Fleiri fréttir

Laxveiði í október

Laxveiðitímabilið er ekki búið því veitt er í þó nokkrum ám langt út október mánuð. Eru þetta allt hafbeitarár með töluverðri laxavon.

Saga stangveiða: Niðursuða James Ritchie á Hvítárlaxi

Sumarið 1858 kom til Íslands skoskur maður að nafni James Ritchie. Fátt er að finna um þennan Skota í íslenskum heimildum annað en að hann var eigandi niðursuðuverksmiðju í Peterhead á Skotlandi og að hann settist að í Borgarnesi með það að markmiði að sjóða niður íslenskan lax.

Veiddi flottan birting og heldur áfram í nepjunni

Guðrún Una Jónsdóttir, formaður Stangaveiðifélags Akureyrar, hefur verið að reyna fyrir sér í Hörgánni að undanförnu. Á sunnudaginn tók hjartað stóran kipp er hún landaði glæsilegum sjóbirtingi en síður gekk í fyrradag enda æði napurt við árbakkann þá.

Ótrúleg veiði Sogsmanna í Stóru-Laxá

Sogsmenn veiddu 14 laxa á svæði IV í Stóru-Laxá í gær. Um síðustu helgi rifu þeir 61 lax upp á svæði I og II. Þeir félagar loka ánni um helgina.

Langá endaði við ellefu hundruð laxa mörkin

Árnefnd Langár á Mýrum lokaði ánni í gær. Veiði sumarsins er 1.049 laxar. Fast að 50 laxar að auki veiddust á tilraunasvæðinu ofan Ármótafljóts og heildarveiðin því nálægt 1.100 löxum.

Setbergsá: 99% á maðkinn

Setbergsá er hreinræktuð smálaxaá, og er allur aflinn frá fjórum upp í sex pund. Að sama skapi má segja að leitun sé að hærra hlutfalli maðkaveiddra laxa á landsvísu, enda hentar áin mun betur fyrir þá sem brúka það agn. Af 53 löxum veiddust einvörðungu tveir á flugu - aðrir féllu fyrir möðkum veiðimanna," segir á vef SVFR

Sogið: Minnsta veiði um árabil

Úr Bíldsfelli eru skráðir 135 laxar, úr Ásgarði eru skráðir til bókar 49 laxar, Alviðra er með 18 slíka og Þrastalundur aðeins 4 laxa í bók.

Rússar í hart vegna netaveiði Norðmanna á laxi

Á milli 60–70% af þeim laxi sem veiddur er í netin eru hinn verðmæti vorlax sem stendur undir meginhrygningunni í rússneskum ám á þessum slóðum, að sögn Orra. Bent hefur verið á að veiðar Norðmanna séu brot á 66. grein Hafréttarsáttmála Sameinuðu Þjóðanna, en alþjóðleg nefnd vísindamanna hefur staðfest að laxinn sem um ræðir sé af rússneskum uppruna.

Flott veiði í Fossálum í litlu vatni

"Þetta var alveg ótrúlegur túr," segir Valdimar Reynisson sem var í Fossálum um miðjan mánuðinn. Hollið náði tíu góðum fiskum í metlitlu vatni í ánni.

Stangveiði í Skotlandi með besta móti

Eins sýnir tölfræðin að veiða/sleppa fyrirkomulagið í Skotlandi er að ná sífellt betri fótfestu en 73% af öllum laxi var sleppt árið 2011; 91% af vorveiddum laxi og 70% af öllum sjóbirtingi var sleppt.

Saga stangveiða: Fnjóská - hin dásamlega afrétt

“Síðastliðna viku hefi ég verið að athuga Fnjóská með hinum enska veiðimanni, Mr. Fortescue, sem leigir hana. Áin hefir verið alfriðuð í 6 ár og auk þess dálítill partur af sjónum báðum megin [við ósa]. Þá var einnig í upphafi friðunartímabilsins gerður fiskvegur upp yfir Laufásfossa. Árangurinn af þessari aðgerð á ánni og 6 ára friðun, er alveg stórkostlegur og mörgum sinnum meiri en bjartsýnustu kunnáttumenn þorðu að vona.”

Ekki náðist að veiða hreindýrakvótann

Ekki náðist að fella þrettán hreindýr af útgefnum veiðikvóta í sumar, en veiðum lauk í gær. Kvótinn var 1.009 dýr. Helsta ástæðan er sú að veiðimenn skiluðu leyfum sínum þar sem þeir höfðu ekki þreytt skotpróf, sem er skilyrði fyrir veiðum. Þetta olli því að mörgum leyfum þurfti að úthluta aftur sem gekk illa.

Rjúpnaveiðar með sama sniði og í fyrra

Áætlaður veiðistofn nú er um 390.000 fuglar, en talið að veiðiþol sé 34.000 fuglar. Umhverfisstofnun leggur áherslu á að farið verði að ráðgjöf Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða veiði upp á 34.000 fugla, sem geri um sex rjúpur á veiðimann, miðað við þann fjölda veiðimanna sem að jafnaði fari til rjúpnaveiða. Telur Umhverfisstofnun einnig rétt að viðhalda sölubanni á rjúpu.

Veiðitölur LV: Dapurlegar lokatölur að tínast inn

Lokatölurnar í laxveiðiánum detta inn þessa dagana og undirstrikar það sem allir áhugamenn um stangveiði vissu fyrir allnokkru síðan; margar bestu árnar eru ekki hálfdrættingar á við veiðina í fyrra og lægstu veiðitölur í langan tíma staðreynd.

Fimm milljóna tjón vegna kjúklinga og klósettpappírs

Leigutaki Ytri-Rangár vill að sveitarfélagið Rangárþing ytra greiði 5 milljóna króna bætur vegna tjóns sem varð er kjúklingaúrgangur lak frá sláturhúsi á Hellu í fyrra. Ekki okkar ábyrgð þótt við eigum fráveituna segir sveitarstjórinn.

Stuð á sjóbirtingsslóðum

Ágætlega hefur veiðst í sjóbirtingsám Stangveiðifélags Keflavíkur að undanförnu. Að því er kemur fram á heimasíðu félagsins er mikið magn af fiski í Fossáluum og Geirlandsáin er einnig að gefa.

Gæsirnar falla á ökrunum í Gunnarsholti

Þótt gæsaveiðitímabilið hafi ekki náð hámarki hafa skotveiðimenn setið við akrana um nokkurt skeið með ágætum árangri. Til dæmis í Gunnarsholti eins og lesa má um á vef Lax-ár.

Laxinn hefur gefið sig í Tungufljóti

Samkvæmt veiðibókinni í Tungufljóti í Skaftárhreppi veiddust 23 laxar í þessari rómuðu sjóbirtingsá frá því í byrjun ágúst og fram til 16 september.

Hættið að skarka utanvega á veiðislóð!

Ljót sár eru nú í jarðvegi eftir ökutæki veiðimanna í Hraunsfirði að því er segir á veg Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem skorar á veiðimenn að keyra ekki utan vega í botni fjarðarins.

Stóra Laxá III: 16 laxar á níu tímum!

Hins vegar verður að viðurkennast að ævintýri veiðimanna á svæði III eru meira en væntingar stóðu til en holl sem hóf veiðar klukkan sjö í gærkvöldi var búið að landa 16 löxum í hádeginu í dag.

Þekkt að bleikju fjölgi þegar laxi fækkar

"Við erum að sjá meira af fiski í sumar en í langan tíma. Við erum að fá miklu meira af bleikju. Á móti kemur að laxinn hefur lítið sem ekkert látið sjá sig, en það er enginn missir að honum,“

Veiðitölur LV: Yfir 100 laxar í Norðurá

Fjórar ár skiluðu ríflega 100 laxa viku að þessu inni. Athygli vekur að Norðurá er ein þeirra en þar veiddust 103 laxar í síðust viku. Lítið kraftaverk í Aðaldalnum.

Drápa græn verður Hrygnan 2012

Úrslit eru nú kunn í fluguhnýtingarkeppni veiðiverslunarinnar Hrygnunnar. Keppnin var styrktar góðu málefni og runnu 26 þúsund krónur til félagsskaparins "Kastað til bata."

Góðar gangur í Breiðdalsá

85 laxar hafa veiðst frá mánaðarmótum en 364 þegar horft er til sumarsins í heild. Meðalþyngdin vekur athygli en hún er ríflega 9 pund. Meðallengd veiddra laxa er 73,24 sentimetrar segir í veiðibók Breiðdalsár.

Sjá næstu 50 fréttir