Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Riley ætlar að taka sér frí frá þjálfun Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, þarf að taka sér frí frá þjálfun um óákveðinn tíma til að gangast undir aðgerð á hné og á mjöðm. Chicago Tribune greindi frá þessu í dag. Ron Rothstein aðstoðarþjálfari liðsins mun taka við stjórn liðsins á meðan Riley nær sér, en liðið er nú að fara í sex leikja keppnisferð um vesturströndina. 3.1.2007 18:59
Iverson sendur í bað Allen Iverson náði sér aldrei á strik í fyrsta leik sínum gegn sínum gömlu félögum í Philadelphia í nótt þegar Denver lá heima fyrir botnliðinu 108-97. Iverson skoraði 30 stig og gaf 9 stoðsendingar, en hitti illa, tapaði 7 boltum og var sendur í bað í lokin fyrir að brúka munn við dómara. 3.1.2007 14:08
Arenas og Bryant leikmenn mánaðarins í NBA Gilbert Arenas hjá Washington Wizards og Kobe Bryant hjá LA Lakers voru í kvöld útnefndir leikmenn desembermánaðar í NBA deildinni í körfubolta, Arenas í Austurdeildinni og Bryant í Vesturdeildinni. 2.1.2007 23:15
D´Antoni og Jordan þjálfarar mánaðarins Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix Suns og Eddie Jordan, þjálfari Washington Wizards, voru í dag útnefndir þjálfarar mánaðarins í Vestur- og Austudeildinni í NBA. Phoenix vann 13 leiki og tapaði aðeins 2, en Washington vann 12 og tapaði 3 í desember. 2.1.2007 21:15
Iverson mætir sínum gömlu félögum í nótt Skorarinn mikli Allen Iverson sem nýlega gekk í raðir Denver Nuggets í NBA deildinni, mætir í kvöld sínum gömlu félögum í Philadelphia 76ers. Þetta verður eini leikur Iverson gegn Philadelphia í ár þar sem liðin spiluðu fyrri leik sinn á tímabilinu í haust. 2.1.2007 18:02
Soltau farinn frá Keflavík Danski miðherjinn Thomas Soltau hefur verið látinn fara frá úrvalsdeildarliði Keflavíkur í körfubolta og heldur til síns heima á morgun. Á vef Keflavíkur kemur fram að Soltau hafi ekki hentað nógu vel í leikskipulagi liðsins en hann skoraði 15 stig að meðaltali fyrir liðið í vetur. 2.1.2007 17:45
Stórleikur í beinni á NBA TV í nótt Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá NBA TV sjónvarpsstöðvarinnar á Fjölvarpinu í nótt þegar Chicago Bulls tekur á móti Phoenix Suns. Leikurinn hefst klukkan 1:30 að íslenskum tíma og þar má fastlega reikna með fjörugum leik. 2.1.2007 15:43
O´Neal að ná sér Miðherjinn Shaquille O´Neal hefur nú sett stefnuna á að spila sinn fyrsta leik eftir hnéuppskurð þann 15. janúar þegar meistarar Miami sækja LA Lakers heim í síðasta leiknum af sex leikja keppnisferðalagi um vesturströndina. O´Neal hefur aðeins spilað fjóra leiki á tímabilinu. 2.1.2007 15:35
Garnett fagnaði gamla boltanum með stórleik Tveir leikir fóru fram í deildarkeppninni í NBA í nótt þar sem gamli leðurboltinn var tekinn formlega í notkun á ný. Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var einn þeirra sem gagnrýndu boltann sem notaður var í fyrsta sinn í haust og hann hélt upp á endurkomu gamla boltans með góðum leik. 2.1.2007 14:26
Línur að skýrast í NBA Þrjú efstu lið NBA-deildarinnar; Dallas, San Antonio og Pheonix, unnu öll góða sigra í leikjum sínum í nótt. Þegar tímabilið er nú tæplega hálfnað eru línur teknar að skýrast og er ljóst að Vesturdeildin er mun sterkari en Austurdeildin. 1.1.2007 16:30
Jordan skilinn við eiginkonu sína Michael Jordan, besti körfuboltamaður sem uppi hefur verið, er skilin við eiginkonu sína til 17 ára, Juanitu. Í sameiginlegri tilkynningu frá lögmönnum þeirra segir að skilnaðurinn fari fram í mestu vinsemd. 31.12.2006 18:30
Snæfell vann Keflavík Snæfell og Njarðvík komust í dag upp að hlið KR á topp Iceland Express-deildar karla í körfubolta með því að sigra í sínum leikjum í dag. Snæfell hafði betur í stórslagnum gegn Keflavík, 80-67, en Njarðvík marði sigur gegn Þór Þ. á heimavelli sínum, 105-100. 30.12.2006 18:05
58 stig Kobe dugðu ekki til Kobe Bryant átti stórleik og skoraði alls 58 stig fyrir LA Lakers í leik liðsins gegn Charlotte í NBA-deildinni í nótt. Frammistaðan var hins vegar ekki nóg til að skila Lakers sigri því að Charlotte sigraði eftir þrjár framlengingar, 133-124. 30.12.2006 11:00
Fratello rekinn frá Memphis Mike Fratello var á fimmtudag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta. Það var gamla kempan Jerry West, núverandi forseti Memphis, sem lét Fratello fjúka. 30.12.2006 00:04
KR vann en Skallagrímur tapaði KR vann mjög mikilvægan útisigur á Grindavík í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld. KR skoraði 89 stig gegn 78 stigum heimamanna og náði með sigrinum tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Skallagrímur tapaði óvænt fyrir ÍR í Breiðholtinu. 29.12.2006 21:09
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. 29.12.2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. 29.12.2006 17:00
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. 29.12.2006 15:30
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. 28.12.2006 15:27
Brenton og Helena best hjá KKÍ Brenton Birmingham hjá Njarðvík og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuboltamaður og körfuboltakona ársins 2006, en þetta var tilkynnt í morgun. Það er stjórn Körfuknattleikssambandsins sem stendur að valinu. 28.12.2006 14:12
Fyrsti sigur Iverson hjá Denver Allen Iverson fagnaði sigri í í treyju Denver í fyrsta sinn í nótt þegar liðið bar sigurorð af Boston, 116-105, í NBA-deildinni. Iverson skoraði 28 stig og gaf 13 stoðsendingar. Dallas sigraði Charlotte auðveldlega, 97-84, og hefur nú unnið sjö leiki í röð. 27.12.2006 10:01
Wade skyggði algjörlega á Kobe Einvígi Dwayne Wade og Kobe Bryant í viðureign Miami og LA Lakers í NBA-deildinni í nótt náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir. Það er skemmst frá því að segja að Bryant kolféll á prófinu á meðan Wade blómstraði í sannfærandi 101-85 sigri Miami. 26.12.2006 15:30
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. 25.12.2006 16:30
Houston - Við erum í vanda Miðherjinn Yao Ming hjá Houston Rockets í NBA deildinni leikur ekki með liðinu næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að risinn meiddist á hné í tapleik liðsins gegn LA Clippers í nótt og því er útlit fyrir að liðið verði enn og aftur að finna leið til að sigra án ofurstjarna sinna, Ming og Tracy McGrady. 24.12.2006 13:52
Mikið áfall fyrir Seattle Rashard Lewis, framherji og lykilmaður Seattle í NBA-deildinni í körfubolta, verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hendi á föstudag. 23.12.2006 21:00
Tap hjá Iverson í fyrsta leik 22 stig og tíu stoðsendingar frá Allen Iverson dugðu ekki fyrir Denver í nótt þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Sacramento í NBA-deildinni, 101-96. Þetta var fyrsti leikur Iverson fyrir sitt nýja lið. 15 leikja sigurhrinu Pheonix lauk ennfremur í nótt. 23.12.2006 13:15
Njarðvíkingar á toppinn Njarðvíkingar skelltu sér á toppinn í úrvalsdeild karla í körfubolta ásamt Snæfelli, KR og Skallagrími í kvöld þegar þeir lögðu granna sína í Keflavík 86-72 í hörkuleik í Njarðvík. Heimamenn höfðu yfir 50-42 í hálfleik. Þá vann kvennalið Hauka nauman sigur á Grindvíkingum 82-81 í efstu deild kvenna. 21.12.2006 21:27
Anthony ætlar ekki að áfrýja Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets hefur ákveðið að áfrýja ekki 15 leikja banninu sem hann var settur í á dögunum eftir slagsmálin sem urðu í leik New York og Denver um síðustu helgi. Anthony gaf þá skýringu að hann vildi ekki gera meira úr þessu leiðinlega máli og taki því refsingu sinni þegjandi. 21.12.2006 18:40
Iverson fór ekki fram á að fara frá Philadelphia Allen Iverson segist ekki hafa farið fram á það að vera skipt frá Philadelphia 76ers á frægum fundi sem hann átti með framkvæmdastjóra félagsins fyrir röskum hálfum mánuði. Þetta sagði Iverson í fyrsta viðtalinu sem hann veitti eftir að ljóst varð að hann gengi til liðs við Denver Nuggets. 21.12.2006 15:21
Logi skoraði 26 stig í sigri ToPo Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson var enn á ný stigahæstur hjá liði sínu ToPo í Helsinki þegar liðið lagði KTP 77-75 í finnsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöld. ToPo er í fjórða sæti deildarinnar. 21.12.2006 15:04
Mikil dramatík í NBA í nótt Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og spennan gríðarleg á nokkrum vígstöðvum. New York vann annan leikinn í röð um leið og lokaflautið gall og veðurguðirnir virðast vilja sjá Allen Iverson spila með Denver, því leik liðsins gegn Phoenix í gær var frestað vegna snjóstorms og því verður Iverson orðinn löglegur með liðinu þegar það mætir Phoenix. 21.12.2006 12:04
Þetta eru alltaf skemmtilegustu leikirnir Njarðvík og Keflavík mætast í kvöld í síðasta leik Iceland-Express deildar karla fyrir jól. Leikurinn fer fram í Njarðvík og hefst klukkan 19.15. Liðin eru í fjórða og fimmta sæti fyrir leikinn, bæði með fjórtán stig eftir níu leiki, en Skallagrímur, KR og Snæfell verma fyrstu þrjú sætin, öll með sextán stig eftir tíu leiki. 21.12.2006 00:01
San Antonio - Memphis í beinni í nótt Leikur San Antonio Spurs og Memphis Grizzlies verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Staða þessara liða í deildinni er bókstaflega andstæð því San Antonio er á toppi deildarinnar með 19 sigra og 6 töp, en Memphis hefur aðeins unnið 6 leiki og tapað 19. 20.12.2006 19:26
Félagsmet hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 15. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum 115-98. Chicago Bulls tók á móti LA Lakers og vann 94-89. 20.12.2006 13:01
Chicago - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Chicago Bulls og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt. Þetta verður væntanlega hörkuleikur milli þessara gömlu stórliða, en bæði lið hafa verið á ágætu róli undanfarið. 19.12.2006 21:29
Allen Iverson fer til Denver Skorarinn Allen Iverson sem leikið hefur með Philadelphia 76ers síðasta áratug er á leið til Denver Nuggets í skiptum fyrir Andre Miller, Joe Smith og valrétti Denver liðsins í nýliðavalinu á næsta ári. Skiptin hafa ekki verið staðfest formlega en líklega verður gengið frá lausum endum síðar í kvöld. 19.12.2006 20:56
New York lagði Utah á flautukörfu Fámennt lið New York gerði sér lítið fyrir og lagði Utah Jazz í framlengdum leik á NBA TV í nótt þar sem Stephon Marbury tryggði New York 97-96 sigur með sniðskoti um leið og leiktíminn leið. Utah hafði feikna yfirburði í upphafi leiks og stefndi í stórtap New York, en gestirnir spiluðu sinn versta leik á tímabilinu eftir það og heimamenn gengu á lagið og höfðu sigur. 19.12.2006 13:27
New York - Utah í beinni á NBA TV í kvöld Lið New York Knicks mætir undirmannað til leiks klukkan hálf eitt í nótt þegar það tekur á móti Utah Jazz í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Þeir Mardy Collins, Nate Robinson og Jared Jeffries hjá New York verða allir í leikbanni í kvöld. 18.12.2006 19:53
Anthony fær 15 leikja bann Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni var í dag settur í 15 leikja keppnisbann fyrir að vera í aðalhlutverki í slagsmálunum sem brutust út á leik New York Knicks og Denver á laugardagskvöldið. Alls þurfa leikmennirnir sem tóku þátt í látunum að sitja af sér 47 leikja bann. 18.12.2006 18:02
Hamar/Selfoss mætir KR Í dag var dregið í 8-liða úrslit bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karla- og kvennaflokki, en bikardrátturinn fór fram í húsakynnum Lýsingar. Í karlaflokki verða tvær viðureignir úrvalsdeildarliða þar sem ÍR mætir Skallagrími og Hamar/Selfoss tekur á móti KR. 18.12.2006 15:20
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. 18.12.2006 13:21
Njarðvík og Keflavík halda sínu striki Það er að verða ansi þröngt á þingi á toppnum í Iceland Express deild karla í körfubolta, en í dag komst Njarðvík upp að hlið Skallagríms, Snæfells og KR á toppi deildarinnar með sigri á botnliði Hauka 104-99. Keflvíkingar geta komist upp að hlið toppliðanna með sigri í leiknum sem liðið á til góða en liðið lagði granna sína í Grindavík í dag 90-86. 17.12.2006 20:56
Sigurganga Hauka stöðvuð í Keflavík Íslandsmeistarar Hauka í körfubolta töpuðu sínum fyrsta leik í IE deild kvenna í körfubolta í dag þegar liðið lá fyrir Keflavík 92-85. Keflvíkingar eru því komnir á topp deildarinnar en Haukaliðið á leik til góða. 17.12.2006 19:38
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. 17.12.2006 14:54
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. 17.12.2006 04:09