Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haukar í átta liða úrslitin Haukar úr Hafnarfirði urðu í gærkvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Powerade bikarsins í körfubolta þegar liðið lagði ÍR 76-65 í Seljaskóla. Hreggviður Magnússon skoraði 19 stig fyrir ÍR og Rodney Blackstock setti 16, en Roni Leimu skoraði 22 stig fyrir Hauka og Kevin Smith setti 19 stig. 30.9.2006 17:03
Krísufundur vegna máls Larry Brown kvöld Í dag verður haldinn krísufundur hjá New York Knicks þar sem fulltrúar félagsins munu ræða við fyrrum þjálfara félagsins Larry Brown og hans fylgdarlið, þar sem umræðuefnið verður óuppgerður samningur þjálfarans frá því hann var rekinn í júní í sumar. 29.9.2006 19:30
ÍR mætir Haukum í kvöld Í kvöld klukkan 19:15 kemur í ljós hvort það verða ÍR-ingar eða Haukar sem verða síðasta liðið til að tryggja sér sæti 8-liða úrslitunum í Powerade bikarnum í körfubolta, en keppnin hófst í gær með þremur leikjum. Keppt var með breyttu sniði í ár og aðeins tólf lið tóku þátt. Átta liða úrslitin í keppninni hefjast svo með látum á morgun þegar Njarðvíkingar taka á móti Hamri/Selfoss í Njarðvík klukkan 19:15. 29.9.2006 18:15
Jay Williams snýr aftur Leikstjórnandinn Jay Williams hefur skrifað undir samning við New Jersey Nets í NBA deildinni en hann hefur ekki spilað leik í þrjú ár eftir að hafa lent í mjög alvarlegu bifhjólaslysi í júní árið 2003. 28.9.2006 22:23
Bonzi Wells semur við Houston Rockets Framherjinn Bonzi Wells sem lék með Sacramento Kings í NBA deildinni á síðustu leiktíð hefur gengið frá samningi við Houston Rockets. Wells var síðasta "stóra nafnið" á lista leikmanna sem voru með lausa samninga fyrir næsta tímabil, en samningur hans við Texas liðið er aðeins til tveggja ára og getur hann orðið laus allra mála eftir næsta tímabil. 28.9.2006 15:44
Nowitzki framlengir við Dallas Þýski stjörnuleikmaðurinn Dirk Nowitzki hefur framlengt samning sinn við NBA lið Dallas Mavericks til þriggja ára og fær fyrir það um 60 milljónir dollara samkvæmt heimildarmanni ESPN sjónvarpsstöðvarinnar. 27.9.2006 17:03
KFÍ fær atvinnuleyfi fyrir 2 leikmenn og þjálfara Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur fengið atvinnuleyfi fyrir tvo leikmenn og þjálfara frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu. Mennirnir koma frá Serbíu og Makedóníu en Vinnumálastofnun hafði áður synjað umsókn félagsins um atvinnuleyfi fyrir þá. 27.9.2006 14:00
Spike Lee leikstýrir auglýsingu fyrir Dwyane Wade Kvikmyndaleikstjórinn og körfuboltaáhugamaðurinn Spike Lee hefur nú lokið tökum á nýjustu auglýsingaherferð fyrir nýja Converse-skó sem Dwyane Wade hjá Miami Heat mun nota á næsta tímabili. Wade var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA í sumar þegar lið Miami vann meistaratitilinn. 26.9.2006 16:08
Fyrsti sigurinn Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik lék í gær síðasta leik sinn á þessu ári í B-deild Evrópukeppninnar. Leikið var gegn Írlandi og vann íslenska liðið 68-56 sigur. Þetta var fyrsti sigurleikur Íslands í keppninni en hún er nú hálfnuð. Seinni hluti hennar verður leikinn næsta haust en íslenska liðið komst upp í þriðja sætið í sínum riðli. 24.9.2006 10:30
Sigurhrina Bandaríkjamanna stöðvuð Kvennalið Bandaríkjanna fetaði í fótspor karlaliðsins í dag þegar liðið tapaði óvænt fyrir Rússum 75-68 í undanúrslitum á HM. Bandaríska liðið var tvöfaldur heimsmeistari og Ólympíumeistari fyrir leikinn og hafði liðið unnið 26 leiki í röð á HM, en síðasta tap þeirra var gegn Brasilíu á HM árið 1994. Það verða því lið Rússlands og Ástralíu sem leika til úrslita um helgina, en mótið fer fram í Brasilíu. 22.9.2006 14:30
Níels Dungal í Fjölni Bakvörðurinn Níels Páll Dungal hefur ákveðið að ganga í raðir Fjölnis í Iceland Express deild karla í körfubolta. Níels er 23 ára gamall og var lykilmaður hjá KR-ingum á síðustu leiktíð. Hann spilaði 26 mínútur að meðaltali í leik og skoraði um 9 stig að meðaltali. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjölnis. 20.9.2006 18:30
Stórt tap fyrir Austurríki Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir Austurríkismönnum ytra í B-deild Evrópumótsins í gærkvöldi, 85-64. Stóru mennirnir í Íslenska liðinu fóru allir útaf með fimm villur í leiknum og eftirleikurinn var heimamönnum auðveldur. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 14 stig, en þetta var þriðja tap liðsins í riðlinum í fjórum leikjum. 17.9.2006 13:06
Stórtap fyrir Norðmönnum Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir Norðmönnum 69-47 í leik liðanna í Evrópukeppinni sem fram fór í Keflavík í dag. Þetta var fyrsti heimaleikur landsliðsins í Evrópukeppni. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig, en næsti leikur þess verður við Íra í Keflavík eftir viku. 16.9.2006 17:33
Arenas ætlar að hefna sín á þjálfurum sínum Skorunarmaskínan Gilbert Arenas hjá Washington Wizards hugsar þjálfurum sínum hjá bandaríska landsliðinu nú þegjandi þörfina eftir að hann komst ekki í lokahópinn á HM í Japan á dögunum og ætlar að hefna sín rækilega á þeim þegar deildarkeppnin í NBA hefst síðar í haust. 14.9.2006 21:58
Ísland - Noregur á laugardaginn Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta spilar tímamótaleik í Keflavík klukkan 14 á laugardag þegar liðið tekur á móti Norðmönnum í fyrsta heimaleik sínum í Evrópukeppni. Hitaveita Suðurnesja ætlar að bjóða áhugasömum frítt á leikinn á laugardag. Íslenska liðið lék sinn fyrsta Evrópuleik gegn Hollendingum á dögunum og tapaði þá naumlega, en rétt er að hvetja sem flesta til að mæta í Sláturhúsið á laugardaginn til að styðja við bakið á stúlkunum. 14.9.2006 19:30
Jón Arnór fer ekki með til Austurríkis Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson getur ekki spilað með íslenska körfuboltalandsliðinu þegar það sækir Austurríkismenn heim á laugardag eftir að hann sneri sig illa á ökkla á upphafsmínútum leiksins gegn Lúxemburg í Keflavík í gærkvöld. Arnar Freyr Jónsson, leikmaður Keflavíkur, hefur verið valinn í landsliðshópinn í stað Jóns Arnórs, en þetta er vitanlega nokkuð áfall fyrir landsliðið sem þarf nauðsynlega á sigri að halda á laugardag til að eiga möguleika á sæti í A-deildinni. 14.9.2006 14:01
Ísland lagði Lúxemburg Íslenska A-landsliðið í körfubolta vann í kvöld sannfærandi 98-76 sigur á Lúxemburg í B-deild Evrópukeppninnar en leikið var í Keflavík. Íslenska liðið byrjaði af miklum krafti í kvöld og lét gott forskot sitt aldrei af hendi. 13.9.2006 22:00
Finnar lögðu Georgíu Finnar eru komnir í efsta sætið í C-riðli okkar Íslendingar í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik eftir góðan 91-81 sigur á Georgíumönnum á heimavelli nú síðdegis. Petri Virtanen skoraði 27 stig fyrir Finna og Teemu Rannikko 20, en Zaza Pachulia fór hamförum hjá Georgíu og skoraði 36 stig og hirti 13 fráköst. Finnar hafa því unnið sigur í öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, en Georgía hefur unnið þrjá af fjórum leikjum. 13.9.2006 17:08
Ísland - Lúxemburg í Keflavík í kvöld Íslenska landsliðið í körfuknattleik tekur á móti Lúxemburg í þriðja leik sínum í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Keflavík og hefst klukkan 20. Rétt er að skora á alla sem vettlingi geta valdið að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu, sem verður að vinna leikinn ef það ætlar að eiga möguleika á að komast í A-deildina. 13.9.2006 16:39
Tony Kukoc íhugar að hætta Króatíski framherjinn Tony Kukoc sem leikið hefur með Milwaukee Bucks undanfarin fjögur ár, segir að hann muni líklega leggja skóna á hilluna á næstu dögum eða vikum. Kukoc er 38 ára gamall og er líklega þekktastur fyrir að leika með gullaldarliði Chicago Bulls sem vann titilinn á árunum 1996-98. 13.9.2006 14:45
Við vinnum fyrir laununum okkar NFL-stjarnan Dhani Jones segir í einkaviðtali við Fréttablaðið að lífið í NFL-deildinni sé ekki bara gleði og glaumur. Ferillinn hefur tekið sinn toll af þessum 29 ára varnarmanni. 10.9.2006 09:30
Það vantar neistann Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers og bandaríska landsliðsins í körfubolta, segir að liðinu skorti neistann sem þarf til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi. Bandaríkin náðu aðeins 3. sæti á nýafstöðnu Heimsmeistaramóti og olli liðið miklum vonbrigðum. 9.9.2006 21:30
Ísland tapaði fyrir Georgíu Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Georgíu ytra í dag, 80-65. Þetta var annar leikur liðsins í undankeppni Evrópumótsins en á miðvikudaginn tapaði liðið fyrir Finnum í Laugardalshöllinni. 9.9.2006 19:43
Gasol frá keppni í fjóra mánuði Spænski framherjinn Paul Gasol verður á hliðarlínunni næstu fjóra mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri fæti. Þetta er mikið áfall fyrir lið Memphis Grizzlies í NBA þar sem Gasol er lykilmaður liðsins. 9.9.2006 12:09
Njarðvík spilar heimaleikina í Keflavík Sú skondna staða er komin upp að Njarðvík mun leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni á heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Körfuknattleikssamband Evrópu neitaði að samþykkja litlu ljónagryfjuna í Njarðvík sem völl fyrir Evrópukeppni og því varð Njarðvík að kyngja stoltinu og sætta sig við að spila hjá "stóra" bróður. 9.9.2006 06:45
Njarðvíkingar leika í Sláturhúsinu Njarðvíkingar fengu ekki leyfi hjá Körfuknattleikssambandi Evrópu til þess að leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni í vetur í ljónagryfjunni í Njarðvík. Þess í stað þurfa þeir að leika heimaleikina í Sláturhúsinu, heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á NFS í kvöld. 8.9.2006 19:07
Gary Payton framlengir við Miami Leikstjórnandinn Gary Payton hefur efnt loforð sitt frá því í vor og hefur nú framlengt samning sinn við NBA meistara Miami Heat um eitt ár. Payton fær aðeins rúma milljón dollara í árslaun fyrir samninginn og segist vilja vinna annan titil með liðinu áður en hann leggur skóna á hilluna. 7.9.2006 14:53
Við bara frusum eins og hvolpar Keppnismaðurinn Hlynur Bæringsson var afar ósáttur við tap íslenska landsliðsin í körfubolta gegn Finnum í B-deild Evrópukeppninnar í kvöld. Hann segir að þó vissulega sé finnska liðið sterkt, hafi íslenska liðið verið allt of lint í síðari hálfleiknum og því hafi Finnarnir gengið á lagið. 6.9.2006 23:30
Tap fyrir Finnum Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði fyrir Finnum í kvöld 93-86 í leik liðanna í B-deild Evrópumótsins. Íslenska liðið hafði forystu framan af leik og var 11 stigum yfir í hálfleik, en sterkt lið Finna með Hanno Mottola í fararbroddi, náði að komasti yfir og vann að lokum nokkuð öruggan sigur. 6.9.2006 22:31
Finnar yfir eftir þrjá leikhluta Finnar hafa komist yfir í Evrópuleiknum gegn Íslendingum í Laugardalshöllinni og hafa 71-67 forystu þegar fjórði og síðasti leikhlutinn er að hefjast. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig. 6.9.2006 21:59
Ísland yfir í hálfleik Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur yfir 57-46 gegn Finnum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig, Logi Gunnarsson er með 10 stig, Hlynur Bæringsson 9 stig og 7 fráköst og Páll Axel Vilbergsson hefur skorað 8 stig. Leikurinn er bráðfjörugur og spilast undir föstum takti Pumasveitarinnar frá Keflavík. 6.9.2006 21:26
Góð byrjun Íslendinga gegn Finnum Íslenska landsliðið í körfubolta byrjar vel gegn Finnum í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópukeppninnar. Ísland hefur yfir 31-21 eftir fyrsta leikhlutann, þar sem Brenton Birmingham hefur skorað 9 stig fyrir íslenska liðið og þeir Logi Gunnarsson go Páll Axl Vilbergsson 8 hvor. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll, þar sem trommusveit Keflvíkinga fer fremst í flokki við að hvetja íslenska liðið. 6.9.2006 21:05
Lokaútkall á Ísland - Finnland Rétt er að minna enn og aftur á landsleik Íslendinga og Finna í körfubolta sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 20:30 og hefst hann svo að segja um leið og leik Dana og Íslendinga í knattspyrnunni lýkur. Finnska liðið er mjög sterkt og því er rétt að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta í Höllina og styðja við bakið á íslensku strákunum. 6.9.2006 17:36
Lisa Leslie verðmætasti leikmaðurinn Lisa Leslie var á sunnudag valin verðmætasti leikmaðurinn í amerísku kvennadeildinni í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. Leslie leikur með Los Angeles Sparks og var þetta í þriðja sinn á ferlinum sem hún vinnur þessi verðlaun, en aðeins Sheryl Swoopes hjá Houston Comets hefur unnið verðlaunin jafn oft. Leslie skoraði 20 stig að meðaltali í leik í sumar og leiddi deildina í stigum og fráköstum. 6.9.2006 14:01
Ísland mætir Finnum annað kvöld Íslenska landsliðið í körfubolta leikur fyrsta leikinn í sínum riðli í í b-deild Evrópukeppninnar á morgun þegar liðið mætir Finnum. Finnska landsliðið kom til landsins í gær en liðið er mjög sterkt og er gríðarlega mikilvægt að Íslenska liðið fái góðan stuðning í Laugardalshöllinni annað kvöld. 5.9.2006 13:04
Fimm nýliðar í landsliðshóp Guðjóns Guðjón Skúlason landsliðsþjálfari hefur valið 16 manna hóp sem tekur þátt í Evrópumóti landsliða í Rotterdam um næstu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalandsliðið fer á Evrópumótið, en í hóp Guðjóns eru fimm nýliðar. 4.9.2006 21:04
Tveir Spánverjar í úrvalsliði HM Spánverjar áttu tvo leikmenn í úrvalsliði HM sem útnefnt var eftir úrslitaleikinn í gær. Þeir Pau Gasol og Jorge Garbajosa voru fulltrúar Spánar, en auk þeirra voru þeir Carmelo Anthony frá Bandaríkjunum, Manu Ginobili frá Argentínu og Theodoros Papaloukas frá Grikklandi í úrvalsliði keppninnar. 4.9.2006 17:37
Finnarnir að lenda Finnska landsliðið í körfuknattleik kemur hingað til lands í dag og hefur undirbúning sinn fyrir leikinn við Ísland í B-deild Evrópumótsins á miðvikudagskvöld. Finnar ætla sér góðan tíma í undirbúninginn og ætla sér sigur, en lögðu íslenska liðið á Norðurlandamótinu í haust. Þar var íslenska liðið ekki með nokkra af sínum bestu leikmönnum, en annað verður uppi á teningnum á miðvikudagskvöldið. 4.9.2006 16:17
Spánverjar heimsmeistarar Spánverjar tryggðu sér í dag heimsmeistarartitilinn í körfubolta með í fyrsta sinn með óvæntum stórsigri á Grikkjum í úrslitaleik 70-49. Spánverjar léku án síns besta manns, Pau Gasol, en það kom ekki að sök. Gasol meiddist í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu, en hann var kosinn maður mótsins eftir leikinn. 3.9.2006 14:39
Gasol spilar ekki úrslitaleikinn Spænski framherjinn Pau Gasol getur ekki spilað úrslitaleikinn á HM með liði Spánverja eftir að í ljós kom að hann er ristarbrotinn. Gasol hefur verið langbesti maður spænska liðsins á leið þess í úrslitaleikinn og er þetta því gríðarleg blóðtaka fyrir liðið. Hann hefur skorað að meðaltali rúm 21 stig og hirt yfir 9 fráköst. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun. 2.9.2006 13:28
Bandaríkjamenn hirtu bronsið Bandaríska landsliðið tryggði sér í dag bronsverðlaun á HM í körfubolta sem fram fer í Japan með öruggum sigri á Argentínumönnum 96-81. Dwyane Wade skoraði 32 stig fyrir Bandaríkjamenn, sem þurftu að gera sér þriðja sætið að góðu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum. 2.9.2006 13:18
Spánverjar í úrslit Það verða Spánverjar og Grikkir sem leika til úrslita á HM í körfubolta eftir að liðið vann nauman sigur á Ólympíumeisturum Argentínu í undanúrslitunum í dag 75-74. Leikurinn var í járnum allan tímann, en spænska liðið náði að landa naumum sigri á lokasekúndunum þrátt fyrir að vera án Pau Gasol sem meiddist á ökkla í lokin. 1.9.2006 13:00
Grikkir lögðu Bandaríkjamenn Evrópumeistarar Grikkja gerðu sér lítið fyrir og lögðu Bandaríkjamenn 101-95 á HM í körfubolta sem fram fer í Japan og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Bandaríkjamenn áttu ekkert svar við einföldum en árangursríkum sóknarleik gríska liðsins, sem nýtti 63% skota sinna í leiknum og því verða Bandaríkjamenn í besta falli að sætta sig við bronsverðlaun á mótinu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum. 1.9.2006 11:55