari og rithöfundur, skrifar um ofnotkun á hugtakinu jóga.</em> Eðlilegt er að í jóga sé framþróun og upp komi nýjungar. Hins vegar eru jógafræðin of oft útþynnt í gegnum auglýsingar og aðlögun við önnur líkamsræktarkerfi. Því er ekki allt gull sem glóir eða allt jóga sem kennt er við jóga.</font />

Ávaxtabíllinn

"Kex eða sælgæti verður oftast fyrir valinu hjá fólki þegar hungurtilfinning vaknar seinni part dags, og þess vegna kviknaði sú hugmynd að koma ávöxtum til fólksins í staðinn. Einnig vildum við gera þetta til styrktar íslensku hugviti, því ef menn eru bensínlausir það sem eftir er dags fá þeir ekki margar hugmyndir," segir Haukur Magnússon, sem rekur Ávaxtabílinn sem selur ávaxtakörfur til fyrirtækja í áskrift

Ábyrgðarfullt yfirbragð

Súsanna Svavarsdóttir segir ekki nauðsynlegt að vera leiðinlegur til að virka ábyrgur.

Lifi kóngurinn!

Loksins tók Nick Cave út slátrið aftur og hristi það! Ég gaf síðustu plötu, Nocturama frá því í fyrra, ágætis dóma hér í Fréttablaðinu en eftir það rataði platan aldrei í tækið mitt aftur af einhverjum ástæðum. Hún var ekki slæm, en samt voru buxur meistarans komnar óþægilega nálægt rassskorunni. 

Ragga Bjarna dagar á Stjörnunni

Í tilefni af sjötugsafmæli Ragnars Bjarnasonar 22. september næstkomandi mun útvarpsstöðin Stjarnan FM 94,3 heiðra stórsöngvarann. Dagana 20.-26. september verður dagskrá stöðvarinnar helguð afmælisbarninu.

Guðni í opinni dagskrá

Sýn sendir Boltann með Guðna Bergs út í opinni dagskrá frá og með deginum í dag

Sæti strákurinn stefnir á útlönd

Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur, þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur, leikið aðalhlutverk í fjölmörgum söngleikjum, þar á meðal í Bugsy Malone, Thriller og Wake Me Up. Hann hefur ákveðið af fara til útlanda í leiklistarnám en fyrst ætlar hann að takast á við eitt aðalhlutverkanna í Hárinu.

Kaupmaðurinn á horninu í útrás

Kaupmaðurinn á horninu er orðinn að hálfgerðri goðsögn á Íslandi. Þó er einn og einn í fullu fjöri og þar á meðal er Þórður Björnsson í Hlíðakjöri við Eskihlíð. Þórður er nýlega byrjaður í bransanum og er svo bjartsýnn að hann er búinn að kaupa Sunnubúðina við Lönguhlíð líka, hvorutveggja rótgrónar hverfisverslanir.

Leikur ekki samkynhneigðan mann

Söngvarinn kunni Robbie Williams hefur hafnað tilboði um að leika samkynhneigðan mann í vinsælum söngleik á Broadway. Að sögn er leikarinn smeykur um að orðrómur þess efnis að hann sé hommi færi af stað á nýjan leik ef hann tæki að sér hlutverkið.

Ashton og Demi ákveða daginn

Leikaraparið Ashton Kutcher og Demi Moore ætla að giftast að Kabbalah stíl um Þakkargjörðarhátíðina. 15 ár eru á milli þeirra en samband þeirra, sem flestir héldu í upphafi að væri eitthvað grín, virðist nú vera fúlasta alvara. 

Rödd yðar á plötu

Kvæðamannafélagið Iðunn fagnar 75 ára afmæli á morgun, miðvikudaginn 15. september. Af því tilefni verður efnt til hátíðar í Borgarleikhúsinu annað kvöld klukkan 20.00. Hátíðin er um leið útgáfutónleikar á silfurplötum sem teknar voru upp í Bankastræti 7 á árunum 1935-36.

Draumur verður að veruleika

Fyrsta plata dúettsins Braks kom út á dögunum og kallast hún Silfurkoss. Lögin, sem eru tólf talsins, eru eftir þá félaga Harald Gunnlaugsson og Hafþór Ragnarsson. Allir textar eru á íslensku.

Annar höfunda Chicago allur

Fred Ebb, textahöfundur söngleikjanna Chicago og Cabaret, lést í gær í kjölfar hjartaáfalls. Ebb var einnig þekktur fyrir að semja textann við lagið New York, New York sem Frank Sinatra gerði ódauðlegt.

Zetu næstum rænt

Byssumenn reyndu að ræna velsku leikkonunni Catherine Zeta-Jones þegar hún var á heimleið frá tökustað í Mexíkó. Byssugengið reyndi að neyða bíl hennar af veginum en lífverðir hennar komu henni til bjargar og veittu glæpamönnunum eftirför.

Lán bankanna verði skoðuð

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, vill að Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið skoði íbúðalán bankanna. Formlegt erindi verður sent þessum stofnunum á næstu dögum. Gylfi segir algerlega ljóst að bönkunum sé óheimilt að taka sérstakt gjald vegna uppgreiðslu lána.

Reynt að ræna Zeta Jones

Leikkonan Catherine Zeta Jones á lífvörðum sínum að þakka fyrir að sitja ekki í haldi mexíkóskra mannræningja. Hópur fjögurra vopnaðra manna reyndi að stöðva bíl hennar þegar hún var á heimleið eftir tökur á nýrri Zorromynd í gær.

Óttast ekki málsókn ASÍ

Bankarnir óttast ekki málssókn frá ASÍ fyrir að krefjast gjalds af fólki sem vill greiða íbúðalán sín upp áður en lánstíma lýkur. Þeir segja bann við slíku gjaldi eingöngu ná til lána sem eru tekin til skemmri tíma en fimm ára.

Ekki sama laukur og laukur

"Áhugi á ræktun matjurta hefur aukist gríðarlega og ef til vill hefur það sitt að segja að mataræði okkar hefur breyst og hafa kryddjurtir og salöt aukist mikið í fæðunni," segir Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður nytjajurtagarðs Grasagarðsins í Laugardal.

Íslenskir réttir öðlast nýtt líf

Þótt matreiðslubækurnar Cool Cuisine og Cool Dishes heiti framandi nöfnum innihalda þær bæði þjóðlegar og nútímalegri uppskriftir að rammíslenskum mat. Þar öðlast hefðbundnir réttir nýtt líf svo sem kjötsúpa, plokkfiskur, hangikjöt og steikt slátur og lýst er hvernig matreiða á lunda, hreindýr, lambakjöt, krækling og ferskan fisk svo nokkuð sé nefnt.

Vísitalan hækkar um 0,43%

Vísitala neysluverðs í september hækkar um 0,43% frá síðasta mánuði og er nú 235,6 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,2 stig eða 0,40% hærri en í ágúst. Frá þessu greinir á vef Hagstofu Íslands.

Besta breska bandið í ár

Skoska rokksveitin Franz Ferdinand hlaut Mercury-tónlistarverðlaunin á miðvikudagskvöldið fyrir fyrstu plötu sína, samnefnda hljómsveitinni. Rokkkvartettinn, sem kemur frá Glasgow, þóttu sigurstranglegir af þeim 12 listamönnum sem voru tilnefndir og hrepptu að lokum hnossið.

Avril óvinsæl í heimabænum

Kjafturinn á Avril Lavigne heldur áfram að koma henni í vandræði. Íbúar heimabæ hennar eru brjálaðir eftir að söngkonan sagði Napanee ömurlegan stað.

Bankarnir brjóta lög

Alþýðusamband Íslands segir að bankarnir brjóti lög þegar þeir krefjast gjalds af fólki sem vill greiða íbúðalán sín upp áður en lánstíma lýkur. Þá líkir sambandið því við átthagafjötra að lántakandi verði að vera í viðskiptum við bankann áratugum saman til að halda góðum vöxtum á íbúðalánum sínum.

Mikill áhugi á tónlistarnámi

Rúmlega helmingur allra grunnskólanemenda í Súðavík er í tónlistarnámi. Tónlistarskólinn á Ísafirði er þar með útibú og eru nemendurnir 21.

Tabasco kanínufæla

Bændur í Hollandi hafa fundið upp nýstárlega aðferð til að verjast ágangi kanína sem sækja í kál, gulrætur og hveiti. Þeir hafa úðað bandarískri tabasco sósu í kálgarðanna með þeim afleiðingum að kanínurnar endasendast hátt upp í loftið meðan þeim svelgist á góðgætinu.

Moore og Kutcher í það heilaga

Demi Moore, fyrrverandi eiginkona hasarmyndahetjunnar Bruce Willis, mun ganga að eiga ástmann sinn, Ashton Kutcher, innan tveggja mánaða, samkvæmt dagblaðinu Daily Star.

Freysgoði á fjalirnar

Sex íslensk leikrit verða á dagskrá Stoppleikhússins í vetur, þar af tvö glæný verk. Annað þeirra hefur Valgeir Skagfjörð samið upp úr Hrafnkels sögu Freysgoða. Hitt er nýtt íslenskt jólaleikrit sem nefnist Síðasta stríð og verður á dagskrá þegar nær dregur jólum.

Fórnar Óskarnum fyrir sjónvarp

Kvikmyndagerðamaðurinn Michael Moore segist frekar vilja sýna mynd sína í sjónvarpi fyrir forsetakosningarnar næstu en að bjóða hana fram til Óskarsverðlauna á næsta ári sem bestu heimildarmyndina.

Með sínu lagi

The Shape of Things Leikstjóri: Neil LaBute Aðalhlutverk: Rachel Weisz, Paul Rudd Einar Árnason

Klámhögg

Ken Park er samt skemmtileg pæling en bersöglin er klámhögg.

Sjá næstu 50 fréttir